Morgunblaðið - 09.01.2001, Síða 42
42 C ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
Opið frá kl. 9–18
Sverrir Kristjánsson
lögg. fasteignasali
Þór Þorgeirsson
sölumaður
Brynjar Fransson
skjalagerð
Steinbergur
Finnbogason
sölumaður
Erla Waage
ritari
Atvinnuhúsnæði
Símar 575 8509 og 575 8504
Sverrir Kristjánsson 575 8501
LAUGARÁSVEGUR
Einbýli á 3 hæðum, sem er timburhús á þessum eft-
irsótta stað, er til sölu hjá okkur. Skiptist í jarð-
hæð=76,7 fm. 1. hæð=93,3 fm. Ris=48,2 og bíl-
skúr=38 fm. Samtals 256,2 fm. Suðvesturverönd og
gróinn garður sem snýr að Laugardalnum. Lóðin er
837 fm. Verð 24,5 millj. Áhv. 7,3 millj.
DALSBYGGÐ - GARÐABÆ
Glæsilegt og vel byggt 330 fm einbýlishús sem
stendur innst í botnlanga við friðsæla götu. Tvöfald-
ur bílskúr, 4 svefnherb., vel gróin lóð, samstæður
svipur á innréttingum og hurðum og auka-íbúð í
kjallara. Áhv. 15,9 millj. Verð 32,0 millj.
HJALLABREKKA 3-4 herb. neðri sérhæð á góðum
stað í Kópavogi. Íbúðin er 79,4 fm en að auki f. 25
fm ónýtt rými. Áhv. 5,6 millj. Verð 9,9 millj.
TRÖNUHÓLAR Góð 3ja herb. íbúð, neðri sérhæð í
einbýli, samtals 124 fm, þar af bílskúr 20 fm. Park-
et, flísar og teppi á gólfum. Tengi f. þvottavél á bað-
herb. Verð 12,5 millj.
REYRENGI - GRAFARVOGI Falleg 4ra herb. 104
fm íbúð á 3. hæð í fjölbýli ásamt stæði í bílgeymslu.
Íbúðin er m.a. rúmgóð stofa með vestursvölum út
af, þrjú svefnherb., fallegt eldhús, baðherbergi o.fl.
Þvottaaðstaða í íbúð. Sérinngangur af svölum. Verð
11,9 millj. Áhv. 6,4 millj.
KÓPAVOGUR - ÚTSÝNI 5 herb. 124 fm sérhæð
á 2. hæð í þríbýlishúsi ásamt 32 fm bílskúr sem er
með 16 fm rými undir bílskúr. Íbúðin er í dag inn-
r. sem mjög rúmgóð 2ja herb. íbúð og snyrtistofa
en lítið mál er að breyta henni í fyrra horf. Glæsi-
legt útsýni. Tvennar svalir. Verð 16,9 millj.
KAUPENDAÞJÓNUSTAN - Ef við höfum ekki réttu eignina,
hringdu þá í okkur og við finnum hana fyrir þig
VANTAR ALLAR TEGUNDIR HÚSNÆÐIS Á SÖLUSKRÁ SKOÐUM SAMDÆGURS. EKKERT SKOÐUNARGJALD
ÞVERHOLT - MOSF. Mjög góð íbúð á besta stað
í Mos. Íbúðin er á tveim hæðum og eru 3 svefnher-
bergi og tvær stofur. Suðursvalir með miklu útsýni.
115 fm. Verð 11,9 millj.
FÍFULIND Falleg 130 fm íbúð á tveimur hæðum.
Parket og flísar á gólfum, fallegar innrétt., suðursv.
og bílskúrsréttur. Áhv. 8,7 millj. Verð 14,7 millj.
BARÐASTAÐIR
Glæsileg 111 fm 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í nýju
fjölbýli. Gegnheilt eikarparket á gólfum, glæsilegt
eldhús. Mikið útsýni, suðvestursvalir. Þetta er íbúð
fyrir þá sem vilja hafa gott útsýni, getað gengið út á
golfvöll og eða fengið sér göngutúr í óspilltri náttúr-
unni. Áhv. ca 7,5 millj. Verð 13,9 millj.
BOÐAGRANDI - LYFTUHÚS 3ja herb. 73 fm íbúð
á 4. hæð í lyftuhúsi. Íbúðin er m.a. stofa með suð-
ursv., eldhús, tvö svefnherb., bað o.fl. Húsvörður í
húsinu. Verð 10,9 millj.
HRÍSRIMI - BÍLGEYMSLA Góð 3ja-4ra herb.
95,2 fm íbúð í vel viðhöldnu fjölbýli með stæði í bíl-
geymslu. Parket og flísar á gólfum, tvö svefnh. og
mögul. á því þriðja. Áhv. 8,0 millj. Verð 11,5 millj.
EFSTASUND Góð 3ja herbergja 90,30 fm kjal-
laraíbúð sem hefur verið mikið endurnýjuð, parket
á gólfum, nýtt baðherbergi, nýlegt eldhús o.fl.
Verð 10,5 m.
BOÐAGRANDI - LYFTUHÚS 4ra herb. íbúð á 4.
hæð í lyftuhúsi ásamt stæði í bílgeymslu. Sér-inn-
gangur af svölum. Íbúðin er m.a. stofa með rúm-
góðum vestursvölum út af, þrjú svefnherb., vand-
að eldhús með nýlegri sérmíðaðri innréttingu og
baðherb. Mikið útsýni. Húsvörður. Verð 13,9 millj.
Þessi eign fæst eingöngu í skiptum fyrir sérhæð,
rað-, par- eða einbýlishús, helst í Vesturbæ.
HAGAMELUR Falleg 107 fm íbúð, aðeins niður-
grafin á góðum stað í Vesturbænum. 3 svefnh.,
stór parketlögð stofa og fataherbergi. Eign í góðu
ástandi. Áhv. 5,4 millj. Verð 12,9 millj.
SÓLARSALIR - KÓP. 4ra til 5 herb. íbúðir í
glæsilegu fimm íbúða húsi með tveim innbyggð-
um bílskúrum. Í húsinu er ein 4ra herb. 125,10 fm
íbúð og fjórar 5 herb. 137,20 fm íbúðir með 4
svefnherbergjum. Verð á 4ra herb. íbúðinni er kr.
15,3 millj. en verð á 5 herb. íbúðunum er frá kr.
16,4 millj. Teikn. og skilalýsing á skrifstofu.
REYKJAVÍK - AKUREYRI Hæð - par- eða raðhús
á Akureyri óskast helst í skiptum (ekki skilyrði) fyrir
íbúð á Meistaravöllum í Vesturbæ Reykjavíkur sem
er 79,9 fm að stærð og er 3ja herb. Áhv. 4,4 millj.
Verð 10,5 millj.
ÞVERHOLT - MOSF. Mjög góð 115 fm íbúð á 2
hæðum. Mikið útsýni og vandaðar innréttingar. Verð
12,3 millj.
HAMRAHLÍÐ Vorum að fá í sölu góða 72,6 fm lít-
ið niðurgrafna íbúð sem hefur öll verið tekin í gegn
síðustu þrjú árin. Áhv. 3 millj. í góðum lánum. Verð
10,3 millj.
LAUGAVEGUR - GLÆSIÍBÚÐIR
Rúmgóðar 2ja herb. glæsiíbúðir á tveim hæðum á 4.
hæð og í risi með suðursvölum í þessu glæsilega
lyftuhúsi sem er í byggingu. Íbúðunum verður skil-
að tilbúnum til innréttinga að innan. Möguleiki að fá
keypt stæði í bílgeymslu.
SKÚLAGATA - LYFTUHÚS
128 fm glæsiíbúð á 4. hæð í lyftuhúsi með mikilli
lofthæð. Háar hurðir og tvennar svalir. Nú er hver að
verða síðastur að tryggja sér eign í þessu húsi.
Íbúðin er tilbúin til afhendingar. Verð 14,9 millj.
HÓLMATÚN - ÁLFTANES Fallegt 198,7 fm par-
hús sem skiptist þannig að á neðri hæð eru 128
fm + 31,5 fm bílskúr og á efri hæð eru 39 fm. Hús-
ið afhendist fokhelt og er til afhendingar strax.
Verð 12,2 millj.
NÚPALIND Erum með til sölu fallegar 2ja, 3ja og
4ra herb. íbúðir í átta hæða lyftuhúsi með bíl-
geymslu. Íbúðunum verður skilað í mars 2001,
fullbúnum en á gólfefna. Verð frá 10,8 millj.
Brynjar Baldursson
sölumaður
Örn Helgason
sölumaður
Guðmundur Þórsson
sölumaður
Sími 575 8500 • Fax 575 8505
Síðumúla 11 • 2. hæð • 108 Reykjavík
Veffang: www.fasteignamidlun.is
Netfang: brynjar@fasteignamidlun.is
MIÐSVÆÐIS - VERSL/SKRIFSTOFUR
Til sölu ca 1.800 fm húseign á mjög góðum stað.
Húsið gefur mikla möguleika til stækkunar.
FAXAFEN Til sölu eða leigu allt að 1.502 fm efri
hæð sem býður upp á mikla möguleika, góð loft-
hæð og gluggar á 3 hliðum. Verslunarhúsnæði á
jarðhæð getur fylgt með í kaupunum.
HAFNARFJÖRÐUR Vorum að fá í sölu 484,4 fm
atvinnuhúsnæði ásamt mögulegum byggingar-
rétti. Húsnæðið er með góðri lofthæð og inn-
keyrslud. Teikningar á skrifstofu. Verð 39,5 millj.
SÖLUTURN - GÓÐ VELTA Vorum að fá í sölu
ágætis söluturn með góðri veltu í eigin húsnæði
vel staðsettan við Iðnskólann í Reykjavík. Verð
12,5 millj.
ÞVERHOLT Til sölu ca 2x300 fm iðnaðarhúsn. á
2 hæðum ásamt byggingarrétti f. 300 fm jarðh.
Góð lofth. Burður á 2. hæð ca 1.000 kg á fm. Eign
í þokkal. ástandi og laus nú þegar. Stigahús er
þannig að hvor hæð getur verið sjálfstæð eining.
Húsið hentar mjög vel sem skrifst.húsnæði.
BÆJARHRAUN - HF.
Í einkasölu 228 fm húsnæði á 2. hæð sem er inn-
réttað sem matreiðsluskóli. Glæsilegt húsnæði
með góðum innréttingum og tækjum. Í húsnæð-
inu eru m.a. tvö sýnikennslueldhús, setustofa,
skrifstofa, fundarherbergi o.fl. Teikningar á skrif-
stofu. Verð 19,5 millj.
MIÐSVÆÐIS - STÓR EIGN
Til sölu eða leigu ca 7.000 fm eign í stærri eða
smærri einingum. Eign sem gefur stórkostlega
möguleika sem verslunar- og skrifstofuhúsnæði.
Uppl. aðeins á skrifst.
SMIÐSHÖFÐI Vorum að fá í sölu 400 fm hús-
næði með innkeyrsludyrum, skrifstofu og stóru
afgirtu ca 400 fm porti sem er malbikað og
upphitað. Góð aðkoma. Þessi eign getur hent-
að undir margvíslega starfsemi. Verð 24,8
millj. Góð greiðslukjör.
SÓLARSALIR - KÓP.
4ra til 5 herb. íbúðir í glæsilegu fimm íbúða húsi með tveim innbyg-
gðum bílskúrum. Í húsinu er ein 4ra herb. 125,10 fm íbúð og fjórar 5
herb. 137,20 fm íbúðir með 4 svefnherbergjum. Verð á 4ra herb. íbúðin-
ni er kr. 15,3 m. en verð á 5 herb. íbúðunum er frá kr. 16,4 m. Teikn. og
skilalýsing á skrifstofu.
ÉG hef að undanförnu veltfyrir mér hvort ekki sétímabært að stjórnvöldkomi málefnum bygging-
ariðnaðarins undir einn hatt. Eins
og nú er háttað heyra þau bæði
undir iðnaðarráðuneyti og umhverf-
isráðuneyti en auk þeirra koma
aðrir aðilar við sögu greinarinnar
svo sem Rannsóknastofnun bygg-
ingariðnaðarins og Staðlaráð.
Þetta fyrirkomulag gerir öllum
sem vinna í byggingariðnaðinn
ákafleg erfitt fyrir. Ég tel löngu
tímabært að koma þessum málum í
viðunandi horf enda er bygging-
ariðnaðurinn ein stærsta atvinnu-
greinin hér á landi
Eins og fram kom í grein eftir
Þóru Kristínu Jónsdóttur í 12. tbl.
Íslensks iðnaðar hafa bygginga-
fulltrúar túlkað byggingareglugerð
með ýmsum hætti en það á að
nokkru leyti rætur að rekja til
þeirra aðstæðna sem þeir þurfa að
búa við en svo virðist sem sam-
ræmdar vinnureglur séu ekki fyrir
hendi og ráða þarf bót á því sem
allra fyrst.
Sökin er e.t.v. líka að einhverju
leyti byggingafulltrúanna sjálfra
þar eð þeir virðast ekki hafa sam-
ræmt störf sín. Þetta ástand er
með öllu óviðunandi fyrir þá sem
eiga að starfa eftir lögum og
reglum og ekki síst nú þegar lands-
löggilding hefur verið innleidd og
byggingaraðilar geta unnið hvar
sem er á landinu.
Svo er að sjá sem sumir bygg-
ingafulltrúar telji sig vera yfir aðra
hafnir og geti túlkað lög og reglu-
gerðir að eigin geðþótta. Til að
mynda hafa húsbyggjendur kvartað
undan því að fá verk sín seint og
illa tekin út í Reykjavík. Þeir hafa
þó ekki treyst sér til að tjá sig op-
inberlega af ótta við að bygginga-
fulltrúinn í Reykjavík geri þeim líf-
ið leitt fyrir vikið.
Sé þetta raunin er það ekki sá
vinnuandi eða vinnuumhverfi sem
menn eiga að búa við.
Af þessu má sjá að full þörf er á
að stjórnvöld láti til sín taka og
komi málefnum byggingariðnaðar-
ins undir eitt ráðuneyti. Ég legg
eindregið til að byggingamálin
verði alfarið á könnu iðnaðar-
áðuneytisins.
Þann tíma sem ég hef starfað hjá
Samtökum iðnaðarins hef ég ekki
orðið þess var að umhverfisráðu-
neytið hafi mikinn áhuga á mál-
efnum byggingariðnaðarins. Það
myndi auðvelda mjög þeim sem
starfa í greininni að þurfa aðeins
að leita til eins ráðuneytis með mál
sem varða lög, reglur, staðla og
vottanir en allt þetta gæti verið í
betra horfi en nú er raunin.
Enginn virðist t.d. vilja taka
ábyrgð á að koma á vinnureglum
fyrir Rb um vottunarferli fyrir
lagnaefni. Úr slíku máli gæti t.d.
byggingadeild innan iðnaðarráðu-
neytis leyst. Hún gæti sömuleiðis
skorið úr um ágreiningsmál vegna
mistúlkana byggingafulltrúa, a.m.k.
um þau mál sem ekki þyrfti að vísa
til dómstóla. Varðandi mismunandi
túlkun byggingafulltrúa á bygg-
ingareglugerð veit ég ekki betur en
sömu lög gildi um þau efni hvar
sem er á landinu.
Það er síst til að bæta ástandið í
þessum efnum að nú eigum við að
vinna eftir hinum margvíslegu
stöðlum sem flæða frá Evrópusam-
bandinu hingað til lands. Eins og
alkunna er hafa stjórnvöld lýst því
yfir að við séum ekki á leið inn í
Evrópusam- bandið en það breytir
ekki því að við verðum að vinna
eftir þeim reglum sem þar hafa
verið settar.
Staðlarnir eru hins vegar samdir
suður í Evrópu en eins og sakir
standa er enginn innlendur aðili
sem er til þess bær að votta þá
staðla hvað þá að við fáum tæki-
færi til að taka þátt í að semja þá.
Sum íslensk framleiðslufyrirtæki
hafa þó þegar hafið undirbúning að
því að CE-merkja vöru sína. Ef
það er stefna stjórnvalda að við öp-
um bara eftir það sem aðrir ákveða
og höfum engin áhrif á slíkar
ákvarðanir þá erum við á rangri
braut að mínu mati.
Ef við tökum lagnaefni sem
dæmi þá eru hér á landi á ýmsan
hátt sérstakar aðstæður vegna
ólíkra efnasambanda í íslensku
vatni og notkunar jarðhita. Lagna-
efni okkar þarf því að standast aðr-
ar kröfur en hjá nágrönnum okkar
í Evrópu.
Á fyrstu dögum nýrrar aldar
ætlar umhverfisráðuneytið að setja
á laggirnar nefnd sem fær það
vandasama hlutverk að endurskoða
skipulags- og byggingalögin. Þetta
gefur okkur, sem tengjumst bygg-
ingageiranum og þá sérstaklega
Samtökum iðnaðarins, tækifæri til
að koma að tillögum um breytingar
á núverandi lögum. Ég vil því
hvetja alla þá sem málið er skylt að
koma tillögum sínum á framfæri.
Hvað er til ráða og hver á að ráða?
Umræðan
eftir Guðmund Þór Sigurðsson
/gsig@si.is
Höfundur er bygginga-
fræðingur BFÍ
ÞETTA eru enskir Staffordshire-
hundar, en þeir voru mjög eftirsótt
stofustáss í upphafi síðustu aldar og
eru nú seldir á uppboðum og í
antíkverslunum.
Hinir frægu
postulínshundar
Hafðu öryggi
og reynslu í
fyrirrúmi
þegar þú
kaupir eða
selur fasteign