Morgunblaðið - 21.01.2001, Side 26

Morgunblaðið - 21.01.2001, Side 26
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 2001 27 S IGRÍÐUR segist vera affrægri gigtarætt en hún erættuð úr Aðalvík á Horn-ströndum; „Þaðan hafa komið mjög margir sem hafa alvar- lega bandvefssjúkdóma,“ segir hún. Báðir foreldrar Sigríðar þjáðust hvort af sínum gigtarsjúkdómnum og systir hennar lést úr bandvefssjúk- dómi aðeins 10 ára gömul. „ Ég hef aldrei fengið hreinan úrskurð um hvaða tegund af bandvefssjúkdómi ég er með en talið er að ég sé með blandaðan bandvefssjúkdóm með ýmsum einkennum. Þessum sjúk- dómi fylgir gjarnan vefjagigt en þá er fólki illt í öllum skrokknum og til að halda sjúkdómnum í skefjum þarf að stunda líkamsrækt reglulega.“ Sigríður er gift og þriggja barna móðir. Hún segir að meðgangan hafi verið erfið og sjúkdómurinn hafi ágerst við barneignirnar. „Tvö fyrstu börnin komu sitt á hvoru árinu en þriðja barnið kom sex árum síðar og þá í andstöðu við læknisfræðilegt mat á því hvað væri skynsamlegt. En mig langaði til að eiga fleiri börn. Ég var sjálf búin að upplifa það að missa systkini – ég vildi eiga fyrir vanhöld- um eins og sagt var í gamla daga. Vinnur þrátt fyrir margþættan sjúkdóm Gigt er mjög skrýtinn sjúkdómur- þetta er bólgusjúkdómur og getur verið alls staðar í líkamanum, hægt er að fá hann í heilann, nýrun eða hvar sem er,“ heldur hún áfram frá- sögn sinni. „Fyrir 15 árum fékk ég bólgusjúkdóm í blöðru sem kallast millivefjablöðrubólga. Eitt einkennið er stöðug þvaglátsþörf. Þessi sjúk- dómur er mjög erfiður og sársauka- fullur og til skamms tíma hefur lítið verið hægt að gera við honum nema þá að fjarlægja blöðruna en ég hef ekki viljað það. Ég er líka með nýrnahettuvanda- mál, Addison-sjúkdóm, og ber á mér merki sem gefur til kynna hvaða sjúkdóm ég er með og ég þarf alltaf að vera með lyf við honum á mér.“ Þrátt fyrir að Sigríður sé með margþættan sjúkdóm þá fer hún allt- af til vinnu en hún hefur starfað í 25 ár hjá Landssímanum á talsambandi við útlönd. Þar situr hún við tölvu og afgreiðir símtölin í vaktavinnu. „Ég hef lengst af verið í 67% starfi hjá Landssímanum en um áramótin minnkaði ég við mig og er nú í hálfu starfi.“ Sigríður er menntaður kennari en hefur aldrei getað stundað kennslu þar eð sjúkdómurinn veldur því að hún hefur til skamms tíma ekki getað staðið lengi eða beygt sig fram. Í starfi sínu hjá Landssímanum hefur hún mætt miklum skilningi yfir- manna þegar hún hefur þurft að leggjast inn á spítala sem er tvisvar til þrisvar á ári, þá venjulega til skemmri dvalar. „Fyrir mig er það mjög mikilvægt að vinna. Það hefur haldið mér uppi andlega. Ég gleymi sársaukanum þegar ég hef eitthvað annað til að hugsa um. Að vera sjúk- lingur í fullu starfi held ég að sé það leiðinlegasta sem hægt er að hugsa sér. Mér finnst að það ætti að gera ör- orkubótakerfið vinnuhvetjandi sem það er ekki nú nema síður sé því ör- orkulífeyrinn er skertur þegar komið er yfir ákveðið tekjumark,“ segir hún áköf. „Ég sór og sárt við lagði að ég skyldi vinna þangað til lögin um tekjutengingu örorkulífeyris yrði af- numin. Að hætta að stunda launaða vinnu og verða ómagi á framfæri maka er ekki gott hlutskipti. Þar að auki þurfa öryrkjar oft að hætta að annast ýmis störf eins og halda heimilinu eða bílnum hreinum eða laga til í garðinum. Makinn verð- ur þá að bæta þessu á sig auk þess sem hann þarf að vinna meira utan heimilisins til að endar nái saman fjárhagslega, en aukin vinna hefur það svo í för með sér að skerða lífeyri öryrkjans, það er því mikil mótsögn fólgin í þessu kerfi. Það er heldur ekkert víst í þessum heimi. Hjón geta skilið eða makinn látist. Öryrkinn á því ekki að þurfa að stóla eingöngu á maka sinn. Það stendur í lögunum að skylt sé að tryggja rétt sérhvers einstaklings til einhverrar lágmarksframfærslu eftir fyrirfram gefnu skipulagi sem ákveð- ið er á málefnalegan hátt. Þetta er í stjórnarskránni. Mér fyndist ekkert óeðlilegt við það ef ég væri með góðar tekjur að örorkulífeyririnn væri skertur eða jafnvel felldur niður. En mér finnst fáránlegt að lífeyrir öryrkjans sé skertur vegna þess að hann á maka sem hefur mannsæmandi tekjur. Heppin að eiga góðan mann Það eru mannréttindi að einstak- lingum sé ætlaður sá réttur að hafa nóg sjálfum sér til framfærslu og til þátttöku í heimilisrekstri ef hann getur ekki unnið. „Á að refsa fólki fyrir að vera ör- yrkjar?„ spyr hún. „Sumir eru fædd- ir með sjúkdóma sem þeir þurfa að burðast með alla ævi og eru sam- kvæmt þeim kjörum sem öryrkjum eru boðin nú dæmdir til að vera fá- tækir alla ævi nema að þeir kynnist einhverjum sem tekur þá upp á arma sína, en þetta er hvorki réttlæti né mannréttindi. Margir öryrkjar sem eiga erfitt fjárhagslega eru mjög þunglyndir, af því þeir sjá ekki fram úr hlutunum. Ég hef ekki haft það erfitt fjár- hagslega vegna þess að maðurinn minn hefur ágætis tekjur. Ég er svo heppinn að ég á góðan mann og góð börn og maki minn hefur greitt það sem hefur þurft þegjandi og hljóða- laust. En hann segist ekki borga fyrir hrukkuaðgerð, hann setur mörkin við það!“ segir Sigríður og slær á léttari strengi. Sýnd lítilsvirðing Sigríður segir að þótt hún hafi get- að sótt um bílastyrk því hún á erfitt með gang, hafi hún ekki gert það. Af hverju? „Mér finnst eins og aðrir þurfi meira á þessu að halda. Ég hef heldur aldrei sótt um tekjutryggingu því það er ekki til neins að sækja um hana því til þess hefur maðurinn minn allt of háar tekjur. Upphaflega sótti ég um örorku aðeins til að lækka hjá mér lyfjakostnaðinn, sem var alveg hrika- lega hár og mér skilst að lyfjakostn- aðurinn eigi eftir að hækka enn.“ Hvernig líður þér með því trygg- ingakerfi sem þú býrð við? „Mér líður ekkert illa, því ég er bú- in að ganga í gegnum svo margt að þessi fjárhagslegu atriði hafa horfið í skuggann,“ segir hún. „Þetta get ég sagt af því ég hef svo „góða fyrir- vinnu“ en það hafa ekki allir. Mér finnst mér þó sýnd lítilsvirðing með því að mér skuli ekki vera ætluð ein- hver sæmileg upphæð sem ég get dregið fram lífið á, ef ég hætti að vinna. Ég þekki til öryrkja sem hafa það mjög erfitt fjárhagslega. Það var hjá mér kona um daginn sem býr úti á landi. Hún er gift og er eiginmaður hennar einnig öryrki en þau hafa geðræna sjúkdóma. Þau hafa hvort um sig um 60.000.- krónur í örorkulíf- eyri eftir skerðinguna, þar eð þau eru í sambúð. Þau eiga ekki húsnæði og þurfa að leigja á hinum almenna markaði. Hjónin þurfa að sækja læknisþjón- ustu til Reykjavíkur. Þau fljúga suð- ur og þurfa að borga 24.000.- krónur í flugfargjald saman sem þau fá end- urgreiddar að mestu þegar þau koma til baka. Á hverju eiga þau að lifa þann mánuðinn sem þau fara suður? Það kemur kannski engum við. Þau fluttu út á land þar eð þau héldu að þau myndu komast betur af. Svo gengur ekki fyrir þau að búa úti á landi vegna þess að þau þurfa of mikla sérhæfða læknisaðstoð. Þau eiga varla fyrir nauðþurftum og geta ekki leyft sér nokkurn skapaðan hlut. Þau vita ekkert á hverju þau eiga að lifa síðustu vikuna í mánuðinum. Ég verð bara að segja, að ég er al- veg hissa á að þetta fólk og aðrir sem svipað er ástatt fyrir skuli ekki sálga sér í stórum hópum. Þetta er ef til vill harkalega sagt en sannleikur.“ Þekkir ekki annað líf Sigríður segist ætla að halda áfram að vinna meðan hún hefur heilsu til. „Ég þekki ekki annað líf,“ segir hún. „Ég hef tekið þá stefnu í lífinu að gera sjúkdóminn ekki að aðalatriði í lífi mínu. Ég hef tekið þátt í félags- málum, verið í stjórn Gigtarfélags Ís- lands í mörg ár. Ég tilheyri tveimur sjúklingahópum. Þetta eru grasrót- arsamtök. Við hittumst og spjöllum saman og höldum fræðslufundi tvisv- ar á ári. Ég hef líka verið í forsvari fyrir sjálfshjálparhóp þar sem með- limirnir eru með millivefjablöðru- bólgu. Við erum 20 konur sem höfum haft þennan sjúkdóm. Við hittumst og ræðum saman. Höfum þá gjarnan kveikt á Netinu og lesum um það nýj- asta sem er að gerast í meðhöndlun þessa sjúkdóms. Það er gott að tala við annað fólks sem skilur mann.“ Morgunblaðið/Árni SæbergSigríður Gunnarsdóttir Sigríður Gunnars- dóttir hefur verið gigtveik frá unga aldri og verið úr- skurðuð 75% öryrki. Hún tilheyrir þeim hópi öryrkja sem nú eru mest í brenni- depli vegna dóms Hæstaréttar um af- nám tekjutengingar við laun maka. Hildur Einarsdóttir ræðir við hana um aðstæður hennar. Mannréttindi að vera sjálfum sér nóg um framfærslu Í sóknarhug Landskrá fasteigna Haukur Ingibergsson, forstjóri Fasteignamats ríkisins, og Jón Vilberg Guðjónsson, framkvæmdastjóri Fast- eignamats ríkisins, verða á Fiðlaranum Skipagötu 14, þriðjudaginn 23. janúar frá 12:00 til 13:00 • Hvað er Landskrá fasteigna? •Hvaða þýðingu hefur Landskrá fasteigna fyrir almenning, sveitarfélög og sýslumenn? •Hvenær hefst starfsemi á Akureyri tengd Landskrá fasteigna? •Hvaða þýðingu hefur þetta fyrir uppbyggingu fyrirtækja í upplýsingatækni á Akureyri? Þetta, og ýmislegt fleira, munu Haukur og Jón Vilberg fjalla um og svara síðan spurningum fundarmanna: Verð kr. 1.000 (léttur hádegisverður innifalinn). Allir velkomnir Skráning hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar í síma 460 5700 eða E-mail benedikt@afe.is eða sigga@afe.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.