Vísir - 31.07.1979, Síða 3
Þri&judagur 31. júli 1979.
3
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS HERÐA INNHEIMTU:
SllfiUR- UQ AUSTUR-
LAHD í SMASJANHI
„Við höfum hert mjög allar innheimtuaðgerð-
ir,” sagði Snorri Welding, innheimtustjóri hjá
Rafmagnsveitum rikisins, i samtali við Visi.
1 gær rann út frestur á
greiðslum vanskila á Snæfells-
nesi og kom það mikið til skila,
að ekki þurfti að gripg til lokun-
araðgerða. A næstu dögum
verða Rangárvalla- og Árnes-
sýslur teknar til sérstakrar út-
tektar hjá Rafmagnsveitunum
og eru lokunaraðgerðir að hefj-
ast þar og hjá orkukaupendum
Austurlandsveitu.
A landinu öllu námu gjald-
fallnir raforkureikningar 725
milljónum króna 26. júli sl. Þar
af höfðu 145 milljónir verið
greiddar á föstudaginn, eða um
20%. 1 gær innheimtust hátt i 40
milljónir króna og eiga Raf-
magnsveitur rikisins þvi nú úti-
standandi um 540 milljónir.
— SJ.
Virti ekki blðskyldu
Arekstur varð á Hamraborgarbrúnni i Kópavogi iaust fyrir kiukkan
átta i gærmorgun. Fólksbifreið sem ók suður Hafnarfjaröarveg virti
ekki biðskyldu við brúna með þeim afleiðingum að bifreið sem var á
leið vestur veginn frá kirkjunni ók inn i hliö hennar. Volkswagenbif-
reiðin skemmdist nokkuö og var ökumaður fluttur á slysadeild með
litilsháttar skrámur i andliti.
-Sv.G./Vísismynd: Þ.G.
SAFNVðRÐUR KAHN-
Afil REINAFUNDINN
„Guömundur Ólafsson, safn-
vörður, fdr norður á vegum Þjóö-
minjasafnsins og kannaöi sér-
staklega beinafundinn viö Þela-
merkurskóla”, sagði Þór
Magnússon, þjóðminjavörður, f
viðtali viö Visi I morgun.
Eins og Vlsir skýrði frá I gær
fúndust bein um 50 manna, þegar
fariðvarað grafa fyrir húsgrunni
fyrir nýbyggingu við skólann.
Þór sagði, að ekki væri venja I
slikum tilvikum að taka beinin.
Nú mun ákveöið að fyrirhuguð
nýbygging verði ekki reist á þeim
stað.þar sem beinin fundustogfá
þau þvi að vera I friði áfram.
E.S.J.
Eftir að nýskipaður sendiherra Júgóslaviu, hr. Dzon Siroka, hafði
afhent Kristjáni Eldjárn trúna&arbréf sitt, þáöi hann boö að Bessastöð-
um, og var þessi mynd tekin við þaö tækifæri. Meðal annarra við-
staddra var Kjartan Jóhannsson, en hann gegnir störfum utanrikisráð-
herra i fjarveru Benedikts Gröndal.
Jón L. Arnason —ernú I öðru sæti
á Noröurlandamótinu.
Jön L. I
ööru sæli
Jón L. Arnason er nú I 2.-5. sæti
á Noröurlandamótinu I skák, sem
fer fram i Sviþjóð. Hefur Jón 3 1/2
vinning eftir 4 umferðir en efstur
er Sviinn Niklasson. Bragi
Halldórssonog AsgeirÞ. Arnason
eru, ásamt öðrum, i 5.-10. sæti
með 3 vinninga.
Eftir 3 umferðir á heimsmeist-
aramóti unglinga i Skien í Noregi
hefir Margeir Pétursson hlotið 1
1/2 vinning. í fyrstu umferð tap-
aði Margeir fyrir Kinverjanum
Ma Hongding, sigraði Ahmed
Saeed frá Sameinuðu furstadæm-
unum i næstu oggerði jafntefli við
Lau frá Vestur-Þýskalandi í 3ju
umferð. Tefldar verða 13 umferð-
ir.
-IJ.
Leiðrétting
Ranghermt var I frétt VIsis i
gær um ölvaöa ökumenn i Hafn-
arfirði, að þeir hefðu lent utan
vegar eftir eltingarleik við lög-
regluna. Hiö sanna er að piltarnir
óku útaf án þess að nokkur elting-
arleikur heföi þar átt sér stað. Er
lögreglan I Hafnarfirði beðin vel-
virðingar á þessum mistökum.
INPKAj
Utsalan hefst
á morgun