Vísir - 18.08.1979, Síða 21
. tbn
.»m&M
21
Sæmundur
Guövinsson
skrifar.
VlSIR
Laugardagur 18. ágúst 1979
sandkassinn
Brak af gamalli herflugvél
var grafið upp úr Þjórsá og
kunnugir þóttust sjá að þetta
myndu vera leifar af fiugvéi en
ekki sláttuvél.
Ef marka má frétt i VIsi hefur
þessi uppgröftur þó haft
ýmislegt annað i för með sér:
„ÞJÓRSARVÉLIN TIL
REYKJAVÍKUR i DAG”
Ekki veit ég hvernig þeir fara
að þvi að láta Þjórsá renna eftir
að búið er að taka úr henni
vélina og flytja til Reykjavikur.
Eflaust á að setja þessa vél
niður I Elliðaár til að auka
rennslið þar.
Ymis óþokkaskapur á sér stað
i iþróttunum og þar svifast
menn einskis. A þetta var drep-
ið i fyrirsögn á iþróttasiðu
Moggans hér á dögunum:
„PÉTUR OG TEITUR ERU
LAUSIR. EN AÐRIR MISMUN-
ANDI BUNDNIR”.
„TÍMINN LEIÐIR OKKAR
MÓTLEIKI i LJÓS” var haft
eftir forstjóra Hvals i
Timanum. Slðan hefi ég lesið
Timann fyrstan blaða á hverj-
um morgni, en án árangurs til
þessa. Þar hefur nefnilega ekki
verið minnst á þessa mótleiki
ennþá.
Þjóðviljinn hamast alltaf I
hneykslismálunum og nú eru
það laun fógeta sem blaðið hef-
ur tekið til rannsóknar. Þar hef-
ur margt gruggugt komið i ljós
eins og gefur að skilja, til dæmis
þetta:
„FÓGETALAUN FÉLLU
NIÐUR”
Margir fylgjast með
skákfréttum enda getur allt
gerst I þessari iþrótt. Það kom
best i Ijós á baksiðu Timans þar
sem sagði i fyrirsögn:
„JÓN L. GERIR
ENDALAUST JAFNTEFLI”
Þetta hlýtur að vera frægasta
jafntefli Jóns til þessa.
Kaupstefnan i Reykjavik fékk
hingað til lands tveggja hæða
strætisvagn frá London. Visir
fór á stúfana til að afia frétta af
vagninum og hvað hann
aðhefðist meðan beðið væri eftir
að vörusýningin i Laugardals-
höll yrði opnuð.
Þetta upplýstist:
„ENSKI VAGNINN I SKOÐ-
UNARFERÐUM UM BORG-
INA”
Ég vona að vagninum hafi
litist vel á Réykjavik og hann
jafnvel hugsi sér aö setjast hér
að.
PL.L.^fr éa **««*•.
C**' dropa framar.
Mikið hefur verið rætt og ritað
um böl yfirvinnu hér á landi og
flestir munu sammála um að
hún sé fram úr hófi hjá
mörgum. En ekki er yfirvinna
cina böl sem menn eiga við
að strlða á þessum siöustu og
verstu timum ef marka má
fyrirsögn i Visi:
' „ÞAÐ FARA MARGIR
FLATT A UNDIRVINNUNNI”
Þjóðviljinn hefur haldið uppi
njósnum um Slökkvk
liðið á Keflavikurflugvelli og
flettir ofan af hneyksli um liðið:
„NOTAR MIKIÐ AF OLIU
VIÐ ÆFINGAR”
Eftir að hafa lesið þessi ósköp
sló ég á þráðinn til Pattons og
spurði hvort þetta væri rétt.
— Jess, wc notar oliu, right,
Auðvitað wildum við helst jús
kommúnista, but það er bann-
að. En oil breenur bettur en
vatn, you see.
„MARGIR RITHÖFUNDAR
ERU NÆR SKATTLAUSIR”
segir Visir. Er það nokkur frétt
þó tekjulausir menn borgi ekki
skatta? Þeir þurfa að seljast til
að fá tekjur.
Þótt ég fylgist ekki náið með
iþróttum reyni ég jafnan að
hlusta á knattspvrnulýsingar
Hermanns Gunnarssonar. ,A
þann hátt komst ég að þvi að KR
vann Vikinga á Laugardalsvelli
hér um kvöldið.
Astæðan fyrir þessu tapi
Víkinga varð mér ekki ljós fyrr
en ég var að fletta Dagblaðinu
og rakst á eftirfarandi fyrirsögn
á iþróttasíðu:
„ELMAR DRÓ TENNURN-
AR ÚR VÍKINGUM A AKUR-
EYRI”
Auðvitað hefur ekki þýtt neitt
fyrir þá að mæta tannlausa i
slaginn við KR.
Svo haldið sé áfram ineö
iþróttafréttir er ekki úr vegi að
minnast á fyrirsögn á iþrótta-
siðu Moggans:
„KA ÆTLAR SÉR EKKI
FALL”
Þetta var mikil uppljóstrun
sem eflaust hefur komið mönn-
um mjög á óvart.
Allir muna menningarbylt-
inguna i Kina sem var mjög i
fréttum fyrir nokkrum árum.
Eftir að vinstri stjórn kom til
valda hérlendis hefur verið unn-
iö að menningarbyltingu og
mun hún nú komin nokkuð
áleiöis ef marka má frétt i
Mogganum:
„100 KENNARAR A ENDUR-
MENNTUNARNAMSKEIÐI”
Stjórnmálamenn verða af-
skaplega glaðir ef það kemur i
Ijóst að þeir hafa haft rétt fyrir
sér i einhverju máli. Það cr þvi
vel skiljanlegt að Timinn hafi
verið ánægður þegar hann birti
fyrirsögn yfir þvera siðu nú i
vikunni:
„AÆTLANIR FRAMSÓKN-
ARMANNA REYNDUST A
RÖKUM REISTAR”
Sennilega hafa engir oröið
jafn hissa og blessaðir
Framsóknarmennirnir.
LAUGALÆK 6 - SÍMI 34SSS
Opið
frá kl. 9-23.30
í þessarí glœsilegu ísbúð geturðu fengið:
KAFFI, KAKÓ, KÖKUR, HAMBORGARA, SAM.
LOKUR, PIZZUR, PÆ MíÐ ÍS, BANANABÁTA,
ÍS-MELBA OG ALLA OKKAR SÍVINSÆLU ÍSRÉTTI.
Lítiö inn f ísbúöina aö
La uga læk 6, og fá iö ykkur
kaffi og hressingu, takiö
félagana meö.
Saevar Karl Ólasen, Laugavea 51—2. hœð
ÚTSALA ÚTS