Vísir - 07.07.1979, Qupperneq 12

Vísir - 07.07.1979, Qupperneq 12
Electric Light Orchestra eins og hún er i dag VÍSIR Laugardagur 7. júli 1979 12 MAÐURINN SEM GALDRAR LÖGIN UPP ÚR SKÓNUM Ef Bitlarnir heföu farið í hljómleikaferð til þess að leika lögin á „Sergeant Pepper" hefðu þeir þurft svipaða hljóðfæraskipun og Electric Light Orchestra. Og talandi um Bitlana og ELO í sömu setningunni má á það minna að Jef f Lynne# leiðtogi ELO/ hefur látið hafa það eftir sér að einu áhrifa- valdarnir á hans tónsmíðar hafi verið Lennon og McCarteny. Það má enda heyra! Þótt Electric Light Orchestra sé sprottin upp úr hljómsveitinni Move frá Birmingham sem átti aII- mörg hittlög á sínum tíma.samin af gitarleikaran- um Roy Wood — er tæpast hægt að halda þvi fram að ELO sé í beinu framhaldi af Move. Til þess eru þær of ólíkar. Move Hljómsveitin Move var stofn- uð árið 1965 en það var ekki fyrr en fimm árum siðar að upp kom ágreiningur i hljómsveitinni sem varö til þess annars vegar að fjórir liðsmenn hennar kvöddu og sögðu bless og hins vegar að Roy Wood og Bev Bevan var boöin þátttaka i hljómsveitinni. Siðar bættist Jeff Lynne i hópinn. Honum haföi ári áöur veriö boöið sæti i Move en afþakkaöi það þá sökum þess aö hljóm- sveit hans þá, The Idle Race, átti nokkurri velgengni að fagna þá sundina. Áður hafði Jeff Lynne veriö I hljómsveit er nefndist Nightriders og var inn- anbúðarhljómsveit I Birming- ham. Þótt Jeff Lynne hafi hlotið lof- samleg ummæli gagnrýnenda fyrirlög sin, einkum og sérilagi fyrir lagið „Skeleton and the Roundabout” var hann engu aö siöur varaskeifa i Move. Roy k........ Wood drottnaöi I hljómsveitinni, enda hafði hann þá samið nokk- ur rumpuvinsæl lög sem klifið höfðu tinda vinsældalistanna i Bretlandi. A þvi stutta timabili sem Lynne og Wood störfuðu saman i Move samdi sá siðar- taldi tvö vinsæl lög sem hljóm- sveitin flutti. Meðal laga Woods með Move má nefna „Night Of Fear”, „Flowers In The Rain”, „Fire Brigade”, „Blackberry Way” og „Brontosaurus”. Arið 1972 átti Move hittlag i Bretlandi aö nafni „California Man” sem raunar var stæling á lagi eftir Jerry Lee Lewis. Lag- ið á B-hliö plötunnar hét „Do Ya” og það samdi Jeff Lynne. Þegar þessi plata kom út I Bandarikjunum var lögunum snúiö við og lag Lynne var á A- hliðinni, — og varð stærsta hitt- lag Move fyrir westan. Sinfónískt rokk Þvi er haldiö fram að megin- ástæða fyrir þvi að Jeff Lynne þekktist það boð að gerast liös- maöur Move hafi verið sú að þá hafi hann séð fyrir sér mögu- leikana á stofnun hljómsveitar eins og ELO og lagið „Do Ya” færöi honum sönnur á þvi að hann var á réttri leið. Stofnun ELO var hins vegar verk Roy Wood og markmið hans með þeirri óvenjulegu hljóðfæraskipan sem ákveðin var gat varla verið ljósari. Hljómsveitinni var ætlað að taka við af Bitlunum þar sem þeir skildu viö „Strawberry Fields Forever” og „I Am The Walrus” án þess þó að missa sjónar af einkennum Move. I tveim oröum sinfóniskt rokk. Af þessari hugmynd hreifst Jeff Lynne, en svo undarlega brá við að þegar Wood hafði hrint hugmynd sinni i fram- kvæmd var áhuginn hjá honum sjálfum farinn aö dofna. Þremur mánuðum eftir aö „California Man” með Move hafði orðið vinsæit kom lagið „10538 Overture” með sömu liðsmönnum og skipuöu Move en þeir kölluðu sig Electric Light Orchestra. Þennan ELO „standard” samdi Lynne og hann var tekinn af fyrstu plötu ELO sem bar einvörðungu nafn hljómsveitarinnar, eða triósins þvi þeir voru aðeins þrir, Wood, Lynne og Bevan. Wood kveöur Þessi upprunalega útgáfa Elo varö ekki langlif. Hún gaf aðeins út þessa einu plötu enda vildu báðir „sterku” mennirnir ráða ferðinni. Roy Wood hélt þvi leiðar sinnar og stofnaði hljómsveitina Wizard. Meö sér tók hann aðalhjálparhellur ELO, Rick Price og Hugh Mc Dowell, og sýndist mönnum úti um hljómsveitina. En Lynne og Bevan voru á öðru máli og hófu þegar að fylla i skörðin með það tvennt að leiðarljósi að gera ELO aö stórfenglegri hljóm- leikahljómsveit og fá til liðs viö hana hljóöfæraleikara sem kynnu skil á klassiskri tónlist auk rokktónlistar. NIu manna hljómsveit birtist á ELO II og þar af voru þrir fyrrum hljóö- færaleikarar úr sinfóniuhljóm-

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.