Vísir - 07.07.1979, Page 3

Vísir - 07.07.1979, Page 3
VISLR Laugardagur 7. júli 1979 ■ umiii Farþegar aö versla viö brottför (Vlsism. HB) Tekjurnar skipta hundruðum milljóna Þótt hinn almenni feröamað- ur hagnist oft vel á að versla i Frihöfninni er hagnaður rikis- sjóðs af rekstrinum ekki siður mikill. „Veltan á siðasta ári var tæp- lega 1900 milljónir króna og heildarskil i rikissjóð námu um 360 milljónum. Tekjur af rekstr- inum voru hins vegar allmiklu hærri þegar allt er talið”, sagði Þórður Magnússon. „Söluaukning i dollurum var um 21% i fyrra sem þýðir um 14% magnaukningu i sölu. Það er erfitt að auka söluna nema farþegum sem fara um völlinn haldi áfram að fjölga. I þvi sambandi er rétt að benda á, að það er stórverkefni sem þarf að ráðast i að vinna að lækkun lendingargjalda á Keflavikur- flugvelli svo þau verði svipuö og á öðrum millilendingaflugvöll- um Evrópu”. — Hvaö segir þú um aö rekst- ur Frihafnarinnar veröi boöinn út? „Það er ljóst, að margir aðil- ar telja að eðlilegt væri að bjóða reksturinn út. Ef mikið er um vandkvæði eða erfiðleika i rekstrinum ýtir það vissulega undir þessa hugmynd. Einka- framtakið býður lika upp á meiri sveigjanleika varöandi þær kröfur sem þessi rekstur býður upp á”. Verkfall og lögreglurannsókn Nokkurra daga verkfall starfsmanna Frihafnarinnar er mönnum i fersku minni. Hvaða álit hefur Þórður á þvi máli. „Það er auðvitað mest um vert að þessum deilum um sum- arfólkið er lokið. Aftur á móti hlýtur það að vera einsdæmi að stéttarfélag efni til kostnaðar- samra verkfallsaðgerða til kjararýrnunar.Eins er það furðulegt þegar forystumenn BSRB láta að þvi liggja i áróðri sinum, að til hafi staðið að ráða fólk án orlofsréttar, veikinda- réttar og tryggingaréttar, Þetta kom aldrei til umræðu, enda eru i gildi landslög um þessi rétt- indi. Forystumenn BSRB kröfðust þess hins vegar að þetta yrði sett inn i samkomulagiö til þess væntanlega, að geta slegið sér upp á þvi i áróðri að loknu verk- falli. Það liggur ótvirætt fyrir að þetta samkomulag er mun ó- hagstæðara fyrir sumarfólkið heldur en það sem fjármála- ráðuúeytiö bauð fyrir verkfall. BSRB tókst að lækka laun þessa fólks úr 905 þúsund niður i 706 þúsund fyrir þann tima sem þaö var ráðiö til, eða um 18,5% fyrir sama tima og stóð til að ráða þetta fólk á i upphafi. Ef hins vegar verkfallið sner- ist um 'áðra þætti en sumarfólk- ið þá átti vissulega að koma fram með þá þætti meðan á verkfalli stóð en ekki stofna ■ verulegum fjármunum i hættu á fölskum forsendum. Mér þykir miður aö þurfa að taka þessi mál upp til umræðu, en það er nauðsynlegt vegna si- endurtekinna ummæla forustu BSRB”. — Er ekki erfitt aö reka Fri- höfnina i skugga þeirrar lög- reglurannsóknar sem stendur yfir? „Vissulega er það óþægilegt og skapar verulegan óróa og vandkvæöi i stjórnun. Flugum- ferð um Keflavikurflugvöll hefur aukist hratt og farþegum fjölgað. Frihöfnin hefur kannski ekki getað aðlagað sig breyttum aðstæðum og ýmsir stjórnunar- og eftirlitshættir ekki þróast i samræmi við aukin umsvif fyr- irtækisins. Ég tel það allra hag aö rann- sókninni verði flýtt svo óvissu og tortryggni sé eytt. Þá er hægt að byggja upp þaö traust og þá virðingu á Frihöfninni sem hverju rikisfyrirtæki er nauð- synlegt að hafa”. Þórður er kvæntur Mörtu Mariu Oddsdóttur kennara við Hagaskóla og eiga þau tvo syni, fimm og tiu ára gamla. En hvað gerir fjármálastjóri Frihafnar- innar I fristundunum? „Það hefur nú viljað teygjast úr vinnudeginum. Yfir veturinn reyni ég aö fara mikið á skiði og svo I veiöiskap á sumrin. Ég hef hins vegar reynt að halda mér utan við pólitisk félög”, sagði Þórður Magnússon fjármála- stjóri. —SG l I ( I I I 1 M I I i M* 54 OO 70 ao 1 I I I III I I 130 100 MW ClTVARP OG SEGULBAND I BILINN kúDo JLúAJcfi Ho I BILINN ÞEGAR A REYNIR Hátalarar og bílloftnet í úrvali/ Bestu kaup landsins. r Isetning samdœgursl Verð frá kr. 24.960,- til 94.200,- 29800 Skiphotti19 mm rSkallinn, -það er staðurinn Ótal tegundir af ís. Gamaldags ís, shake og banana-split. Mjólkurís meó súkkulaói og hnetum. Ummm.... Gamaldags ís Lækjargötu 8, Hraunbæ102 Reykjavíkurvegi 60 Hf.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.