Vísir - 04.07.1979, Page 8

Vísir - 04.07.1979, Page 8
Mibvikudagur 4. júli 1979 8 Útgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjóri: Davfó Guómundsson Ritstjórar: Olafur Ragnarsson Höröur Einarsson Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guömundsson, Elias Snæland Jónsson. Fréttastjóri er- lendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Blaöamenn: Axel Ammendrup, Edda Andrésdóttir, Friðrik Indriðason, Gunnar Salvarsson, Halldór Reynisson, lllugi Jökulsson, Jónina Michaelsdóttir, Katrin Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Páll Magnússon, Sigurður Sigurðsson, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. utlit og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnús Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjéri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Sióumúla 8. Sfmar 86411 og 82260. Afgreiösla: Stakkholti 2-4 simi 86611. Ritstjórn: Siöumúla 14 simi 86611 7 llnur. Askrift er kr. 3000 á mánuöi innanlands. Verö I lausasölu kr. ISO eintakið. ..prentun Blaöaprent h/f Aukiö eftirlit 09 meira aöhald Jafnframt þvi, sem auka þarf og styrkja matvælaeftirlitið f iandinu er þörf á aö fylgjast vel meö, hvort reglur um innflutning matvæla, og þó einkum lagmetis, eru brotnar. Heilbrigdiseftirlit ríkisins hef- ur nú kært fjóra framleiðendur lagmetis til ríkissaksóknara fyrir meint brot á reglugerð frá árinu 1976, sem f jallar um tilbún- ing og dreif ingu matvæla og ann- arra neyslu- og nauðsynjavara. Þessi fyrirtæki eru á Akranesi, Akureyri, í Keflavík og á Siglu- firði. Þessi viðbrögð eru eðlileg og þörf í framhaldi af niðurstöðum kannana á innlendu lagmeti, sem hér hefurverið á markaði undan- farið. Framleiðsluvara þessara fyrirtækja hefur verið gölluð og merkingum og öðrum upplýsing- um á umbúðunum reynst mjög ábótavant. Því ber að fagna, að Heilbrigð- iseftirlit ríkisins hefur beðið heil- brigðiseftirlit Reykjavíkurborg- araðgera víðtæka könnun á bæði innlendu og erlendu niðurlögðu lagmeti, sem er á markaði í Reykjavík og verður forvitnilegt að sjá niðurstöður hennar. Við umræður um eftirlit með lagmetisframleiðslunni í fjöl- miðlum hefur komið fram, að ekki hefur komið fram skilning- ur fjárveitingavaldsins á þörf Heilbrígðiseftirlits rikisins fyrir aukinn starfskraft til matvæla- eftirlits, þótt löggjafarvaldið hafi á undanförnum árum gert stórauknar kröfur til matvæla- eftirlits af ýmsu tagi. Það er lýsandi dæmi um skiln- ingsleysi þeirra sem ráða fjár- málum þjóðarinnar, að ætla að- eins einum starfsmanni Heil- brigðiseftirlits ríkisins það hlut- verk að annast eftirlit með mat- vælaframleiðslu og sölu í land- inu. Auðvitað eiga heilbrigðiseftir- litsmenn einstakra byggðarlaga og heilbrigðisnefndir að hafa hluta þessa eftirlits með hönd- um, en það gefur auga leið, að umsjónaraðili eftirlitsins af hálfu hins opinbera verður að hafa bæði mannafla og tækja- kost til þess að geta sinnt eftirlit- inu að gagni. Stóraukin matvælaframleiðsla og þá einkum fullvinnsla ýmissa hráefnisflokka hin síðari ár hefur kallað á aukið eftirlit, en heilbrigðiseftirlitinu hefur ekki verið gert kleift að veita þá þjón- ustu. Þegar gert var átak af hálfu stjórnvalda til þess að koma fót- um undir lagmetisiðnaðinn hér á árunum og sérstakri sölustofnun var komið á fót varð eftirlitið út- undan, enda hefur gengið erfið- lega að tryggja jöfn og stöðug gæði þeirrar vöru, sem við höf- um getað unnið markaði f yrir, og bera bitur gaffalbitadæmi af Rússlandsmarkaðinum þvf vitni. Eitt af því, sem bent hef ur ver- ið á í sambandi við gölluðu lag- metisf ramleiðsluna sem upp- götvuð var á dögunum, er, að framleiðendur hafi ekki kynnt sér þau lög og þær reglugerðir, sem í gildi eru um matvælaf ram- leiðslu hér á landi — nema það sé fyrirsláttur hjá framleiðendun- um. Þá virðast eigendur lagmetis- verksmiðjanna ekki hafa gert sér grein fyrir því að fyrir þremur árum tók gildi reglugerð um merkingar matvæla, sem þeim var þá gert að hlíta, en máttlaust eftirlit hefur orðið til þess að sumir þeirra hafa getað snið- gengið þessar merkingarreglur fram á þennan dag. En svo þarft sem það er að veita framleiðendum lagmetis hér á landi aðhald með auknu eftirliti og kærum eins og þeim sem nef ndar voru hér að f raman þá ætti einnig að fylgjast náið með innf lutningi lagmetis hingað til lands. Nýleg dæmi eru um stórgallað erlent lagmeti, alltað þriggja ára gamalt, sem hér er á markaði. Eftirlit með slíkum innflutningi þarf að herða og beita viðurlög- um við brotum á reglum um inn- flutning og dreifingu slíkrar framleiðslu, sem varla getur tal- ist mannamatur. 12. lanflsdíng LÍF: Vilja fá felldan niður sölu- skatt af notuðum frímerkjum Landssamband islenskra fri- merkjasafnara hélt fyrir stuttu 12. landsþing sitt I Álftamýra- skólanum f Reykjavik. A þinginu var kosin ný stjórn sambandsins og var Sigurður R. Pétursson kjörinn formaður, Sigurður P. Gestsson varaform- aður, Háifdán Helgason ritari og Gunnar Rafn Einarsson gjaldkeri. I samtali við VIsi sagði ný- Sigurður R. Pétursson formaður L.l.F. kjörinn formaöur samtakanna Sigurður R.Pétursson , aö aðal- markmið Landssamtakanna væriað breiða lit frimerkjasöfn- un og koma á framfæri upplýs- ingum þar aö lútandi. Sagöi Siguröur að mikil áhersla væri lögð á að halda sambandi við hina ýmsu klúbba sem starf- ræktir væru úti á landi og við sambönd frimerkjasafnara er- lendis. „Eitt af aðalbaráttumálum samtakanna um þessar mundir kvað hann vera að fá felldan niður söluskatt af notuðum fri- merkjum. Sagði hann að á meö- an núverandi ástand héldist óbreytt þá sætu Islendingar ekki við sama borð og útlendingar á frimerkjauppboöum hérlendis. Aö sögn Sigurðar þurfa útlend- ingar ekki að greiða söluskatt af frlmerkjum sem þeir kunna að festa kaup á hér og taldi hann þetta geta leitt til þess að fágæt frimerki hyrfu úr landi til safn- ara erlendis. I tengslum viö þing L.I.F. var haldin frimerkjasýningin Frl- merki 79. úrslit I samkeppnis- deild sýningarinnar hafa nú verið tilkynnt og hlaut Frank C. Mooney silfurverðlaun fyrir safn sitt af númerastimplum og Jón Halldórsson fyrir safn sitt af 20 aura frimerki frá 1925 með Frá þingi sambandsins I Alftamýrarskóla. margs konar stimplum og eins heilum bréfum. Silfrað brons fengu Ib Schock fyrir sérsafnsittfrá tslandi, Jón Aðalsteinn Jónsson fyrir tvær fyrstu útgáfur danskra frl- merkja og Torben Jensen fyrir hluta af sérsafni frá Islandi 1944-1974. Brons hlutu Helgi Gunnlaugs- son, Engel Angberg, Jóhann Guömundsson, ólafur Ellasson, Guömundur Ingimundarson, Stig österberg, Jón Egilsson, Kristján Runólfsson og W.C. Sommer fyrir islensk frlmerki og margs konar stimpla og bréf. — GEK.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.