Morgunblaðið - 22.07.2001, Síða 9

Morgunblaðið - 22.07.2001, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 2001 B 9 ferðalög WARNER Brothers-kvikmynda- framleiðslufyrirtækið opnaði skemmtigarð í anda Disneyworld á Ruhr-svæðinu í Þýskalandi fyrir nokkrum árum. Batman og Bugs Bunny eru mættir á svæðið í stað Mikka músar en annars er stemmn- ingin svipuð og hjá Disney. Fullt af tækjum, allt hreint og fínt og nóg af stöðum þar sem hægt er að fá sér mishollt í svanginn. Gamli rússíbaninn í „villta vestr- inu“ er sá fyrsti sem var reistur úr timbri í Evrópu að bandarískri fyr- irmynd. Þar er þotið upp og niður á 80 km hraða. Brautin þykir sérstak- lega spennandi og rússíbanaklúbbar gera sér sérstaka ferð í Warner Bros-garðinn til að prófa hann. Í vor bættist nýtt hraðtæki við. Það er kallaður strokleðrið (Eraser). Vagn- arnir aka ekki á teinum heldur hanga niður úr brautinni. Af öskr- unum að dæma er ferð með því alveg sérstök tilfinning. Það eru tæki fyrir litla krakka í sérstöku horni garðsins. Stundum þarf á dálítilli þolinmæði að halda í biðröðunum. Starfskona garðsins sagði að það mætti alls reikna með rúmri klukkustund í biðröð á sól- björtum sunnudegi. – Þeir sem eru lítið fyrir hraðskreið tæki geta farið í bíó og séð búta sem voru klipptir úr vel þekktum myndum eða brugðið sér á skemmtun á silfurdollara barn- um. Warner Brother rekur garðinn ekki lengur. Hann er nú hluti af Six Flags-skemmtigarðakeðjunni sem rekur Six Flags í Hollandi og Belgíu, Bellewaerde-garðinn í Belgíu og Walibi Schtroumpf, Walibi Rhones- Alpes og Walibi Aquitaine í Frakk- landi. Inngangurinn í Warner Bros. Movie World kostar um 2.000 krón- ur, fyrir fullorðna, um 1.000 kr. fyrir börn sem eru 1 metri til 1,40 m. á hæð. Krakkar minni en metri fá að fara inn ókeypis. Morgunblaðið/Anna Bjarnadóttir Oft er margt um manninn í skemmtigarðinum á Ruhr-svæðinu. Hollywood í þýsk- um skemmtigarði Það er töluð þýska í skemmtigarðinum á Ruhr-svæðinu í Þýskalandi en þrátt fyrir það segir Anna Bjarnadóttir að yfirbragðið sé bandarískt.  www.movieworld.de Warner Allee 1 – 46244 Bottrop- Kirchhellen ÍSLAND LISTAVERK ÁHÓTEL FLÚÐUM Tíu listaverk eftir Tolla prýða nú Hótel Flúðir, en þar hefur nýlega verið gerður við hann samningur um leigu á verkunum, segir í frétta- tilkynningu. ENGLAND SÉRHANNAÐ HÓTEL FYRIR UNGT FÓLK Hilton-hótelkeðjan ráðgerir að opna nýtt sérhannað hótel sem höfða á til ungs fólk. Verður það á Trafalgartorgi í London. Á hótelinu, sem verður 129 herbergja, verður 80 manna veitingastaður sem sér- hæfir sig í lífrænt framleiddum mat og bar, þar sem fáanlegar verða yfir 100 tegundir af búrbon viskí. NOTTING HILL-KARNI- VALIÐ Í LOK SUMARS Stærsta listahátíð Evrópu, Notting Hill-karnivalið í London, verður haldið 26.-27. ágúst. Hátíðin er sú næststærsta sinnar tegundar í heiminum, aðeins kjötkveðjuhá- tíðin í Río de Janero er stærri. Fyrri dagurinn verður tileinkaður börn- unum en sá seinni fullorðnum en meðal viðburða verða tónlistar- atriði af öllum gerðum, skrúðgöng- ur og hundruð sölubása þar sem seldur verður framandi matur, list- munir og handverk. RÚSSLAND BORGARFERÐ TIL RÚSSLANDS 15 daga borgarferð er fyrirhuguð til tveggja stærstu borga Rússlands, Moskvu og St. Pétursborgar þann 12. september nk. Moskva verður skoðuð undir leiðsögn Hauks Haukssonar sem hefur margra ára reynslu á þessum slóðum. Síðan verður farið með járnbrautarlest til gömlu höfuðborgar keisaraveld- isins - Pétursborgar, þaðan verður flogið með SAS til Kaupmanna- hafnar á heimleiðinni. Allar nánari upplýsingar í símun 848 44 29 og 554 06 66, skoðið www.austur.com og sendið fyrirspurnir á bjarma- land@strik.is ÍSRAEL FÁIR FERÐAMENN TIL ÍSRAELS Ferðamannaþjónustan í Ísrael berst í bökkum um þessar mundir vegna ofbeldisins í landinu síðustu misserin. Peltours sem er stærsta ferðaskrifstofa Bretlands, sem sér- hæfir sig í ferðum til Ísraels, hefur viðurkennt að sala á ferðum þang- að sé ákaflega lítil. ...ferskir vindar í umhirðu húðar Súrefnisvörur Karin Herzog Switzerland Rósa Ingólfsdóttir er mjög hrifin af Karin Herzog súrefniskremunum og segir að þau henti sér af- skaplega vel. „Þessi frábæru krem samræmast al- veg mínum lífsstíl en ég leitast við að nálgast upp- runann sem mest. Ég er með blandaða húð en er heldur betur búin að finna lausn á því með Vita-A- Kombi 2 og 3. Þau vinna vel á þurrki í húð og líka bólum. Eins er mjög gott að bera þau á húðina þegar maður er þreyttur, því þau eru endurnær- andi. Ég nota kremin alltaf undir farða og þá helst hann vel á allan daginn. Með fullri virðingu fyrir öðrum merkjum þá er ég á þeirri skoðun, að Karin Herzog vörurnar séu húðsnyrtivörur framtíðarinn- ar.“ Rósa Ingólfsdóttir Rósa Ingólfsdóttir er yfir sig hrifin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.