Vísir - 04.07.1979, Page 13

Vísir - 04.07.1979, Page 13
Miðvikudagur 4. júli 1979 Miðvikudagur 4. júli 1979 Naremon Thepchai frá Thailandi er nú húsmóðir I Breiðholtinu i Reykjavik, en þessi mynd var tekin af henni á öskjuhliðinni i sumarnepjunni i gær. „Mikið unflir íslend- ingum sjálfum komið hvernig lii lekst...” - seglr Haremon Thepchal frð Thallandi „Það, sem ég sakna mest að heiman, er græni liturinn og bros á fólki, — þið eruð svolltið alvarlegir”, sagöi Naremon Thepchai þíegar viö hittum hana að máli I Breiöholtlnu þar sem hún býr ásamt manni sin- um Hafliða Jónssyni. Naremon kom hingað til lands fyrir tveimur mánúðum en áöur hafði hún tvivegis komið til Banda- rlkjanna. Naremon er frá Suö- ur-Thailandi og er ekki siður glaöleg I framkomu en stalla hennar Ubonwan. ,,Ég hef ekki orðið vör við að fólk sé á móti mér vegna litar- háttarins en hins vegar hef ég fundið svolitið fyrir þvl að fólk er forvitið um mig. Annars get ég varla sagt nokkuð um það ennþá hvernig mér likar hér. Ég er svo nýkomin og hef ekki kynnst mörgum né heldur, að ég getidæmt um hvernig mér llkar við ykkar lifnaöarhætti. Veðurfar er mjög frábrugðið þvi sem ég á aö venjast, þaö er mun kaldara, — og samt á ég enn eftir að kynnast vetrinum ykkar. Landslagið er lika mjög frábrugðið. Hér er lltill gróöur en þiö vinnið það upp meö þvl að fylla stofurnar af blómum. Ég er mjög hrifin af þvl hvað is- lendingar láta sér annt um inni- plöntur. A flestum heimilum sem ég hef komíð á hér eru allar stofur fullar af blómum”. Aöspurð um Islenskan mat og mataræði sagði Naremon: „íslenski maturinn er að minum dómi of fábrotinn alla vega miöað við það sem ég hef 1 spjalli við Visi segir Naremon Thepchai frá Thailandi: „Það sem ég sakna mest að heiman er græni liturinn og bros á fóiki....” (Visismynd: GA) vanist. Ég reyni að láta mér llka maturinn en sennilega hef ég ekki reynt nógu mikið ennþá”. Við vikjum nú talinu aö á- kvörðun íslenskra yfirvalda um heimild til innflutnings á flótta- fólki frá Vietnam og hugsanleg vandamál þar að lútandi. „Ég held að það sé mikið undir Islendingum sjálfum komið hvort um vandamál verður aö ræða eða ekki”, sagði Naremon. — „Ef fólkið finnur fyrir andúð við komuna hingað er hætta á að það þjappi sér saman og þá myndast tor- tryggni sem er það hættulegasta sem getur komiö upp. Annars held ég, aö þetta fólk sé við öllu búiö. Vietnamar hafa búið við styrjaldarástand um árabil og eru þess vegna mjög harðir af sér. Hins vegar er viðbúið að það fái heimþrá fyrst I stað, — það er allt svo ólíkt hérna. En ef vel tekst til gæti þetta fólk jafn- vel gert tslendingum mikiö gagn og hugsanlega kennt þeim eitthvað nýtt, — opnað einhver ný svið I íslenskum atvinnuveg- um. Þetta fólk kann ýmislegt fyrir sér og er mjög duglegt”. Við spurðum Naremon hvort hún héldi að mismunandi trúar- brögð kynnu að valda einhverj- um erfiðleikum: „Nei, það held ég ekki. í fyrsta lagi er óvlst hver trú þessa fólks er, — þaö gæti jafn- vel verið kristið, ef þvl er að skipta. Ég er sjálf búddisti og getút frá minni reynslu sagt, að það hefur ekki valdiö mér nein- um erfiðleikum nema ef slöur væri....” Sv.G. Textl: Svelnn GuDlónsson og Halldór Reynlsson Myndlr: Gunnar Andrósson. Gunnar Salvarsson og Þórlr Guðmundsson MfettBr lll&v: ÚJr& „Af hverju ertu svona skrýtinn á litlnn?” - splallað vlð Davld Janis irá indóneslu „Þegar ég kom hing- að fyrst var ég stund- um spurður af hverju ég væri svona skrýtinn á litinn en ég svaraði bara með annarri spurningu — af hverju ertu svona hvitur?” Þetta sagði David Janis frá Indónesiu en hann hefur nú búið hér i niu ár. Hann vinnur nú hjá Skýrsluvélum rik- isins en hingað til lands kom hann frá Banda- rikjunum þar sem hann stundaði nám. „Mér fannst ofsalega skrýtiö að koma hingaö fyrst. Ég hafði aldrei séö snjó fyrr og svo var tungan mjög framandi. En ég losnaði alveg við að vera áreitt- ur vegna litarháttar mlns — menn voru miklu frekar forvitn- ir og spurðu sllkra spurninga eins og ég minntist á. Þegar ég hef farið á ball eða mannamót hef ég heldur aldrei veriö settur út undan, heldur alltaf verið tekinn sem einn úr hópnum”. David var spurður hvað hon- um fyndist um komu vlet- nömsku flóttamannanna hingað og sagðist hann aö sumu leyti vorkenna þeim, þvi umhverfi hér og loftslag væri svo fram- andi frá því sem þeir ættu að venjast. Þá kæmu þeir saman I hóp og kynni það að leiöa það af sér, að þeir yrðu lengur að aö- lagast islenskum aðstæðum, nema ef þeim yrði dreift um landið og blönduðust þannig betur. Einnig væri minni hætta á að fólk hérlendis snerist gegn þeim en ef þeir héldu saman I hóp. —HR Daviö Janis frá Indónesiu vinnur hjá Skýrsluvélum rikisins og Reykjavikurborgar. íslendingar - Asíumenn l ] Rætt vio nokkra Aslumenn, sem búsettlr eru hór g á landl.um vioiðkurnar al hállu fslendlnga I Fátt hefur verið meira rætt manna á meðal siðustu dagana en væntanleg- ur innflutningur flóttafólks frá Vietnam og sýnist sitt hverjum. Hér er um flókið og viðkvæmt mál að ræða, enda hefur umræðan snúist um ýmsa óiika þætti þar sem saman fléttast þjóðerniskennd, hagsmunir og samúð, auk þess sem menn hafa velt fyrir sér hugsanlegum afleiðingum af innflutningi á svo stórum hópi af fólki frá ólikum heimshluta. Sannieikurinn er sá, að tslendingar hafa lengi gumað af meðfæddri samúð sinni og skilningi á vandamálum fólks af ólikum kynþáttum. Hins vegar bregður nú svo við i umræðum um þessi mál að undanförnu, að mörgum vefst tunga um tönn þegar að þvi kemur að efna stóru orðin og að * grynnra virðist á bróðurkærleikanum og hinu kristilega hugarfari en opin- berlega er látið i veðri vaka. Hér skal ekki lagður dómur á það hvort islendingar séu kynþáttahatarar undir yfirborðinu, enda fráleitt að fullyrða slikt að óreyndu. Málið er að sjálfsögðu flóknara en svo, að hægt sé að afgreiða það með órökstuddum fullyrðingum af þessu tagi, enda má vel vera, að það sé fyrst og fremst vel- ferð flóttafólksins sjálfs, sem vaki fyrir mönnum þegar þeir fullyrða að fólkinu sjálfu sé litill greiði gerður með þvi að flytja það i helgreipar is- lenskrar veðráttu og nöturlegs landslags svo ekki sé talað um þá óliku þjóð- félagshætti sem við búum við. Margar spurningar vakna þegar þessi mál eru hugleidd. Hér á opnunni birtum við stutt samtöi við nokkra Asiumenn sem hér eru búsettir, ef það mætti verða til þess að bregða einhverju ljósi á möguleika hinna væntan- legu innflytjenda til að lifa hér hamingjuriku og mannsæmandi lifi. Sv.G. .Jlef aldrel orðið vör vlð að fðlk sé mér and- snðíð vegna lltaiiiátlar” - segir Ubonwan Paruksa Irá Thallandl Ubonwan Paruksa heitir ung stúlka frá Thailandi, sem hefur verið húsett hér sl. fjögur ár. Hún býr með Guðmundi H. Guðjóns- syni organista og skólastjóra Tónlistar- skólans i Vestmanna- eyjum og eiga þau fjögra mánaða dóttur, Ubonwan er glaðleg i viðmóti, enda mun glaðværð vera Thai- lendingum i blóð borin. Hún er sú eina sem vit- að er um frá þessum heimshluta, að hafi komið hingað beint frá heimalandi sinu og hafði hún þá aldrei séð snjó. Við spjölluðum við hana og Guðmund um dvöl hennar hér á landi og spurðum hana fyrst hvernig það hafi verið að koma fyrir- varalaust til okkar kalda lands úr gróður- sælum hitabeltishéruð- um Thailands: „I fyrstu var þaö mjög erfitt fyrir mig vegna kuldans. Þetta var i september og fyrstu vik- urnar fannst mér útilokaö að ég gæti sest hér að. En eftir aö ég kynntist fólkinu hérna fór ég að kunna betur við mig og nú er ég mjög ánægð og geti ekki hugsaö mér að fara aftur”. „Það sem hún átti erfiðast með að venjast var það, aö rign- ingin kom alltaf lárétt en ekki lóðrétt, eins og hún átti að venj- ast, en það gerði auövitað rokið I Eyjum”, skaut Guðmundur inn I, „en hún hefur vanist þessu. Viö spurðum Ubonwan hvort hún heföi einhvern tima oröið fyrir óþægindum af hálfu Is- lendinga vegna uppruna slns. „Nei, ég hef aldrei oröið vör við aö fólk sé mér andsnúið vegna litarháttar og mér finnst fólkiö hérna yfirhöfuö mjög hlýlegt. I gegnum Guðmund kynntist ég strax fólki sem tók mér mjög vel svo aö samskipti hafa aldrei verið vandamál”. Um mataræði og mun á is- lenskum og thailenskum mat sagði Ubonwan: „I fyrstu eldaði ég á minn hátt og smátt og smátt fór ég að blanda saman islenskum og austurlenskum matarvenjum. Núna má segja, að ég eldi Is- lenskan mat með austurlensku Ivafi”. „Ég vil skjóta þvl hér inn I”, sagði Guðmundur, „aö sem kokkur er hún alveg frábær til dæmis hvernig hún matreiðir Is- lenskan mat á annan og betri hátt en ég hef áður vanist”. Taliö barst að komu viet- nömsku flóttamannanna og við spurðum Ubonwan um álit hennar út frá eigin reynslu, varðandi möguleika flótta- mannanna og hugsanleg vanda- mál vegna búsetu þeirra hér á landi: „Það er erfitt fyrir mig aö svara þessu þvl að Vletnamar eru töluvert frábrugðnir okkur Thailendingum. Þetta kann að hljóma einkennilega I ykkar eyrum þvi ykkur finnst allir Asíubúar eins. Vletnamar eru mun alvörugefnari en við. Auk þess voru aöstæöur mlnar við komuna hingað allt aörar en þessa fólks. Annars hef ég heyrt aö þetta séu mest Klnverjar, en þeir eru yfirleitt mjög duglegir og harðir af sér. Ég held, að þetta fólk muni sætta sig viö aö koma hingað og ef það er Búddatrúar, sem ekki er óliklegt, verður þaö auðveld- ara þvi að ákveönir þættir I Búddatrú gera beinllnis ráð fyrir þvi að fólk þurfi að byrja nýtt llf og endurskipuleggja sig og menn verða að sætta sig við sllka endurhæfingu. Og ég er viss um aö maturinn verður ekkert vandamál þvl aö þetta eru snillingar I matargerðar-

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.