Morgunblaðið - 13.07.2001, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
!
#
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Á VORDÖGUM bárust mér þau
gleðitíðindi að Björgvin Sigurbergs-
son, Íslandsmeistari í golfi, ætlaði sér
að gerast atvinnumaður í golfíþrótt-
inni og reyna að komast inn á Evr-
ópumótaröðina. Þar á hann heima, að
mínu mati.
Máli mínu til stuðning bendi ég á
að Björgvin hefur unnið alla þá titla
sem í boði eru á Íslandi og hefur ver-
ið, að öðrum kylfingum ólöstuðum,
bestur í nokkur ár.
Þegar grein þessi er skrifuð er
hann að gera það heldur betur gott
með íslenska landsliðinu í Evrópu-
keppninni, lék fjóra undir pari í for-
keppninni og átti stóran þátt í því að
Svíar voru lagðir að velli. Að sögn
liðsstjóra landsliðsins kalla strákarn-
ir í liðinu hann „kónginn“.
Áform Björgvins eru að gerast at-
vinnumaður nú strax eftir Evrópu-
keppina og taka þátt í tveimur mót-
um á sænsku mótaröðinni í júlí og
æfa síðan og leika hér heima á lands-
mótinu og á Toyota-mótaröðinni
fram á haust og reyna síðan við Evr-
ópumótaröðina.
Ég hef notið þess að kynnast
Björgvini, bæði sem félaga og sem
keppnismanni í golfíþróttinni. Ég tel
að það sé leitun að öðrum eins keppn-
ismanni og kylfingi sem ann íþrótt-
inni eins mikið.
Björgvin hefur náð þeim árangri
að vera þrisvar sinnum Íslandsmeist-
ari bæði í höggleik og holukeppni.
Fjórum sinnum hefur hann verið
stigameistari Íslands og þrisvar golf-
maður ársins. Árið 2000 var hann val-
inn kylfingur ársins.
Þessum árangri hefur Björgvin
náð samhliða mikilli vinnu og það erf-
iðisvinnu, húsasmíði. Björgvin hefur
því oft þurft að æfa sig þreyttur hing-
að til.
Það væri mjög gaman að sjá hvað
hann kemst langt í golfíþróttinni ef
hann fær tækifæri til að helga sér
íþróttina án þess að þurfa að vinna
með og hafa fjárhagsáhyggjur og tel
ég að hann ætti að komast mjög langt
þar sem hann hefur allt til að bera,
hæfileika, að vera vel studdur af fjöl-
skyldu sinni og góður drengur.
En Björgvin þarf aðstoð til að geta
helgað sig íþróttinni og þess vegna er
þessi grein skrifuð, til að biðla til
allra kylfinga á landinu sama í hvaða
klúbbi þeir eru og hvar á landinu sem
þeir eru að rétta honum hjálparhönd.
Það getum við gert annaðhvort
með að leggja peninga inn á reikning
400733 í Sparisjóði Hafnarfjarðar
eða með því að hafa samband við
framkvæmdastjóra golfklúbbs Keil-
is, Ágúst Húbertsson, en hann mun
útskýra nokkra möguleika í þessu
sambandi. Upphæðin þarf ekki að
vera mikil á hvern einstakling en
munið að margt smátt gerir eitt
stórt.
Með tilkomu Björgvins munu
sennilega fjórir íslenskir kylfingar
berjast við það að komst inn á Evr-
ópumótaröðina í haust. Birgir Leifur
Hafþórsson, Ólafur Már Sigurðsson
og Kristinn Bjarnason sem ætlar að
reyna við amerísku mótaröðina.
Því fyrr sem einhver íslenskur
kylfingur nær að brjóta ísinn því
betra. Það mun koma okkur öllum til
góða á einhvern hátt og m.a. koma
ungir kylfingar til með að sjá að það
er hægt og er ég alveg viss um að það
mun bæta árangur íslenskra meist-
araflokkskylfinga í framtíðinni.
Ég þekki það sjálfur að hafa þurft
að hætta við áform mín að komast inn
á Evrópumótaröðina eftir að hafa
rétt misst það að komast inn, vegna
peningaleysis og reyndar hafa tveir
aðrir mjög góðir kylfingar þurft að
gera það sama.
Látum það ekki verða hlutskipti
Björgvins Sigurbergssonar.
Með golfkveðju.
SIGURÐUR PÉTURSSON
golfkennari.
Áskorun til kylf-
inga og annarra
velunnara golfsins
Frá Sigurði Péturssyni:
ÉG er einn af fjölmörgum Íslending-
um sem finnst gaman að ferðast um
eigið land með fellihýsi og nú nýverið
ferðaðist ég um Vestfjarðakjálkann í
hreint ógleymanlegri ferð.
Hins vegar er þjónusta á tjald-
stæðum landsins oft af skornum
skammti og stundum veit maður
hreinlega ekki fyrir hvað maður er
að borga.
Eitt besta tjaldstæði sem ég hef
komið á (og hef ég ferðast víða)
reyndist vera á Tálknafirði. Þar er
þjónusta til mikillar fyrirmyndar. Á
tjaldstæðinu er heitt og kalt vatn,
rafmagnsstaurar eru dreifðir um
svæðið þannig að hægt að vera sí-
tengdur við rafmagn en það er mjög
óvíða á landinu og skortir sárlega. Þá
er þarna fullkomin þjónustumiðstöð
með öllu sem við kemur ferðamann-
inum. Þar eru fullkomin eldhús með
öllum búnaði, þvottavélar, þurrk-
aðstaða og margt fleira. Ekki
skemmir fyrir að sundlaugin er við
hliðina á tjaldstæðinu.
Mér finnst að tjaldstæðaeigendur,
margir hverjir, megi taka sig á og
bæta þá þjónustu sem boðið er uppá,
þó auðvitað séu mörg tjaldstæði til
fyrirmyndar í þessum efnum. Ferða-
lög landans um eigið land njóta vax-
andi vinsælda með bættum ferða-
búnaði, og það að hafa aðgengi að
rafmagni fyrir fellihýsaeigendur
sem og aðra verður sífellt brýnna.
En aðdáunarvert finnst mér að
finna eitt besta tjaldststæði landsins
hjá litlu sveitarfélagi á Vestfjörðum.
Það lýsir dugnaði og krafti þeirra
Tálknfirðinga.
SIGURÐUR Þ. RAGNARSSON
Einibergi 23, Hafnarfirði.
Áfram Tálknfirðingar
Frá Sigurði Þ. Ragnarssyni: