Morgunblaðið - 13.07.2001, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 13.07.2001, Blaðsíða 30
MINNINGAR 30 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ H vers vegna höfnuðu Írar því í þjóð- aratkvæðagreiðslu að Evrópusam- bandið skuli stækkað? Var það vegna þess að þeir komust að þeirri niðurstöðu, eftir mikla yfirlegu, að ef bætt væri við einhverjum fyrrverandi aust- antjaldsríkjum með vafasaman kommúnisma í fortíðarskápnum gæti það leitt til minnkandi hag- sældar í þeim ríkjum sem nú þegar eru í sambandinu? Eða var það vegna þess að eftir mikla yfirlegu og kalt mat á innbyrðis hlutfalli raunverulegr- ar valdauppbyggingar innan ráð- herraráðs sambandsins – að sjálfsögðu með tilliti til fyrri yfirlýs- inga fram- kvæmda- stjórnar þess um vænt- anlega formennsku Belga í ESB – gerðu írskir kjósendur sér grein fyrir því að það væri að svo búnu ekki til framdráttar sam- bandinu í heild að það verði stækkað í þessum áfanga sam- runaferlisins, sem stýrt er af framkvæmdastjóra Evrópuþings- ins? Eða ætli geti verið að Írar hafi sagt nei vegna þess að þeir vildu ekki vera að segja já við ein- hverju sem þeir gerðu sér grein fyrir að þeir vissu lítið sem ekk- ert hvað var? Þessi síðasttalda skýring er reyndar líklegust í ljósi niður- staðna úr nýlegum skoðanakönn- unum meðal íbúa í ríkjum sem eru í ESB. Að því er segir í frétt frá AP finnst flestum Evrópu- búum þeir vita harla lítið um fyr- irhugaða stækkun sambandsins, og að þeir fái ekki mikið af upp- lýsingum um þessa fyrirætlan. Og mikill meirihluti, eða um 60%, kveðst lítt upplýstur um evruna, sem á að taka við sem gjaldmiðill í nokkrum Evrópuríkjum í byrj- un næsta árs. Er nema von að frammámenn í sambandinu láti sér detta í hug að kannski eigi það við ímynd- arvanda að etja? En hvað er til ráða? Ekki gengi að fá auglýs- ingamenn frá Bandaríkjunum til að skipuleggja upplýsinga- herferð. Þá mætti kannski prófa annað, það er að segja að gera alla um- fjöllun um sambandið skiljanlega. Eins og staðan er núna lítur ESB út fyrir að vera stórt embættis- mannafjall, algerlega ókleift fólki sem ekki kann nákvæm skil á öll- um stóru hugtökunum og getur ekki fótað sig í orðaslyddu emb- ættismannamálsins. Hér á Íslandi eru margir þeirrar skoðunar að best væri að við yrðum sem fyrst aðilar að sambandinu. En svo eru líka margir Íslendingar fullir efa- semda um ágæti þess. Það eru þeir fyrrnefndu, Evrópusinn- arnir, sem eiga á brattann að sækja, því að þeir vilja breyta ríkjandi ástandi (það er alltaf erf- iðara en að viðhalda því sem er) og þeim er vandi á höndum. Ekki bara pólitískur, heldur kannski umfram allt málfarslegur. Margir hafa pólitískar efa- semdir um ESB, en þeir eru líka margir sem eru á móti því að rokið verði í sambandið, einfald- lega vegna þess að þeim finnst þeir vita næsta lítið hvað um er að ræða. Það geta verið nokkrar ástæður fyrir þessum upplýs- ingaskorti. Kannski er þetta bara fólk sem getur ekki eða vill ekki setja sig inn í stjórnmál (og þá getur það bara sjálfu sér um kennt, ekki satt?); kannski er þetta vegna þess að upplýsingar liggja ekki fyrir. En það er mikið til af upplýsingum um Evrópu- sambandið. Þess vegna kviknar sá grunur að upplýsingaskortur stafi af því að Evrópusambandið, sem kerfi, er næsta óskiljanlegt. Þótt maður reyni að ná þar áttum er þetta eins og að lenda í hinum illræmda kansellístíl sem Íslendingar hvekktust á hér á öldum áður. Hann átti einmitt rætur sínar í evrópskri stjórn- kerfishefð og virðist nú vera að spretta þar upp á ný eins og ill- gresi sem ekki tókst að uppræta heldur sat eftir djúpt í moldinni og rýkur upp þegar aðstæður verða aftur hallkvæmar. Íslenskir Evrópusinnar eiga því um tvennt að velja, vilji þeir vinna til fylgilags við sig þá sem finnst Evrópusambandið óskilj- anlegt og flókið embættis- mannavölundarhús. Annar kost- urinn er að gera það skiljanlegt. En það er ekki nóg að búa til kórrétt íslensk orð fyrir allan hugtakaflauminn. Líklega þyrfti fyrst og fremst að einfalda kerf- ið, og eins og menn vita eru svona kerfi gjörn á að verjast með kjafti og klóm öllum grisj- unartilraunum, líkt og ösp sem sendir rótarskot í allar áttir verði hún fyrir árás. Því er sennilega vonlaust að ESB verði nokk- urntíma skiljanlegt öðrum en embættismönnum. En eiga þá Evrópusinnar á Ís- landi einskis úrkosti? Jú, þeir geta nýtt sér mjög sterkan þráð í íslenskri þjóðarsál, þráð sem hef- ur oft reynst notadrjúgur þegar fylkja hefur þurft þjóðinni saman (hvort heldur er um hátíð á Þing- völlum eða þýska rokkhljóm- sveit). Sá þráður er fótanuddtæk- isheilkennið. Þessi sundlaugablái plastbali, sem er löngu orðinn að tákni fyrir íslenska drift, verður björgunarbátur Íslendinga og á honum munum við sigla inn í náðarfaðm Evrópusambandsins. Það tókst að telja íslenskum unglingum trú um að Rammstein væri mesta hljómsveit í heimi, og því hlýtur að vera hægt að telja íslenskum kjósendum trú um að Evrópusambandið sé mesta bandalag í heimi. Með öðrum orðum: Skítt með allan skiljanleika. Ákveðum bara hér og nú að okkur finnist Evr- ópusambandið best. Viður- kennum smæð okkar og tregar gáfur og látum „þá stóru“, sem hafa þekkinguna og skilninginn, um að stýra okkur þangað sem þeir vita að okkur verði best borgið. Og eftir smátíma verður eins og Ísland hafi aldrei verið annað en órjúfanlegur hluti af ESB. Nýi kans- ellístíllinn „ ... því það hélt ég þó að allir gætu séð á sjálfum sér að landstjórnin er og verður fyrir þá stóru, en ekki fyrir þá smáu, og þeir smáu verða ekkert stærri á því að ætla að fara að skifta sér af þeim stóru.“ VIÐHORF Eftir Kristján G. Arngrímsson kga@mbl.is Halldór Laxness: Sjálfstætt fólk. ✝ Sighvatur JónGíslason fæddist á Sólbakka í Garði í Gerðahreppi 16. júní 1920. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Garðvangi að morgni laugardags- ins 7. júlí. Foreldrar Sig- hvats voru hjónin Steinunn Stefanía Steinsdóttir Knud- sen, húsmóðir, f. 18.10. 1895, d. 31.1. 1944 og Gísli Sig- hvatsson, f. 4.5. 1889, d. 19.9. 1981, útgerðarmað- ur í Garði, Gerðahreppi. Systkini Sighvats eru Guðrún Gísladóttir, f. 25.2. 1916, húsmóðir í Keflavík; Þorsteinn Gíslason, f. 7.10. 1917, d. 25.8. 1939; Ingibjörg Gísladótt- ir, f. 4.8. 1926, húsmóðir í Kefla- vík. Hálfbróðir Sighvats er Hörð- ur Gíslason, f. 11.6. 1948, fjármálastjóri, búsettur í Reykja- vík. Sighvatur kvæntist 21.8. 1943 Ingveldi Hafdísi Guðmundsdótt- ur, f. 23.12. 1923, húsmóður og sjúkraliða. Foreldrar hennar voru hjónin Sigurðína Jór- ur, búsett í Njarðvík, gift Karli Georg Magnússyni. Börn þeirra eru Hilmar Þór Karlsson, við- skiptafræðingur, í sambúð með Halldóru Hálfdánardóttur og eiga þau eina dóttur, Diljá; Ingveldur Hafdís Karlsdóttir, háskólanemi. Sambýlismaður hennar er Starri Freyr Jónsson. Sonur þeirra, Orri; Guðlaug Björk Karlsdóttir, háskólanemi, gift Birgi Guðfinns- syni. 3) Steinunn Sighvatsdóttir, f. 11.11. 1950, húsmóðir og skrif- stofumaður, búsett í Njarðvík, gift Gunnari Þórarinssyni. Börn þeirra eru Guðni Þór Gunnars- son, viðskiptafræðingur, í sambúð með Guðrúnu Pálsdóttur. Sonur þeirra, Árni Þór; Sighvatur Ingi Gunnarsson, viðskiptafræðingur. Sambýliskona Þóra Sveinsdóttir. Sonur þeirra, Ingi Þór; Guðlaug Sunna Gunnarsdóttir, háskóla- nemi. 4) Guðmundur Ómar Sig- hvatsson, f. 30.5. 1958, forstöðu- maður íþróttahúsa í Reykjanesbæ, kvæntur Kristínu Haraldsdóttur. Börn þeirra eru Haraldur Freyr Guðmundsson, nemi; Bryndís Guðmundsdóttir og Iris Guðmundsdóttir. Sighvatur Jón stundaði ýmis al- menn störf til sjós og lands en lengst af starfaði hann hjá Olíufélaginu Esso á Keflavíkur- flugvelli. Útför Sighvats fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin kl. 14. amsdóttir, f. 25.11. 1903, d. 23.7. 1975, húsmóðir og Guð- mundur J Magnússon, f. 5.7. 1897, d. 11.3. 1975, vélstjóri í Keflavík. Sighvatur og Ingveldur Hafdís bjuggu lengst af á Suðurgötu 49 í Kefla- vík en síðustu árin í Vinaminni að Aðal- götu 5 í Keflavík. Börn Sighvats og Ing- veldar Hafdísar eru: 1) Gísli Steinar Sig- hvatsson, f. 29.11. 1943, kennari í Reykjavík, kvænt- ur Ólöfu Steinunni Ólafsdóttur. Dætur þeirra eru Inga Sif Gísla- dóttir, leikskólakennari, í sambúð með Sigurþór Þórarinssyni og eru börn þeirra Sigurþór Ingi og Ólöf Jóhanna. Fyrir átti Inga Sif soninn Gísla Steinar Sverrisson; Ólöf Gísladóttir, þroskaþjálfi, gift Birni S. Stefánssyni og eru börn þeirra Stefán Ingi og Rakel Dís; Helga Hafdís Gísladóttir, þroska- þjálfi, sambýlismaður hennar er Styrmir Freyr Böðvarsson. 2) Sigrún Sighvatsdóttir, f. 23.3. 1945, húsmóðir og skrifstofumað- Faðir minn, Sighvatur Jón Gísla- son er látinn, rúmlega áttræður að aldri. Síðustu heimsóknir mínar til hans á hjúkrunarheimilið Garðvang sýndu mér glögglega að hverju stefndi og ég fann af orðum hans og látbragði að hann var reiðubúinn til þess að kveðja þennan heim. Ég vil fyrir hönd fjölskyldunnar þakka starfsfólkinu á Garðvangi fyrir frábæra umönnun og gott viðmót en þar var allt gert síðustu mánuðina til þess að lina þjáningar hans og gera líf hans eins bærilegt og unnt var. Pabbi vann lengst af hjá Olíufélag- inu Esso á Keflavíkurflugvelli og var þar í góðum hópi manna sem sá um að afgreiða eldsneyti á flugvélar. Oft kom það fyrir að ég fór með honum í vinnuna og það fór ekki fram hjá mér, að hann var virtur og vinsæll á vinnu- stað. Samviskusamur var hann með afbrigðum og dugnaðarmaður til verka. Vinnufélagarnir hjá Esso náðu vel saman og oft var glatt á hjalla á Suðurgötunni þegar þeir komu í heimsókn. Pabbi var hvorki þá né síðar mikill félagsmálamaður. Fjölskyldan og brauðstritið sátu í fyrirrúmi. Um tíma tók hann þátt í starfi Karlakórs Keflavíkur og hafði af því gleði og ánægju enda söngmaður ágætur. Stundum greip hann líka gítarinn og spilaði og söng fyrir okkur krakkana. Það kom samt sjaldan fyrir enda þurfti hann dálítið af söngvatni til þess að komast almennilega í gang. Pabbi sótti líka gjarnan pólitíska fundi; var framsóknarmaður frá blautu barnsbeini og vék aldrei af þeirri braut og var þá sama í hvaða ólgusjó flokkurinn hans lenti. En fyrst og fremst var hann fjöl- skyldumaðurinn. Konan hans og börnin voru það sem lífið snerist um. Ég man eftir pabba sem mildum og góðum uppalanda. Hann tók af festu en ljúfmennsku á bernskubrekunum og oftast var það þannig, að maður reyndi að gera honum til hæfis. Þegar pabbi var á miðjum aldri brast eitthvað í sálarlífi hans. Áhyggjur og kvíði sóttu að honum og kvað svo rammt að því um tíma að verulega dró úr starfsþreki hans og lífsþrótti og þurfti hann að leita sér lækninga af þeim sökum. Þá og alla tíð síðan stóð fjölskyldan þétt saman um velferð hans en mest reyndi þó á móður mína. Hún var sem klettur við hlið eiginmanns síns. Ástúð hennar, umhyggja og einurð skiptu sköpum og náði hann allgóðri heilsu á ný. Ég hef stundum hugleitt hvað það var sem lá að baki þessum sjúkleika. Ég vissi að lund hans var viðkvæm og ekki er að efa, að sár lífsreynsla hefur sett mark sitt á hann. Pabbi var inn- an við tvítugt þegar Þorsteinn bróðir hans lést af slysförum. Var það gríð- arlegt áfall enda miklir dáleikar með þeim bræðrum. Örfáum árum síðar lést móðir hans. Án efa hafa þessir at- burðir veikt lund hans, þótt ekki yrði þess vart fyrr en löngu síðar. Pabbi var að eðlisfari fremur hlédrægur og dulur og aðeins einu sinni ræddi hann þessa atburði við mig. Ég man að það dró af honum í miðri frásögn og ég sá að hann viknaði. Þá voru liðin fjörutíu ár frá þessum atburðum. Nú hefur pabbi fengið hvíldina og eiginkona hans, hún móðir mín, orðin ekkja eftir fimmtíu og sjö ára hjú- skap. En hún þarf engu að kvíða. Fjölskyldan stendur þétt saman eins og alltaf áður. Ég kveð svo föður minn, sem ég virti svo mikils og þótti óumræðilega vænt um. Megi hann hvíla í friði. Guð blessi minningu hans. Gísli Steinar Sighvatsson. „Þar sem jökullinn ber við loft hættir landið að vera jarðneskt, en jörðin fær hlutdeild í himninum, þar búa ekki framar neinar sorgir og þess vegna er gleðin ekki nauðsyn- leg, þar ríkir fegurðin ein, ofar hverri kröfu.“ (Úr Heimsljósi e. HKL.) Þessi orð koma mér í hug er ég minnist Sighvats Gíslasonar tengda- föður míns sem lést sl. laugardag. Kynni okkar Siffa, eins og hann var gjarnan kallaður, hófust með kynn- um mínum og dóttur hans Steinunn- ar fyrir rúmlega þrjátíu árum. Skömmu síðar leiddi hann glæsilegar dætur sínar tvær inn kirkjugólfið í Keflavíkurkirkju og færði í hendur brúðgumanna. Ég fékk hönd Stein- unnar en Karl svili minn Sigrúnar. Það var tígulegur og stoltur faðir sem þar fór. Sighvatur ólst upp við mikla tón- listariðkun og söng og hefur frænd- fólk hans lagt margt gott til lista á landi voru og er almennt listhneigt. Móðir hans Steinunn var organisti í Útskálakirkju í Garði. Einnig var bróðir hans annálaður tónlistar- og söngmaður en hann lést ungur af slysförum. Oft heyrði ég Sighvat taka lagið þegar vel lá á honum. Á manna- mótum tók hann oft lagið og söng þá gjarnan einsöng en á sínum yngri ár- um er mér tjáð að hann hafi haft for- kunnarfagra tenórrödd. Hann var reyndar gleðimaður og hrókur alls fagnaðar á mannamótum. Sighvatur tók ævinlega virkan þátt í pólitískum umræðum. Oft var kátt á hjalla þegar þau systkinin og makar þeirra hittust og þá gjarnan skrafað um pólitísk málefni og stjórnmála- menn. Oft var heitt í kolunum þótt engin illska væri. Þá mátti stundum sjá stríðnisglampa í augum Sighvats er hann kom að einhverjum hnyttn- um athugasemdum um pólitíska and- stæðinga sína en hafði þá gjarnan lag á að hverfa af vettvangi eða snúa um- ræðunni í aðra sálma. Sighvatur var mjög tilfinninga- næmur maður. Sá þess sérstaklega merki þegar hann hlýddi á fagrar söngraddir, sérstaklega frændfólk sitt, þá mátti stundum sjá hann tár- ast. Sighvatur var hlýr og ljúfur maður og sérlega barngóður. Þó að hann væri ekki afskiptasamur hvatti hann barnabörn sín með óbeinum hætti, spurði svo dæmi sé tekið „hvenær verður þú stúdent, Sunna mín?“ eða „Ætlarðu ekki að spila eitthvað fall- egt á píanóið fyrir mig, Sighvatur minn?“. Hann fylgdist vel með því sem barnabörn hans voru að gera og var stoltur af þeim og hrósaði við hvern unninn áfanga. Hin síðari ár fór að halla undan fæti hjá Sighvati og árið 1997 fluttist hann að hjúkrunarheimilinu að Garðvangi, á sínar æskuslóðir. Áfram hélt hann að njóta góðrar aðhlynn- ingar eiginkonu sinnar Ingveldar sem var ætíð stoð hans og stytta. Utan úr Garði er fögur sýn til fjalla allt frá Reykjanesi yfir að Snæfells- jökli. Það fór því vel á því að Sig- hvatur hafi kvatt þennan heim þaðan sem sjá má Jökulinn bera við him- ininn og hafi nú fengið sinn stað í ríki fegurðarinnar. Megi algóður guð vera með þér og þökk fyrir samfylgd- ina. Gunnar Þórarinsson. Elskulegur afi okkar er látinn. Síðustu mánuði hefur hann átt við veikindi að stríða og við vitum að hvíldin var honum kærkomin. Eftir sem áður býr sorg í hjarta og við fell- um tár. Með fráfalli hans verða þátta- skil í lífi okkar af því að samskiptin við Siffa afa voru okkur alla tíð svo mikilvæg. Við systurnar ólumst upp í Nes- kaupstað og í æsku var það ætíð til- hlökkunarefni á sumrin að heim- sækja afa og ömmu í Keflavík. Þar áttum við alltaf yndislegan tíma í góðu yfirlæti. Síðar þegar við systurnar hófum nám við Fjölbrautaskóla Suðurnesja stóð heimili afa og ömmu okkur opið. Dvöl okkar hjá þeim þessi ár var ómetanleg og við minnumst með hlý- hug kærleika þeirra, umhyggju og þolinmæði í okkar garð. Amma alltaf hlý og ákveðin en afi svolítið hlé- drægur. Afi átti það til að vera dálítið stríð- inn og stutt var í kímnina. Hann var líka einstaklega hjálpsamur og eftir- látur við okkur. Afi var góðmenni sem öllum vildi vel. Kæri afi við kveðjum þig með SIGHVATUR JÓN GÍSLASON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.