Morgunblaðið - 21.01.2001, Side 38
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 2001 39
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður í samráði við aðstandendur
Sími 581 3300
allan sólarhringinn — utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Kistur
Krossar
Duftker
Legsteinar
Sálmaskrá
Blóm
Fáni
Erfidrykkja
Tilk. í fjölmiðla
Prestur
Kirkja
Kistulagning
Tónlistarfólk
Val á sálmum
Legstaður
Flutn. á kistu milli landa
Sjáum um
útfararþjónustu á
allri landsbyggðinni.
Áratuga reynsla.
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.
Blómastofa
Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Blómaskreytingar við öll tilefni
Opið til kl. 19 öll kvöld
! "! #" $""#!
!
" #
!"
"# $!%&$'
✝ Sigurður PállJórunnarson
fæddist í Reykjavík
18. febrúar 1982.
Hann lést af slysför-
um 13. janúar síðast-
liðinn. Foreldrar
hans eru Jórunn
Kjartansdóttir, f.
19.8. 1954, og Theo-
dór Helgi Guðnason,
f. 2.4. 1954. Systkini
Sigurðar eru: 1) Sig-
urborg Guðný Jór-
unnardóttir, f. 29.6.
1970, maki Hólm-
steinn Sigurðsson,
börn Eva Björk Hjartardóttir og
Birta Líf Guðmundsdóttir. 2)
Guðni Þorberg Theodórsson, f.
2.10. 1971, maki Svava Dögg
Magnúsdóttir, börn Alexandra og
Katrín Hrönn. 3) Kjartan Theo-
dórsson, f. 1.9. 1974, maki Mar-
íanna Björg Sigurðardóttir, börn
Jórunn, Arna Lára
og Þorleifur. 4) And-
vana drengur f. 22.7.
1980. 5) Sólný Lísa
Jórunnardóttir, f.
27.5. 1988. 6) Hálf-
bróðir samfeðra
Theodór Páll, f. 23.6.
1993.
Sigurður Páll ólst
upp hjá móður sinni.
Hann gekk í Fella-
skóla til 1995, fór þá
í Rimaskóla þar til
hann útskrifaðist úr
10. bekk 1998.
Sigurður fluttist
til Suðureyrar í janúar 2000 til
bróður síns, Kjartans, þar sem
hann vann við beitningu og sjó-
mennsku.
Útför Sigurðar Páls fer fram
frá Grafarvogskirkju á morgun,
mánudaginn 22. janúar, og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Elsku hjartans Sigurður minn,
engin orð fá lýst mínum harmi. Elsku
litli drengurinn minn með bjarta
brosið þitt og gleðiglampa í augum
þínum. Manstu gleðina okkar þegar
við hittumst um jólin þegar þú komst
til mömmu og ég sagði við þig: „Þú ert
besta jólagjöfin mín.“ Þú varst svo
glaður. Þú sagðir við mig: „Mamma,
ég ætla að koma aftur til þín í janúar.“
Þú sagðir mér að þig langaði svo að
flytja til mömmu aftur. Þú varst bú-
inn að vera eitt ár á Suðureyri hjá
Kjartani og Maju. Þér leið vel þar.
Þau voru þér svo góð. Stundum sagð-
ir þú við Maju: „Mamma, nei ég
meina Maja.“ Þetta sýndi mér hvað
þú hugsaðir mikið til mín. Börnum
þeirra varst þú svo góður, það var
eins og þú ættir þau. Þú varst alltaf að
hringja í mömmu og segja mér fréttir
af Leifa litla. Nú er hann farinn að
standa upp mamma. Leifi er kominn
með tönn, þetta ert þú, alltaf að hugsa
um aðra. Þú elskaðir systkinabörnin
þín eins og þú ættir þau og elsku litlu
Sólnýju systur þína sem þú dýrkaðir.
Þú varst henni svo góður. Þú varst
svo hreykinn af Guðna bróður þínum
og Svövu og þegar þú hittir Alex-
öndru og Katrínu litlu þá varstu svo
glaður og alltaf varst þú að segja
mömmu frá.
„Sigurborg stóra systir mín,“ sagð-
ir þú. Þú dýrkaðir hana, þú varst svo
hreykinn þegar þú heimsóttir hana
fyrir jólin og skoðaðir stóra húsið
hennar og Steina og að fá að hitta Evu
og Birtu, mikið varstu glaður. Þú
elskaðir systkini þín svo mikið og
varst systkinabörnum þínum svo góð-
ur og vildir allt fyrir þau gera. Alltaf
vildir þú vita hvað mamma væri að
gera og hvar mamma væri. Þegar ég
var veik í nóvember ætlaðir þú að
koma til mín en Sibba systir þín kom
til mín og þá leið þér betur. Þú
hringdir í Villa vin þinn til að segja að
mamma þín væri veik. Þetta sýnir
hvað þú hugsaðir mikið til mömmu.
Elsku hjartans gullið mitt, litli
drengurinn minn, mamma veit að
bróðir þinn tók á móti þér og Kjartan
afi þinn. Svo veit ég að þú hefur sýnt
fallega brosið þitt þegar þú hittir þá
og litlu systurdóttur þína sem bíða
okkar hjá Guði. Systir þín veit að nú
passar þú dóttur hennar með bróður
ykkar.
Mamma er svo tóm, mamma er svo
frosin, en mamma veit að þú ert á
góðum stað. Þú verður alltaf í hjarta
mér. Svo er ég svo rík, að eiga allar
minningarnar um þig. Ég fékk að
eiga þig í 18 ár, gullið mitt, og það er
mér svo dýrmætt. Manstu þegar þú
varst sex ára. Þá sagðir þú við mig:
„Mamma, þegar ég verð stór ætla ég
að byggja hús úr gulli handa þér.“
Þegar þú varðst eldri sagðir þú: „Ég
ætla samt að byggja hús handa þér en
það verður víst ekki úr gulli.“
Þú hringdir í mig 12. janúar og
varst þá að horfa á veðurfréttir í sjón-
varpinu. Þú sagðir að það yrði brjálað
veður á morgun og ég mætti ekki fara
úr húsi og ég yrði að halda Sólnýju
inni líka. Svona varst þú alltaf að
hugsa um mömmu og alla í kringum
þig.
Ég á engin orð til að kveðja þig með
en ég veit að ég hitti þig aftur. Guð
geymi þig, elsku drengurinn minn, ég
ætla að skrifa bænina sem við fórum
alltaf með þegar þú varst yngri:
Í nafni guðs föður, sonar og heilags anda.
Guð minn góður komdu til okkar og varð-
veittu okkur
þessa nótt og alla tíma í Jesú nafni.
Og svo fórum við með Faðirvorið á
eftir.
Sofðu rótt, elsku Sigurður minn, og
Guð geymi þig.
Þinn sonur lifir, sagði Jesú forðum
og sveinninn græddi er trúa var þeim
orðum.
Hin sömu orðin sár míns hjarta græða
er svíða og blæða.
Og þegar blessuð börnin frá oss deyja
í bæn og trú þá kenn þú oss að þreyja
og seg við hvern er sorgin þyrmir yfir
þinn sonur lifir.
Ástarkveðja,
Mamma.
Hví var þessi beður búinn,
barnið kæra, þér svo skjótt?
Svar af himni heyrir trúin
hljóma gegnum dauðans nótt.
Það er kveðjan: „Kom til mín!“
Kristur tók þig heim til sín.
Þú ert blessuð hans í höndum,
hólpin sál með ljóssins öndum.
(B. Halld.)
Elsku yndislegi Sigurður minn,
það er mér mikill harmur að þurfa að
kveðja þig, þú sem varst ekki nema 18
ára gamall og ennþá í blóma lífsins.
Elsku hjartans ástin mín, ég hugsa:
Af hverju Sigurður sem alltaf var svo
lífsglaður með sitt fallega bros og
glampa í augum?
Ég vildi að ég gæti tekið utan um
þig núna og sagt hvað ég elska þig
mikið. Elsku Sigurður minn, ég reyni
að hugsa um allar góðu minningarnar
sem ég á um þig. Það er mér svo mik-
ils virði að eiga þær. Það verður svo
erfitt að takast á við framtíðina án þín
og fá ekki að sjá þig framar og tala um
allt sem við höfðum svo gaman af.
Eva og Birta eiga eftir að sakna þín
mjög sárt, elsku Sigurður, því þú
varst þeim alltaf svo góður.
Ástargullið mitt, ég veit að Kjartan
afi og Guðni afi og bróðir okkar munu
taka vel á móti þér og ég veit að þú
munt hugsa vel um litlu stelpuna
mína fyrir mig því þú varst alltaf svo
góður og blíður við öll systkinabörnin
þín. Ég veit af henni í góðum höndum
hjá þér, minn yndislegi bróðir.
Ég gæti skrifað endalaust til þín,
elsku ástin mín, um allt það skemmti-
lega sem við gerðum saman, en ég
mun geyma allar yndislegu minning-
arnar um þig í hjarta mínu og ég veit
að þú munt ætíð vaka yfir okkur og
vera með okkur.
Elsku hjartans Sigurður minn, ég
kveð þig með miklum söknuði og mun
ætíð minnast þín með allri minni ást.
Ég elska þig, engillinn minn.
Þín systir,
Sigurborg.
Elsku Sigurður minn, það er sárt
að vita að þú sért farinn og við
sjáumst aldrei framar í þessu lífi. Ég
mun ætíð minnast þeirra ára sem við
áttum saman. Gaman var að hitta þig
um síðustu jól, ég var farinn að hlakka
til þess að hitta þig í sumar þegar ég
kæmi í heimsókn á Suðureyri og var
ég viss um góðar móttökur.
Elsku Siggi minn, megi Guðs engl-
ar vaka yfir þér og breiða vængi sína
um þig.
Mig langar að kveðja þig með
þessu fallega versi:
Ég þakka þau ár sem ég átti
þau auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um huga minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Þinn faðir,
Theodór Helgi.
Elsku bróðir, nú ertu farinn frá
mér.
Mig langar að kveðja þig með
þessu fallega versi:
Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesú mæti.
(Höf. ók.)
Þinn bróðir,
Theodór Páll.
Ástkæri frændi minn, Sigurður.
Ég vona að þér líði vel þarna uppi hjá
afa, litlu frænku og stóra bróður. Við
munum einhvern tímann hittast
þarna uppi þótt það verði kannski
langt í það. En ég þakka þér fyrir all-
ar góðu stundirnar sem þú gafst mér
þessi 13 ár.
Þín frænka,
Eva Björk.
SIGURÐUR PÁLL
JÓRUNNARSON
Fleiri minningargreinar um Sig-
urð Pál Jórunnarson bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu
daga.
Veröldin er okkar og sú veröld er
sjálf skilgreind af okkur eða fyrir
okkur. Þessi veröld þín var nánast
vísindalega nákvæm. Það var hægt
að ganga að þér vísum. Húsið þitt við
Borgarbrautina, Staðarhóll stendur
nú eins og minnisvarði um líf þitt. Þú
sýndir því mikla ræktarsemi, þó svo
að þú værir fluttur í Fellaskjól. Þessi
höll (18,3 fm) er ómetanlegur hluti af
samfélaginu, eins og ég ólst upp við
það. Það verður krafist umhverfis-
mats af nemendum grunnskólans
líklega fyrst af öllum, ef á að fjar-
lægja það!
ÓSKAR
SÆMUNDSSON
✝ Óskar Sæmunds-son fæddist í
Árnabotni í Helga-
fellssveit 22. janúar
1908. Hann lést á
dvalarheimilinu
Fellaskjóli í Grund-
arfirði 27. nóvember
síðastliðinn. Minn-
ingarathöfn var í
Grundarfjarðar-
kirkju 4. desember,
útför hans fór fram
frá Fossvogskapellu
8. desember.
Sem ungur drengur í
samskiptum við þig,
lærði ég um margar
hliðar mannlegs lífs og
samskipti fólks. Ef við
hefðum búið í stærra
samfélagi, hefðum við
sennilega ekki kynnst,
allavega á annan hátt.
Þú hefðir sennilega
ekki fengið að efla
sjálfsmynd þína á jafn
öflugan hátt, t.d. með
því að taka virkan þátt í
atvinnulífinu.
Þegar séra Magnús
var prestur í Grundar-
firði og Áslaug kona hans organisti,
en þau hafa reynst mörgum svo vel
og ekki síst þér, þá sendu þau okkur
börnin til að lesa jólaguðspjallið fyrir
einstaklinga og eldra fólk og við
Sigga Gísla frænka mín, fórum til þín
og ég man hvað ég var feginn, því ég
vissi að þú myndir taka mjög vel á
móti okkur. Enda varst þú glaður og
ég var það einnig í fyrstu, þangað til
að kom í ljós að ég var ekki í nógu
fínum buxum, en hvaða máli skiptir
slíkt prjál í veröld okkar beggja.
Guð geymi Óskar Sæmundsson.
Jóhannes Finnur.