Vísir - 31.07.1979, Page 8
8
VÍSIR
ÞriOjudagur 31. júli 1979.
Utgefandi: Reykjaprent h/f
Framkvæmdastjóri: Davfð Guðmundsson
Ritstjórar: úiafur Ragnarsson
Hö^ður Einarsson
Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Elias Snæland Jónsson. Fréttastjóri er-
lendra frétta: Guðmundur G. Pétursson.
Blaöamenn: Axel Ammendrup, Edda Andrésdóttir, Friðrik Indriðason, Gunnar
Salvarsson, Halldór Reynisson,, lllugi Jökulsson, Jónlna Michaelsdóttir, Katrin
Pálsdóttir, Kjarfan Stefánsson, Oli Tynes, Páll Magnússon, Sigurður Sigurðsson,
Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og
Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. utlit
og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnús Olafsson.
■Auglysinga og sölustjóri: Páll Stefánsson
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson
Auglýsingar og skrifstofur:
Slðumúla 8. Simar 86611 og 82260.
Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 slmi 86611.
Ritstjórn: Slðumúla 14 sfmi 86611 7 llnur.
Askrift er kr. 3.500á mánuði
innanlands. VeríT
lausasölu kr. 190 eintakið.
„Prenlon Blaðaprent h/f
Endurnýiun flotans án stækkunar
Móta þarf stefnu varöandi endurnýjun fiskiskipaflotans hægt og sígandi, svo aö ekki
komi tii þess aöeinn góöan veöurdag veröi aö kaupa nýjan flota á einu bretti.
Þótt flestir, sem um sjávarút-
veg fjalla, séu sammála um að
f iskiskipaf loti okkar sé of stór
þessa stundina, hefur synjun
Kjartans Jóhannssonar, sjávar-
útvegsráðherra við kaupum
tveggja togara frá útlöndum
valdið miklu f jaðrafoki.
Svavar Gestsson, viðskiptaráð-
herra, hafði fyrir sitt leyti veitt
heimild til þess, að greitt yrði
fyrir þessum skipakaupum, en
Kjartan Jóhannsson varð ókvæða
við, er Svavar lýsti yfir sam-
þykki sínu við skuttogarakaupin
á ríkisstjórnarf undi. Innan
þriggja tíma frá því að ríkis-
stjórnarfundinum lauk hafði
Kjartan samið og gefið út reglu-
gerð, sem færði honum æðsta
vald varðandi innflutning skut-
togaranna og sló þar með öll vopn
úr höndum viðskiptaráðherrans.
Svavar lét sig hafa það, og fór
bará i sumarfrí, en ráðherrar í
alvörulöndum hefðu sennilega
sagt af sér við svo búið.
Gifurlegur bægslagangur hef-
ur verið í tveimur dagblaðanna
vegna þessa máls. Ýmsum hefur
komið á óvart, að það skyldu
verða Þjóðviljinn og Morgun-
blaðið, sem sameinuðust um að
taka Kjartan á beinið. Síða eftir
siðu hefur verið birt með viðtöl-
um og yfirlýsingum manna, sem
eru furðu lostnir yfir ákvörðun
Kjartans og hafa útgerðarsósíal-
istar í Neskaupstað ekki síst átt
upp á pallborðið hjá Morgunblað-
inu i þessu togarastríði.
Þegar mið er tekið af því afla-
magni, sem okkur er talið vera
óhætt að draga úr sjó, án þess að
ganga of nærri f iskistofnum okk-
ar, er mjög eðlilegt, að stjórnvöld
hafi þá meginstefnu, að fiski-
skipaflotinn sé ekki stækkaður.
Að því leyti eru viðbrögð Kjart-
ans skiljanleg.
Aftur á móti verður ekki hjá
því komist, að láta fara fram
einhverja endurnýjun flotans, til
þess að koma í veg fyrir, að hann
úreldist allur á sama eða svipuð-
um tíma.
Þetta tvennt er snúið að sam-
eina svo að vel fari og kaup á
tveim nýjum skuttogurum er
erfittað leyfa, þegar fyrir liggja
beiðnir um innf lutning 20 togara.
Þótt sagt sé, að gömlu skipin
muni verða seld úr landi, og ekki
f jölgi í raun í skipaf lotanum, er
óvarlegtað trúa því eftir könnun
Vísis á dögunum, sem sýndi, að
reglur eru þverbrotnar og skip,
sem skylt er að selja úr landi,
fara einungis yfir á næstu höfn.
Slíkt verður að stöðva.
Brýnt er nú, að ríkisstjórnin
móti ákveðna stefnu varðandi
endurnýjun skipaflotans, þótt
hún sé sammála um að hann
megi ekki stækka. Þar þarf
meðal annars að kveða á um við-
hald og smiði skipa hér innan-
lands til þess að skapa innlendum
skipasmíðastöðvum verkefni.
Ef ekki verður miðað að endur-
nýjun flotans hægt og sígandi
getur f arið svo, að við verðum að
endurnýja hann allan aftur á
einu bretti eins og gerðist fyrir
fáeinum árum.
Undirbúningur fyrir komu víetnamska flðtlafólksins í fullum gangl:
SNARA KYHNINGARBÆKUNGI
UM ÍSLAND A KfNVERSKU
Fulltrúar Rauöa krossins fara tii Malasiu seinni hluta ágústmánaöar. Myndin er af flóttafólki frá Vfetnam.
,,Ég legg liklega af
stað héðan 22. ágúst til
eyjarinnar Pulan
Bidon, sem er
skammt undan hafnan
borg höfuðborgar
Malasiu, Kuala
Lumpur, en þar eru nú
þrjátiu þúsund flótta-
menn frá Vietnam i
búðum. Þann 13.
september snúum við
aftur með þá flótta-
menn sem valist hafa
til Islandsfararinnar’ ’
sagði Bjöm Þórleifs-
son, félagsráðgjafi hjá
Rauða krossi íslands, i
samtali við Visi.
Bj(M-n fer viö annan mann til
Malasiu, en ekki hefur enn veriö
ákveöiö hver þaö veröur. Eins
og kunnugt er setti rlkisstjórnin
þaöskilyröi fyrir viötöku flótta-
manna, aö um yröi aö ræöa
heilar fjölskyldur, og allar af
sama þjóöerni. ,,Viö munum
kynna landiö fyrir þeim, sem
fullnægja skilyröunum, til þess
aö f jölskyldurnar geti valiö um,
hvort þær vilji flytjast hingaö”
sagöi Björn. Undirbúinn hefur
veriö hlutlaus kynningarbæk-
ingur, sem nú er veriö aö snara
yfir á kínversku fyrir okkur I
Danmörku. Þennan bækling
munum viö hafa meö okkur, og
auk þess „slides” myndir, og
jafnvel einhverjar kvikmyndir,
ef unnt er”.
Aö sögn Bjarnar veröur lagt
af staö 12. september frá
Malaslu meö flóttamennina, og
flogiö hingaö i einni
lotu. „Þegar viö fórum aö
athuga meö flug, kom I ljós aö
allt var fullbókaö, enda eru
fluttir um þúsund flóttamenn á
dag frá Kuala Lumpur” sagöi
Björn. „Hins vegar átti Flótta-
mannahjálp Dana heilmikiö af
bókunum, og lét hún okkur fá
nokkur pláss þennan dag.”
Rauöi krossinn er nú aö reyna
aö finna hentugan staö þar sem
flóttafólkiö geti dvalist fyrst
eftir komuna. „Aö sjálfsögöu
veröur þaö aö byrja á aö gang-
ast undir gaumgæfilega læknis-
skoöun. Hálfum mánuöi eftir
komuna veröur svo byrjaö aö
kenna þvl islensku. Þess hefur
veriöfariö á leit viö Námsflokka
Reykjavikur, aö þeir taki aö sér
kennsluna, og er Guörún
Halldórsdóttir, skólastjóri, aö
athuga möguleikana á þvi”
sagöi Björn.
—AHO