Vísir - 04.07.1979, Blaðsíða 16
Kvikmynda-
áhugamenn
stofna
hlutafélag
- tii aö kynna og efla
kvikmyndailstlna
I undirbúningi er stofnun hluta-
félags áhugamanna um kvik-
myndalist og segir i fréttatil-
kynningu frá þeim aö bak viö fé-
lagiö sé stór hópur listamanna og
listunnenda.
„Hlutverk félagsins er aö
kynna kvikmyndir og efla áhuga
fólks á þessu ákveðna tjáningar-
formi listarinnar, sem býr yfir
þeim hæfileika að endurspegla
þjóðfélagsástandið”, segir i frétt-
inni.
Skýrt er frá þvi aö félagið ætli
einnig aö standa fyrir sýningum
og útgáfu rita er varði kvikmynd-
ir og styrkja og standa aö gerö
kvikmynda og dreifingu þeirra.
Skilyrði er þó að viðkomandi
kvikmynd brjóti ekki i bága við
meginhlutverk félagsins og ,,sé
ekki gerð að innihaldslausri auð-
lind” eins og það er orðað.
Stefnt er að þvi að fyrsta verk-
efni félagsins verði framleiðsla
og dreifing á kvikmyndinni Sóley
sem byrja á að kvikmynda um
miðjan ágúst i siðasta lagi. Fé-
lagiö hefur þegar með höndum
vélar og filmu og annan útbúnað
sem til slikra framkvæmda þarf.
— Gsal.
Ljðsálfa- og ylfinga-
dagur aö úlfljótsvatnl
- samelnað skátamðl Garðbúa sem haldlð var um helgina
Skátamót var haldið aö Olf-
ljótsvatni um siðustu helgi. Voru
það skátar úr Garðbúum sem
stóðu fyrir mótinu og buöu til þess
skátum úr félögunum I Breiöholti,
Arbæ og Seltjarnarnesi. A þessu
móti var haldið upp átuttugu ára
samstarf drengja- og kvenskáta
ennfremur tiu ára afmæli félags-
ins Garðbúa, en það er félag
skáta i Smáibúðahverfi. Loks var
þess minnst að þetta er tiunda
hverfismót sem Garðbúar halda.
Mótið hófst föstudag með fána-
hyllingu, en siðan gengu fram
tveir skátar mð kyndla og kveiktu
eld i tunnu sem logaði fram eftir
kvöldi.
A sunnudeginum var haldinn
ljósálfa- og ylfingadagur fyrir þá
sem búa á suðvesturlandi. Dag-
skráin var byggð upp með þetta i
huga og eldri skátar kenndu ljós-
álfum og ylfingum sem sóttu mót-
ið þennan dag, fóru i ýmsa skáta-
leiki og þrautir. Farið var i
gönguferðir og skipt i hópa svo
þátttakendur kynntust betur. En
þetta mun vera fyrsta skipti sem
flestir ljósálfanna og ylfinganna
koma á skátamót.
Deginum lauk með varðeldi að
gömlum og góðum skátasið.
— JM.
Ferðafélag íslands efnir um
næstu helgi eins og flestar aðrar
til margvislegra ferða, bæði
lengri og skemmri. A föstudaginn
verður lagt af stað i fjórar ferðir,
i Landmannalaugar og Þórs-
mörk, en farið er til þessara staða
vikulega. Einnig verður gengið
yfir Fimmvörðuháls, sem er ein
allra skemmtilegasta dagleið,
sem hugsast getur hér á landi, og
lika farið inn á Einhyrningsflatir
og þaðan skoðað Markarfljóts-
gljúfur og Lifrarfjöll. Einhyrn-
ingur er fjall eitt sem blasir við
frá Þórsmörk, ef staöið er upp á
Valahnúki. Nafn sitt dregur hann
af tindi einum sem stendur ofarl-
í norðausturhliðinni og likist
horni.
Um helgina verða einnig farnar
dagsferðir og á laugardaginn
verður ferð i Bláfjallahella, sem
eru norðan við skiðalöndin I Blá-
fjöllum. Þar er að finna ótrúlega
fagra dropasteina.
A sunnudaginn verður farið á
Kálfstinda, en þeir eru nokkuð
brött móbergsfjöll milli Þingvalla
og Laugarvatns.
Einnig verður á sunnudaginn
farið i Straumssel og Öttastaðar-
sel sem eru i heiðinni suður af
Straumsvik.
— SS —
Hérna er veriö aö tjaidskoöun, en hún felst I þvi aö kannaö er hvort allt
sé i röö og reglu i tjöldunum.
Aö lokinni fánahyliingu viö setningu skátamótsins gengu tveir skátar
fram meö kyndla og kveiktu eld i tunnu, sem brann fram eftir kvöldi.
Margvíslegar
ferðir á
vegum Fí
vegna ástar sinnar á Leslie, ást-
ar sem hann veit að hann fær
ekki fullnægt. Hann reynir að fá
þessa ást gegnum dóttur Leslie
(Carol Baker) en bæði er
aldursmunurinn of mikill og hún
of skynsöm til þess að láta
glepjast af honum.
Myndin greinir vel frá kyn-
þáttafordómum þessa fylkis á
þessum tima. Hinir undirokuðu
eru í þessu tilfelli mexikanar en
mexikanar sækja mjög til Texas
og Californiu i atvinnuleit. Á
þessum tima skipti það ekki
máli hvort maðurinn var rikur
eða fátækur mexikani. Honum
var allstaðar sýnd sama fyrir-
litningin.
Mjög mikið hefur verið rætt
og ritað um James Dean. Hann
varð nokkurskonar goðsögn
eftir dauða sinn. Sá orðrómur
gekk lengi að hann væri ekki
látinn heldur hefði aðeins af-
myndast i bilslysi þvi sem hann
lést i. Þetta virðist vera nokkuð
rikt eðli i Bandarikjamönnum
að neita þvi sem staðreynd er
einhver sem orðinn er vinsæll
deyr. Má nefna sem dæmi
Kennedy og Bruce Lee. Fjöldi
aðdáendaklúbba spratt upp og
Warner Brothers voru að
drukkna i pósti stiluðum á hann.
Þessar vinsældir átti Dean öðru
fremur að þakka hlutverki sinu i
myndinni „Rebel without a
cause” en þar lék hann yngri
fulltrúa kynslóðabilsins sem
fjölmiðlar höfðu nýlega upp-
götvað á þeim tima. En hvernig
maður var James Dean?
Þvi svarar William C. Mellor
kvikmyndatökumaður Giant:
„Hann var ungur maður sem
skotist hafði til frama án aðvör-
unar, án undirbúnings venju-
legur ungur Bandarikjamaður
en ráðvilltur i lifinu og enn ekki
aðlagaður frama, auöi og aðdá-
endabréfum”. FI
Itisinn/Giant
Leikstjóri: George Stevens
Handrit: Fred Guiol og Ivan
Moffat eftir skáldsögu Ednu
Ferber
Tónlist: Dimitri Tiomkin
Aðalhlutverk: Itock Hudson,
Elisabet Taylor, James Dean og
Caroli Baker.
Myndin fjallar um Benidict
fjölskylduna og er henni fylgt
eftir i þrjá ættliði. Bick Benidict
(Hudson) er á ferð i austur-
rikjunum, og hittir hann þar
Leslie (Taylor) þau giftast og
flytur hann hana á búgarð sinn i
Texas. Þar er fyrir Jett (Dean)
kúreki með eigin meiningar um
stöðu sina i þjóðfélaginu. Mynd-
in greinir svo frá samskiptum
þessara persóna.
Þótt þetta hafi verið siðasta
mynd Dean og hann orðinn
kwikmyndir
Texti:
Friörik
Indriöason,
blaöamaöur
nokkuð þekktur á þessum tima
snýst þungamiðja myndarinnar
ekki um hann. Ef segja á að ein-
hver persóna eigi myndina þá er
það Elisabet Taylor. En hún
stelur senunni og stingur henni I
rassvasann á reiöbuxunum sin-
um. Rock Hudson kemst stór-
slysalaust frá sinu hlutverki og
Mercedy Mc Cambridge er at-
hyglisverð i hlutverki hinnar
harðsoðnu systur Bicks.
Hlutur Deans er stærstur i
fyrrihluta myndarinnar og
stendur hann sig þar með ágæt-
um, en þar leikur hann einmitt
Elisabet Taylor og James Dean i hlutverkum slnum I myndinni.
mann á sinum eigin aldri. í
seinni hlutanum er hann leikur
eldri mann virkar hann veikt,
en það getur veriö förðuninni að
kenna, (Hudson á við svipaö
vandamál að striða), eða þvi að
annar leikari var látinn tala inn
á myndina það sem Dean segir I
seinnihlutanum.
Aðal þema myndarinnar er
fylkið Texas á þessum tfma.
Myndin setur fram sem and-
stæöur gamla timann land-
búnaðinn, en fulltrúar hans eru
Bick og Leslie gegn iðnvæðing-
unni, hér i formi oliuiðnaðar en
fulltrúi hans er Jeff. Þrátt fyrir
að Jeff risi úr sárustu fátækt til
hæstu hæða auðsins er hann
ekki ánægður yíir írama sinum
SÍÐASTA MYND JAMES DEAN