Morgunblaðið - 13.07.2001, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 13.07.2001, Qupperneq 41
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 41 MYNDUN blóðtappa í bláæðum í neðri hluta líkamans er ekki óvana- legur vandi eftir skurðaðgerð og þá meira í bláæðum fóta en annars staðar. Þessir blóðtappar eru segar sem myndast í bláæðum og valda storknun og stíflu í æðunum, þegar blóðstreymi er hægt, eins og hætt er við að sé fyrir hendi, þegar hreyfing er lítil. Þetta er sameig- inlegt með ástandi blóðstreymis í fótum á löngum flugferðum og kyrrstöðu eftir langar skurðaðgerð- ir. Ýmsar ráðstafanir eru gerðar á sjúkrahúsum vegna skurðsjúklinga, en lítið er gert fyrir flugfarþega. Forvarnir eru áhrifamestar. Er ekki kominn tími til að huga að þessu? Það er auðvelt. Hverjir fá helst blóðtappa? 1. Þeir sem hafa áður fengið bláæðabólgu. 2. Fólk sem er með bjúg á fótum. 3. Þeir sem eru of feitir og þung- ir. 4. Auk þess margir, sem virðast alveg heilbrigðir. Nú eru flug- ferðir á lengri leiðum oft 5-7 klst. auk alls biðtímans frá flugvöllum og til enn fjarlægra landa oft 12-14 klst. Það er því von að margir séu í mikilli hættu. Helstu einkenni um bláæðabólgu eru eymsli og verkur í kálfa eða læri og bjúgur á fótum. Stundum losnar blóðtappinn og siglir þá upp eftir bláæðunum og stoppar lífs- hættulega í lungnaæðum með mjög alvarlegum afleiðingum, sem krefj- ast strax meðferðar á sjúkrahúsi. Forvarnir eru bestar Hvað geta farþegar gert til að hindra þennan gang mála. Það þarf að auka hraða á rennsli blóðs í bláæðum með því að: 1. Hreyfa fætur og kreppa vöðva af og til meðan á flugferð stendur. Það er hægt að gera sitjandi í sæti sínu og pumpa með því að stíga fast í fætur en lyfta ristum upp á milli. 2. Djúp öndun eykur líka blóð- rennsli í bláæðum. Gott er að anda djúpt nokkrum sinnum af og til. 3. Þá er gott að standa upp og hreyfa sig með góðum fóta- hreyfingum. 4. Þeir sem hafa bjúg á fótum og merki um þrengsli í bláæðum ættu að vera í teygjusokkum eða með teygjubindi til stuðn- ings. Aðalatriði er að gera sér grein fyrir áhættunni og varast afleiðing- ar, þá er áhættan lítil. Góða ferð – Góða heimkomu. PÁLL GÍSLASON læknir. Blóðtappi og flugferðir Frá Páli Gíslasyni: EINAR Sveinbjörnsson, bæjar- fulltrúi Framsóknarflokksins í Garðabæ, skrifar í Morgunblaðið 4. júlí s.l. greinina „Styðjum við bakið á Strætó bs.“. Hann er mjög harðorður um Kjartan Magnússon borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem gagnrýnt hefur fargjaldahækkanir hins nýja strætisvagnafélags. Einar telur stofnun félagsins hins vegar vera „löngu tímabært heillaspor“ og bæt- ir við: „Einstök fargjöld hækka en fargjöld þeirra sem nota strætó að staðaldri lækka.“ Þessi fullyrðing Einars Svein- björnssonar er beinlínis röng hvað eitt atriði varðar að minnsta kosti. Farmiðakort fyrir öryrkja með 20 miðum hækkar um 400 krónur. Það þýðir að öryrki sem daglega tekur strætó út í bæ og heim aftur, 60 ferð- ir á mánuði, borgar 1200 krónum meira nú en áður. Þetta er stað- reynd og er undarlegt að forsvars- menn öryrkja spari nú stóru orðin því þaðan heyrist hvorki stuna né hósti. Ríkisstjórnin hækkaði örorkulíf- eyri um örfáar þúsundir 1. júlí en félagið Strætó bs. er þegar búið að taka þá hækkun aftur í raun og veru um 1200 krónur á mánuði, en 14.400 krónur á ári fyrir öryrkja, „sem nota strætó að staðaldri“. Nú langar mig til að biðja Einar Sveinbjörnsson að skýra út fyrir les- endum Morgunblaðsins í hverju „heillasporið“ með fargjaldahækk- uninni er eiginlega fólgið fyrir ör- yrkja. Og ég vona að Einar geri þetta hreint út og án allra pólitískra undanbragða eða stæla, bara sisvona eins og heiðarlegur maður við mann. SIGURÐUR ÞÓR GUÐJÓNSSON, Skúlagötu 68, Reykjavík. Í hverju felst „heilla- sporið“, Einar? Frá Sigurði Þór Guðjónssyni:

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.