Vísir - 05.05.1979, Síða 20

Vísir - 05.05.1979, Síða 20
Laugardagur 5. mal 1979. r............................ 20 1 Born i Kársnesskóla skriia I mörgum skólum eru gefin út skólablöð á vorin. Barnasíð- unni hef ur borist eitt slíkt blað, en það er Kári, blað Kársnes- skóla i Kópavogi. Blaðið er f jölbreytt og skemmtilegt og í dag birtum við sýnishorn úr Kára. Fremst í blaðinu er skrifað um aðstoð við þróunar- löndin og þar er þessi kveð- skapur. Svart oq hvitt eftir Einar Björnsson, 5.J.S. Við erum feit, en þau eru mögur. Okkar veröld er stór og fögur. Við búum í stórum stofum. Þau hírast i litlum kofum. Við borðum fisk, þau stara á tóman disk. Við eigum kjöt. þau engin föt. Við búum í borgum. Þau stela á torgum. Ljósahátíð Ljósahátíðin var haldin hjá bekknum mínum skömmu eftir að ferðin á Þjóðminjasafnið var farin. Tilgangurinn með Ljósahátíðinni var að brenna kertin sem við höfðum sjálf búið til í skólanum. Við komum líka með kex með okk- ur á Ijósahátíðina. í stofunni sem Ijósahátíð- in var haldin, var mikið líf og f jör. Þar var kexið borðað, sýnd voru leikrit og lesin saga. Þar var líka olíulampi sem kveikt var á, meðan kertin voru að brenna. Flestir brenndu kertin sín lítið, en samt var mjög gaman. Hrefna 2.E.R. Osklrnar Hún er frá íslandi, frá ríku landi. Hún hefur allt sem hún þarf. Sérðu, hvers hún óskar sér? Hún getur eiginlega verið án þess alls. Það köllum við lúxus. Hann er frá þróunar- landi. Hann hefur ekki allt, sem hann þarfnast. Sérðu, hvers hann óskar sér? Allt eru þetta hlut- ir, sem hann virkilega þarfnast. HÆ KRAKKAR! Umsjón: Anna Brynjúlfsdóttir ÞRIR VINIR Hvað eigum við að gera í dag? sagði Pési við Dodda vin sinn. „Við skulum fara niður í f jöru með bátinn minn," sagði Doddi, ,,og vita hvort hann flýtur." „Já, það skulum við gera," sagði Pési „og leyfa Snúð að koma með." „Það verður gaman," sögðu báðir vinirnir og svo lölluðu allir þrír af stað, Doddi, Pési og Snúður litli. Teresa Linda 3.I.R. Hvaö heitir kennar- inn hans Gunnars? Þetta er skemmtileg myndagata, sem Gunnar Benediktsson i 4. S.I. teiknaði. Getið þið fundið út, hvað kennarinn hans Gunnars heitir? Ef þið ráðið myndagátuna rétt, finnið þið nafn kennarans. (Lausn annars staðar á siðunni) jnQiaSis ruinjeSepuÆui e usneq

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.