Vísir - 04.07.1979, Síða 5

Vísir - 04.07.1979, Síða 5
5 VlSIR Miðvikudagur 4. júli 1979 jUmsjón: Katrin Pábdóttir Spánn: Enn sprengluhðtanir á ferðamannastöðum Skæruliðar Baska hafa hótað að koma fyrir sprengjum á vinsælustu ferðamannastöðum á Spáni og láta þær springa i kvöld. Baskarnir vinna að bættri aðstöðu fanga i fangelsum á Spáni og einnig vilja þeir koma stjórn Suarez frá völdum. Tilkynning kom um það i Madrid i gærkvöldi að flokks- manni i flokki Suarezar, Mið- flokknum, hafi verið sýnt bana- tilræði. Hann hefði verið skotinn og særðist hann alvarlega. Mað- urinn, Gabriel Cisneros var ekki sagður i lifshættu. Svo virðist sem hann hafi sloppið úr hönd- um mannræningja, sem hafi slðan skotið á hann. Enginn hefur ennþá Iýst sig ábyrgan fyrir tilræðinu við Cisneros, en lögreglan segir að af verksummerkjum að dæma hafi þarna verið liðsmenn úr skæruliðahreyfingu Baska, ETA. Félagar I ETA tilkynntu I gærkvöldi að nokkrar sprengjur myndu springa á svæðinu i kring um Gerona og i Malaga og nágrenni. ETA-félagar lýstu þvi yfir að þeir myndu halda áfram að koma fyrir sprengjum á ferða- mannastöðum á Costa del Sol. Þeir myndu halda þvi áfram uns spánska stjórnin gerði ein- hverjar úrbætur I þeim málum sem þeir vildu fá fram. .ivróDutlur” til Bandaríkjanna Rikisstjórnir vestur Evrópu- rikja hafá farið fram á þaö við flugmálayfirvöld i Bandarikjun- um aðþauleyfiflug DC-10 þota til landsins. Flugmálayfirvöld hafa lofað að svara þessari beiðni innan viku. Talsmaður flugmálasamtaka Evrópu, Eric Willoch, sagði á fundi meö blaðamönnum að þaö væri fáránlegt að banna flug þot- anna til Bandarikjanna. Þær hefðu loftfærnisskirteini og stæðust bandarlskar kritfur. Það var 6. júni sl. sem flug- málayfirvöld i Bandarikjunum bönnuðu allt flug DC-10 þotna og einnig að erlend flugfélög mættu ekki lenda þotum sinum á flug- völlum. Flugbannið kom i kjöl- farið á slysinu i Chicago, þar sem 273 fórust þegar DC-10 þota fórst. Eric Willoch sagði að Evrópu- flugfélögin byggðu beiðni sina á sönnunum á þvi að öll tækniatriöi DC-10 væru fullgild. Strlðsplæpamenn- irnlr sieppa ekkl Ný lög sem samþykkt voru á vestur-þýska sambandsþinginu I gær, kveða svo á um að morð skuli ekki fyrnast. Þeir sem frömdu striðsglæpi I seinni heimsstyrjöldinni geta þvi ekki sloppið undan refsingu. Miklar umræður voru um þetta mál i þinginu, en þingflokkarnir tóku ekki afstöðu til málsins i heild. Höfðu þvi þingmenn óbundnar hendur I þessu máli. Meðan máliö var rætt voru t.d. nokkrir fýrrverandi fangar i búð- um nasista á þingpöllum. Þeir mættu þangað I fangabúningum. Einnig fylgdist sendiherra Israelsmanna f Bonn með um- ræðum i þinginu. Kfna: 12,8 milljarðar dala til hermála I ár Kinverjar ætla að eyöa um 12,8 Þetta er I fyrsta sinn sem Kin- milljöröum dala til hermála á ver jar gefa upp opinberlega hvaö þessu ári. Þetta er 3,5 milljörðum Þ6*1, le88j3 til hermála. hærri upphæð en á siðasta ári. Noregur: Þúsundlr barna stunda vændl Mörg þúsund börn I Noregi stunda vændi. Flest eru börnin i Osló. Þau eru af báðum kynjum, á aldrinum 12 til 18 ára. Þessar upplýsingar komu fram nýlega frá barnaverndarnefnd Oslóborgar. Nefndin er að undir- búa sérstaka áætlun vegna þessa máls, sem felst i þvi að opna at- hvarf fyrir börnin, þangað sem þau geta leitað. Fyrirmyndin er fengin frá Malmö I Sviþjóð, en þar hefur slikt athvarf veriö starfrækt i nokkurn tima. Reynslan hefur verið það góð, að tekist hefur að ná hundruöum barna af götunni. Sum þeirra hafa verið orðnir langt leiddir eiturlyfjaneytendur. Aöalatriðið er aö börnin fái fraust á því fólki sem starfar að þessum málum. Þau verði viss um að ekki verði fariö með mál þeirra til lögreglunnar. Nkomo var i heimsókn Austur-Þýskaia'ndi nýlega og kom heim með loforð um að- stoð, sem nií verður efnt. Skærullðar I Rödeslu: Fá stuðning Irá Austur- hýskalandi Um þrjú þúsund austur-þýskir hernaðar- ráðgjafar verða sendir til Mosambique og Zambíu á komandi mánuðum. Verkefni þeirra er að sam- eina ogskipuleggja skæruliða- hersveitirnar sem berjast á móti Abel Muzorewa biskup og stjórn hans f Ródesfu. Stjórnarandstæðingar fá einnig vopna frá Austur-Þýska landi eftir þvl sem breska blaðið Sunday Telegraph seg- ir. Þegar eru um fimmtán hundruö hernaöarráðgjafar I landamærahéruðunum við Mosambique og Zambiu. Akvörðun um að hernaðar- ráðgjafar kæmu til liðs við stjórnarandstæðinga mun hafa veriö tekin þegar leiðtogi skæruliöasamtakanna Zapu, Joshua Nkomo, var I heim- sókn í Austur-Þýskalandi ný- lega. Skæruliðahreyfingarnar Zanu og Zapu hafa ekki getaö komiðsér saman um aðgerðir gegn stjórn Muzorewa hingað til. Verkefni ráðgjafanna verður m.a. aðreyna að sam- eina hreyfingarnar. Nýlega lýsti Margaret Thatcher þvi yfir þegar hún var á ferö I Astraliú að hún efaði það að meirihluti væri fyrir áframhaldandi viö- skiptabanni á Rodesiu. Til at- kvæðagreiðslu kemur um máliö i neðri deild breska þingsins i nóvember. 1 Malmö hefur tekist aö Utvega börnunum samastað og þeim eldri vinnu við sitt hæfi. Ali ætlar að haida heljarmikia veislu þegar hann tilkynnir formlega að hann sé hættur hnefaleikum. ALI HÆTTIR Heimsmeistarinn I hnefaleik- um, Muhammad Ali, ætlar að hætta keppni þann 6. september. Þetta verður tilkynnt með pomp og prakt á heljarmiklum tónleik- um til heiðurs kappanum, sem haldnir verða i Los Angeles. A fundi með blaðamönnum sagði Ali að Sammy Davis jr. og Frank Sinatra myndu að öllum likindum þekkjast boð um að koma fram á tónleikunum. „Hnefaleikar eru orðnir að martröð fyrir mig”, sagði Ali. Honum tókst að vinna heims- meistaratitilinn i þriðja sinn i september sl. Ali ætlar að láta allan ágóða af tónleikunum renna til ólympiu- liðs Bandarikjanna i hnefaleik- um. Vandið valið veljið Hárgreiðslustofan MA.IuU.OIul, Óðinsgötu 2 Sími 22138

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.