Vísir - 04.07.1979, Page 14
f * * y vf.
VÍSIR
Mi&vikudagur 4. júli 1979
Viimundur
býður 2%
Vilmundur Gylfason al-
þingismaöur hefur nokkuö
baunaöá Hæstarétt aö undan-
förnu og er ómyrkur í máli
sem fyrr. 1 leiöara Alþýöu-
blaösins f gær segir Vilmund-
ur aö Hæstiréttur sé varö-
hundur kerfisins en ekki vörn
fólksins. Þvi beri aö endur-
meta afstööu fólksins til
Hæstaréttar:
„Og ieiöi endurskoöuö af-
staöa fslensks almennings til
Hæstaréttar tslands tii þess aö
hámenntaöir Hæstaréttar-
dómarar snúi sér aö fast-
eignasölu, sem gera má ráö
fyrir aö þeir valdi eins og allur
þorri stéttarbræöra þeirra, þá
telur Alþýöublaöiö bæöi rétt
og skylt aö þeir fái tvö pró-
sentin eins og allir hinir,”
(fasteignasaiarnir) segir Vil-
mundur I lok leiöarans.
Þetta er þó smáhuggun fyrir
dómarana þvi eflaust geta
þeir tórtaf þessum tveim pró-
sentum fasteignasala.
•
Samið við
Baskana
A meöan öfgamenn á Spáni
lýsa þvi yfir aö næst veröi
sprengt i Maiaga, höfuöstaö
Costa del Sol, segir Ingóifur i
Ctsýn aö sinir farþegar þurfi
ekkertaö óttast. Þaö er gott aö
vita aö Ingólfur skuii hafa náö
samkomulagi viö sprengju-
menn um aö iáta islendinga 1
friöi.
1 frétt frá (Jtsýn um
sprengjutilræöin á Spáni segir
aö hér hafi veriö um smá-
glæpamenn aö ræöa sem nú
séu undir lás og siá. Einnig
eru augiýstar iausar ibúöir á
vegum (Jtsýnar og sagt aö
feröamenn streymi tii Costa
del Sol. Svo eru eriendar
fréttastofur svo ósvifnar aö
ljúga þvl upp aö feröamenn
flýi Spán.
Mjöð ÓiJðSt
i Neista er rætt viö sjúkra-
iiöa sem var einn fulltrúa á
nýafstöönu þingi BSRB og þar
er hann meöal annnars spurö-
ur hvort einingin I þinglok hafi
veriö raunveruleg.
„Þaö var nú talsverö undir-
aida, sérstaklega frá SFR held
ég. Viö vissum aldrei hvort
Guörún Helga ætti aö vera
áfram þarna I stjórn eöa ann-
ar fuiltrúi frá SFR. Eitthvaö
virtist óhreint í þvl máU. Ein-
hver hrossakaup sem ég veit
ekki hvort hún vissi einu sinni
nokkuö um sjálf. Hræddur um
aö mikiö hafi veriö makkaö á
' bakviö.”
SMÁ-
SMYGLI
Upp komst um hina grunsam-
legustu starfsemi italsks hár-
skera I Danmörku fyrir stuttu.
Viröist sem hárskerinn, Ernesto
Antico, 31 árs gamall, hafi gert
sér þaö til dundurs aö tæla smá-
stelpur sem komu I klippingu og
siöan leigt þær rikum viöskipta-
vinum si'num.
Er Ernesto var dreginn fyrir
dómstóla var hann þó hinn kok-
hraustasti og kvaöst hafa sofiö
hjá 2000 stúlkum slöan hann kom
til Danmerkur frá ítallu fyrir sjö
árum. Ekki aldeilis var hann til-
búinn til aö viöurkenna aö litt
klæddar smástelpur i herbergi
inn af rakarastofunni gæfu til
kynna grunsamlega starfsemi.
„Þær eru aö læra heima”, sagöi
Italinn.
Anna Maria, fyrrum Grikk-
landsdrottning, hefur ný vakiö
mikiö umtal oghneykslan i hinum
dannaöri hópum auömanna
Evrópu. Hún hefur semsé sést
hvaö eftir annaö reykjandi plpu!
Þýskhúsmóöir var nýlegasekt-
uöum háa upphæö vegna þess aö
hún haföi þann leiöa siö aö i hvert
sinn er hún fór til tannlæknis beit
hún fingurinn af tannlækninum.
Mun þetta hafa komiö fyrir æ
ofan I æ en veslings konan ekki
ráöiö viö sig.
Hjón I USA höföu horfiöog vissi
enginn hvaö oröiö haföi af þeim.
Hins vegar fór aö berast úr læstri
ibúð þeirra hinn versti fnykur og
var mönnum hættaö li'tast á blik-
una og fengu pólitiið til aö brjót-
ast inn.
Þar fundust fjöldamörg lfk en
þau ekki lík hjónanna. Aftur á
móti lik 7 hunda, 8 katta, 6 snáka,
43 kjúklinga, 56 dúfna, 8 kanina,
eins marsvlns og einnar rottu og
að auki 6 hræ sem enginn bar
kennsl á. Ahugamál hjónanna
hafa þvl veriö hin vafasömustu.
.oghelgin
erkomin!
Umsjón:
Axel
Ammendrup
Tðlfhitia
dráttarvtl
Átta hjól eru ekki nóg.
Það tekur tólf hjól til
þess að gra virkilega
góða torfæru dráttarvél,
segja DMI, Inc. verk-
smiðjurnar. En það fyr-
irtæki hefur nú hannað
útbúnað á dráttarvél
sem eykur hjólin upp i
tólf. Auka hjólin gefa
dráttarvélinni aukinn
hraða og yfirferð og
dreifa meira þyngd
vélarinnar og krafti.
Myndin er af venju-
legri dráttarvél en við
hana hefur verið bætt
þessum sérhannaða
hjólaútbúnaði. Hvert innar um 200.000 kr. fyrir einhvern bóndann vorverkin að hafa slika
hjól eykur verð vélar- Ekki væri amalegt hér sem er að hugsa um vél á bænum.
VIKUENDANUM!
Helgarblað Vísis er rúsínan okkar enda hefur það þegar
skapað sér sérstöðu á blaðamarkaðnum. Það kemur
út sérhvern laugardag, smekklegt og efnismikið,
fullt af frísklegum greinum og viðtölum til lestrar
yfir helgina.
Áskrift að Vísi tryggir þér eintak stundvíslega sérhvern virkan
dag og svo rúsínuna í vikuendanum: Helaarblaðið.
Sendu seðilinn til Vísis Síðumúla 8 eða hringdu í
síma 86611 og við sjáum um framhaldiö.
/ Ég óska eftir aö gerast áskrifandi aö Visi \
I I
Nafn
Heimilisfang
Sími