Vísir - 04.07.1979, Page 24
Miðvikudagur 4. júlí 1979
síminner 86611
Spásvæði Veðurstofu tslands
eru þessi:
1, Faxaflói, 2. Breiöafjörö-
ur. 3. Vestfirðir. 4. Norður-
land, 5. Norðausturland. 6.
Austfirðir. 7. Suöausturland.
8. Suðvesturland.
veðurspá
dagsins
Skammt út af Vestfjörðum
er 992 mb. lægð og frá henni
lægðardrag, austur um norð-
anvert landið. Hiti breytist lit-
ið:
SV land, Faxaflói, SV mið og
Faxafióamið: SV kaldi eða
stinningskaldi, skúrir.
Breiðafjörður og Breiða-
fjarðarmið: S og SV kaldi,
rigning fyrst og skúrir þegar
liður á daginn.
Vestfiröir og Vestfjarða-
mið: Breytileg átt, viða rign-
ing eða skúrir einkum sunnan
til.
N land og N mið: SV gola
eða kaldi.skýjað en úrkomu-
laust að mestu.
NA land og NA mið: V gola
eða kaldi.sumstaðar léttskýj-
að.
Austfirðir og Austfjaröa-
mið: V og SV gola eða kaldi,
vfða þokuloft á miðum eða á
annesjum, en þokuloft til
landsins.
SA land og SA mið: V og SV
gola eða kaldi, viða smá skúr-
ir.
veðriO hér
og par
Veðrið kl. 6 i morgun:
Akureyri, skýjaö 8, Bergen,
úrkoma i grennd 12, Kaup-
mannahöfn, léttskýjað 14,
ósló.léttskýjað 15, Reykjavik,
skúrir, 6, Stokkhólmur skýjað
11, Þórshöfn, alskýjað 11.
Veörið kl. 18 i gær:
Aþena, heiðskirt 29, Berlfn,
skýjað 17, Chicago, skýjað 25,
Feneyjar.heiðskirt 19, Frank-
furt, skýjað 18, Nuk.skýjað 5,
London, mistur 21,
Luxemburg, skýjað 16, Las
Palmas, skýjað 22, Mallorka,
hálfskýjað 22, Montreai, létt-
skýjað 20, Paris.léttskýjað 20,
Róm.skýjað 23, Malaga.skýj-
að 23, Vin, rigning 13, Winni-
peg, alskýjaö 25.
LOKI SEQIR
Þjóðviljinn spyr hvar tölvu-
gögn VL manna séu geymd.
Ætli þau séu ekki geymd á
sama stað og undirskrifta-
listar herstöðvaandstæðinga
sem Ragnar Arnalds og fleiri
gengust fyrir en siðan veit
enginn hvar listarnir eru.
Alvarlegar afleiðlngar vetrarrúningar:
Mikiii llðrdauDi
h|ð Fljútabændum
„Fyrir utan lambadauðann, sem hefur verið
mjög almennur i vor, má reikna með að tugir
fullorðins fjár hafi drepist á þessu svæði”, sagði
Jón ólafsson bóndi i Haganesi i Fljótum, þegar
Visir hafði samband við hann í morgun.
Jón kvaö bændur i Fljótum
almennt hafa tekið upp þann sið
að vetrarrýja féö, sem hefði þá
kosti að meiri ull fengist, auk
þess sem féö tæki betur fóöri og
lömbin kæmu vænni af fjalli.
Nú væri hinsvegar ljóst að
taka þyrfti þessa vetrarrúningu
til endurskoðunar, vegna þess
' að greinilegt væri aö féð þyldi
ékki vorkulda á borð viö þann
sem verið hefur I vor.
Jón sagöi að það væri ekki
aðeins kuldinn sem ylli þessum
mikla fjárdauða, heldur mætti
llka kenna um þeim miklu inni-
stöðum fjárins sem væru honum
samfara.
„Það er ekki enn hægt að gera
sér fyllilega ljóst það tjón sem
bændur verða fyrir vegna vor-
haröindanna, þvl búast má við
þvi að rollur geldist og lömbin
komi þvl rýr af fjalli”, sagði Jón
og bætti við að þetta vor hefði
verið með þeim eindæmum, að
elstu menn myndu ekki annað
eins.
Vlsir hafði einnig samband
viö Lúðvlk Asmundsson á
Sigriðarstööum og tók hann
mjög I sama streng og Jón,
nema hvað hann sagðist ekki
hafa trú á því að vetrarrúning
skipti sköpum I sambandi við
fjárdauðann.
P.M.
Óvist virðist hvort stjórnarflokkarnir verða sammála um aö bora
frekar við Kröflu f bráð.
Krafla enn á dagskrá:
Alpýðuflokkurinn gegn
frekari eorunum
Þingflokkur Alþýðuflokksins
hélt fúnd I gær og var þar meðal
annars rætt um áframhaldandi
boranir við Kröfluvirkjun.
Að sögn Arna Gunnarssonar
alþingismanns leggst yfirgænf-
andi meirihluti þingflokksins
gegnþviaðveittverðimeirafé til
virkjunarinnar á meðan ekki er
komin ró á svæöið.
Árnisagöiað þó svo aö aðstand-
endur Kröfluvirkjunar segðu sig
styðjast við visindalegar athug-
anir er sýni aö sú hola er nú ætti
aö bora væri á svokölluöu rólegra
svæöi þá væru aðrir visindamenn
á öndverðum meiði.
Arni taldi aðra virkjunarmögu-
leika bæði eðlilegri og betri val-
kosti og nefndi i þvl sambandi
þriðja áfanga Laxárvirkjunar og
Bessastaðaárvirkjun. —GEK
Kveiki l sköianum?
Mikinn og svartan reyk lagöi skemmdir urðu I lofti og þak-
frá nýbyggingu Fjölbrautaskól- pappa. Lögregluvakt var á staðn-
ans I Breiðholti er slökkviliðið var um I nðtt og er rannsókn málsins
kvatt þangað um klukkan hálf nlu ekki lokiö en ekki er óhugsandi að
i gærkvöldi. Tókst fljótlega að um ikveikju hafi verið aö ræöa.
slökkva eldinn en töluverðar Sv. G.
Akært 09 dæmt
í hundamálum
Um þessar mundir hafa veriö
til dómsmeöferöar I sakadómi
Reykjavikur 6 mál sem risiö hafa
vegna hundahalds I borginni.
Dómar hafa verið kveðnir upp I
5 þessara mála en sjötta málinu
er enn ólokiö. í þeim málum sem
lokið er hafa eigendur hundanna I
öllum tilfellum verið sakfelldir en
ekki hefur verið krafist refsingar
vegna brotanna, en þess má geta
aöhámarksrefsing vegna brots af
þessu tagi er eitt þúsund króna
sekt.
Upphaflega komu þessi mál til
sakadóms með heimild saksókn-
ara um að þeim yrði lokiö með
dómsátt, en voru þá endursend
embættinu með þeirri athuga-
semd að um ástandsbrot væri aö
ræða sem enn stæði yfir, það er að
segja viökomandi hundar væru
enn I vörslu eigenda sinna innan
borgarmarkanna. Ákærði sak-
sóknari þá i málunum.
—GEK
Fannst látinn á Laugavegi
Laust eftir klukkan fimm I stéttinni fyrir utan. Lögreglan •
morgun var lögreglan kvödd aö telur liklegt að maðurinn hafi
húsi við Laugaveg, þar sem ung- fallið af þaki hússins.
ur maður hafði fundist látinn á Sv.G.
Viöræöunum um Jan Mayen-loðnuna er nii haldiö áfram milli Gröndals
og Frydenlunds, en að þessu sinni simleiðis.
Bein ifna miin Grifn-
dals og Frydenlunds
Utanrikisráðherrar Islands og
Noregs ræðast nú daglega viö I
sima út af Jan Mayenmálinu svo-
kallaöa og nú siðast snemma i
morgun. Að sögn Harðar Helga-
sonar, ráðuneytisstjóra I utan-
rikisráðuneytinu, hefur enn ekk-
ert veriö ákveðið með framhalds-
viðræður á milli landanna, en
verið er að reyna að finna ein-
hvern viöræðuflöt á málinu.
—SS—
Matrelöslumenn:
Hafna 3% kauphæKkun
Félag matreiðslumanna kemur
saman til fundar á morgun til að
taka ákvörðun um aðgeröir eftir
að slitnaði upp úr samningavið-
ræðumjum kjör þeirra,við for-
svarsmenn Sambands veitinga-
og gistihúsaeigenda. Matreiðslu-
menn hafa hafnað boöi sam-
bandsins um 3% grunnkaups-
hækkun og farið fram á gerðar-
dóm um kjör sin, og hittust deilu-
aðilar hjá sáttasemjara I fyrra-
dag til að ræða þessi mál.
Að sögn Hólmfriðar Árnadótt-
ur, framkvæmdastjóra Sam-
bands veitinga- og gistihúsaeig-
enda, var sambandið reiöubúið að
fallastá að ákvörðunum kjör yrði
skotið til gerðardóms en hins veg-
ar ekki á þau skilyrði, sem mat-
reiðslumenn settu. „Þeir kröfðust
þess að fleiri atriði kjara-
samninganna yrðu sett I gerö en
við gátum sætt okkur viö, og
einnig kom upp ágreiningur um,
hvernig staðið skyldi að gerð-
inni”, sagði Hólmfrlöur.
—AHO