Morgunblaðið - 13.07.2001, Side 43

Morgunblaðið - 13.07.2001, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 43 DAGBÓK Snertilinsur - fyrir veiðimenn - 6 linsur í pakka, prófun, meðferðarkennsla, vökvi og box. frá 7.500.- kr. sólgleraugu fylgja með! sími 551 1945 Tilboð Barnamyndatökur verð frá kr. 5.000 Ljósmyndastofan Mynd, sími 565 4207. Ljósmyndastofa Kópavogs, sími 554 3020. kr. 9.900 ÚTSALA 10-60% afsláttur Ullarkápur leðurkápur regnkápur vínilkápur sumarúlpur ný sending af höttum Mörkinni 6, sími 588 5518, opið laugardaga kl. 10-15. STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake KRABBI Afmælisbarn dagsins: Þú þykir harður í horn að taka, en undir slær við- kvæmt hjarta og í raun mátt þú ekkert aumt sjá. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Leitaðu ekki langt yfir skammt, hin sanna gleði býr innra með þér. Reyndu að sætta þig við það sem þú færð ekki breytt og njóta svo lífs- ins. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú ert gæddur góðum hæfi- leikum en hefur ekki nægi- legt sjálfstraust til að nýta þér þá. Leitaðu þér aðstoðar til þess og snúðu málunum við. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Settu þér ekki svo stífar regl- ur að þér sé ómögulegt að fara eftir þeim. Betra er að taka eitt skref í einu og vera ánægður með framvinduna. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Það er sjálfsagt að vera á verði gagnvart ókunnugum, en gefa þeim tækifæri til að kynna sig og taka þá rök- studda afstöðu til þeirra. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Það skiptir miklu að þú gefir þér góðan tíma til að skoða málin ofan í kjölinn. Aðeins þannig getur þú tekið rétta ákvörðun varðandi framtíð- ina. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þótt nokkuð gusti um þig núna skaltu ekki láta það slá þig út af laginu. Stattu af þér storminn og þá munt þú standa uppi sem sigurvegari. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú þarft að standa á rétti þín- um en gæta þess um leið að gera ekki meira úr hlutunum en nauðsyn krefur. Vertu fastur fyrir, en einlægur um leið. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú þarft að taka þátt í sam- eiginlegum kostnaði og verð- ur að gæta þess að láta smá- munasemina ekki ná tökum á þér. Hugsaðu málið vandlega. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Gefðu þér tíma til að rækta sambandið við þína nánustu og leggðu þig fram um að um- vefja þá sem eiga um sárt að binda og þarfnast stuðnings. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Sinntu þínum eigin málum og láttu aðra um að leysa sín. Þér verður hvort eð er ekkert ágengt með afskiptasemi, sem í raun á ekki rétt á sér. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú færð tækifæri til að hefja samningaviðræður að nýju svo gerðu það upp við þig hvort þú átt að hrökkva eða stökkva. Skoðaðu alla skil- mála. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Nú er rétti tíminn til að kynn- ast fólki og komast í sambönd við rétta aðila. Takist þér það eru bjartir tímar fram undan bæði í leik og starfi. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Árnað heilla 80 ÁRA afmæli. Nk.sunnudag 15. júlí verður áttræð Halldóra Þorvaldsdóttir, fyrrv. stöðvarstjóri Pósts og síma í Reykholti. Af því tilefni taka hún og eiginmaður hennar, Jón Þórisson, fyrrv. bóndi og kennari, á móti vinum og vandamönnum í túninu heima í Reykholti laugardaginn 14. júlí nk. Gestir eru beðnir að klæða sig eftir veðri. 90 ÁRA afmæli. Í dagföstudaginn 13. júlí verður níræður Ásgrímur Hartmannsson, fyrrverandi bæjarstjóri, Aðalgötu 24, Ólafsfirði. Eiginkona hans er Helga Sigurðardóttir. „Sæll og blessaður.“ Í símanum er Gylfi Bald- ursson: „Vantar þig spil? Ég er hér með ágætis dæmi um sjálfsbjargar- viðleitni í vonlausri stöðu…“ Suður gefur: Norður ♠ K654 ♥ 862 ♦ D753 ♣ D5 Vestur Austur ♠ 932 ♠ DG87 ♥ 097 ♥ 543 ♦ KG3 ♦ 108 ♣G1063 ♣ÁK84 Suður ♠ Á10 ♥ ÁKDG ♦ Á942 ♣972 Vestur Norður Austur Suður Pass Pass Pass 1 tígull Pass 1 spaði Pass 2 grönd Pass Pass Allir pass Gylfi og Björgvin Víg- lundsson taka stundum spil saman á Netinu og Gylfi setti hring utan um gjöfina að ofan, þar sem Björgvin varð sagnhafi í „gjörsamlega vonlausum þremur gröndum“. Björgvin fékk út hjartatíu. Hann tók slag- inn með kóng og ákvað með sjálfum sér að vörn væri besta sóknin – hann spilaði laufi á drottn- inguna! Austur drap á kónginn og skipti yfir í spaðadrottningu. Björg- vin drap með ás, læddi litlum tígli á drottninguna og gaf svo tígulslag. Vest- ur var inni og ekki ástæðu til annars en að sækja spaðann áfram. Björgvin komst þá að til að taka sína níu slagi. Í AV voru Bandaríkja- menn, en á þeirra máli heitir slík blekkispila- mennska að setja upp “smoke-screen“. Við myndum kannski sprengja reykbombu. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson LJÓÐABROT SKALLA-GRÍMUR Nú er hersis hefnd við hilmi efnd; gengr ulfr ok örn of ynglings börn; flugu höggvin hræ Hallvarðs á sæ; grár slítr undir ari Snarfara. Mjök verðr ár, sá er aura, ísarns meiðr at rísa, váðir Vidda bróður veðrseygjar skal kveðja; gjalla læt’k á gulli geisla njóts, meðan þjóta, heitu, hrærikytjur hreggs vindfrekar, sleggjur. Hafi eitthvert mót verið sniðið fyrir brellumeistara og fingurbrjóta var það EM einstaklinga sem haldið var í Ohrid í Makedóníu. Helsta orsök þess var nýju tíma- mörk FIDE sem nán- ast enginn keppandi hafði reynslu af fyrir mótið. Þegar tveir taktískir snillingar mætast undir slíkum kringumstæðum hlýt- ur einhver sérstök flétta að koma upp. Það gerðist í stöðunni á milli Emil Sutovsky (2604), hvítt, og Ser- gei Movsesjan (2661) 49.He8!! Rf4 Eina vitiborna tilraunin til að halda taflinu gangandi. Við fyrstu sýn virðist hún duga til sigurs en ísraelski stórmeistarinn hefur sitt- hvað í pokahorninu. 50.Hxf8+ Dxf8 51.De8 Rg6 52.b4! Kh7 53.Dxf8 Rxf8 54.bxc5 Re6 55.c6 og svart- ur gafst enda rennur annað- hvort f- eða c-peð hvíts upp í borð. Stórkostleg flétta hjá Evrópumeistaranum. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson 60 ÁRA afmæli. Í gær,fimmtudaginn 12. júlí, varð sextugur Sævar Helgason, skiltagerðamað- ur, Veghúsum, Keflavík. Hann og eiginkona hans, Ragnheiður Skúladóttir, eru stödd í London. 50 ÁRA afmæli. Ámorgun, laugardag- inn 14. júlí, verður fimmtug Sigrún Margrét Jónasdótt- ir, Gerðavöllum 15, Grinda- vík. Af því tilefni taka Sig- rún og eiginmaður hennar, Sigurjón Sigurðsson, á móti ættingjum og vinum á heim- ili sínu á afmælisdaginn eftir kl. 18.        50 ÁRA afmæli. Í dagföstudaginn 13. júlí verður fimmtugur Björn Vífill Þorleifsson, veitinga- maður, Heiðargili 6, Kefla- vík. Eiginkona hans er Nanna S. Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.