Morgunblaðið - 21.01.2001, Side 28

Morgunblaðið - 21.01.2001, Side 28
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 2001 29 Auðbrekku 14, Kópavogi, sími 544 5560 og 864 1445 www.yogastudio.is Yoga Studio - Halur og sprund ehf. Í verslun okkar er að finna: Nýja sendingu af nuddbekkjum frá Custom Craftworks, Biotone nuddvörur á tilboði og Oshadi 100% hágæða ilmkjarnaolíur. Viltu verða jógakennari? Næsta kennaraþjálfun hefst í febrúar 2001. Þessi þjálfun hefur fest sig í sessi í starfsemi okkar og er ekki að- eins fyrir þá sem vilja verða jógakennarar heldur einnig öflugt sjálfsþekkingar- og þroskanámskeið. Hún hent- ar t.d. öllum sem eru í einhvers konar vinnu með einstaklinga eða hópa. Ekki er krafist mikillar reynslu og ástundunar af jóga, mikilvægast er áhugi og jákvætt hugarfar. Einhver grundvallarþekking á jóga er þó æski- leg. Kennari er sem fyrr Ásmundur Gunnlaugsson. www.yogastudio.is Ásmundur Kynningarfundur með Ásmundi verður haldinn laugardaginn 3. febrúar kl. 16.30. Lokafrestur til að staðfesta þátttöku og ganga frá greiðslu er fimmtudagurinn 8. febrúar. (Kennaraþjálfun má greiða með Visa/Euro raðgreiðslum). Þjálfunin er alls 6 helgar auk skyldumætingar í jógatíma sem hér segir: 9.-11. febrúar, 23.-25. mars, 25.-27. maí, 22.-24. júní, 24.-26. ágúst og 14.-16. september. Kennt er föstudaga kl. 20-22, laugardaga og sunnudaga kl. 9-15.30. Borgartúni 28 · Sími 561 6699 · tolvuskoli@tolvuskoli.is · www.tolvuskoli.is Tölvuskóli Reykjavíkur er prófamiðstöð fyrir TÖK próf og fá nemendur skólans afslátt af prófagjaldi. Ath! Skrá ning sten dur yfir Fyrirtækjaþjónusta Jóhanna þjónustufulltrúi sér um að koma til móts við óskir ykkar. Netfang: johanna@tolvuskoli.is Skrifstofutækni og bókhald Vegna forfalla eru laus sæti í Skrifstofutækni sem hefst mánudaginn 22. janúar BÓKHALDSNÁM Kennt frá 1300-1600 eða 1700-2000 mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. Alls 144 kennslustundir. Handfært yfir í tölvubókhald. Kennt er á Stólpa fyrir Windows. - Byrjar 29. janúar. • Bókfærsla - 20 stundir • Verslunarreikningur - 16 stundir • Almenn bókhaldsverkefni, víxlar og skuldabréf - 20 stundir • Launabókhald - 12 stundir • Lög og reglugerðir - 4 stundir • Virðisaukaskattur - 8 stundir • Verkefni, fylgiskjöl og afstemmingar - 12 stundir • Tölvubókhald - 36 stundir • Bókhald sem stjórntæki - 8 stundir SKRIFSTOFUTÆKNI Kennt frá 810-1210 Námið er ein önn - Alls 365 kennslustundir. Tölvu- og bókhaldsnám. Kennt er á Stólpa fyrir Windows. - Byrjar 22. janúar. • Almenn tölvufræði og Windows - 20 stundir • Word - 35 stundir • Excel - 35 stundir • Internetið - 10 stundir • PowerPoint - 10 stundir • Samantekt - 10 stundir • Vélritun - 10 stundir • Verslunarbréf - 20 stundir • Viðskiptaenska - 20 stundir • Tollskýrslugerð - 20 stundir • Atvinnuumsóknir - 5 stundir • Tjáning, hópvinna, framsögn - 5 stundir • Bókfærsla - 20 stundir • Verslunarreikningur - 20 stundir • Almenn bókhaldsverkefni, víxlar og skuldabréf - 20 stundir • Launabókhald - 15 stundir • Lög og reglugerðir - 5 stundir • Virðisaukaskattur - 10 stundir • Verkefni, fylgiskjöl og afstemmingar - 15 stundir • Tölvubókhald - 40 stundir • Bókhald sem stjórntæki - 20 stundir LIÐ-A-MÓT FRÁ Tvöfalt sterkara Miklu ódýrara APÓTEKIN Ö fl u g t ví ta m ín – D re if in g J H V FIMM þingmenn Sjálfstæðisflokks- ins hafa lagt fram á Alþingi frum- varp til laga um að opnað verði fyrir smásöluverslun með áfenga drykki í almennum matvöruverslunum. Segja þingmennirnir m.a. í greinar- gerð með frumvarpinu að öll þróun íslensks samfélags á síðustu áratug- um bendi til þess að núverandi fyr- irkomulag smásöluverslunar með áfengi sé orðið tímaskekkja. Aukin krafa viðskiptavina um þjónustu hafi leitt til þess að einokun ríkisins á smásöluverslun með áfengi þjóni ekki lengur nema að mjög litlu leyti þeim tilgangi að takmarka aðgang viðskiptavina að áfengi. Fyrsti flutningsmaður frumvarps- ins er Vilhjálmur Egilsson, en með- flutningsmenn eru Ásta Möller, Árni R. Árnason, Þorgerður K. Gunnars- dóttir og Pétur H. Blöndal. Smásöluverslun með áfengi er nú alfarið í höndum Áfengis- og tóbaks- verslunar ríkisins, sem hefur einka- leyfi á starfseminni skv. áfengislög- um. „Sífellt fleiri viðskiptavinir vilja ekki vera neyddir til viðskipta við Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins og taka ekki undir þá skoðun að við- skipti þeirra séu slíkt vandamál að það þarfnist einokunar ríkisins á þeim,“ segir í greinargerð. „Verði sú breyting að lögum sem lögð er til í frumvarpinu fá viðskipta- vinir eðlilegan aðgang að þessari vöru. Sjálfsagt mun það hafa í för með sér meiri neyslu. Neysluaukn- ingin mun þó væntanlega fyrst og fremst koma fram hjá þeim sem neyta áfengis í hófi því að þeir sem á annað borð stunda ofneyslu þess hafa hingað til ekki látið hinn tak- markaða aðgang aftra sér frá neyslu. Hófleg neysla áfengis er hins vegar almennt talin skaðlaus fyrir fullorðið fólk og í ýmsum tilvikum er hún til bóta fyrir heilsu og líðan.“ Þingmennirnir leggja ennfremur til í greinargerð að smásöluaðilum yrði falið sjálfum að ákveða vöru- framboð og þar sem hillurými sem undir vöruna fari sé takmarkað megi ætla að fyrst og fremst verði boðið fram léttvín og bjór.Í frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir því að Áfengis- og tóbaksverslun verði lögð niður enda sagt að ætla megi að áfram verði rekstrargrundvöllur fyrir sér- hæfðar áfengisverslanir. Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokks Áfengi verði selt í matvöruverslunum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.