Morgunblaðið - 13.07.2001, Side 42

Morgunblaðið - 13.07.2001, Side 42
DAGBÓK 42 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið. MIKIÐ hefur verið kvart- að undan fjárútlátum Reykjavíkurborgar og eru þar að sjálfsögðu sjálf- stæðismenn fremst í flokki. Þeir hafa mikið hrópað um eyðslu meiri- hlutans og hversu mikið hann hefur dælt í fyrir- tæki eins og Línunet og önnur borgarfyrirtæki eins og td. Stætisvagna Reykjavíkur og Félagsbú- staði. Margt er til í þessum ásökunum en þó má ekki gleymast að þessi fyrir- tæki gegna mikilvægri samfélagsþjónustu. Hvar stæðu margir starfsmenn hina ýmsu fyrirtækja ef SVR væri ekki starfrækt? Hætt er við að margir myndu ekki fá vinnu hjá fyrirtækjum þegar þau stæðu fram fyrir því að þurfa að greiða leigubíla- kostnað fram og til baka fyrir alla sína starfsmenn. Ekki má heldur gleyma þeim sem litla fjármuni eiga og hafa hvorki efni á leigubílakostaði né á bif- reið. Strætisvagnagjöld hafa hækkað, það er rétt , en á sama tíma þá hefur græna kortið lækkað, það leyfir einmitt þeim sem mest reiða sig á stræt- isvagna að geta notað þá áfram á lægra verði. Línanet hefur verið mest úthrópuð af borgarfulltrú- um minnihlutans. Lína er netfyrirtæki sem hefur það verkefni að leggja ljósleiðara um alla Reykjavíkurborg og stærð þessa verkefnis skýrir að mestu leyti fjár- útlát borgarinnar til Línu. Þegar ljósleiðaratenging- ar og rafmagnstengingar, sem Lína er einnig að koma í gagnið, komast í gang fyrir alvöru þá munu þær gefa borgarbúum kost á hraðri og öruggri nettengingu hvar sem er í borginni, á lágmarksverði. Þegar á þetta er litið er ansi hætt við að fyrirtæki eins og Landsíminn verði hræddur um stöðu sína á Internet-markaðnum. Landsíminn hefur eins og stendur nánast einokun á þessum markaði og eig- endur hans virðast hafa undarlega mikil ítök í minnihluta Reykjavíkur- borgar (sem skýrir að hluta til mótstöðu sjálf- stæðismanna við Línu). Sjálfstæðisflokkurinn hefur á síðustu kjörtíma- bilum hegðað sér eins og spilltur krakki sem hefur misst besta leikfangið sitt. Minnihlutinn hefur staðið saman í að neita öllum til- lögum sem R-listinn hefur lagt fram og úthúðað öllu sem meirihlutinn hefur gert. Sjálfstæðismenn virðast vera ótrúlega hræddir við að ríkið eign- ist fyrirtæki og stefna smám saman að einka- væðingu allra ríkisfyrir- tækja. Það er undarlegt að enginn skuli hafa veitt þessu neina gífurlega at- hygli, en hætt er við að margir verði hræddir um sinn hag þegar hlutir á borð við spítalana og Orkuveituna verða einka- væddir. Fólk yrði þá að borga fyrir heilsugæslu ásamt því að orkuverð myndi hækka upp úr öllu valdi. Íslendingar hafa löng- um verið hræddir við skatta en gleyma oft að skattar eru bráð- nausynlegir við að halda uppi hagkerfinu. Ef engir skattar væru þá væri ekkert gatnakerfi, enginn lögregla, ekkert heil- brigðiskerfi, engin Vatns- veita og þar af leiðandi mjög takmarkað magn af fólki hér á skerinu. Skattar eru alls ekki slæmir. Þeir tryggja okk- ur miklu, miklu meira en við gætum nokkurn tíman bjargað okkur sjálf með og gera okkur kleift að lifa eins og við lifum í dag. Hækkun skatta jafnar skilyrði þeirra ríku og þeirra fátæku og gerir þjóðina jafnari að kjörum. Borgin hefur verið að eyða peningum í hluti eins og gífurlegar gatnafram- kvæmdir ásamt hinum mörgu menningar- og list- viðburðum sem hún hefur kostað. Þó að kostnaður við marga þessa hluti sé mikill þá græða borgarbú- ar á mörgum þeirra til lengdar og hinir lífga upp á lífið í borginni. Ekki má gleyma að ríkið er ekki fyrirtæki heldur öll þjóðin í heild sinni og þeir sem við kjósum eru þeir sem framkvæma vilja íbúanna. Ríkið á að þjóna hags- munum hvers íbúa eins vel og mögulegt er, ekki hagsmunum minnihluta- hópa. Borgin virðist ekki hafa gleymt þessu eins vel og ríkisstjórnin og því mun ég beita mínu at- kvæði með þeim aftur í næstu kostningum og vona að sem flestir aðrir hugsi það sama. Geir Matti Järvelä. Tapað/fundið Mittistaska með leikjatölvu tapaðist BLÁ mittistaska með gulri GameBoy leikja- tölvu, tapaðist á ferðalagi frá Nesjum að Laugalandi í Holtum, föstudaginn 29. júní sl. Upplýsingar í síma 482-3505. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Börn í Borgarráði Víkverji skrifar... EKKI er Víkverji hissa á fréttumaf húsleit evrópskra samkeppn- isyfirvalda hjá farsímafyrirtækjum í Bretlandi og Þýzkalandi vegna gruns um ólöglegt samráð um verð á reikiþjónustu. Víkverji hefur lengi haft sum útlend símafélög grunuð um að innheimta fáránlega hátt gjald af útlendingum, sem notast við kerfi þeirra á ferðalögum. Flestir kannast áreiðanlega við að farsíma- reikningurinn sé fráleitlega hár þeg- ar komið er úr utanlandsferð til Evr- ópu. Víkverji telur að ekki sé við íslenzku símafyrirtækin að sakast; þau fá tiltölulega lítið í sinn hlut af hinu alltof háa verði. Það eru evr- ópsku símafélögin, sem gera gróf- lega upp á milli sinna eigin áskrif- enda og útlendinga, sem eiga ekki annan kost en að nota kerfið þeirra. Íslenzku símafélögin neyðast hins vegar til að innheimta reikninginn og fá gjarnan allar skammirnar. Eins og talsmaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins lét hafa eftir sér eru reikigjöldin „ekki gegnsæ og virðast ekki vera í samræmi við kostnaðinn“. Það er vægt að orði kveðið. Vonandi leiðir rannsókn Evr- ópusambandsins til þess að þessi gjaldtaka kemst í eitthvert skynsam- legra horf. x x x Á SÍNUM tíma var rifizt dálítiðum það hér á landi hvað nýi Evrópugjaldmiðillinn ætti að heita. Evra varð ofan á að lokum. Víkverji var reyndar ekki alls kostar sáttur við það orð og vildi bara tala um evró, sem beygist eins og bíó, en hann hefur látið í minni pokann og segir nú og skrifar evra eins og aðrir. Víkverja finnst hins vegar dálítið skondið að nú er að koma í ljós að lítil samstaða er á meðal þeirra, sem eiga að nota hinn nýja gjaldmiðil, um það hvernig á að rita heiti hans. Flestir eru reyndar sammála um að hann eigi að heita euro en þar lýkur sam- komulaginu. Hver höndin er nú upp á móti annarri í aðildarríkjum ESB um hvort eigi að skrifa heiti gjald- miðilsins með stóru eða litlu e-i, hvort eigi að beygja orðið, hvort það eigi að fá fleirtölu-s o.s.frv. Þannig hafa Bretar (sem reyndar ætla alls ekki að nota evruna) komizt að þeirri niðurstöðu að það eigi ekki að nota fleirtölu-s, heldur tala bara um eitt euro og mörg euro, en Portúgalir vilja bæta s-inu við: euro - euros. Samrunaþróunin í Evrópu er öflugt fyrirbæri, en sem betur fer hefur hún hvorki þurrkað út muninn á tungumálum álfunnar né sterkar skoðanir fólks, sem telur sig hafa betra vit á stafsetningu en aðrir. x x x STUNDUM er mikið gert úr þvíað hálft íslenzka embættis- mannakerfið sé á stöðugum ferða- lögum á milli Reykjavíkur og Bruss- el og eyði miklu af tíma sínum í evrópskt reglugerðafargan. Kannski er eitthvað til í því, en svo mikið er víst að ekki ferðast nógu margir á milli Brussel og Reykjavíkur til að Flugleiðum þyki taka því að bjóða upp á beint flug frá Keflavík til höf- uðborgar Evrópu. Víkverji átti er- indi til Brussel á dögunum og furðaði sig satt að segja á því hversu slæmar samgöngurnar eru við þessa miklu stjórnsýslumiðstöð. Líklega er vand- fundin önnur evrópsk höfuðborg en Reykjavík, sem ekki er í beinu flug- sambandi við Brussel. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 LÁRÉTT: 1 hættulegt, 8 gaman- semi, 9 harmar, 10 blóm, 11 miður, 13 ójafnan, 15 málms, 18 raka, 21 álít, 22 seint, 23 torveld, 24 ósléttur. LÓÐRÉTT: 2 kappsemi, 3 húsdýr, 4 girndar, 5 aðsjált, 6 hræðslu, 7 fall, 12 reyfi, 14 sefa, 15 aðkomumann, 16 froða, 17 verk, 18 end- aði, 19 hamingju, 20 tóma. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 fífil, 4 bolur, 7 liðnu, 8 reglu, 9 góa, 11 saug, 13 assa, 14 áfátt, 15 gust, 17 allt, 20 átt, 22 titts, 23 úlfar, 24 aurar, 25 iðrar. Lóðrétt: 1 fólks, 2 fiðlu, 3 laug, 4 bara, 5 logns, 6 rausa, 10 ókátt, 12 gát, 13 ata,15 gutla, 16 sútar, 18 lifur, 19 tór- ir, 20 ásar, 21 túli. K r o s s g á t a Skipin Reykjavíkurhöfn: Í gær komu Laugarnes, Bjarni Sæmundsson, Vigri RE og Árni Frið- riksson og út fóru Arn- arfell, Peggy, Black Velvet, Goðafoss, Hawk, Ottó N. Þorláks- son og Switzerland. Í dag eru væntanleg Mánafoss, Sina, Nukik og Skógarfoss. Viðeyjarferjan. Tíma- áætlun Viðeyjarferju: Mánudaga til föstudaga: til Viðeyjar kl. 13, kl. 14 og kl. 15, frá Viðey kl. 15.30 og kl. 16.30. Laug- ardaga og sunnudaga: Fyrsta ferð til Viðeyjar kl. 13 síðan á klukku- stundar fresti til kl. 17, frá Viðey kl. 13.30 og síð- an á klukkustundar fresti til kl. 17.30. Kvöld- ferðir eru föstu- og laug- ardaga.: til Viðeyjar kl. 19, kl. 19.30 og kl. 20, frá Viðey kl. 22, kl. 23 og kl. 24. Sérferðir fyrir hópa eftir samkomulagi. Við- eyjarferjan sími 892 0099 Lundeyjarferðir dag- lega, brottför frá Viðeyj- arferju kl.10.30 og kl. 16.45, með viðkomu í Viðey u.þ.b. 2 klst. Sími 892 0099. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 14 bingó. Árskógar 4. Kl. 13-16.30 opin smíðastofan. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8 hárgreiðsla, kl. 8.30 böð- un, kl. 9-16 almenn handavinna og fótaað- gerð, kl.9.30 kaffi/dag- blöð, kl. 11.15 matur, kl. 13 frjálst að spila í sal, kl. 15 kaffi. Félagsstarf aldraðra Dalbraut 18-20. Kl. 9 böðun og hárgreiðslu- stofan opin. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjábakka) kl. 20.30. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hársnyrting, kl.10 verslunin opin, kl.11.30 matur, kl. 13 opið hús, spilað á spil, kl. 15 kaffi. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Púttæfingar í dag á Hrafnistuvelli kl. 14-16. Morgungangan verður á morgun laugardag. Rúta frá Firðinum kl. 9.50 og kl. 10 frá Hraunseli. Or- lofið að Hótel Reykholti í Borgarfirði 26.-31. ágúst nk. Skráning og allar uppl. í símum ferða- nefndar 555-0416, 565- 0941, 565-0005 og 555- 1703. Panta þarf fyrir 1. ágúst. Félagsheimilið Hraunsel verður lokað vegna sumarleyfa starfsfólks til 12. ágúst. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan er opin alla virka daga frá kl. 10.00-13.00. Matur í hádeginu. Dagsferð 14. júlí Gullfoss-Geysir- Haukadalur. Fræðasetr- ið skoðað. Leiðsögn Sig- urður Kristinsson og Pálína Jónsdóttir. Takið með ykkur nesti. Brott- för frá Ásgarði Glæsibæ kl. 9.00. Eigum nokkur sæti laus. Miðvikudagur: Göngu-Hrólfar fara í létta göngu frá Hlemmi kl. 9.45. Eigum tvö sæti laus vegna forfalla í 6 daga ferð um Eyjafjörð- Skagafjörð og Þingeyj- arsýslur. 26. -31.júlí. Ákveðið hefur verið að fara aðra hringferð um Norðausturland, Hérað og Austfirði 20. ágúst nk. vegna mikillar eftir- spurnar, ef næg þátt- taka verður. Þeir sem hafa skráð sig á biðlista eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við skrifstofu FEB. Silfur- línan er opin á mánudög- um og miðvikudögum frá kl. 10.00 til 12.00 f.h. í síma 588-2111. Upplýs- ingar á skrifstofu FEB kl. 10.00 til 16.00 í síma 588-2111. Félagsstarfið Hæðar- garði 31. Kl. 9-11 morg- unkaffi, kl. 9-12 hár- greiðsla, kl. 9-12 sjúkraböðun, kl. 9.30 gönguhópur,kl. 11.30-13 hádegisverður, kl. 14 brids, kl. 15-16 eftirmið- dagskaffi. Gerðuberg, félagsstarf Sund- og leikfimiæfing- ar á vegum ÍTR í Breið- holtslaug á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 9.30. Púttvöllurinn er opinn virka daga kl. 9- 18, Kylfur og boltar í af- greiðslu sundlaugarinn- ar til leigu. Allir vel- komnir. Veitingabúð Gerðubergs er opin mánudaga til föstudaga kl. 10-16. Félagsstarfið lokað vegna sumarleyfa frá 2. júlí - 14 ágúst. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum kl. 9.30-16. Gullsmári. Lokað vegna sumarleyfa til 7. ágúst. Hraunbær 105. Kl. 9-12 baðþjónusta, kl. 9-17 hárgreiðsla, kl. 10-12 pútt. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 baðþjónusta og hár- greiðsla, kl. 11 leikfimi. Norðurbrún 1. Kl. 10 ganga. Hárgreiðslustof- an verður lokuð frá 10. júlí til 14. ágúst. Vinnu- stofur lokaðar í júlí vegna sumarleyfa. Vesturgata 7. Kl. 9 dag- blöð, kaffi, fótaaðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15 almenn handavinna, kl. 11.45 matur, kl. 13.30 sungið við flygilinn, kl. 14.30 kaffi og dansað í aðalsal. Vitatorg. Kl. 9 hár- greiðsla, og morgun- stund, kl. 10 leikfimi og fótaaðgerð, kl. 11.45 matur, kl. 13.30 bingó, kl. 14.30 kaffi. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborgar- svæðinu. Skrifstofan verður lokuð vegna sum- arleyfa frá 16. júlí til 7. ágúst. Bridsdeild FEBK, Gjá- bakka. Spilað kl. 13.15. Allir eldri borgarar vel- komnir. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan verður á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka, Fannborg 8, kl. 10. Gott fólk, gott rölt. Gengið frá Gullsmára 13 kl. 10 á laugardögum. Félag fráskilinna og einstæðra. Fundur verð- ur á morgun kl. 21 í Konnakoti Hverfisgötu 105. Nýir félagar vel- komnir. Munið gönguna mánudag og fimmtudag. Kiwanisklúbburinn Geysir í Mosfellsbæ heldur spilavist í kvöld kl. 20.30 í félags- heimilinu Leirvogs- tungu. Kaffi og meðlæti. Ungt fólk með ungana sína. Hitt Húsið býður ungum foreldrum (ca. 16 - 25 ára) að mæta með börnin sín á laugardög- um kl.15-17 á Geysi, Kakóbar, Aðalstræti 2 (Gengið inn Vesturgötu- megin). Opið hús og kaffi á könnunni, djús, leik- föng og dýnur fyrir börnin. Gigtarfélagið. Leikfimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Nánari uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Brúðubíllinn Brúðubíllinn, verður í dag kl. 10 við Freyju- götu og kl. 14 við Brekkuhús og á mánu- dag kl. 10 við Arnar- bakka. Minningarkort Minningakort Breið- firðingafélagsins, eru til sölu hjá Sveini Sigur- jónssyni s. 555-0383 eða 899-1161. . Minningarkort Kven- félagsins Seltjarnar eru afgreidd á bæjarskrif- stofu Seltjarnarness hjá Ingibjörgu. Minningarkort Kven- félags Háteigssóknar. Kvenfélagskonur selja minningarkort, þeir sem hafa áhuga á að kaupa minningarkort vinsam- legast hringi í síma 552- 4994 eða síma 553-6697, minningarkortin fást líka í Háteigskirkju við Háteigsveg. Minningarkort Kven- félags Langholtssóknar fást í Langholtskirkju s. 520-1300 og í blómabúð- inni Holtablómið, Lang- holtsvegi 126. Gíróþjón- usta er í kirkjunni. Í dag er föstudagur 13. júlí, 194. dagur ársins 2001. Orð dagsins: Góður maður ber gott fram úr góð- um sjóði hjarta síns, en vondur maður ber vont fram úr vondum sjóði. Af gnægð hjartans mælir munnur hans. (Lúkas 6.45.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.