Morgunblaðið - 09.01.2001, Side 31
anum borga allir sinn skerf af tjón-
inu, tjóni sem ekki þurfti að verða ef
þeir sem ábyrgðina báru hefðu ekki
sýnt vítavert kæruleysi í brunavörn-
um.
Hafðu augun hjá þér
Hvar sem þú vinnur og hvar sem
þú kemur skaltu hafa augun hjá þér.
Við erum ekki vön því að glápa upp í
loftið þegar inn er komið, finnst okk-
ur ekki koma við hvað þar er að sjá
enda ýmislegt áhugaverðara og nær-
tækara fyrir framan nefið.
En það sem sést upp í loftinu og
ekki síður það sem ekki sést þar,
gefur miklar upplýsingar.
Tökum dæmi, segjum að þú komir
í einhverjar af verslununum í Smár-
anum í Kópavogi, hvort sem það er
Hagkaup, Rúmfatalagerinn eða
Elkó. Vissulega er það margt að sjá,
en gefðu þér samt örlítinn tíma til að
kíkja upp í loftið og hvað sérðu þá?
Rör sem liggja þvers og kruss í
loftinu og þar sem þau enda er
skrýtið stykki, hér erum við að horfa
á eina mögnuðustu brunavörn sem
völ er á, vatnsúðakerfi, á slang-
urmáli kallað sprinkler.
Það sem gerist ef eldur verður
laus í þessum fyrirtækjum í Smár-
anum er að þegar ákveðnu hitastigi
er náð við loftið opnast „skrýtnu“
stykkin í loftinu og dreifa hárfínum
vatnsúða, sem er versti óvinur elds-
ins.
Að sjálfsögðu getur orðið tals-
ÁUNDANFÖRNUM árumhafa orðið fjölmargir hrika-legir eldsvoðar hérlendis þar
sem milljarða króna verðmæti hafa
orðið að lofti á svipstundu í bók-
staflegri merkingu því að við bruna
breytist fast efni í loft.
Heilt bæjarfélag, Vestmanna-
eyjar, er í sárum eftir að stærsti
vinnustaður eyjanna lagðist í rúst á
einni nóttu í ógnar eldhafi, en því
miður er þetta ekkert einsdæmi ef
litið er yfir farinn veg. Þótt ekki liggi
hér á borði óyggjandi tölulegar stað-
reyndir er samt hægt að segja að á
liðnum áratugum hefur enginn at-
vinnugrein sem fiskvinnslan orðið
fyrir jafn miklu brunatjóni.
En eru það aðeins fyrirtækið og
starfsmenn þess, tryggingarfélagið
og sveitarfélagið sem verða fyrir
tjóni þegar fiskvinnsluver brennur
að miklu leyti og allur rekstur stöðv-
ast?
Nei, aldeilis ekki, það verða allir
fyrir tjóni nákvæmlega eins og þeg-
ar hrikalegt umferðaslys verður. All-
ir sem eiga fasteignir hafa þær
brunatryggðar, enda lögboðið. Því
fleiri bruna, sem þarf að bæta, því
hærri iðgjöld fyrir hvern og einn.
Þess vegna kemur öllum það við ef
milljarðar gufa upp í loftið, það er
ekkert einkamál eiganda viðkom-
andi fyrirtækis eða fasteignar. Þó að
slíkt sé auðvitað mikið áfall fyrir við-
komandi þá er kominn tími til að tala
um þessi mál af fullkominni hrein-
skilni.
Slóðaskapur í brunavörnum er
ekkert feimnismál, sem helst ekki á
að tala um af hlífð við þá sem hafa
horft upp á fyrirtæki sín gufa upp í
loftið í snarkandi eldi.
Þetta kemur öllum við því á end-
verður skaði vegna vatns ef þetta
gerist, aðallega á vörum, en mikil lík-
indi til að þetta slökkvi þá elda sem
kviknað hafa án þess að byggingin
skemmist og þá er miklu bjargað.
Það er kominn tími til að hver og
einn sé á verði gagnvart sínu nán-
asta umhverfi, hvort sem er heima
eða á vinnustað og fylgist með því
hvernig brunavörnum er háttað og
þar kemur fleira til greina en vatns-
kerfi eins og að framan hefur verið
lýst.
Brunahólf eru mjög mikilvæg í
stærri fasteignum og ekki síður er
nauðsynlegt ef farið er með lagnir úr
einu brunahólfi í annað, hvort sem
það eru vatns-, rafmagns- eða fjar-
skiptalagnir, að ábyrgt sé gengið frá
þar sem þau fara í gegnum veggi.
Þetta er gert með sérstöku efni
sem ekki brennur heldur þenst út
við hita og lokar hugsanlegum gluf-
um umhverfis leiðslur, þar gæti eld-
ur sogast í gegn ef ekkert stöðvaði
hann.
Tjón af völdum eldsvoða snertir
alla, þess vegna þurfa allir að vera á
verði og eiga ekki að hika við að
benda réttum yfirvöldum á misfellur
í brunavörnum sem þeir verða varir
við.
Það er einnig athugandi hvort
ekki eigi að taka upp kynningu á
brunavörnum og hrikalegum afleið-
ingum eldsvoða strax í grunn-
skólum, það þarf hver og einn að
vera þess umkominn að meta sitt
nánasta umhverfi, hvernig það er í
stakk búið til að verjast eldi.
Og umfram allt, hættum að ræða
um eldsvoða sem eitthvert feimn-
ismál af hlífð við einhverja trassa
sem eiga um sárt að binda vegna
stórskaða af völdum elds.
Eldsvoðana verður að stöðva
Lagnafréttir
eftir Sigurð Grétar Guðmundsson
pípulagningameistara/
sigg@simnet.is
Morgunblaðið/Ásdís
Tjón af völdum eldsvoða snertir alla. Þess vegna þurfa allir að vera á verði.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 C 31HeimiliFasteignir
Auðbrekka - fráb. útsýni Mjög gott
713 fm iðnaðar- og lagerhúsn. Nýl. hús, álklætt
að utan. Góð lofth. Innkeyrsludyr. Lóð malb.
Hagst. verð, góð áhv. lán. 4966
Miðbær - Hafnarfjörður - til
sölu eða leigu Fjórar stórglæsil. hæðir í
turninum í miðbæ Hf. (lyftuh.). 6. h. 362.2 fm
og 5. h. 365 fm er fullb. skrifstofuhúsn. í algj.
sérfl. 4. h. 374 fm og 3. h. 376 fm, tilb. til inn-
rétt. Fráb. staðsetn. og útsýni. Hagst. lán. V.
tilboð.
Við Hlíðasmára Á góðum stað til sölu
eða leigu ca 400 fm björt verslhæð á einum
besta stað í Smáranum (í sama húsi og Spari-
sjóður Kóp.). Upplýs. á skrifstofu.
Bæjarlind - í sölu eða til leigu. Stór-
glæsil. ca 400 fm verslunarhúsn. Tvö sjálfst.
bil, 150 og 250 fm m. sameign sem er ca 30
fm. Hluti í leigu. Áhv. 36 m. 3994
Hlíðasmári 1 og 3 - nýbygg. Á
einum besta stað í Smáranum 8000 fm mjög
vandað fimm hæða verslunar- og skrifstofu-
húsn. m. lyftu. Um er að ræða Hlíðasm. 1 ca
3700 fm og Hlíðasm. 3 ca 4400 fm ásamt
tengingu milli húsa. Grunnflötur hæða frá 450
til 1150 fm. Mjög góð aðkoma. 260 bílastæði.
Eignin afh. fullb. að utan, sameign fullb. að
innan sem og utan. Lóð fullb. og malbikuð
bílastæði. Byggingaraðili Byggir ehf.
Lauganesv. Rvík - 188,6 fm
Mjög rúmg. verslunar- og þjónusturými á góð-
um stað í austurborginni. Býður uppá mikla
mögul., t.d. að breyta í íb. Gott fmverð aðeins
60 þ pr. fm.
Vantar strax - Laugav. eða
nágr. Leitum fyrir traustan kaupanda eða
leigutaka að ca 150-200 fm húsn. á 2. hæð
eða ofar í lyftuh.
Fossaleynir - 2116 fm Skrifstofu-,
verslunar- og lagerhúsn. Góð lofthæð. Afh. í
febrúar 2001. 4612
Laugavegur - nýtt verslunar-
húsn. Á fráb. stað 3 verslunarpl. sem eru
143 fm, 245 fm og 455 fm. Húsn. afh. í mars.
St. í lokaðri bílageymslu í kj. Fráb. mögul. fyrir
verslanir eða fyrirtæki. Í húsinu eru einnig til
sölu 3 glæsil. „penthouse“-íb. og 2 ca 70 fm
2ja herb. sem skilast tilb. til innrétt. Lyfta í hús-
inu. Teikn. á skrifst.
Miðhraun Garðabæ - nýtt á
skrá - í byggingu ca 3.100 fm
Húsið skiptist í fimm 500 fm einingar, sem eru
jafnvel skiptanlegar í 4 smærri hluti, hver m.
innk.hurð. Síðan tvær 310 fm einingar, sem
hægt er að skipta í tvennt. Verð frá 70 þús pr.
fm Góð staðsetning - einstakt tækifæri fyr-
ir stærri sem smærri fyrirt. m. heildarlausn í
húsnæðismálum í huga. 4971
Völuteigur - Mos. - 1500 fm á
fráb. verði. Í einkasölu sem má skipta í
250 fm bil. Góð aðkoma. Bílast. malbikuð,
grófj. lóð. Gott verð. V. pr.fm 72 þús. Góðar
innkeyrsluhurðir 3,66 m á hæð.
Síðumúli - Alls 815 fm. þ.e. 182 fm skrif-
stofuhúsn. á 2. hæð og 634 fm lager/þjónustu-
húsn. Góð aðkoma. Glæsileg eign sem búið er
að klæða að utan. góð áhv. lán.
Hlíðasmári Kóp. - til leigu ca
150 fm Fullb. rúmgott, vel skipulagt skrif-
stofu og verslunarpláss. Hentar fyrir smærri fy-
irtæki. t.d. heildsölu, tölvu- og hugbúnaðar-
fyrirtæki. Uppl. á skrifst.
Sölustjóri atvinnuhúsn. er Magnús Gunnarsson
gsm 899 9271
Kirkjusandur - vönduð eign Nýl. og
falleg 90 fm íb. á 1. h. m. stæði í bílskýli. Falleg-
ar innrétt. og gólfefni. Seljandi óskar eftir skipt-
um á minni eign. V. 13,6 m. Áhv. 4,0 m. 4211
Austurbær Kópavogs - sérinng.
- nýl. viðg. hús Góð 86 fm íb. á 3. h. í nýl.
viðg. fallegu fráb. staðs. fjölb. Fallegt útsýni.
Áhv. 3,9 m. V. tilboð. 4678
Snorrabr. - við Grettisgötu - laus
Falleg 3ja herb. íb. m. mögul. á aukaherb. í kj. á
1 hæð. Húsið er við Grettisgötu. Suðursv. V. 8,8
m. 3083
Laugarneshverfi Í einkasölu stórglæsil.
risíb. Íbúðin er vel hönnuð og skipul., býður upp
á góða nýtingu og er einstaklega skemmtil. Inn-
rétt. í sérfl. Suðursv. V. 12,7 m. Áhv. 3,2 m. byg-
gsj. 4822
Austurströnd - bílskýli Falleg 50 fm
íbúð með glæsilegu útsýni. Parket og flísar.
Góð samegin og gott aðgengi í alla þjónustu.
V. 8,7 m. Áhv. 4,7 m. 4227
Hjallavegur - laus strax Falleg íbúð
á efri hæð (risi). Nýl. eldhús. Gott baðherb. 2.
góð svefnherb. Sérinng. Glæsil. útsýni. Íb. er
laus strax. V. 8,9 m. eða tilboð. 4697
Garðabær - ný 2ja herb. íb. 80 fm
íb. á jarðh. m. sérinng. Afh. fullfrág. m. vönd.
innrétt. en án gólfefna. Flísal. baðherb. Fráb.
staðsetning. Verð 10.850.000. 9502
Miðbærinn Björt, opin og falleg 67 fm út-
sýnisíbúð á efstu hæð í hjarta miðbæjarins.
Íbúðin er öll í suður. Góðar suðursvalir. Laus
fljótlega. V. 7,9 m. Áhv. 5,7 m. 4215
Hraunbær - ekkert greiðslumat Í
einkasölu rúmg. 68 fm íb. á 1. hæð. Suðv.svalir.
Örstutt í mjög góða þjónustu. Áhv. 4,0 m. byg-
gsj. + lífsj. V. 7,9 m. 4661
Tryggvagata - lyftuhús - laus
fljótlega Falleg, björt og mikið endurbætt íb.
á 2. h. í góðu lyftuh. Parket á gólfi. Flísal. bað-
herb.. Suðursv. Útsýni yfir höfnina. V. 8,2 m.
Áhv. 4,5 m. byggsj. 3845
Skipasund- sérinng. Falleg og vel
skipulögð 50 fm íb. Parket og flísar, góður garð-
ur, Rólegt og gott hverfi. Laus strax. V. 6,9 m.
Áhv. 4,7 m. 4216
Við Reykjavíkurtjörn. Ágæt ósamþ.
45 fm íb. í kj. / jarðh. á ról. stað. 2 góð herb.
Þarfnast einhv. standsetn. Skuldl. Laus strax. V.
3,9 m. 4993
Lautasmári- lyftuhús. Glæsil. 71 fm
íb. á 1. h. í lyftuh. Afgirt sólarverönd, sérgarður.
Fallegar innréttingar og gólfefni. V. 9,9 m. Áhv.
4,7m. 4225
Álftanes - HJÁ fasteignasölunni
Hraunhamar er nú í einkasölu ein-
býlishús á einni hæð á Sjávargötu
18. Þetta er steinhús, mjög vel
byggt og 131 fermetri að flatarmáli,
auk þess er 35 fermetra, góður bíl-
skúr.
„Þetta er mjög vel skipulagt hús
og í toppstandi, fullbúið,“ sagði Þor-
björn Helgi hjá Hraunhamri. „Húsið
skiptist í inngang, hol, stofu, eldhús
og þrjú stór og góð svefnherbergi
ásamt góðu sjónvarpsholi. Útgangur
er úr þvottahúsi í garð og baðher-
bergi er með baðkari og sturtuklefa.
Bílskúrinn er stór með góðri loft-
hæð. Þetta er þægileg stærð á húsi
sem er vel nýtt hvað pláss snertir og
stendur á góðri útsýnislóð. Sjávar-
gatan er vestast á Nesinu og stutt í
skemmtilegt útivistarsvæði.
Allt umhverfi er þarna afar hent-
ugt fyrir útivistarfólk. Álftanesið er
í mikilli uppbyggingu og þar er
mjög vel staðið að öllum æskulýðs-
og skólamálum. Ásett verð er 18,5
millj. kr.“
Sjávargata 18 er steinhús á einni hæð, 131 ferm. að stærð auk 35 ferm. bílskúrs. Ásett verð er 18,5 millj. kr.
Sjávargata 18