Vísir - 28.07.1979, Blaðsíða 20
vtsm
Laugardagur 28. júli 1979.
hœ kiakkar!
20
Umsjón: Anna
Brynjúlfsdóttir
Stelpurnar á myndinni heita Hlfn Gunnarsdóttir, Kristín Hermannsdóttir og Sæunn
Hermannsdóttir. Hlín er 3 ára, Kristm er 4 ára og Sæunn er 1 árs. Þær eiga heima á
Drangsnesi, en það er lítið þorp við norðanverðan Steingrímsf jörð í Strandasýslu.
Á Drangsnesi eru rúmlega 100 íbúar.
Skrýtlur
— Heyrðu Oli, segir
Nonni, hvers vegna ertu
berfættur, úr því að pabbi
þinn er skósmiður?
— Hugsaðu um sjálfan
þig, svarar Nonni,hann
litli bróðir þinn hef ur ekki
eina einustu tönn í munn-
inum, og þó er pabbi ykk-
ar tannlæknir.
oo
Það voru dp og óhljóð í
barnaherberginu og
María, stóra systir, fór
inn þangað og ætlaði að
stilla til f riðar. Samt sem
áður dvínuðu lætin ekki,
heldur versnuðu nú um
allan helming. Þegar
pabbi leit inn til að vita,
hvernig á þessum ósköp-
um stæði, sá hann, að
Pétur litli sat upp í bólinu
og grenjaði af öllum lífs
og sálarmætti.
— Hvað er að þér,
drengur minn? spurði
pabbi.
— Hún María sagði, að
ef ég heldi áfram að
gráta, kæmi stór svört
mús með græn augu og
settist hér á rúmstokkinn.
En nú er ég búinn að
gráta í heila eilífð og eng-
in mús vill koma, sagði
Pétur.
oo
Mamma segir við son
sinn, sem heldur í rófuna
á kisu: — Þú mátt ekki
draga kisu á róf unni væni
minn.
Sonurinn: — Ég dreg
hana ekki, ég bara held.
Það er hún, sem er að
reyna að draga mig.
Það var hringt til kenn-
arans, og röddin sem í
símanum var, sagði
nokkuð dimm og hás: —
Óli getur ekki komið í
skólann í dag. Hann er
veikur.
— Jæja sagði kennar-
inn, við hvern tala ég?
— Það er pabbi minn,
svaraði röddin.
oo
Siggi litli kom háskæl-
andi inn til mömmu sinn-
ar. — Hvað gengur að
þér, væni? spurði hún.
— Ég datt og meiddi
mig svo voðalega í gær,
snökti Siggi.
— Ekki getur þú verið
að gráta af því núna,
Siggi minn, sagði hún.
— Jú, þú varst ekki
heima í gær.
REIKNINGS-
ÞRAUTIR
1. I gamla daga, meðan dýrtíðin var ekki komin á svo
hátt stig, sem hún er nú, bar svo við, að maður einn,
sem var að byrja búskap, keypti sér nokkur húsdýr
Upphæðin, sem hann keypti fyrir, var aðeins hundrað
krónur, en fyrir þær keypti hann þó 112 dýr. Hann
borgaði 10 krónur fyrir hvern kálf, sem hann keypti, 3
krónur fyrir hvert lamb og 50 aura fyrir hverja hænu.
Hvað fékk hann mikið af hverri tegund?
2. Hvaða tala hef ur alltaf 2 í afgang, hvort sem henni
er deilt með 3, 4, 5,6 eða 7?
ZZV U
•jnuæi) 001 6o qiuo| oi 'etl?>l Z (L
:iun|nejcjs!U5j!aj ? usneq
Hvernig komast Gög og Gokke út úrþessu völundarhús
Á LEIÐ TIL TUNGLSINS
-ajta.a.8.8.ac 8.a.a.a.iUUi aimoimggcaaciiattaatssaaggeitioaoagiicaoaiioi
Hvaða geimfari verður fyrstur til tungslins?