Vísir - 28.07.1979, Page 30

Vísir - 28.07.1979, Page 30
Laugardagur 28. júli 1979. 30 II JUrif bensfnskorfsins f Bandarikfunum: Samdrillur í sðlu á íslenskum flskafurðum Bensinskorturinn i Banda- rikjunum hefur leitt til sam- dráttar i sölu islensks fisks á Bandarikjamarkaði. Þannig er júni-mánuður sá fyrsti á þessu ári, þar sem salan var minni hjá Iceland Seafood Corporation en i sama mánuði i fyrra. Guðjón B. Olafsson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins seg- ir i viðtali við Sambandsfréttir, að fyrstu fimm mánuði þessa árs hafi verið mikil söluaukning hjá fyrirtækinu. „Þá var reyndar mesta sala, sem orðið hefur hjá fyrirtækinu frá upphafi vega. Þegar bensin- kreppan hófst i byrjun júni, varð hinsvegar samdráttur i sölunni, og reyndar varö júni i ár fyrsti mánuðurinn i mjög langan tima, sem salan var minni hjá okkur en i sama mán- uði árið á undan. Þetta gæti að visu stafað að einhverju leyti af verkföllunum hér heima, og sömuleiöis af mótmælaaðgerð- um flutningabilstjóra vestra, sem töfðu fyrir flutningum frá okkur. En eigi að siður er það staðreynd, að það átti sér stað samdráttur i sölu hjá þessum veitingahúsum, sem taka við um helmingnum af þeim frysta fiski sem seldur er á Banda- rikjamarkaði. Og um leið og dregur úr sölu hjá þessum veit- ingahúsum, dregur einnig úr sölunni hjá okkur. Þetta gerðist bersýnilega vegna þess, að fólk fór minna akandi en áöur, bæði vegna hækkaðs verðs á bensfni, og einnig vegna þess að viða varð beinlinis skortur á þvi, þannig að bensinstöðvar urðu að loka. Ofan á þetta bætist svo vaxandi dýrtið, sem fólk vestra er óvant og óttast þvi skiljan- lega. — Um horfurnar er erfitt að spá, en þó er nú orðið mun auðveldara að fá bensin vestra en var, þegar ástandið var sem verst i júni. Það er ennþá of snemmt að segja til um sölu okkar I júli, en þð virtist vera nokkur aukning i pöntunum i siðustu viku, og leit hún út fyrir að ætla að verða sú skársta frá þvi sem verið hefur siðan I mai- lok,” segir Guðjón. ESJ. „Fréttum al hass- málinu fyrlr hrelna tllviuun" seglr rllarl Islenska sendlráOslns l Stokkhúlml „Við fréttum bara af þessu fyr- ir tilviljun og málið hefur ekkert komið til kasta sendiráðsins”, sagði Áslaug Skúladóttir, ritari i Islenska sendiráðinu I Stokk- hólmi, þegar Visir spurðist fyrir um hvort sendiráðið hefði haft einhver afskipti af máli þeirra 8 Islendinga sem nú sitja i gæslu- varðhaldi I Gautaborg vegna meintrar eiturlyfjasölu. Mál þess manns sem situr I haldi hér heima og sænskur dóm- stóll hefur farið fram á að verði framseldur vegna rannsóknar fikniefnamálsins, verður i fyrsta lagi tekið fyrir I Hæstarétti i næstu viku, en eins og Visir hefur greint frá, liggur fyrir úrskurður Sakadóms þess efnis að skilyrði fyrir framsali séu uppfyllt. P.M. ELSTI FOKKERINN FER A SÖLUSKRÁ Ein af Fokker Friendship-vél- dráttar i rekstri Flugleiða. um Flugleiða, TF-FIP, hefur í frétt frá kynningardeild fé- verið sett á söluskrá. Þetta er lagsins segir, að mikil eftir- elsta Fokkervél félagsins, og er spurn sé eftir slikum vélum. hún sett á söluskrá vegna sam- ESJ. VAN VELDE-SVNINGUNNI AD LJðKA Sýningu Listasafns Islands á A sýningunni eru 65 verk, sem verkum hollenska listamannsins van Velde gaf Listasafninu Bram van Velde lýkur á sunnu- Listasafnið er opiö kl. 13:30—22. dagskvöld. í gær var unnið að viðgerðum á vélabúnaði sanddæluskipsins Perlu sem undanfar- ið hefur dælt umdeildu byggingarefni úr svokölluðum Saltvíkurnámum. Gert er ráð fyrir að viðgerð taki um eina viku. Vísism. Þ.G. VILJA INNHEIMTA SAMA SKATT TVISVAR SINNUMI Landssamband islenskra útvegsmanna hefur farið þess á leit við heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið, að það taki til endurskoðunar reglugerð um greiðslu út- gerðarinnar á lífeyris- og slysatryggingariðgjaldi. Hingað til hefur útgeröin haft þá sérstööu meðal atvinnurek- enda, að hún hefir greitt þessi iðgjöid fyrirfram með ákveðn- um vikugjöldum og þegar lög- skráö var um áramót var út- gerðinni gert skylt aö greiða nokkra mánuði fram I timann. Með lögum frá 1978 var ákveðið að þessi iðgjöld skyldu ekki lengur vera vikugjöld held- ur yrðu þau greidd I ákveðnu hlutfalli við launagreiðslur. Útgeröarmenn halda þvi nú fram að kröfur ráöuneytisins um greiðslu þessara iögjalda, byggðar á gjaldstofni 1978, eigi ekki rétt á sér. Visir hafði samband við Kristján Ragnarsson, formann LIÚ, og spurðist fyrir um þetta mál. — Ráðuneytiö ákvað að greiðslurnar fyrir árið 1979 skyldu miðaðar við gjaldstofn ársins 1978, en við teljum að við höfum þegar greitt þessi iðgjöld og að ekki sé hægt að láta okkur greiða gjöldin tvisvar fyrir sama árið. Viö teljum þvi að greiðslur fyrir árið 1979 eigi að falla niður hjá útgerðinni og slðan greiðum við eins og aðrir gjöldin fyrir 1980, byggð á gjaldstofni ársins 1979. Þetta er spurning um mörg hundruð milljónir króna fyrir útgerðina og við höfum beöið ráðuneytið að taka þetta til end- urskoðunar i ljósi þess, sagði Kristján. P.M.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.