Morgunblaðið - 09.01.2001, Síða 26
26 C ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
S
Ú MIKLA uppbygging, sem hófst í
Grafarholti austan Vesturlands-
vegar á síðasta ári, fer ekki
framhjá neinum sem ekur um
Vesturlandsveg. Vestursvæði Grafarholts
hefur þegar verið deiliskipulagt og þar er
búið að úthluta lóðum fyrir rúmlega 600
íbúðir. Þeim lóðum, sem eftir eru, verður
svo úthlutað bráðlega.
Mikil lóðaeftirspurn kallar sífellt á fleiri
lóðir og undirbúningur fyrir byggð á aust-
ursvæði Grafarholts er þegar kominn vel á
veg, en fyrir skömmu var lokið deiliskipu-
lagi á meginhluta svæðisins. Þar eru að
verki Kanon-arkitektar, en þeir hönnuðu
einnig hluta af vestursvæði Grafarholts.
Kynningu á þessu skipulagi er þegar lokið.
Á austursvæðinu er lögð áherzla á fjölbýli
og fremur þétta byggð. Aðalaðkoma er um
svonefnt Krosstorg, en að því liggja fjórar
götur. Jónsgeisli liggur til norðurs og tengir
hverfið við Reynisvatnsveg. Til austurs
myndar Gvendargeisli aðalumferðargötuna
inn í hverfið og teygir sig í átt að Reynis-
vatni.
Þorláksgeisli liggur svo til suðurs frá
Krosstorgi, en frá honum er aðkoma að
Leirdal, syðsta hluta austursvæðisins. Að
lokum tengist Krosstorg vesturhluta Graf-
arholts um Kristnibraut til vesturs. Auk að-
alaðkomu um Krosstorg er önnur aðkoma
austar á skipulagssvæðinu frá Reynisvatns-
vegi.
Miðsvæðis á austursvæðinu verða grunn-
skóli og leikskóli. Báðir skólarnir liggja að
megingötu hverfisins, Gvendargeisla. Við
þessa götu er ennfremur gert ráð fyrir lítilli
matvöruverzlun. Á svæðinu er nú þegar
gamall gróðurreitur, sem verður látinn
halda sér að mestu. Þar verður leikskólinn
og almenningsgarður. Við suðurenda Þor-
láksgeisla er gert ráð fyrir félagsaðstöðu.
Nálægt miðju austursvæðinu er fallegur
trjáræktarreitur með allháum trjám og set-
ur þessi reitur mikinn svip á umhverfið.
Reynt verður að aðlaga byggðina þessum
trjágróðri, og hann látinn halda sér eins og
frekast er unnt.
Í syðri hluta Leirdals er jarðvegsdýpt
mikil eða um og yfir þrír metrar og þar er
ekki gert ráð fyrir byggð. Í stað þess á að
vera þar opið svæði til sérstakra nota. Til
þess að það verði ekki of mikill akstur gegn-
um hverfið að Reynisvatni er komið inn í
hverfið á tveimur stöðum einmitt til þess að
létta á umferðarálaginu.
Sjö hundruð og
sjötíu íbúðir
Á skipulagssvæðinu verða alls 771 íbúð,
þar af 669 íbúðir í fjölbýli og 82 íbúðir í sér-
býli. Þetta verður því allstórt hverfi, en gera
má ráð fyrir að íbúarnir verði kringum
2.500, þegar hverfið er fullbyggt. Fjölbýlis-
íbúðirnar verða fjölbreytilegar að stærð og
gerð, en sérbýlisíbúðirnar skiptast í 45 íbúð-
ir í raðhúsum og 37 einbýlishús.
Ástæðurnar fyrir svo mörgum fjölbýlis-
íbúðum á svæðinu eru fleiri en ein. „Þarna
er verið að leita nýrra leiða í fjölbýli, en það
er samt verið að skipuleggja til langs tíma,“
segja þau hjá Kanon-arkitektum. „Svæðið er
áveðurs og þetta verður jaðarbyggð og ekki
gert ráð fyrir byggð fyrir austan hana.
Markmiðið er því m.a. að skapa skjólgóða
byggð og það verður bezt gert með sam-
felldri byggð.Við fengum ráð hjá Haraldi
Ólafssyni veðurfræðingi varðandi veðurfar á
svæðinu og unnum skipulagið talsvert með
hliðsjón af hans ráðleggingum.
Þegar litið er á svæðið í heild gerum við
ráð fyrir mjög fjölbreyttum íbúðargerðum,
bæði að því er varðar litlar og stórar íbúðir,
og að sérbýlið móti þær sem mest. Þetta
eiga að verða það góðar íbúðir, að fólk líti
ekki á þær sem stökkpall í annað og betra
heldur líti á þær sem varanlegan kost. Á
síðustu misserum höfum við orðið vör við
það, að sumir vilja fá stærri íbúðir en al-
gengast var fyrir nokkrum árum, ekki síður
í fjölbýli. Ásóknin í myndarlegar sérhæðir
hefur aukizt.“
Í norðurjaðri svæðisins verða hefðbundn-
ar stærðir af íbúðum. Staðsetning húsanna
er bundin gagnvart götu, en síðan hafa hús-
byggjendur meira frelsi inn á lóðina út frá
þessari byggingarlínu, sem er bindandi
gagnvart götu. Þar er treyst á skynsemi og
fagmennsku hönnuða.
Þarna er lögð áherzla á skjólmyndandi
byggð fyrir allt svæðið gagnvart norðaust-
anátt og þess vegna er gert ráð fyrir fjöl-
býlishúsakeðjum með brotnu horni á þessu
svæði til þess að brjóta niður vindstrenginn.
Þar fyrir sunnan koma vinkillaga fjöl-
býlishús, sem eru 3–5 hæðir og með rúm-
lega 20 íbúðum hvert. Vinkilformið gefur
skjólgóðar lóðir fyrir hvert hús.
Fyrir sunnan þessi hús koma svo stærstu
fjölbýlishúsin, annað með 40 íbúðum en hitt
með 50 íbúðum.
Þessi hús standa við Gvendargeisla, sem
verður aðalgata hverfisins og með mestum
íbúaþéttleika. Fyrir sunnan Gvendargeisla
verða lítil fjölbýlishús með möguleika á sér-
inngangi. Þau eiga að verða 3ja hæða með
15 íbúðum hvert.
Þar næst koma einbýlishús og raðhús.
Einbýlishúsin geta verið á einni til tveimur
hæðum, eftir því sem landhallinn býður upp
á. Raðhúsalóðirnar liggja fyrir austan ein-
býlishúsalóðinar og að grunnskólalóð.
Syðst í Leirdal kemur athyglisvert 3ja
hæða bogahús með um 60 íbúðum. Lögun
þess tekur mið af Leirdalnum, sem er einnig
Uppdráttur af skipulagssvæðinu. Nyrzt er keðja skjólmyndandi fjölbýlishúsa. Þar fyrir sunnan koma vinkillaga fjölbýlishús, sem eru 3–5 hæðir og með rúmlega 20 íbúðum hvert. Fyrir sunnan þau koma
stærstu fjölbýlishúsin, annað með 40 íbúðum en hitt með 50 íbúðum. Fyrir sunnan götuna Gvendargeisla verða lítil fjölbýlishús með möguleika á sérinngöngum og þar næst koma einbýlishús og rað-
hús. Syðst í Leirdal kemur 3ja hæða bogahús með um 60 íbúðum. Út frá því koma minni fjölbýlishús, sem mynda eins og geisla upp í brekkunum í Leirdalnum. Austast myndar röð 2ja hæða raðhúsa
útvörð byggðarinnar við Reynisvatn.
Lóðaúthlutun framundan
áaustursvæði Grafarholts
Fjölbýlishús við Gvendargeisla með um
fimmtíu íbúðum.
Syðst í Leirdal verður mjög athyglisvert boga-
hús með um 60 íbúðum. Lögun þess tekur mið
af Leirdalnum, sem er bogadreginn.
Í norðurjaðri svæðisins er lögð áherzla á skjól-
myndandi byggð gagnvart norðaustanátt. Þess
vegna er gert ráð fyrir fjölbýlishúsakeðjum með
brotnu horni til að brjóta niður vindstrenginn.
Fjölbýli mun setja svip á austursvæði Grafarholts. Magnús
Sigurðsson ræddi við Kanon-arkitekta, sem skipulögðu svæðið
og leggja áherzlu á þétta byggð þar og gott skjól.