Vísir - 29.01.1979, Side 14

Vísir - 29.01.1979, Side 14
14 Mánudagur 29. janúar 1979 VlSIR Óskabyrjun á járnblendiverksmiðjunni: Hagstœtt verð á heimsmarkaði Lokakostnaöur fyrri áfanga járnblendiverksmiðjunnar að Grundartanga er áætlaöur 298,9 miiljónir norskra króna eða um 18 milijarðar islenskra. Þetta er 7% undir upphafiegri áætlun og er talin von til þess að loka- kostnaður, sem áætlaöur var upphaflega 321,6 milljðnir norskra króna, lækki enn. Jón Sigurðsson forstjóri Is- lenska járnblendifélagsins var ánægður meö gang mála við byggingu verksmiöjunnar þeg- ar fréttamenn heimsóttu Gund- artanga á fimmtudaginn. Þar voru einnig Hjörtur Torfason hrl. stjórnarformaöur járn- blendifélagsins, Guömundur Guömundsson stjórnarmaöur, John Fenger fjármálastjóri, Jón Steingrimsson verkfræöing- ur og Guölaugur Hjörleifsson staðarverkfræöingur, sem gekk LEVI strauss & co. SAN FRANCISCO, CAL.. U.S.A PROUDLY PRESENTSIN OÐAL TONIGHT 60min. VIDEO kl.9^ SVIPMYNDIR UR GREASE OG SATURDAY NIGHT FEVER SVIPMYNDIR AF FRUMSÝNINGU Á GREASE OG AF BALLINU SEM HALDIÐ VAR A EFTIR VIÐTÖL VIÐ: TRAVOLTA OLIVIU NEWTON-JOHN O.FL. MEÐAL ANNARA KOMA FRAM'ANDY GIBB OG BEE GEES KYNNIR: ALICE COOPER MUNIÐ HINAVINSÆLU RYDELL BOLI I RickyVillard skemmtir 2svar i kvöld MickieGee keppir aö heimsmetinu Guðlaugur Hjörleifsson staðarverkfræöingur útskýrði hvaða hlut- verki hver bygging þjónar á Grundartanga. (Visismynd SG). meö fréttamönnum um verk- smiðjuna og útskýröi þaö sem fyrir augu bar. Sem fyrr segir hefur bygg- ingakostnaður verksmiöjunnar veriö undir áætlun. Jón Sigurðs- son sagöi að vélar og tæki heföu veriö keypt samkvæmt útboöum og fengist á hagstæöu veröi. Verölag á kisiljárni haföi verið i lægð og eflaust mætti þar fá skýringu á þessum hagstæöu kaupum. Einnig kynni upphaf- lega áætlunin aö hafa veriö rif- lee. Hagstæð verðþróun Járnblendiverksmiöjan mun hefja framleiöslu á kisiljárni eftir liðlega tvo mánuöi, en þá á öllum framkvæmdum viö fyrri ofn verksmiöjunnar aö vera lok- iö. Kisiljárniö er notað viö stál- framleiöslu og hefur heims- markaösverö á þvi sveiflast meira undanfarin ár en dæmi eru til. Hiö skráöa verö breska tima- ritsins Metal Bulletin fyrir 75% kisiljárn viö verksmiöjuvegg notenda i Bretlandi gefur góöa mynd af þessu. Veröiö var i lægö 1972-73, allt niður i 1500 krónur norskar fyrir tonnið, en hækkaöi siöan og á fyrri hluta árs 1975 var veröiö komið upp I 3.600 norskar krónur á tonn. Eftir þaö féll veröið og fór lægst niður i 2.400 krónur á fyrri hluta siðasta árs. Um mitt ár 1978 hækkaði veröið i 2.800 krónur, i lok októ- ber I rúmlega 3.000 krónur og um miöjan janúar nú var veröið komiö upp I nálega 3.400 krónur norskar fyrir tonniö. Þessi veröþróun ber vott um jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar og jafnvel nokk- urrar eftirspurnar umfram framboö. Er þetta aö hluta vegna aukinnar stálframleiöslu i heiminum. Kunnáttumenn á þessu sviöi telja engin merki annars en verðþróun veröi áfram hagstæö og fullyrða aö sveifla niður á við i likingu viö þaö sem geröist 1976-78 sé af ýmsum ástæöum ekki hugsanleg. Gerðar hafa veriö áætlanir sem gefa visbendingu um fram- leiðslukostnað kisiljárns frá Grundartanga. Þar er kostn- aöarverö á tonni aö meötöldum vöxtum taliö nema 3.250-3.400 norskum krónum miðaö viö einn ofn, en 3.000-3.150 miöaö viö tvo ofna. Aö meötöldum afskriftum á 17 árum hækkar kostnaður meö einum ofni i 3.950-4.100 og með tveimur ofnum i 3.550-3.700 Forráöamenn Járnblendifé- lagsins fullyrða, aö meö tilliti til markaðsins i dag hrökkvi sölu- verö kisiljárnsins frá Grundar- tanga til aö bera allan áfallandi rekstrarkostnaö og hluta áfall- andi vaxta aö auki. Hér er átt við rekstur eins ofns, sem er mun óhagkvæmari rekstur en þegar báöir ofnarnir veröa komnir i notkun haustið 1980. Að þvi leyti sem vextirnir greiðast ekki af rekstrinum, munu þeir greiðast af bygg- ingarfé samkvæmt upphaflegri, fjármögnunaráætlun. Undir lok þess 17 mánaöa tíma, sem ráð- gert er að reka verksmiöjuna meö einum ofni, er hins vegar ekki fráleitt aö ætla, aö þvi marki verði náö, að þessi vextir greiðist aö fullu af rekstrinum. Töldu járnblendismenn fullvist, að eftir að báöir ofnarnir væru komnir i gagniö mundi rekstur- inn skila umtalsveröu fé upp i afskriftir. Rétt er aö geta þess aö afborgarnir af lánum byrja ekki aö falla til greiöslu fyrr en á miðju ári 1982. Aö öllu samanlögðu viröist ljóst eins og nú standa sakir, aö járnblendiverksmiðjan á Grundartanga veröur tilbúin i rekstur á réttum tima og ekki útlitfyrir, aö hrakspár sem uppi hafa verið af og til, rætist á nokkurn hátt. -SG SÍMAR: 1-69-75 & 1-85-80 Vegna breytinga ó rekstri aukum við úrvalið af notuðum húsgögnum, tökum einnig notað upp í nýtt, kaupum eða umboðssala. Ath. 20-30% staðgreiðsluafsláttur á nýjum húsgögnum þessa viku.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.