Morgunblaðið - 13.07.2001, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.07.2001, Blaðsíða 14
SUÐURNES 14 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ⓦ í Ytri-Njarðvík Upplýsingar veitir umboðsmaður á staðnum, Eva Gunnþórsdóttir í síma 421 3475. SÆDÝRASAFNIÐ í Höfnum hefur nú verið opið í rúm sjö ár og hefur safnið verið mjög vinsæll áfanga- staður erlendra ferðamanna auk þess sem grunnskólabörn heim- sækja safnið á veturna og gera þar verkefni tengd lífríki sjávar. Und- anfarin ár hafa á bilinu 20-25 þús- und gestir heimsótt safnið árlega, en það er eina sædýrasafnið á land- inu fyrir utan Náttúrugripasafnið í Vestmannaeyjum. Í safninu eru lifandi fiskar, krabbadýr og önnur sjávardýr sem gestir geta skoðað í miklu návígi. Í einu keranna eru m.a. steinbítar sem gjarnar skjóta hausnum upp úr sjónum og yggla sig fram í gesti, sem eru varaðir við því að steinbít- arnir geti bitið fast í fingurna. Þá má sjá mikilúðlega trjónukrabba, ígulker, humra, marhnúta, kola, laxa, lúður og þorska á sundi, svo eitthvað sé nefnt. Auk lifandi fiska hefur verið komið upp fuglabjargi fyrir ofan eitt keranna þar sem algengir sjó- fuglar, uppstoppaðir, sitja á syllum eða svífa yfir höfðum safngesta. Þá er í safninu færeyskur hval- veiðibátur sem gefinn var Þjóð- minjasafninu en er í láni hjá Sæ- dýrasafninu. Sædýrasafnið hefur frá upphafi verið rekið af einkaaðilum og er Jón G. Gunnlaugsson eigandi safns- ins. Hann rak þar áður fyrirtæki sem sérhæfði sig í lúðueldi, þ.e. að halda lúðum lifandi í kerjum sem veiddar voru á sjó og selja þær ferskar. Jón lét útbúa bátana sem veiddu lúðurnar með kassa sem sjór flæddi um og þannig komst lúðan lifandi í land. „Þá voru þeir að henda ýmsu óvenjulegu dóti, kröbbum og svo- leiðis með, og ferðafólk var farið að stoppa og spyrja um þetta kar. Þannig kviknaði hugmyndin,“ segir Jón. Þá segist hann hafa verið með stórt húsnæði í gömlu frystihúsi í Höfnum sem aðeins var notað að litlu leyti og ákvað Jón því að setja upp safn í þeim hluta sem ekki var notaður. Þegar veiðar á lúðunum drógust saman var sjálfhætt í lúðu- eldinu þó reksturinn hafi gengið ágætlega, að sögn Jóns. „Ég var sá eini sem var þarna í nokkur ár með ferska smálúðu og hún rataði bæði inn í Buckinghamhöll og Hvíta hús- ið. Svo þegar dró úr þessum afla þá dró ég úr lúðueldinu og seldi aust- ara húsið og stækkaði safnið í nú- verandi mynd.“ Reykjanesbær hafnaði kaupum á safninu Að sögn Jóns hefur rekstur safns- ins gengið þokkalega án stuðnings opinberra aðila og aðsóknin verið ótrúlega góð miðað við það að safn- ið hafi nánast ekkert verið auglýst. Safnið hefur aðallega verið kynnt fyrir skólum og erlendu ferðafólki og er opið alla daga ársins, að sögn Jóns. Það byggist á því að stærsti viðskiptavinurinn, Kynnisferðir, kemur með hópa sem fara í hring- ferð umhverfis Bláa lónið. „Aðsókn að safninu hefur verið á bilinu 20-25 þúsund manns á ári, sem er nú býsna gott því ég man ekki betur en Þjóðminjasafnið hafi verið með um 25-30 þúsund gesti þegar það var opið,“ segir Jón. Mikið hefur verið lagt upp úr samstarfi við grunnskóla um heim- sóknir og verkefnavinnu í safninu. Safnið útbýr verkefni sem aðgengi- leg eru á Netinu fyrir kennara og nemendur sem síðan leysa verk- efnin í heimsóknum á safnið um leið og þau kynnast lífverunum. „Þá er oft mikill atgangur og mikið gam- an,“ segir Jón. Nýverið sendi Jón bæjaryfir- völdum í Reykjanesbær erindi og bauð safnið til sölu, en bæjarstjórn hafnaði þeirri ósk að kaupa safnið. Ellert Eiríksson bæjarstjóri sagði að þótt erindi Jóns hefði verið hafnað sé áhugi á því að finna leiðir til að koma til móts við hann, enda safnið mikilvægt fyrir ferðaþjónustuna. Því verði gengið til viðræðna um málið og jafnvel reynt að finna samstarfsaðila úr röð- um hagsmunaaðila til að mynda rekstrar- eða eign- arhaldsfélag um Sædýrasafn- ið. Hluti af safnasvæði í elsta hluta Hafna Jón segir að rekstur safns- ins verði óbreyttur, a.m.k. fyrst um sinn. Hann segist helst hafa kosið að Reykja- nesbær tæki safnið að sér og aukið yrði við það og safna- svæði skipulagt í elsta hluta þorpsins þar sem safnið er til húsa. „Þarna eru rústir af einu merkilegasta stórbýli landsins fyrir einni öld eða svo, Kotvogi sem er við hliðina á safninu. Þarna var miklu stærri bær en menn ímynda sér í dag, með ísgeymslu, mjöl- geymslu og lýsisvinnslu og öllu mögulegu. Reykjanesbær hefur nú haft í hyggju að byggja þetta upp og þá væri hægt að tengja þetta safninu og hefði passað vel.“ Á þessu ári fékk Sædýrasafnið í fyrsta skipti styrk frá fjárveit- inganefnd Alþingis, 3 milljónir króna. Að sögn Jóns hefur styrk- urinn að mestu verið notaður til að efla fræðsluþátt safnsins og segist hann vona að styrkurinn verði hér eftir veittur árlega. „Ef við fáum þennan styrk getum við byggt safnið upp á eigin getu. En það á eftir að koma í ljós hvort það tekst. Þetta hefur svona rúllað, ekki skilað arði en nokkurn veginn staðið undir sér. Þetta væri ekki hægt nema með þessum mikla fjölda gesta sem heimsækja safnið á hverju ári,“ segir Jón. Sædýrasafnið í Höfnum er vinsæll áfangastaður erlendra ferðamanna Steinbítarnir eru ófeimnir við að reka hausinn upp og heilsa gestum. Trjónukrabbinn fer jafnan mikinn, rauður og vígalegur á svip. Steinbítur og trjónukrabbi heilla gesti Hafnir Það er eins gott að mamma haldi vel í snáða, sem vill vandlega skoða stein- bíta og aðrir skrýtna fiska. Morgunblaðið/Eiríkur P. FRAMKVÆMDIR eru hafnar við stækkun grunnskólans í Garði. Að sögn Einars Valgeirs Arasonar, skólastjóra Gerðaskóla, er áætlað að framkvæmdum við þennan áfanga ljúki haustið 2002. Ráðgert er að reisa fjórar kennslustofur, anddyri og sam- komusal sem nýtist einnig undir mötuneyti. Ekki verður lokið við samkomusalinn í þessum áfanga. Þá stendur til að nýta viðbótarrými sem myndast við framkvæmdirnar undir fimmtu kennslustofuna. Að sögn Einars eru nemendur skólans um 220 í tíu bekkjardeild- um og er stækkun skólans liður í því að gera hann einsetinn. „Við búum við mjög mikla þröng á morgnana og það er erfitt að láta þetta allt smella saman,“ segir Einar. Hann segir að eins og sakir standa séu tveir bekkir síðdegis í skólanum. Að sögn Einars var gert ráð fyr- ir tölvuveri og bókasafni í upphaf- legum áætlunum en fallið hefur verið frá þeim hugmyndum að sinni. Þess í stað verður áfram not- ast við eldra tölvuver skólans og bókasafn sem er samnýtt af hreppnum og skólanum og er í gamalli kennslustofu í eldri skóla- byggingunni. Einar segir hugmyndir að nýju skólabyggingunni nokkurra ára og að búið sé að breyta þeim og end- urbæta á liðnum árum. Hann segir mikla þörf á stækkun skólahús- næðisins. Nemendafjöldi skólans hefur að hans sögn haldist óbreytt- ur síðastliðin 5 til 7 ár. Til lengri tíma litið hefur börnum hins vegar fjölgað í bæjarfélaginu. Framkvæmdir hafnar við stækkun Gerðaskóla Liður í einsetningu skólans Morgunblaðið/Eiríkur P. Framkvæmdir við nýja skólabyggingu í Gerðaskóla eru í fullum gangi. Búið er að steypa sökkulinn undir bygginguna. Garður BÆJARRÁÐ Grindavíkur hefur samþykkt að veita 4,3 milljónir til endurskipulagningar á stjórnun í grunnskóla bæjarins. Í erindi Hall- dórs Ingvasonar skólafulltrúa segir að með breyttum skóla og nýjum kjarasamningum hafi álag á skóla- stjórnun aukist til muna og ná- grannabyggðarlög og byggðarlög á Reykjavíkursvæðinu hafa ýmist sett deildarstjóra við hlið skólastjórn- enda eða úthlutað ákveðinni upphæð til skólanna. Halldór segir að með því að úthluta skólanum ákveðna upphæð hafi skólastjóri í hendi sér hvernig hann skipuleggi stjórn- unina. Að mati Halldórs er eðlilegt að setja deildarstjóra með ákveðið stöðuhlutfall og verksvið. Vægi millistjórnenda aukið Einar Njálsson bæjarstjóri sagði í samtali við Morgunblaðið að ákvörð- un um deildarstjórafyrirkomulagið hafi verið tekin við upphaf síðasta skólaárs. Hins vegar hafi dregist að koma breytingunum í kring vegna þess að ekki hafi tekist að manna í stöðurnar. „Við erum ákveðin í því að taka upp einhverskonar deildar- stjórakerfi í haust og þessi fjárveit- ing er til að standa straum af kostn- aðinum við þá breytingu.“ Bæjarstjóri segir að til að byrja með verði aukið við ritarastöðu sem aðstoði skólastjóra og aðstoðarskóla- stjóra. Ástæðu breytinganna segir hann að rekja megi til nýgerðra kjarasamninga og þeirra áhrifa sem þeir hafi á starf skólastjóra. „Eitt af því sem skólastjóra er fal- ið að gera er að deila úr potti milli kennara sem skólastjórar fengu til ráðstöfunar eftir því hvernig álag á kennara breytist frá einu skólaári til annars. Þetta fyrirkomulag er nýtt og krefst meðal annars ákveðinnar vinnu. Þannig að með því að auka vægi millistjórnenda, hvort heldur í hinu faglega starfi eða skrifstofu- starfi, er verið að endurskipuleggja hutina til þess að stjórnun skólans gangi eðlilega fyrir sig og skólastjór- ar hafi yfirsýn yfir sín verkefni,“ seg- ir bæjarstjóri. Stjórnunarstöður grunnskólans í Grinda- vík endurskipulagðar Dregið úr álagi á stjórn- endur Grindavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.