Morgunblaðið - 21.01.2001, Blaðsíða 18
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 2001 19
Ármúla 21, 533 2020
Handklæðaofnar
Mikið úrval
handklæðaofna á
baðherbergið.
Stærðir frá 60-181 cm.
Áferð: Hvít eða krómlituð.
Verð frá kr. 11.605.
ÆFINGAR eru hafnar á óperunni
La Bohème eftir Giacomo Puccini
við texta eftir Giuseppe Giacoso og
Luigi Illica, og verður hún frum-
sýnd í Íslensku óperunni 16. febr-
úar nk. Ráðgerðar eru 10 sýningar
og lýkur þeim um miðjan mars.
Hljómsveitarstjóri er ungur Rússi,
Tugan Sokhiev, en leikstjórinn
Jamie Hayes er Breti. Söngvarar,
hönnuðir og aðrir sem að sýning-
unni standa eru úr röðum íslenkra
listamanna og Íslenska óperan hef-
ur fengið til liðs við sig unga söngv-
ara sem flestir starfa erlendis. Með
helstu hlutverk fara: Kolbeinn J.
Ketilsson, Auður Gunnarsdóttir,
Bergþór Pálsson, Ólafur Kjartan
Sigurðarson, Viðar Gunnarsson,
Hlín Pétursdóttir / Þóra Einars-
dóttir.
Gestasöngvarar á nokkrum sýn-
ingum verða Sólrún Bragadóttir og
Guðjón Óskarsson.
Hópurinn sem kemur að uppsetningu óperunnar La Bohème.
Æfingar
hafnar á La
Bohème
TÓNLISTARDAGSKRÁ til-
einkuð Eyþóri Stefánssyni
verður í Sauðárkrókskirkju
þriðjudaginn 23. janúar kl. 21.
Kirkjukór Sauðárkróks flytur
lög undir stjórn Rögnvaldar
Valbergssonar. Þá verður dag-
skrá á vegum Leikfélags Sauð-
árkróks í samantekt Jóns Orm-
ars Ormssonar, þar sem lesið
verður úr endurminningum
Eyþórs og Stefáns Íslandi sem
Indriði G. Þorsteinsson skráði.
Lesarar með Jóni eru Bragi
Haraldsson og Sigríður Kristín
Jónsdóttir.
Eyþór Stefánsson var um
áratugaskeið kirkjuorganisti í
Sauðárkrókskirkju og stjórn-
andi kirkjukórsins. Hann var
fyrsti skólastjóri tónlistarskól-
ans og starfaði mikið í ung-
mennafélaginu. Eyþór var einn
af stofnendum Leikfélags
Sauðárkróks, þess yngra með
því nafni. Hann var einn aðal-
leikari félagsins og leikstjóri
leikfélagsins um áratugaskeið
og einn stofnenda FÍL.
Eyþór Stefánsson var heið-
ursborgari á Sauðárkróki.
Dagskrá til-
einkuð Ey-
þóri Stef-
ánssyni