Morgunblaðið - 09.01.2001, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 C 19HeimiliFasteignir
Útreikn-
ingar
í nýju
greiðslu-
mati
GREIÐSLUMATIÐ sýnir há-
marksfjármögnunarmöguleika með
lánum Íbúðalánasjóðs miðað við eig-
ið fé og greiðslugetu umsækjenda.
Forritið gerir ráð fyrir að eignir að
viðbættum nýjum lánum s.s. lífeyr-
issjóðslánum eða bankalánum til
fjármögnunar útborgunar séu eigið
fé umsækjenda og séu 10, 30 eða
35% heildarkaupanna. Síðan eru há-
marksfjármögnunarmöguleikar hjá
Íbúðalánasjóði reiknaðir út miðað
við eigið fé, hámarksgreiðslugetu til
að greiða af íbúðalánum og vaxta-
bætur.
Útreikningur á greiðslugetu:
Heildartekjur
-skattar
-lífeyrissjóður og félagsgjöld
-framfærslukostnaður
-kostnaður við rekstur bifreiðar
-afborganir annarra lána
-kostnaður við rekstur fasteignar
=Ráðstöfunartekjur/hámarks-
geta til að greiða af íbúðalánum
Á greiðslumatsskýrslu kemur
fram hámarksgreiðslugeta umsækj-
enda til að greiða af íbúðalánum og
eigið fé umsækjenda. Þegar um-
sóknin kemur til Íbúðalánasjóðs
fylgir henni yfirlit yfir greiðslubyrði
af yfirteknum og nýjum lánum í
kauptilboði. Hámarksgreiðslugeta
skv. greiðslumatsskýrslunni er þá
borin saman við raun greiðslubyrði
á kauptilboði og eigið fé í greiðslu-
matsskýrslu borið saman við út-
borgun skv. kauptilboði. Eftir atvik-
um getur þurft að reikna
vaxtabætur m.v. raunverulegt kaup-
tilboð aftur þegar umsókn er skilað
til Íbúðalánasjóðs.
Verð eignarinnar og samsetning
fjármögnunar getur svo verið önnur
en gert er ráð fyrir í greiðslumati
eftir því hvaða mögulega skulda-
samsetningu hin keypta eign býður
upp á. Ekki er gert ráð fyrir að um-
sækjendur endurtaki greiðslumatið
ef aðrar fjármögnunarleiðir eru
farnar en gengið er út frá í greiðslu-
mati.
Tökum dæmi:
Umsækjandi sem er að kaupa
sína fyrstu eign gæti t.d. fengið
greiðslumat sem sýnir hámarksverð
til viðmiðunar 7.000.000 kr. miðað
við 2.100.000 í eigið fé og hámarks-
greiðslugeta hans væri 40.000 kr.
þegar allir kostnaðarliðir hafa verið
dregnir frá tekjunum.
Þessi umsækjandi gæti svo keypt
íbúð fyrir 8.000.000 án þess að fara í
nýtt greiðslumat ef forsendur hans
um eignir og greiðslugetu ganga
upp miðað við nýja lánasamsetn-
ingu.
Dæmi:
Kaupverð 8.000.000
Útborgun 2.080.000
Fasteignaveðbréf 5.600.000 (70%,
greiðslubyrði m.v. 25 ára lán =
33.000 á mánuði)
Bankalán 320.000 (greiðslubyrði
t.d. 10.000 á mánuði)
Það er ljóst ef kauptilboð, yfirlit
yfir greiðslubyrði yfirtekinna og
nýrra lána í kauptilboði og greiðslu-
matsskýrsla er borin saman án þess
að farið sé í nýtt greiðslumat að
þessi kaup eru innan ramma
greiðslumatsins þrátt fyrir að
stungið hafi verið upp á 7.000.000
íbúðarverði m.v. upphaflegar for-
sendur. Útborgunin er innan marka
eigin fjár hans og greiðslubyrði lán-
anna innan marka greiðslugetunnar.
Fyrsta greiðsla er að jafnaði tals-
vert hærri en síðari greiðslur, hún
er á þriðja reglulega gjalddaga frá
útgáfu fasteignaveðbréfsins (sé um
mánaðarlega gjalddaga að ræða) og
samanstendur af einnar mánaðar af-
borgun, vöxtum frá fyrsta vaxtadegi
(a.m.k. þrír mánuðir) og vísitölu frá
grunnvísitölumánuði (a.m.k. þrír
mánuðir).
Gjalddagar húsbréfalána Íbúða-
lánasjóðs geta verið mánaðarlega
eða ársfjórðungslega. Hægt er að
breyta gjalddögum lánanna eftir út-
gáfu þeirra.
ÞAÐ getur verið til bóta að hafa auka svefn-
pláss. Hér hefur slíkt verið innréttað á litlu ris-
lofti með aukaglugga. Svona loft eru gjarnan á
gólfsúlum.
Svefnloft undir risi
Hærra undir loft
MEÐ ÞVÍ að hafa sperrurnar opnar má hækka undir
loft þannig að súðin virðist ekki eins aðþrengjandi.
MAROKKÓLAMPINN er
úr leðri sem strengt er á
grind og málað með
henna-lit.
Marokkó-
lampinn
Í smíðum
Breiðavík - Grafarvogi Erum
með til sölu nokkrar mjög vandaðar 3ja
og 4ra herbergja íbúðir í litlu fjölbýli.
Skilast fullfrágengnar án gólfefna fljótlega
eftir áramót. Mjög vandaður frágangur.
Stærð íbúða er frá 94 fm upp í 134 fm.
Möguleiki að fá bílskúr. Verð frá 11,9 m.
Nánari upplýsingar hjá Smáranum fast-
eignamiðlun.
Parhús - Mosfellsbæ Parhús í
byggingu, hvor hluti er alls 206 fm. Til
greina kemur að selja báða hlutana. Ann-
að húsið afhendist fullbúið að utan, fok-
helt að innan, hugsanlega lengra komið,
lóð grófjöfnuð. Hitt húsið íbúðarhæft. Frá-
bært útsýni til allra átta, óbyggt svæði við
hliðina. Einstök staðsetning. Möguleiki á
tveimur íbúðum. Teikningar og nánari
upplýs. hjá Smáranum. Verð 13,5 m. fok-
helt. Til afhendingar með litlum fyrirvara.
Ársalir - Kópavogi Höfum til sölu
íbúðir í 7 hæða nýbyggingu. Íbúðirnar eru
þriggja og fjögurra herbergja og verður
þeim skilað fullfrágengnum án gólfefna.
Stærð íbúða er frá 85 upp í 116 fm og
verð 12,1-14,9 m. Öllum íbúðum fylgja
stæði í bílgeymslu.
Skálaheiði - Efri hæð Nýbygg-
ing á góðum stað, örstutt í skólann. Íbúð-
in er 103 fm og henni fylgir 30 fm bílskúr.
Afhendist tilbúin til innréttinga eða lengra
komin og fullbúin að utan um næstu ára-
mót. Verð 14,5 m.
Skálaheiði - Neðri sérhæð
Nýbygging á góðum stað, 144 fermetrar.
Sérinngangur. Afhendist um áramót full-
búin að utan og að innan tilbúin til inn-
réttinga. Möguleiki að fá afhent lengra
komið. Verð 15,5 m. Möguleiki á bílskúr.
Núpalind
Vorum að fá í sölu íbúðir í nýju 8
hæða lyftuhúsi við Núpalind í
Kópavogi. Íbúðirnar eru 2ja til 4ra
herbergja, stærð 77,4-177,1 fm.
Íbúðirnar skilast fullbúnar en án
gólfefna í jan.-feb. 2001. Möguleiki
á einkabílastæðum í bílgeymslu.
Nánari skilalýsing og teikningar hjá
Smáranum.
Holtagerði - Efri sérhæð Í
einkasölu mjög góð efri sérhæð í tvíbýli
ásamt bílskúr, samtals 133 fm, á mjög
góðum stað í vesturbæ Kópavogs. Sér-
inngangur og -bílskúr. Íbúðin er talsvert
endurnýjuð. Merbau-parket. Íbúðin er
laus í febrúar nk. Áhv. 4,5 m. Verð 14,8
m.
Eyrarholt - Hafnarfirði Efri sér-
hæð með risi ásamt bílskúr, samtals 220
fm. Endahús með sérinngangi. Eign sem
býður upp á mikla mögul. Íbúðin er laus,
lyklar og upplýsingar hjá Smáranum fast-
eignamiðlun. Áhv. 6,5 m. Tilboð óskast.
4ra til 7 herb.
Kirkjusandur - Rvík Fullbúin og
vönduð 90 fm 3-4 herbergja íbúð á jarð-
hæð í nýlegu húsi ásamt stæði í bíl-
geymslu. Hellulögð verönd. Allar innrétt-
ingar og innihurðir eru úr mahóní. Hús-
vörður. Innangengt í bílgeymslu. Áhv. 4,4
m. Verð 13,5 m.
Fífusel - Rvík Mjög góð og mikið
endurnýjuð fjögurra herbergja íbúð í
snyrtilegu fjölbýli. Parket og flísar á gólf-
um. Íbúðin er 104 fm og henni fylgir
stæði í bílgeymslu. Laus til afhendingar
vorið 2001. Góð eign. Verð 13,4 m.
Sléttahraun - Hafnarfirði Góð
94 fm íbúð á efstu hæð í fjölbýli. Húsið er
í góðu ástandi. Flísar á baðherbergi og
forstofu. Parket á stofu og herbergjum.
Áhv. hagstæð byggingasjóðslán 3,5 m.
Verð 10,3 m.
Veghús 31 - Rvík Í einkasölu
mjög góð og vel skipulögð 101 fm íbúð á
7. hæð í lyftuhúsi. Sérmerkt stæði í bíl-
geymslu. Glæsil. útsýni. Íbúðin er laus til
afhendingar strax. Áhv. 6,4. Verð 13,2 m.
Kleppsvegur Vorum að fá í sölu 94
fm íbúð á 4. hæð. Frábært útsýni. Þrjú
svefnherbergi í íbúð og aukaherb. í risi m.
aðg. að snyrtingu. Til greina koma skipti
á nýlegri íbúð. Áhv. 4,8 m. Verð 10,3 m.
Asparfell Góð 4-5 herbergja íbúð á
fimmtu hæð. Gott skipulag og falleg íbúð.
Parket á stofu og eldhúsi. Góðar geymsl-
ur, þvottahús á hæðinni. Áhv. 6,2 m. Verð
11,8 m.
3ja herb.
Engjasel - Rvík Góð 80 fm íbúð á
annarri hæð í fjölbýli. Íbúðinni fylgir stæði
í bílgeymslu. Parket á stofu, suðursvalir,
gott útsýni. Sérþvottahús. Íbúðin er laus,
til afhendingar strax. Lyklar og nánari
upplýsingar hjá Smáranum. Áhv. 6,7 m.
Verð 9,9 m.
Landsbyggðin
Hveragerði Vorum að fá í sölu gott
parhús á tveimur hæðum, samtals 190
fm með bílskúr. Blómaskáli, góður garður
með heitum potti. Mjög falleg eldhúsinn-
rétting með góðum tækjum. Áhv. 6,7.
Verð 11,9 m.
Atvinnuhúsnæði
Hlíðasmári Fullbúið og innréttað
verslunarhúsnæði á jarðhæð, 75 fermetr-
ar á góðum stað, beint á móti Smáralind.
Flísar á gólfi, góðir gluggar. Laust til af-
hendingar strax. Nánari upplýsingar hjá
Smáranum.
Eyjarslóð - Rvík Í einkasölu at-
vinnuhúsnæði á góðum stað, þrjú bil,
samtals 475 fm á jarðhæð og annarri
hæð. Jarðhæð 212 fm með innkeyrslu-
dyrum. Hugsanlegt að selja bil á efri hæð
sér. Gott verð. Laust til afhendingar strax.
Atvinnurekstur
Billiardstofa í fullum rekstri
Vorum að fá í sölu stóra og vinsæla billi-
ardstofu, 11 borð, besti tími ársins fram-
undan. Getur verið laus fljótlega. Nánari
upplýsingar hjá Smáranum.
Eignir óskast
Vegna mikillar sölu vantar allar gerðir eigna á
skrá. Við skoðum og verðmetum eignir sam-
dægurs ef óskað er. Hafið samband við okk-
ur ef þið eruð í söluhugleiðingum.
Sérbýli
Lindarsel Glæsilegt einbýlishús á
tveimur hæðum og með tvöföldum bíl-
skúr. Parket á flestum gólfum. Arinn í
stofu, heitur pottur í garði. Óbyggt svæði
bak við húsið. Gott útsýni. Til greina
koma skipti á minni eign, t.d. einbýli eða
raðhúsi á einni hæð.
Skógarhjalli Í einkasölu glæsilegt
parhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr,
samtals 222 fm. Vönduð gólfefni, flísar og
merbau-parket á gólfum. Glæsileg eld-
húsinnrétting úr rótarspóni. Áhv. 6,4 m.
Verð 23,9 m.
Hringbraut - Aukaíbúð Parhús
með aukaíbúð í kjallara. Stærri íbúðin er
um 115 fm á tveimur hæðum. Í kjallara er
aukaíbúð með sérinngangi, hentug til út-
leigu. Eign sem býður upp á mikla mögu-
leika. Áhv. húsbréf 5,3 m. Verð 16,5 m.
Álfhólsvegur Raðhús, tvær hæðir
og kjallari. Mjög vel viðhaldið hús. Stór
og góður bílskúr. Möguleiki á aukaíbúð í
kjallara. Fallegur og vel gróinn garður.
Verð 18,3 m.
Hæðir
Álfhólsvegur Höfum í einkasölu
mikið endurnýjaða neðri sérhæð í tvíbýli
ásamt bílskúr, samtals 175 fm. Mikið út-
sýni, óbyggt svæði fyrir aftan húsið. Áhv.
1,8 m. Verð 15,8 m.