Vísir - 07.07.1979, Blaðsíða 4

Vísir - 07.07.1979, Blaðsíða 4
I Laugardagur 23. júní 1979 4 ,,Adhyííist ein- faídan lúxus” — segir Gestur Oíafsson arkitekt — Hvernig finnst þér að hús eigiað vera? „ í stuttu máli sagt, þá aðhyllist ég einfaldan lúxus. Það á að fara vel með þá stein- steypu sem er notuð og auk þess nýta þá möguleika sem umhverfið býður upp á, til dæmis uppgröft og gróður. Nútima stefna i byggingalist gekk m.a. út á þaö að bsa fóik við griskar súlur, boga og snúninga sem eruutan á húsum „Húsbygging er stærsta fjár- festing sem flestir fara út í og það hefur mikil áhrif á lif manna hvernig til tekst” sagði Gestur Ölafsson arkitekt. „Fólk er oft óöruggt við arki- tekta og hrætt við að þeir liti niður á það, eða smekk þess. Það veigrar sér þvi kannski við þvi aö láta I ljósi skoöanir sinar eða kannast við að það skilji ekki teikningar þær sem arki- tektinn er með. Það þarf að læra á teikningar rétt eins og þaö þarf að læra að lesa og engin von til þess að fólk geti áttað sig hvað þessar teikningar i raun- inni merkja i stærðum og fyrir- komulagi. Þaö er algengt að fólk hafi ekki myndað sér neinar hug- myndir um hvernig þaö vill hafa heimilið sitt þegar þaö hefur húsbyggingu. Hjón komast stundum að þvi þegar þau eru sest niður hjá arkitektinum til að ræða um hvernig húsiö eigi að vera, að þau hafa gerólikan smekk og skoðanir á þessum málum. Þá verður að finna ein- hverja leið sem allir geta sætt sig við. Eins og að kaupa haframjöls- pakka Þegar keypt eru til dæmis Þetta hús, sem er f Mosfellssveit, er teiknaö af Gesti ólafssyni arkitekt og er dæmigert fyrir þab sem kallar, einfaldan lúxus, einingahús, eða hús sem byggð erueftir stööluðum teikningum, er hægt aðlfta á þau og gera upp við sig hvort manni likar við þessa tegund af húsi eða ekki. Rétt eins og það væri að kaupa sér haframjölspakka eða til- búna flik. Þegar hins vegar er teiknaö hús fyrir fólk, þá er verið að klæðskerasauma utan um það og búa til hlut sem ætti að henta þvl mjög vel og falla að óskum þess og þörfum. Mér finnst alltof algengt að barnaherbergiog hjónaherbergi eru höfð of lltil. Auk þess eru barnaherbergi gjarnan látin mæta afgangi og snúa oft I noröur sem er afar niðurdrep- andi. Eins eru ekki alltaf eins náin tengslmilli stofu, borðstofu og eldhúss, eins og ég tel að þurfi aö vera á heimilum. engum til gagns en þeim sem byggir verulegur kostnaðaauki. Ég vil semsagt frekar eyða þessari steinsteypu I að búa til einfaldan lúxus. Yfirlætis- laus en vönduð húsakynni, þar sem hver einstaklingur á heimilinú hefur svigrúm til að athafna sig I samræmi við óskir og þarfir , húsakynni sem eru þannig skipulögö aö öll vinna á heimilinu og samskipti / fjölskyldumeölima verði sem greiöust. öðruvisi hús á Flateyri en I Reykjavik. Það er mikilvægt aö fólk byggi ekki svo dýrt, aö það hálf- drepi sig á þvi. Það á að vera ánægt með húsið sem það er að byggja yfir sig, en ekki að byggja til bráðabirgða. Það er oft afsökun til að byggja bæði ljótt og lélegt hús, að fólk sé að þvl til bráðabirgða. Peningar sem fólk telur sig vera að spara þegar það lætur ekki skipu- leggja fýrir sig húsbyggingar, koma siðar niður á þvl i vinnu- töf og auknum bygginga- kostnaöi. Þaö sem mér finnst skipta meginmáli þegar ég teikna hús, er að það falli inn I og sam- ræmist umhverfinu. Því teikna ég til dæmis öðru vísi hús á Flateyri en i Reykjavlk. Þegar ég var búinn að læra arkitektúr, tók ég skipulag sem sérgrein, af þvl ég hef meiri áhuga fyrir fólki heldur en hlutum og ég held að skipulag umhverfis skipti verulegu máli i samskiptum manna. Ég er alinn upp úti á landi, þar sem eignir skiptu sáralitlu máli, þvl það átti hvort sem er enginn neinar eignir. Það sem skipti fólk þar mestu máli var annað fólk og þess vegna þróuöust milli manna ákveðin tengsl sem ég tel að séu ákaflega mikilvæg. Húsbyggingar eru I raun spursmál um hvernig fólk vill lifa, enég held aö þaðumhverfi sem hjálpar fólki til að ná þessum tengslum, sem ég minntist á, sé mikilvægast'' sagði Gestur Ölafsson. — JM „Erum meö einhvem meöatmann t huga" sem er i rauninni ekki til, sagdi Egill Guðmundsson arkitekt hjá Húsnæöismálastofnun rikisins Egill Guðmundsson fyrir framan teikningu sem hann hefur unniö ásamt Gylfa Guðjónssyni. „Við reynum aö teikna hús sem geta falliö inn i sem flest umhverfi en sýnum á skissum, sem fylgja með teikningunni,að- stööumynd þannig aö hægt sé aö átta sig á hvar þetta hús hentar og hvar ekki” sagði Egill Guð- mundsson, en hann er arkitekt hjá Húsnæöisjnálastofnun rlkis- ins. A teiknistofu stofiiunarinnar eru unnar húsateikningar sem eru seldar almenningi og svo teikningar fyrir riki og sveitar- félög. öll hús sem eru teiknuð þar miðast viö stærðarmats- reglur Húsnæðismálastjórnar sem lánaö er eftir. Húsagerðin er miöuð við kjarnafjölskyldu. „Þar sem maöur hefur ekki viðskiptavin til að bera fram óskir um eitt eða neitt, veröa þetta auðvitað aldrei klæð-; skerasaumuð hús” sagði Egill. Hinsvegar er að mörgu leyti erfiðara að teikna ,,týpu”hús, þvi þessi ákveðna húsagerð verður að passa sem flestum’í Möguleiki á breyting- um Það er reynt að teikna húsin hérna eftir svonefndum Evrópustaðli, sem er ákveðiö net eöa kerfi sem byggt er upp af mismunandi einingum. Venjulega eru buröarvegg- ir i lágmarki, en meira um létta veggi til aö fólk hafi meiri val- kosti meö innra fyrirkomulag. Það verður að vera til að vega upp á móti þvl að fólk hefur ekki hönd ibagga með hvernig húsið er teiknað. Ef fólk kaupir teikningu hjá Húsnæðismálastofriun rfkisins á það aö fá ráðgjöf hjá arkitekt, þvi það þarf oftast leiöbeiningu til að velja teikningu sem pass- ar á þá lóö og inn I það skipulag sem á aö byggja á. Það er arki- tekt hjá stofnuninni sem sinnir þessu, en ekki sá sem teiknaði húsið. Ef hinsvegar er óskað eftir breytingum við teikning- una þá geta menn snúið sér til viðkomandi arkitekts. Þaö er möguleikiaðbreyta teikningum litilsháttar ef fólk æskir þess sérstaklega, en þaðer ekki inni I veröi teikningarinnar. > Reyni að miða við sjálfan mig — Þegar ákveðnum reglum sleppir, hvað hefurðu þá að leið- arljósi þegar þú teiknar hús sem þú veist ekkert hverjir munu búa I? „Það er nærtækast aö miða við sjálfan sig og ég geri það alltaf. Reyni að hugsa mér hvernig mér fyndist að búa I svona húsi. Mér finnst mikið atriði að samræmi sé milli útlits hússins og hvernig það er að innan. Einnig að garðurinn sé nýtanlegur, aðgengilegt að komast út í hann og skjól af hús- inu. Ég er á móti litlum lokuð- um herbergjum og löngum göngum. Þaö getur auðvitað veriðerfitt að komast hjá göng- um þar sem eiga kannski að verafimm svefnherbergi, en ég reyni þá frekar að gera það þannig úr garði að það verði fremur leiksvæði fyrir börnin. Eins finnst mér æskilegt að innra skipulag hússins sé opið, þaö er að segja tengt, án þess að vera endilega lokað af með hurðum. Þaðer llka atriði hvernig far- ið er með efni. Mér finnst betra að nota fá efni, en nýta þau vel. Litir geta svo skipt verulegu máli, en við ráðum auövitaö engu um þá hér. Manni er auðvitað þröngur stakkur skorinn að vissu leyti við svona vinnubrögð, þó þetta starf sé hinsvegar alltaf skap- andi. Maður er álltaf með ein- hvern meðalmann eða „stand- ard”mann I huga, sem er I raun og veru ekki til. — Er eitthvað verkefni sem þú vildir alls ekki taka að þér? „Ef mér væri sagt að teikna tuttuguog f jögurrahæða blokk I gömlu hverfi — þá segði ég nei takk” sagði Egill Guðmunds- son. — JM HARMONIKUUNNENDUR MY PLATA MED Örvori Kristjónssyni Þar sem hann ýmist syngur eða leikur á harmoniku tólf bráðskemmtileg lög. Nú eru eldri plötur hans lika fáanlegar. Og svo fást þær allar á kassettum. TÓNAútgófon Akureyri simi 96-221 ii

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.