Morgunblaðið - 21.01.2001, Page 10
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 2001 11
að vera neinar reglur um það hvernig
leikhús á að vera. Það má vera af
hvaða tagi sem er. Einhver sagði eitt
sinn að það eina sem væri bannað í
leikhúsi væri leiðindi, ég er ekki frá
því að það sé rétt,“ segir Magnús
Geir.
Lifandi og í sögulegu samhengi
Leikfélag Íslands er til húsa í Iðnó
og bendir Rakel á að merk saga þess
hafi sín áhrif á starfsemina. „Húsið á
sér langa og stórbrotna sögu og gefur
okkur kraft. Við verðum óneitanlega
fyrir áhrifum af þessari sögu og
leggjum metnað okkar í að halda
starfseminni áfram. Það skiptir máli
fyrir okkur að hér verði leikhús
áfram,“ segir hún og Magnús bætir
við: „Það skiptir máli að Iðnó sé lif-
andi, ekki mosagróið menningar-
musteri og einvörðungu með sýning-
ar í takt við það sem tíðkaðist í
upphafi aldarinnar þegar Iðnó sleit
barnsskónum. Við viljum halda úti
öflugri og lifandi starfsemi, að Iðnó sé
fjölsótt menningarmiðstöð yngra og
eldra fólks. Á fyrsta starfsárinu hér
stóðum við að 320 viðburðum, flesta
daga vikunnar, á öllum tímum dags,“
segir hann.
Magnús Geir og Rakel segja starf-
semi Flugfélagsins Lofts og Loft-
kastalans jafnframt svo sannarlega
hafa fyllt upp í eyðu í leikhúslandslag-
inu. „Fyrir tíu árum var leikhús helst
sótt af fólki 3–12 ára og 30 ára og
eldri. Þegar Hárið var sett upp sum-
arið 1994 var viðkvæðið að aldrei
gengi að setja leiksýningu upp að
sumarlagi. Á daginn kom hins vegar
að Hárið höfðaði til þeirra sem al-
mennt sóttu ekki leikhús. Hópurinn
sem stóð að þessum fyrirtækjum hef-
ur leitt til áhrifamikilla breytinga á ís-
lensku leikhúslífi og aldursskipting
leikhúsgesta nú orðin nokkuð jöfn,“
segja þau.
Rakel segir lífsstíls- og neyslu-
kannanir undanfarinna ára leiða
þessa þróun berlega í ljós, auk þess
sem leikhúsauglýsingum í Morgun-
blaðinu hafi fjölgað úr 5–13 í 25–30,
sem ennfremur sé til sannindamerk-
is um breytingarnar.
Hún leggur jafnframt áherslu á
starfsemi hljóðsetningardeildar
Leikfélags Íslands. Föst verkefni
hennar eru talsetning teiknimynda
kvikmyndahúsanna, Disney-mynda
sem og auglýsinga- og sjónvarpsefn-
is og segja Rakel og Magnús Geir nú
talið sjálfsagt mál að allt efni fyrir
börn í kvikmyndahúsum og sjón-
varpi sé með íslensku tali. „Þetta
verkefni er ekki síður mikilvægt en
önnur á okkar vegum, enda viljum við
ekki að börn á Íslandi alist upp við
annað.“ Leikfélag Íslands framleiðir
morgunsjónvarp barnanna hjá RÚV
og felst það bæði í talsetningu á er-
lendu barnaefni auk framleiðslu á
nýju íslensku barnaefni.
Þið nefnduð samstarf Leikfélags
Íslands við ýmis fyrirtæki, sem ef-
laust er gott og blessað frá rekstr-
arlegu sjónarmiði og með tilliti til
auglýsingagildis. Hvað með áhorf-
andann, eiga leikhúsgestir ekki
heimtingu á því að fá frið fyrir aug-
lýsingum þegar þeir vilja stytta sér
stundir?
„Fyrirtækin taka þátt í menning-
arviðburðum, þau eru samstarfsaðil-
ar en ekki að kaupa auglýsingar í
hefðbundnum skilningi. Samstarfið
hefur engin áhrif á sýningarnar sjálf-
ar, heldur skapar það aðstæður til
þess að listviðburður verði að veru-
leika. Fyrirtækin fá tækifæri til þess
að styðja við bakið á menningarstarf-
semi og öðlast á móti hlutdeild í já-
kvæðri upplifun áhorfandans. Þetta
er hluti af langtímaímyndaruppbygg-
ingu umræddra fyrirtækja, en breyt-
ir engu um vinnu listamannanna
sjálfra,“ segir Magnús Geir.
„Þessi fyrirtæki styrkja sýning-
arnar og eru með í að kynna viðkom-
andi verk. Það reynir svo á smekkvísi
fyrirtækjanna og okkar að koma
þátttöku þeirra á framfæri með hent-
ugum hætti,“ bætir Rakel við.
„Að undanförnu höfum við átt í
samstarfi við ýmis fyrirtæki og leit-
um til þeirra til að tryggja áframhald-
andi uppbyggingu. Sem stendur finn-
um við bæði fyrir stuðningi og
meðbyr frá þessum fyrirtækjum, og
jákvætt að geta tvinnað saman at-
vinnulíf og menningu með þessum
hætti. Ýmis fyrirtæki atvinnulífsins
hafa sýnt auknu samstarfi við menn-
ingarlífið áhuga. Austurbakki styrkti
til dæmis uppfærsluna á Panódíl fyrir
tvo, Samlíf Sjeikspír eins og hann
leggur sig, Landssíminn hádegisleik-
húsið, Visa-Ísland framleiðslu leik-
húskortanna okkar og Hekla tekur
þátt í uppfærslunni á Á sama tíma
síðar,“ segir hún ennfremur. Magnús
heldur áfram. „Það hefur líka sýnt sig
að viðhorf fólks til fyrirtækja sem
leggja menningarstarfsemi lið er já-
kvæðara fyrir vikið.“
Auk þess bendir hann á að Leik-
félag Íslands sé einkafyrirtæki sem
þurfi að fjármagna starfsemi sína.
„Uppbyggingin þarf að vera skyn-
samleg og metnaðarfull, en síðast en
ekki síst einlæg. Innihaldið mun
skipta öllu máli, héreftir sem hingað
til. Þetta er alltaf línudans. Við förum
að öllu með gát, annars er starfsemin
dæmd til þess að mistakast. Spurn-
ingin er sú að útvega fjármagn án
þess að vegið sé að heilindum leik-
hússins,“ segir hann.
Ríkið og Reykjavíkurborg
bregðist við
Rakel segir að útboð á hlutafé í
Leikfélagi Íslands sé fyrirhugað í
næsta mánuði. „Það er að vísu að ein-
hverju leyti hafið, þar sem nokkrir
nýir aðilar eru þegar komnir inn í fyr-
irtækið. Viðtökur atvinnulífsins hafa
verið jákvæðar og ljóst að mikill
áhugi er hjá stjórnendum fyrirtækja
á samstarfi. Hins vegar þurfum við að
geta tryggt áframhaldandi grundvöll
fyrir rekstrinum og þurfum því fjár-
magn til þess að greiða niður stofn-
kostnað fyrirtækjanna þriggja sem
sameinuð voru á sínum tíma,“ segir
hún.
Magnús tekur undir það og segir
nauðsynlegt að borgaryfirvöld og rík-
ið bregðist við starfseminni og sýni
stuðning sinn í verki. Leikfélag Ís-
lands sé eitt af þremur stærstu leik-
húsum landsins en „gríðarlegur að-
stöðumunur“ þess og opinberu leik-
húsanna geri starfsemina hins vegar
erfiða. Tillaga leikhúsfólks sé sú að
gera þríhliða samning, þar sem
Reykjavíkurborg og ríkið leggi 25
milljónir króna hvort um sig til
áframhaldandi rekstrar félagsins, en
LÍ fékk samtals fimm milljóna króna
styrk frá hinu opinbera á síðasta ári.
Þar af kom ein milljón í peningum frá
borginni og þrjár milljónir með því að
fella niður húsaleigu fyrir Iðnó. Að
meðaltali hefur LÍ hlotið 1–8 milljónir
króna í styrk undanfarin ár að þeirra
sögn.
„Við erum að horfa á þrjú leikhús,
viðlíka stór þegar litið er til fjölda
uppsetninga og áhorfenda. Hins veg-
ar er aðstöðumunurinn gríðarlegur.
Þjóðleikhúsið hlýtur um 400 milljónir
í styrki árlega og Borgarleikhúsið um
180 milljónir. Þá er ekki meðtalið
húsnæði sem bæði leikhúsin hljóta.
Það er þekkt staðreynd að metnaðar-
fullt leikhús verður vart rekið án öfl-
ugs stuðnings. Það skýtur hins vegar
skökku við að á sama tíma og þessi
tvö leikhús fá um 600 milljónir árlega
hlýtur Leikfélag Íslands sáralitlar
upphæðir. Við höfum sýnt og sannað
hvers Leikfélag Íslands er megnugt.
Áhorfendur hafa greitt okkur at-
kvæði sitt. Miðaverði er stýrt af hin-
um stóru leikhúsunum og við því ekki
í aðstöðu til þess að auka tekjurnar af
miðasölu. Ríkið og Reykjavíkurborg
þurfa einfaldlega að hjálpa þeim sem
hjálpa sér sjálfir. Það er ekki hægt að
keppa á markaði þar sem svona mikill
aðstöðumunur er ríkjandi,“ segir
hann.
Rakel bætir við að kvikmynda-
gerð, innlend dagskrárgerð fyrir
sjónvarp og útvarp, Íslenska óperan,
Íslenski dansflokkurinn og Leik-
félag Akureyrar njóti styrkja og að
fyrirtæki sem hingað til hafi sýnt LÍ
jákvætt viðmót leggi mikið upp úr lið-
veislu hins opinbera.
„Atvinnulífið leggur háar fjárhæð-
ir til rekstrarins en gerir þá kröfu að
hann sé traustur, svo fyrirtækið verði
ekki í spennitreyju í framtíðinni og
geti fært út kvíarnar enn frekar.
Styrkjaumhverfið í dag er ekki í takt
við nútíma leikhúsumhverfi, heldur
aðstæður fyrir 20 árum. Þjóðleikhús-
ið og Borgarleikhúsið vinna gott
starf. En það er kominn tími til þess
að bregðast við breyttum aðstæðum.
Leikfélag Íslands er ekki bóla, það
hefur fest sig í sessi, og eðlilegt að
tekið sé tillit til þess við styrkveit-
ingar. Annað er skilaboð um að um-
hverfið eigi að vera eins og fyrir ald-
arfjórðungi síðan. Þeir sem vilja sjá
viðlíka grósku í leikhúslífi Reykvík-
inga áfram hljóta að taka tillit til þess.
Hræðslan við að hrófla við fortíðinni
má ekki vera allsráðandi,“ segir
Magnús Geir.
Hann segir þau ennfremur meðvit-
uð um mikla og merka sögu Þjóðleik-
hússins og Borgarleikhússins. „Það
er mikilvægt að rekstur þeirra haldi
áfram, en það þarf líka að bregðast
við þeirri uppbyggingu sem okkar
leikhús hefur leitt af sér. Við trúum
því að Reykjavíkurborg og ríkisvald-
ið sé tilbúið til þess að endurskoða
þetta fyrirkomulag. Það er allra hag-
ur,“ segir hann.
Magnús Geir og Rakel segja enn-
fremur hafa verið „erfitt að horfa upp
á, að nú á síðustu mánuðum hafi hið
opinbera kosið að bæta enn meiru við
styrki til opinberu leikhúsanna
tveggja, áður en brugðist var við
frumkvöðlastarfi Leikfélags Ís-
lands“. „Þjóðleikhúsið hlaut um 76
milljóna króna aukafjárveitingu og
Reykjavíkurborg keypti 200 milljóna
króna hlut Leikfélags Reykjavíkur í
Borgarleikhúsinu, auk þess sem það
fékk 70 milljóna króna aukafjárveit-
ingu til innréttingar á nýjum sal.“
Strákaklúbbur?
Leikfélag Íslands hefur gert
rekstraráætlun til fimm ára, þar sem
markmiðið er að skila hagnaði, og
segir Rakel að útkoman fyrir síðasta
ár verði ekki eins og best verður á
kosið vegna kostnaðar við samein-
ingu síðasta árs. „LÍ hefur byggt upp
tvö leikfélög á eigin kostnað og þeir
fjármunir sem fengist hafa nú þegar
munu fara til þess að greiða hann. Út-
koman fyrir síðasta ár gæti því verið
betri,“ segir hún.
Gert er ráð fyrir að rekstur félags-
ins á þessu ári muni kosta um kostar
250 milljónir en LÍ setur upp 17 sýn-
ingar á yfirstandandi leikári.
„Reykjavíkurborg á Iðnó, en við
þurfum að standa straum af öllum
tækjabúnaði sjálf. Hin stóru leikhús-
in fá fé til þess að mæta grunnkostn-
aði við reksturinn, og okkur finnst
einfaldlega að hefði átt að huga betur
að forgangsröðinni þegar þessum
fjármunum var úthlutað. Atvinnulífið
hefur stutt okkur á mjög kröftugan
og fjölbreyttan hátt og við viljum
halda ótrauð áfram. Það vill enginn
sjá Iðnó breytast í diskótek,“ segja
þau.
Að lokum þetta. Í hópi hluthafa
fyrirtækisins eru 15 karlmenn og tvö
fyrirtæki. Stjórn félagsins er jafn-
framt skipuð fimm karlmönnum. Er
Leikfélag Íslands einhver stráka-
klúbbur?
„Mér datt þetta í hug í fyrsta skipti
sem ég hitti hluthafana og sagði þeim
reyndar að þeim veitti ekki af að fá
konu til liðs við sig. Annars er Magn-
ús Geir umkringdur konum hér á
skrifstofunni,“ segir Rakel að lokum.
Magnús Geir slær botninn í spjallið
og bendir á að konum kunni að fjölga í
hópi hluthafa í næsta mánuði. „Þegar
fyrirtækin þrjú sameinuðust voru
það vissulega þrjú strákafyrirtæki
sem runnu saman, konur eru þó í
mörgum helstu ábyrgðarstöðum hér,
auk þess sem jöfn skipti eru milli
karla og kvenna í leikstjóravali. Hjá
Leikfélagi Íslands eru hæfileikarnir
einvörðungu lagðir til grundvallar.“
Morgunblaðið/Kristinn
Leikritið Fjögur hjörtu var sett á svið í Loftkastalanum.
Morgunblaðið/Kristinn
Sumarleikhús varð mögulegt með uppsetningu á Hárinu 1994.
Morgunblaðið/Þorkell
Frá sýningu á Sjeikspír eins og hann leggur sig.
Morgunblaðið/Sverrir
Stjörnur á morgunhimni.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Á sama tíma síðar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Sigurður Sigurjónsson í talsetn-
ingu barnaefnis.
Meðal sýninga LÍ
Hárið
Stone Free
Rocky Horror
Veðmálið
Fjögur hjörtu
Á sama tíma að ári
Bein útsending
Rommí
Bugsy Malone
Áfram Latibær
(í samstarfi við Magnús Scheving)
Þjónn í súpunni
Leitum að ungri stúlku
(í Hádegisleikhúsi)
1000 eyja sósa
(í Hádegisleikhúsi)
Leikir
(í Hádegisleikhúsi)
Panódíl fyrir tvo
Stjörnur á morgunhimni
Sjeikspír eins og hann leggur
sig
Björninn
(í Hádegisleikhúsi)
Shopping & Fucking
(í samstarfi við EGG-leikhúsið)
Tilvist
(í samstarfi við Dansleikhús með
ekka)
Trúðleikur
Sýnd veiði
Medea
(í samstarfi við Fljúgandi fiska,
Þjóðleikhúsið og Stöð 2)
Á sama tíma síðar
Leikfélag
Íslands
Hluthafar
Sameiginlegir hluthafar
Leikfélagsins fyrir útboð eru
nú: Ágúst Einarsson, Baltasar
Kormákur, Breki Karlsson,
Hallur Helgason, Ingvar Þórð-
arson, Íslenska útvarpsfélagið,
Jóhann Sigurðsson, Jón Ingi
Friðriksson, Karl Pétur Jóns-
son, Kaupþing, Kristján Ottó
Andrésson, Magnús Geir
Þórðarson, Sigurður Sig-
urjónsson, Stefán Hjörleifs-
son, Sæmundur Norðfjörð,
Þórhallur Andrésson og Örn
Árnason.
Stjórn
Í stjórn Leikfélags Íslands
ehf. sitja fimm aðilar en þeir
eru: Árni Oddur Þórðarson,
Hallur Helgason, Stefán Hjör-
leifsson, Sæmundur Norðfjörð
og Þorsteinn Jónsson.
Fastráðnir leikarar: Edda
Björgvinsdóttir, Friðrik Frið-
riksson, Jakob Þór Einarsson,
Sigurður Sigurjónsson og Örn
Árnason.