Vísir - 10.04.1979, Blaðsíða 3
VISIR Þriftjudagur 10. april 1979
v3*
Tk V *.
Eitt mesta mengunarslys í sðgu Bandaríkjanna:
..STÆRBAR eiturský
VFIR SLYSSTABNUM”
seglr Jónas ingi Ketilsson, sem býr í næsta nágrenni vlð slysstaðinn l Hðrída
„Það voru um 67 tengivagnar þarna i einni lest.
Fremsti vagninn fór út af sporinu og varð mikil
sprenging þegar næstu vagnar lentu á þeim
vagni. Einnig skemmdust mjög margir vagnar
og eiturefnin láku út i andrúmsloftið,” sagði
Jónas Ingi Ketilsson námsmaður i Pensacola i
norðvesturhluta Flórida, sem er mjög stutt frá
þeim stað er mikið mengunarslys varð.
„Það sorglega við þetta er
það, að aðeins 48 tlmum fyrir
slysið voru afnumin lög, sem
bönnuðu lestum er flytja svona
farm að aka hratt.”
— Er nokkuð vitað um hvað
olli nákvæmlega þessu slysi?
„Járnbrautin þarna um slóðir
er vist orðin nokkuð gömul og
blöðin hér telja að gallar hafi
veriðí henni, þannig að hún hafi
látið undan þunga lestarinnar”.
— Hafa orðið einhver slys á
fólki?
„Nei, ekki enn, þvi slysstað-
urinn er rétt fyrir utan
Crestview, en byggð þar er
nokkuðdreifð. Aftur á móti hafa
náttúruspuöll orðið mikil. Það
myndaðist strax stærðar
eiturský yfir slysstaðnum og
nokkuð af þessum efnum var I
fljótandi formi og rann út I
nærliggjandi á. Eins og er
stendur vindur inn I landið og
ber eiturskýið að mestu yfir
óbyggt svæði, en þar eru þó
miklar veiðilendur sem fólk ótt-
ast mjög um.
Það var þó talið nauðsynlegt
að flytja á brott um 9000 manns I
öryggisskyni, en það er ekki I
minu nágrenni og við hér erum
ekki I neinni hættu.”
Þau eiturefni sem komust út i
andrúmsloftið eru m.a. klór,
aseton, karbónit o.fl.
Slysið átti sér stað nálægt ein-
um stærsta herflugvelli
Bandarikjanna, Edlin-flugvell-
inum. Menn héldu I fyrstu, að
bensingeymar flugvallarins
hefðu sprungið, svo mikil var
sprengingin.
Enn hafa engin slys orðið á
fólki, en óneitanlega hefur rifj-
ast upp fyrir mönnum hér hið
mikla mengunarslys sem átti
sér stað I Soveto á ítaliu fyrir
nokkrum árum og eru afleiðing-
ar þess enn að koma fram á
fyrrum ibúum þess bæjar”.
—ss—
Tlllaga á aðalfundl FlugieiDa n.i. síðdegls í dag:
Flugfðlaglð og Loft-
leiðir aðskilin á ný
- Elgnum verðl sklpt - Sömu fiuglelðlr og fyrlr samelnlngu -
„Samkomulagið virðist vera ennþá verra en það
var áður og þetta hefur ekki gengið eins og það átti
að gera”, sagði Kristjana Milla Thorsteinsson i
samtali við Visi en hún mun, eins og Visir skýrði frá
f gær, flytja tillögu á aðalfundi Flugleiða 1 dag um
að fyrirtækinu verði skipt.
„Þetta gæti orðið til þess að
fleiri tillögur eða hugmyndir
kæmu fram. Einnig vonast ég til
að þetta opni umræður um
málið”, sagði Kristjana. Hún
sagðist ekki hafa kannað væntan-
legar undirtektir við tillögunni en
bjóst við að þær myndu ef til vill
valda nokkrum úlfaþyt. Kristjana
er eiginkona Alfreðs Eliassonar
forstjóra Flugleiða hf.
Visi hefur borist afrit af tillög-
unni og er hún á þessa leið:
„Eins og mörgum mun vera
ljóst orðið hefur þeim þjóðhags-
legu markmiðum um hagkvæmni
I rekstri sem samgöngumála-
ráðherra stefndi að með hvatn-
ingu sinni til flugfélaganna haust-
ið 1972 um að draga úr skaðlegri
samkeppni ekki verið náð.
Að visu er samkeppnin úr sög-
unni en i stað hennar komu önnur
vandamál sem segja má að séu
bæði margvislegri og flóknari
viðfangs en hin eldri voru.
Þess vegna leyfi ég mér hér
með að bera fram eftirfarandi til-
lögu á aðalfundi Flugleiða 10.
april 1979.
1. Félögin verði aðskilin aftur og
hvort félag stundi áfram flug-
rekstur á sama hátt og það gerði
fyrir sameiningu og hafi hvort
félag sinar fyrri flugleiðir i sömu
hlutföllum og á sömu staði og það
hafði á sameiningardaginn 1.
ágúst 1973
Verði þau siðan rekin sem sjálf-
stæðar einingar hvort með sinu
nafni.
2. Ollum eignum Flugleiða verði
skipt á milli félaganna þannig að
hvort þeirra fái sitt samkvæmt
mati dagsettu 6. febrúar 1976 en
það lýsir skilmerkilega eignum
hvors félags fyrir sig sam-
einingardaginn.
Allri eignaaukningu sem orðið
hefur eftir þann tima skal siðan
skipt eftir þeim hlutföllum sem
fram komu i áðurnefndu mati.
Það er að segja Flugfélag Islands
46.47020% og Loftleiðir h.f.
53.52980%.
3. A þeim flugleiðum og á öllum
öðrum sviðum sem hagræðingar
af sameiginlegum rekstri er að
vænta skuli félögin hafa sam-
vinnu og starfa saman að sam-
eiginlegum markmiðum. Yrði
það framkvæmt með þvi að út-
nefndir yrðu sérstakir menn til að
annast þann þátt mála eða sér-
stök deild innan hvors félags hefði
þetta með höndum”.
—KS
I !rammavek %
Guðmundur Kristinsson i vistlegum húsakynnum Rammavers sf.
Visismynd ÞG
Nýft rammaver
Nýtt innrömmunarverkstæði, áherslu á vandaða vinnu og
Rammaver sf., hefur verið góða þjónustu. Opið verður fyrst
opnað i Garðastræti 2. Eigandi Um sinn frá 4-7 virka daga og
er Guðmundur Kristinsson og io-12 og 1-4.
segist hann munu leggja
PP
Erum reiðubúnir aö
ræða tæknneg alrlði”
- seglr Þorstelnn Pálsson. framkvæmdastlörl
Vlnnuveliendasambandsins
„Við höfum samþykkt að setj-
ast ekki að samningaborði til þess
að ræða kröfur um launahækkan-
ir eða aukin launakostnað. Við er-
um hins vcgar reiðubúnir til að
ræða ýmis önnur atriði”, sagði
Þorsteinn Pálsson framkvæmda-
stjóri Vinnuveitendasambands
Islands I samtali við Visi.
Undirnefndir Vinnuveitenda-
sambandsins og samninganefnd
Farmanna og fiskimannasam-
bandsins komusaman til fundar i
gær um kjarasamninga.
„Við erum til umræðu um
tæknilega breytingu á kjara-
samningum sem ekki valda aukn-
um útgjöldum þegar á heildina er
litið.
Þess vegna gerðum við það að
tillögu okkar að undirnefnd kann-
aði kröfur yfirmannanna út frá
þvi sjónarmiði hvort þar væri
einhver atriði að finna sem við
gætum orðið sammála um”,
sagði Þorsteinn.
—KS.
Þingmenn (frf
Efnahagsfrumvarp Olafs
lóhannessonar var afgreitt sem
ög frá Alþingi á laugardaginn.
rveir þingmenn Alþýðubanda-
agsins greiddu atkvæði gegn
rumvarpinu.þau Svava Jakobs-
dóttir og Kjartan Ólafsson.
Þingmenn fóru i páskaleyfi eft-
ir þingfundi á laugardaginn og
kemur þing ekki saman aftur fyrr
en nokkru eftir páska.
—KS.
Frá og með þriðjudeginum 10. apríl endurbætum við rjómann til að
auðvelda þeytingu.
Fituinnihaldið er aukið úr 33% í 36%.
Ahrifln verða:
• Miklu auðveldari þeyting. • Auðveldara er að sprauta rjómanum
• Rúmmál þeytirjómans eykst, og skreytingar halda sér betur.
hann verður u.þ.b. 10% drýgri
en fyrr, þegar búið er að
þeyta hann.
Neytendur eru beðnir velvirðingar á því að gömlu umbúðirnar verða í
notkun meðan beðið er eftir nýjum.
MJÓLKURSAMLÖGIN UM LAND ALLT.