Morgunblaðið - 13.07.2001, Page 21
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 21
„TORRÁÐIÐ verk myrkra alda
dregið fram í dagsljósið,“ segir í
fyrirsögn dóms um sýninguna
Eddu eftir Benjamin Bagby og í
leikstjórn Pings Chongs sem birt-
ist á forsíðu menningarkálfs The
New York Times í gærmorgun.
Höfundurinn, Paul Griffiths, fer já-
kvæðum orðum um sýninguna og
segir túlkun Bagbys sjálfs „stór-
kostlega“. Hann segir frásögnina
grípandi frá upphafi og söngstíl
verksins hljóma „fullkomlega sann-
færandi“.
„Tunga verksins er framandi:
Forn-norska eins og hún var skráð
á Íslandi á 13. öld, og voru sagn-
irnar þá þegar orðnar mörg hundr-
uð ára. Frásögn kvæðanna er einn-
ig fjarræn. Segir þar af prinsi sem
var umbreytt í kóp og fiski sem
gætir sjóðs gulls, af manni sem
hlær á meðan hjartað er slitið úr
honum og af systur hans sem
myrðir manninn sem hún var
þvinguð til að giftast.
En þrátt fyrir þessa tvöföldu
torræðni verks myrkra alda – tor-
ræðni tungumáls, töfra og ofbeldis
– stendur það ljóslifandi og nálægt
okkur í meðförum listamannanna
og leikstjórn Pings Chongs,“ segir
í dómnum.
Griffiths hrósar frekar lausnum
leikstjórans Chongs og segir þá
leið sem farin hafi verið, að láta
leikarana sitja á flekum sem færðir
eru um sviðið, leggja enn frekari
áherslu á þá dramatík og hreyfingu
sem felist í orðum og hljóðum. Sú
lausn minni einnig á upprunalegan
frásagnarmáta kvæðanna þar sem
setið var yfir langeldi.
Fullkomlega sann-
færandi söngstíll
„Sagan er rakin í söng sem á
stundum hljómar stríður og fram-
andi,“ segir Griffiths og vísar til
flutnings söngkvennanna á hlut-
verki völvunnar í upphafi verksins.
„Oftast nær tvinna söngvararnir þó
melódískri hrynjandi saman við
frásögnina sem ljáir henni styrk og
staðfestu sagnar sem hefur verið
rakin oftsinnis áður.
Enginn getur vitað með vissu
hvort flutningur sagnanna var
þessu líkur fyrir meira en þúsund
árum. Í dag hljómar hann full-
komlega sannfærandi.
Flutningur Benjamins Bagbys,
aðalpersónu og sögumanns verks-
ins, er einnig stórkostlegur en
hann einkennist af augljósu næmi
fyrir efniviðnum. Frásagnir af
mútum og blóðsúthellingum
smjúga úr munni hans líkt og vel
slípaðir gimsteinar, og með glott á
vör lýsir hann kvikum hnífsstung-
um með annarri hendinni á meðan
hin heldur um líruna. Einu vand-
ræðin eru fólgin í því að reyna að
hafa augun af honum af og til og
fylgjast með þýðingunni á skján-
um,“ segir Griffiths.
Hann hrósar einnig söngkonun-
um tveimur og segir öllu alvarlegri
túlkun þeirra vel hæfandi þeirri
visku og þeim harmi sem einnig
búi í verkinu.
Dómi sínum lýkur Griffiths með
því að fara orðum um látbragð
völvunnar, sem leikin var af
Christopher Caines, í upphafi
verksins, sem hann segir opna
áhorfendum heim þar sem hið
skrítna teljist eðlilegt.
Lofsamlegur dómur The New York Times um Eddu Benjamins Bagbys
Höfundurinn Benjamin Bagby og Ping Chong leikstjóri.
Þar sem skrítið telst eðlilegt
New York. Morgunblaðið.
LENGI hefur tíðkast að staðar-
tónskáld Sumartónleika í Skál-
holti semji tónverk til frumflutn-
ings á Sumar-
tónleikunum.
Um helgina er
Karólína Ei-
ríksdóttir stað-
artónskáld.
Hún hefur
samið nýtt tón-
verk til frum-
flutnings á
Sumartónleik-
unum, Að iðka
gott til æru,
sem er samið fyrir einsöngvara,
óbó, víólu, selló, sembal og kór.
Tónverkið byggir Karólína á lög-
um sem fundist hafa í íslenskum
handritum.
Af öðrum verkum Karólínu sem
flutt verða um helgina mætti
nefna tónverkið Na Carenza, sem
hún samdi að tilstuðlan austur-
ríska tónlistarfræðingsins Regínu
Himmelbauer. Einnig verða flutt-
ir þættir úr óperuleiknum Maður
lifandi, sem er óperuleikur um
dauðans óvissan tíma, og var
fluttur í Borgarleikhúsinu í júní
1999. Hér verða fluttir þættir úr
verkinu í breyttri mynd, þar sem
einungis er um flutning tónlistar-
innar að ræða. Þau sem flytja
verk Karólínu Eiríksdóttur eru:
Kammerkór Suðurlands undir
stjórn Hilmars Arnar Agnarsson-
ar, Ásgerður Júníusdóttir mezzó-
sópran, Sverrir Guðjónsson
kontratenór, Pétur Jónasson gít-
arleikari, Sigrún Eðvaldsdóttir
fiðluleikari, Peter Tompkins óbó-
leikari, Jónína Hilmarsdóttir
víóluleikari, Sigurður Bjarki
Gunnarsson sellóleikari, Helga
Ingólfsdóttir semballeikari og
Guðrún S. Birgisdóttir flautuleik-
ari. Tónleikadagskrá helgarinnar í
Skálholti að öðru leyti er sem hér
segir:
Laugardaginn 14. júlí kl. 15
In Vultu Solis (1980)
Na Carenza (1993)
Hugleiðing (1996)
Að iðka gott til æru (2001)
Laugardaginn 14. júlí kl. 17
IVP (1979)
Vorvísa (1991)
Spor (2000)
Maður lifandi, (1991)
Sunnudagur 15. júlí kl. 15
Spor (2000)
Maður lifandi, (1991)
Hugleiðing (1996)
Að iðka gott til æru (2001)
Orgelstund í Skálholtskirkju
hefst á sunnudeginum klukkan
16.40 með flutningi Hilmars Arn-
ar Agnarssonar á orgelverkum
eftir J. S. Bach.
Verk eftir Karólínu Eiríksdóttur frumflutt í Skálholti
Að iðka gott til æru
Karólína
Eiríksdóttir
TÓNLEIKARÖÐIN Sumarkvöld
við orgelið heldur áfram í Hall-
grímskirkju um helgina. Einn efni-
legasti organisti Svía, Ulf Norberg,
leikur á tvennum tónleikum. Org-
anistarnir sem koma fram í tón-
leikaröðinni í sumar eiga það sam-
merkt að vera ungir að árum.
Norberg er þar engin undantekn-
ing, hann er aðeins 24 ára gamall,
en hefur þó þegar getið sér gott orð
sem afbragðs organisti.
Fyrri tónleikar hans verða í há-
deginu á morgun (12.00-12.30), en
þá leikur hann verk eftir Louis
Vierne og tvo sænska fulltrúa róm-
antískrar orgeltónlistar, þá Emil
Sjögren og Oskar Lindberg. Á
seinni tónleikum sínum, kl. 20.00 á
sunnudagskvöld, leikur Norberg
meðal annars konsert eftir Vivaldi í
orgelumritun Bachs (BWV 596) og
fantasíu og fúgu um tónana og
nafnið B A C H eftir Max Reger.
Einnig ætlar hann að iðka hina
fornu list að leika af fingrum fram,
en þess má geta að hann kynntist
kennara sínum í spuna, hinum
kunna spunameistara Anders
Bondeman, á Norrænum orgeldög-
um, sem haldnir voru í Hallgríms-
kirkju í september 1999.
Ulf Norberg fæddist árið 1977 í
Norður-Svíþjóð. 10 ára gamall byrj-
aði hann að spila á píanó og 16 ára
hóf hann kantornám í Mellansel.
Árið 1999 lauk hann kantorsprófi
frá Háskólanum í Gautaborg. Sama
ár hóf hann nám við orgeleinleik-
aradeild Konunglega tónlistarhá-
skólans í Stokkhólmi þar sem pró-
fessor Torvald Torén hefur kennt
honum orgelleik og túlkun. Und-
anfarna mánuði hefur Ulf Norberg
verið organisti við Johanneberg-
kirkjuna í Gautaborg og kennt org-
elleik og spuna við kirkjutónlist-
ardeildina í Mellansel. Hann hefur
komið fram á tónleikum víða um
Norðurlönd og í Lettlandi, Þýska-
landi, Tékklandi og á Ítalíu.
Ungur Svíi á Sumarkvöldi við orgelið í Hallgrímskirkju
Bach túlkar Vivaldi
og Reger túlkar Bach
ÁÆTLAÐ er að fara í göngu í fyrra-
málið um vesturenda Viðeyjar sem
hefur að geyma listaverk Richards
Serra. Hugsunin bak við listaverkið
verður kynnt jafnóðum í göngunni.
Richard Serra er spænsk-amer-
ískur naumhyggjulistamaður og á
hann verk m.a. í Guggenheim-safn-
inu í Bilbao á Spáni, National Gall-
ery of Art í Washington og Tate
Gallery í London.
Gangan tekur um 2–3 tíma og ferj-
an fer frá Sundahöfn kl. 11.15.
Verk Serra
skoðað