Morgunblaðið - 21.01.2001, Blaðsíða 1
MORGUNBLAÐIÐ 21. JANÚAR 2001
17. TBL. 89. ÁRG. SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
GLORIA Macapagal-Arroyo tók við
embætti forseta Filippseyja í gær.
Arroyo, sem var varaforseti Josephs
Estrada, er 53 ára hagfræðingur.
Hún sór embættiseið eftir að hæsti-
réttur Filippseyja hafði úrskurðað að
enginn gegndi forsetaembættinu og
herinn og lykilráðherrar höfðu lýst
yfir stuðningi við kröfur hundraða
þúsunda Filippseyinga um afsögn
Estrada. Bandaríkin og Japan viður-
kenndu strax hina nýju ríkisstjórn.
Athöfnin fór fram á hádegi að stað-
artíma við helgidóminn sem tileink-
aður er uppreisn Filippseyinga fyrir
fimmtán árum er einræðisherranum
Ferdinand Marcos var steypt af stóli
með friðsamlegum hætti.
Fyrrverandi forsetar Filippseyja,
Fidel Ramos og Corazon Aquina, og
erkibiskup Manila, kardinálinn
Jaime Sin, voru meðal þeirra sem
fylgdust fagnandi með embættistöku
Arroyo. Þau léku öll lykilhlutverk í
hreyfingunni gegn Estrada.
Estrada efaðist um lögmæti
valdasviptingarinnar
Tveimur og hálfum tíma eftir að
Arroyo hafði tekið við völdum yfirgaf
Joseph Estrada forsetasetrið Malac-
anang. Estrada, sem var í fylgd fjöl-
skyldu sinnar, efaðist enn um lög-
mæti valdasviptingarinnar. Estrada
er sakaður um víðtæka spillingu og
hefur öldungadeild réttað í máli hans
síðan í desember. Málarekstri var
frestað í vikunni eftir að stuðnings-
menn hans neituðu að afhenda gögn
um fé á bankareikningum.
Hundruð þúsunda Filippseyinga
hafa krafist afsagnar Estrada í vik-
unni. Hann þráaðist hins vegar við og
var óttast að óeirðir brytust út í gær-
morgun þegar hann hunsaði tíma-
frest andstæðinga sinna til að segja
af sér. Estrada verður sóttur til saka
fyrir fjárdrátt, glæp sem varðar
dauðarefsingu á Filippseyjum, að
sögn talsmanns Arroyo.
Arroyo lagði í gær áherslu á þau
miklu verkefni sem eru framundan.
Gengi filippseyska pesósins var í
sögulegu lágmarki í gær, hlutabréf
féllu og erlendir fjárfestar héldu sig
víðsfjarri. „Mér líður sem guð hafi
sett mig á þennan stað í sögu okkar
og það er mikil vinna framundan,“
sagði Arroyo á blaðamannafundi eftir
að hún hafði svarið embættiseið.
Arroyo er fyrrverandi hagfræði-
prófessor og viðskiptafulltrúi á Fil-
ippseyjum. Hún er menntuð í
Georgetown-háskóla í Washington
DC í Bandaríkjunum og var bekkjar-
félagi fráfarandi Bandaríkjaforseta,
Bills Clintons. Hún er dóttir fyrrver-
andi forseta Filippseyja, Diosdado
Macapagal, sem var við völd á fyrri
hluta sjöunda áratugarins.
Estrada, fyrrverandi forseti Filippseyja, verður sóttur til saka fyrir fjárdrátt
Arroyo forseti eftir
friðsamlega uppreisn
Manila. AFP, AP.
APGloria Macapagal-Arroyo sver embættiseið sem 14. forseti Filippseyja.
GEORGE W. Bush tók við embætti
Bandaríkjaforseta á hádegi í gær að
bandarískum tíma. Bush er 43. for-
seti Bandaríkj-
anna.
Á föstudag, á
síðasta degi sín-
um sem almenn-
ur borgari, und-
irbjó repúblik-
aninn Bush emb-
ættistökuna eftir
átta ára við-
burðaríkan feril
forvera síns í
embætti, demókratans Bills Clint-
ons. Bush hugðist sverja embættis-
eið við biblíu þá er faðir hans,
George Bush, notaði við upphaf
sinnar forsetatíðar, árið 1989.
Andrúmsloft í bandarískum
stjórnmálum þykir enn lævi blandið
eftir harðvítuga baráttu Bush við
andstæðing sinn úr röðum demó-
krata, Al Gore. Gert var út um bar-
áttuna fyrir dómstólum. Ekki þykir
heldur gera Bush auðveldara fyrir
að þingið skiptist mjög jafnt á milli
demókrata og repúblikana.
Bush hefur gefið í skyn í ræðum
sínum að hann muni ekki láta eft-
irmál kosninganna hafa áhrif á störf
sín. „Ég hlakka til að minna fólk á
að þrátt fyrir að það hafi ekki kosið
mig þá er ég forseti þess,“ sagði
hann í ræðu á fimmtudag en þá hóf-
ust hátíðahöld í tengslum við for-
setaskiptin.
Bush hefur reynt að sætta and-
stæðar fylkingar í Bandaríkjunum
og sagði í ræðu sem sjónvarpað var
í gærmorgun að ríkisstjórn sín
myndi ekki reyna að berjast gegn
tímamótaúrskurði hæstaréttar um
lögmæti fóstureyðinga. Verulegur
hluti repúblikana vill fá þessu
breytt og vonast til að Bush útnefni
hæstaréttardómara sem eru sama
sinnis.
Síðasta ávarpi Bills Clintons til
bandarísku þjóðarinnar var útvarp-
að á laugardagsmorgun. Ávarpinu,
sem var tekið upp fyrr í vikunni, var
útvarpað skömmu áður en Clinton
og eiginkona hans Hillary tóku á
móti Bush og eiginkonu hans,
Lauru, í kaffi í Hvíta húsinu. Þaðan
áttu þau að fara saman að þinghús-
inu.
Lögreglan hafði mikinn viðbúnað
í Washington í gær vegna fyrirhug-
aðra mótmæla gegn Bush.
Bush tekur við
embætti forseta
Washington. AFP, AP.
George W.
Bush
NORÐMENN hafa talsverðar
áhyggjur af því hvernig þeir koma
útlendingum fyrir sjónir og hafa
tvö almannatengslafyrirtæki kann-
að málið síðustu daga. Niðurstaðan
er sú að Noregur sé hálfbrjálað vík-
ingaland sem sé úr takti við um-
heiminn og að þjóðin sé villuráfandi
í félagslegum málum, að því er seg-
ir í Dagbladet.
Norðmenn hafa nýlega ákveðið
að leyfa úlfaveiðar, þeir drepa sels-
unga, ætla að leyfa sölu á hvalkjöti
og þrátt fyrir að Noregur sé eitt
ríkasta land heims eru sjúklingar
sendir til útlanda í aðgerðir af því
að biðlistarnir eru of langir. Þeir
fara að sjálfsögðu með ferju af því
það er ódýrara en að fljúga.
Almannatengslastofan Burson-
Marsteller hefur kannað ímynd
Noregs hjá samstarfsmönnum sín-
um í Þýskalandi, Frakklandi, Belg-
íu og Bandaríkjunum. Segja starfs-
mennirnir niðurstöðuna tvíbenta,
þjóðin njóti góðs af því að vera talin
umhverfissinnuð en að það verði
einnig til þess að auknar kröfur séu
gerðar til hennar. Ferðaþjónustan
njóti góðs af því að útlendingum
þyki Norðmenn hálfgerðir víkingar
sem hlaupi upp um fjöll og firnindi.
Norskur hátækniiðnaður líði hins
vegar fyrir svo villta ímynd.
Annað almannatengslafyrirtæki,
Geelmuyden, segir, að allt það sem
stjórnvöld og almenningur í Noregi
hafi tekið sér fyrir hendur að und-
anförnu hafi styrkt þá ímynd að
þjóðin sé úr takti við umheiminn og
að hún skipti ekki máli.
Hálfgalið
víkinga-
land
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
Ímynd Noregs
veldur áhyggjum
30Málefni öryrkja
22
Markaðssetning
selur ekki
listviðburði
10 SUNNUDAGUR21. JANÚAR BLAÐBSUNNUDAGUR
25 ára var Elísabet
Urbancic farin að
stjórna innfæddum
við vegagerð . . . 10
Stelpan við stjórnvölinn
B
MEIRA en helmingur breskra ung-
linga hefur verið lagður í einelti og
margir hafa hugleitt sjálfsmorð til að
flýja kvalara sína. Sumir unglinganna
sögðu að þeir hefðu orðið fyrir sví-
virðingum og áreitni með sms-skila-
boðum í farsímum.
Yfir 10% unglinganna höfðu orðið
fyrir alvarlegri áreitni, þar með talið
ofbeldi, kúgun og kynþáttafordóm-
um. Þetta kemur fram í könnun sem
góðgerðarsamtökin Young Voice
gerðu meðal 4.344 unglinga á aldrin-
um 13–19 ára.
Í henni segir að einelti valdi alvar-
legum líkamlegum og andlegum
vandamálum hjá þeim sem fyrir verða,
þ.á m. þunglyndi og eiturlyfjaneyslu.
Bresk ungmenni
Áreitt með
sms-skila-
boðum
London. The Daily Telegraph.
♦ ♦ ♦
HEFUR VERIÐ
INDÆLT STRÍÐ