Vísir - 13.01.1979, Blaðsíða 25
25
VÍSIR
Laugardagur 13. janúar 1979.
ÞULA UM
DÝR
Litla kvöldsagan:
AFMÆLISGJAF1RNAR
Mamma átti bráðum
afmæli og Kristján ætlaði
að gefa henni afmælis-
gjöf. Hann átti 500 króna
seðil og hann ætlaði að
kaupa vasaklútakassa
með bláu skrautbandi
handa mömmu.
Mömmu finnst
áreiðanléga gaman að fá
svoleiðis gjöf, hugsaði
Kristján, þegar hann
gekk niður gangstíginn
frá húsinu með seðilinn í
hendinni. En þá gerðist
dálítið óvænt. Kristján
datt og missti seðilinn og
hversu vel sem hann
leitaði þá fann hann ekki
seðilinn.
Aumingja Kristján. Nú
átti hann enga peninga til
að kaupa fyrir afmælis-
gjöf handa mömmu sinni.
en allt í einu fékk hann
góða hugmynd.
Ég gæti búiðtil snjókarl
og gefið mömmu í af-
mælisgjöf.
Og hann byrjaði strax
að velta snjóbolta og þeg-
ar snjókarlinn var til-
búinn, gat mamma séð
hann beint út um eldhús-
gluggann. En Kristján
var ekki viss um, að
mamma hefði gaman af
því að fá snjókarl í af-
mælisgjöf. Ég get ekki
pakkað honum inn í
fallegt bréf og sett silki-
band utan um, sagði hann
við sjálfan sig.
En allt í einu sá
Kristján eitthvað græn-
leitt á maganum á snjó-
karlinum. Hann gáði að
því, hvað þetta var og þá
fann hann að það var
peningaseðillinn, sem
hann hafði týnt. Hann tók
seðilinn og hljóp út í
næstu búð. Hann keypti
fallegan vasaklút í kassa
og konan í búðinni pakk-
aði honum inn í skraut-
legt bréf og setti silki-
band utan um.
Þegar Kristján kom
heim, sagði hann: Hér er
ein gjöfín mín til þfn. Hin
gjöfin er fyrir utan eld-
húsgluggann.
Mömmu þótti mjög
vænt um að fá vasaklút-
inn og hún kyssti Kristján
og þakkaði honum fyrir
gjöfina. Og þegar hún sá
snjókarlinn, fannst henni
reglulega gaman að fá
svo óvenjulega afmælis-
9iöf
Þetta er fallegasti
snjókarl, sem ég hef
nokkurn tímann fengið,
sagði hún.
Ég átti sauð,
sem borðaði brauð,
ég átti kind,
sem málaði mynd,
ég átti hest,
sem hristi hrossabrest,
ég átti kú,
sem mjólkaði í bú,
ég átti hund,
sem var léttur í lund,
ég átti svín,
sem þoldi ekki grín,
ég átti apa,
sem aldrei vildi tapa,
ég átti gauk,
sem langaði í lauk,
ég átti fola,
sem maulaði mola,
ég átti dúfu,
sem hafði hvíta húfu
ég átti ffl,
sem ók í bláum bíl,
ég átti Ijón, sem var eins
og gult bón,
ég átti geit,
sem var mátulega feit,
ég átti slöngu,
sem át alltaf löngu,
ég átti hval,
sem lék sér við Val,
ég átti fisk,
sem ég færði upp á disk,
ég átti fálka,
sem fór i úr neðri kjálka,
ég átti hreindýr,
sem át alltaf sein dýr,
ég átti mús,
sem bjó sér til hús.
Kannski getið þið svo
bætt einhverju við
þuluna.
Ég átti dúfu, sem hafði
hvíta húfu.
Ég átti hund, sem var
léttur í lund.
Myndirnar gerði Harri,
sjö ára.
HÆ KRAKKAR!
Umsjón: Anna
Brynjúlfsdótfir
GÁTUR
1. Hvað er það, sem fer í
skóla á hverjum degi, en
lærir samt ekki neitt?
2. Hvað er það, sem hef-
ur 21 auga, en ekkert nef
og engan munn?
3. Hver er helsti kosturinn
við svarta kú?
4. Hvað er það, sem er
kringlótt og hefur mörg
augu en getur ekkert séð?
5. Hvort er þyngra eitt
kíló af blýi eða 1 kg af
f iðri?
6. Hvað er það, sem hef ur
fingur, en engar tær?
7. Af hverju hefur kýrin
horn?
8. Hve mörg Ijón getum
við sett í tómt búr?
/
'4!3 "8 ‘egnus ega jn||oq gaui 6a|euseuæAungQeiAcjfV'Z!>|sueH •9*6uncj
ujep 'S 'eife^jex JJipjui e*jAq jn)|>|0 jnja6 ung qv *E Jnöumaj ‘z ue>|seje|p>is 'L
WIUV9 GIA UOAS
é ••
BILAVARAHLUTIR
Fronskur Chrysler órg. '71
Toyota Crown órg. '67
Fiat 125 árg. '73
Fiat 128 árg. '73
Volvo Amazon árg. '65
BMW 1600 '69—'70
BILAPARTASALAN
Höfðatúni 10, simi 11397
Opið frá kl. 9-6.30
'laugardaga kl. 9-3 og
^p sunnudaga kl. 1-3.
Verksmiðjvútsalan
opin í dag frá 9—7
M.a. Bolir, peysur,
skyrtur ffrá kr. 700,0
Barnabuxur ffrá kr. 1.800,0
FullorOinsbwxur ffrá kr. 2.000,0
Mikið úrval aff
herraskyrtum og peysum
Ulpur ffrá kr. 6.900,0
Mussur, kápur, ffrakkar,
töskur o.ffl., o.ffl.
Nýjar tískuvörur á
stórlœkkuðu verði.
Þú getur gert ótrulega
góð kaup á
verksmið ju -
ótsölunni.
Grensásvegi 22,
gamla Litavorshúsinw
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 67. 71. og 73. tölublaOi Lögbirtingablaös-
ins 1977 á eigninni Arnartanga 9, Mosfellshreppi þingl.
eign Sveins Gislasonar, fer fram eftir kröfu Jóns óiafs-
sonar, hrl. og Guömundar Þóröarsonar hdl., á eigninni
sjálfri þriöjudaginn 16. janúar 1979 kl. 3.30 e.h.
Sýsiumaöurinn f Kjósarsýsiu
Nauðungaruppboð
annaö og siöasta á eigninni Hjallabraut 84, Hafnarfiröi,
þingl. eign Eiriks Óiafssonar, fer fram á eigninni sjálfri
miövikudaginn 17. janúar 1979 kl. 1.30 e.h.
Bæjarfógetinn i Hafnarfiröi.