Morgunblaðið - 13.07.2001, Blaðsíða 1
157. TBL. 89. ÁRG. FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 13. JÚLÍ 2001
ÍSRAELAR skutu úr skriðdrekafall-
byssum á eftirlitsstöðvar palestínsku
lögreglunnar í bænum Nablus á Vest-
urbakkanum í gær, í kjölfar tveggja
fyrirsáta sem ísraelskir vegfarendur
lentu í. Einn palestínskur lögreglu-
maður féll í árásunum, fjórir Ísraelar
særðust og vopnahléið í Mið-Austur-
löndum fékk einn skellinn enn.
Hvorki Ísraelar né sjálfstjórnar-
yfirvöld Palestínumanna vilja axla
ábyrgð á að vopnahléið sem samið var
um fyrir milligöngu Bandaríkja-
manna fyrir mánuði fari út um þúfur.
En það breytir því ekki að skotárás-
irnar sem gerðar voru á ísraelska
borgara og skriðdrekaárásirnar sem
Ísraelsher greip til í hefndarskyni
gerðu gærdaginn að enn einum of-
beldisdeginum og báðir aðilar vöruðu
við afleiðingum þess ef átökin mögn-
uðust enn.
Og fráfarandi sendiherra Banda-
ríkjanna í Ísrael, Martin Indyk, sagði
að alþjóðasamfélagið ætti að vera
óspart á að beita Jasser Arafat, leið-
toga Palestínumanna, þrýstingi til að
þvinga hann til að gera raunverulega
allt sem í valdi hans stæði til að halda
aftur af árásargjörnum róttæklingum
í röðum Palestínumanna.
Ariel Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, sem hélt í tveggja daga
heimsókn til Ítalíu í gær, fordæmdi
árásir Palestínumannanna og sagði
að Ísraelar yrðu að herða á aðgerðum
af sinni hálfu til að hindra að slíkt gæti
átt sér stað.
Árásir gærdagsins hófust með því
að hjón úr landnemabyggð gyðinga
og smábarn þeirra særðust er skotið
var á þau úr bifreið sem ók hjá
skammt suður af Nablus sem er á
sjálfstjórnarsvæði Palestínumanna.
Þá hlaut Ísraeli, sem var undir stýri á
bíl sínum, alvarleg skotsár er hann
lenti í fyrirsát skammt frá landnema-
byggðinni Kiryat Arba við Hebron.
Vopnin tala í Mið-Austurlöndum þrátt fyrir opinbert vopnahlé
Skriðdrekaskothríð á pal-
estínskar lögreglustöðvar
Jerúsalem. AP.
TUGIR óeirðaseggja köstuðu grjóti
og bensínsprengjum í lögreglumenn
á nokkrum stöðum á Norður-Írlandi í
gær þegar árleg göngutíð Óraníu-
reglunnar náði hámarki. Yfir fimmtíu
lögreglumenn slösuðust í átökum
sem brutust út er hópur mótmælenda
gekk hjá hverfi í norðurhluta Belfast,
sem að mestu er byggt kaþólikkum,
og stóðu yfir fram á kvöld.
Um það bil 100.000 mótmælendur
tóku þátt í göngum Óraníureglunnar
á 19 stöðum. Lögreglan var með mik-
inn viðbúnað til að reyna að koma í
veg fyrir óeirðir og átök milli mót-
mælenda og kaþólikka. Nokkrum
götum var lokað til að hindra að
göngumenn færu inn á svæði kaþól-
ikka.
Óeirðir hafa oft blossað upp í
tengslum við árlegar göngur Óraníu-
reglunnar en spennan er óvenju mikil
að þessu sinni vegna mestu pólitísku
kreppu á N-Írlandi frá friðarsam-
komulaginu sem náðist árið 1998.
Reynt að bjarga
heimastjórninni
David Trimble, leiðtogi stærsta
flokks mótmælenda, sagði af sér
embætti forsætisráðherra norður-
írsku heimastjórnarinnar 1. júlí eftir
að Írski lýðveldisherinn (IRA) hafði
neitað að afvopnast. Fallist Trimble
ekki á að taka við embættinu aftur
eða náist ekki samkomulag um eftir-
mann hans fyrir 12. ágúst þarf breska
stjórnin annaðhvort að boða til þing-
kosninga á N-Írlandi eða leysa
heimastjórnina upp.
Harðlínumenn úr röðum mótmæl-
enda köstuðu bensínsprengjum á lög-
reglumenn í Portadown, suðvestur af
Belfast. Lögreglan beitti þrýstivatns-
byssum og skaut gúmmíkúlum til að
dreifa óeirðaseggjunum. 19 lögreglu-
menn og tveir óeirðaseggjanna særð-
ust.
Félagar í tveimur skæruliðahreyf-
ingum mótmælenda, UVF og UFF,
hleyptu af skammbyssum upp í loftið
í Belfast til að sýna að þeir væru til-
búnir að grípa til vopna.
Göngur Óraníureglunnar eru
haldnar til að minnast sigurs her-
sveita Vilhjálms III (af Óraníu) á
sveitum kaþólikka árið 1690.
AP
Þátttakendur í göngu Óraníureglu mótmælenda á Norður-Írlandi ganga hjá víggirðingu brynvarinna óeirða-
lögreglubifreiða sem ætlað var að skilja göngumenn frá kaþólskum íbúum norðurhluta Belfast í gær.
Spenna og götu-
óeirðir á N-Írlandi
Belfast. AFP, AP.
GENGI hlutabréfa í kauphöllinni í
New York tók kipp upp á við í gær.
Fjárfestar virtust taka vægt bjart-
sýniskast eftir að afkomutölur
nokkurra fyrirtækja reyndust já-
kvæðari en margir höfðu þorað að
vona eftir samdráttarfregnir síð-
ustu mánaða. Dow Jones-vísitalan
hækkaði um 238 punkta í viðskipt-
um dagsins og endaði í 10.479
punktum í gærkvöldi.
Það sem glæddi viðskiptin meira
en annað var jákvæð afkomuspá
Microsoft-hugbúnaðarrisans, sem
ýtti undir bjartsýni sem jákvæðar –
en þó magrar – afkomutölur net-
þjónustufyrirtækisins Yahoo! og
farsímarisans Motorola ollu.
Nasdaq-tæknifyrirtækjavísitalan
hækkaði um 103,7 punkta og endaði
í 2.075,7 punktum.
Sumir kauphallarrýnar telja þó
bjartsýnina sem felst í þessari upp-
sveiflu vísitölunnar vera byggða á
hæpnum forsendum. „Fyrirtækin
eru enn að segja að þau sjái engan
veginn fram á hvenær hlutirnir
gætu batnað,“ segir Phil Dow hjá
kauphallarrýnifyrirtækinu Dain
Rauscher Wessels í New York. „Við
munum sjá efnahagslífið rétta úr
kútnum á fyrri helmingi næsta árs,
en ekki fyrr,“ fullyrðir hann.
Öllu neikvæðari þróun varð á
mörkuðum víða annars staðar í
heiminum í gær. Í Argentínu féll
verð hlutabréfa og skuldabréfa nið-
ur út öllu valdi. Efnahagskreppan
þar í landi er farin að hafa áhrif á
gengi gjaldmiðla annarra Suður-
Ameríkuríkja og spillir fyrir trú al-
þjóðlegra fjárfesta á vaxtarhorfum
annarra bjargálna þróunarríkja.
Bjart-
sýniskipp-
ur á Wall
Street
New York. AP.
ATHYGLI fjölmiðla beindist í gær
að fulltrúum Peking á síðasta blaða-
mannafundinum sem haldinn var áð-
ur en Alþjóðaólympíunefndin kveður
upp úr með hvaða borg mun hreppa
réttinn til að halda Ólympíuleikana
árið 2008. Á blaðamannafundinum,
sem haldinn var í Moskvu, brostu
fulltrúar Pekingborgar við spurning-
um um aftökur og mannréttindi til
að komast hjá glappaskotum sem
gætu haft áhrif á niðurstöðu nefnd-
arinnar. Ólympíunefndin hittist í
Moskvu í gær og mun á morgun
kjósa um það hvaða borg verður
næsti gestgjafi leikanna á eftir
Aþenu sem hýsir þá árið 2004.
Peking tapaði leikunum naumlega
til Sydney þegar ákveðið var hvar
Ólympíuleikarnir árið 2000 skyldu
haldnir. En í ár þykir hún eiga góða
möguleika. Fjórar aðrar borgir
koma til greina en það eru Toronto,
París, Istanbúl og Osaka. Á eftir
Peking eru París og Toronto taldar
hafa sterkustu spilin á hendi.
Ólymp-
íuleikar
í Peking
2008?
Moskva, AP. AFP.
Tíbetar, búsettir í Kanada, mót-
mæltu því fyrir utan ráðhús
Toronto í gær að Peking fái að
halda Ólympíuleikana árið 2008.
Ólympíunefnd/26
Reuters