Vísir - 18.08.1979, Page 30
VtSIR
Laugardagur 18. ágúst 1979
LögreglubifreiO komin á árekstrarstaOinn. Vlsismynd: JA.
Árekstur
Frá Sigurði Sigurðar-
syni blaðamanni Visis á
Akureyri:
Allharður árekstur varð á einni
sérleið i Visisrallinu við Þverár-
fjall á Skaga rétt eftir hádegi i
gær. Rákust þar saman Galant
fólksbill og Blaser jeppi en sá
siðarnefndi er einn af „undanför-
um” i rallinu. ökumaður fólks-
bflsins var kominn til að fylgjast
með rallinu en sérleiðir eiga að
á sárlelð
vera lokaðar allri utanaðkomandi
umferð.’
Engan mann sakaði en i fólks-
bilnum voru auk ökumanns fjög-
ur börn. Galantbillinn er stór-
skemmdur og óökufær en jeppinn
skemmdist litið.
Hlutverk undanfara er að
kanna fyrirhugaða keppnisleið
áður en rallið hefst.
Starfsmenn rallsins segja að
ökumaður Galantsbilsins hafi
ekki sinnt stöðvunarmerkjum en
ökumaður heldur þvi fram að
ekki hafi verið reynt að stöðva
sig. -SS/KS
- Fyrsta grelnln
á mánudag
Næstu daga munu birtast hér-I
VIsi greinar eftir Gylfa Þ. Gisla-
son prófessor um nokkur þau efni,
sem nú ber hæst I umræðum um
efnahagsmál hér á landi. Grein-
arnar eru fimm, og birtist hin
fyrsta i blaðinu á mánudag.
Nefnisthún Ofveiði á Islandsmið-
um. Hinar greinarnar nefnast:
Sérstaða fiskveiða. Ókeypis að-
gangur að fiskimiðum leiðir til of-
veiði. Sala veiðileyfa. Ofbeit og
gróðureyðing.
Gylfi Þ. Glslason.
GreinaflokKur eftir
Gyifa Þ. Gfsiason
„El ág værl rfkur”
sýnd I vfsisuið
,,Ef ég væri rikur”, heitir kvik-
myndin, sem sýnd verður I Visis-
bíó I dag, en sýningin hefst kl. 15 I
Hafnarbió.
Mynd þessi er gamanmynd, i
litum og með íslenskum texta.
Stðr messudagur
Stóri messudagur verður hald-
inn i Skálholti um helgina, sunnu-
dag 19. ágúst. Að þessu sinni
verður hann fyrst og fremst
safnaðarhátið, en gestir og gang-
andi eru að sjálfsögðu velkomnir.
Stöðug dagskrá er allan daginn og
byrjar hún kl. 10.30 f.h. með
morgunbænum og bibliulestri en
lýkur kl. 17 með hátiðarmessu.
Lagmetl gallað
eða ðsöiuhælt
Heilbrigðiseftirlit Reykja-
vlkurborgar framkvæmdi nýlega
rannsókn á niðursoðnu lagmeti og
leiddi rannsókn I ljós aö 36%
þeirra sýna sem tekin voru
reyndust gölluð eða ósöluhæf.
Hér var um aö ræða 28 sýni og
voru þau að hluta án upplýsinga
um framleiösludag.
—HR
Póstkort koma út þennan dag,
og er hér mynd af einu þeirra.
ÚTIDAGSKRÁ
BLINDRAFÉLAGSIHS
Á MORGUN
Útidagskrá verður á morgun,
sunnudag, i garðinum við
Blindraheimilið I tilefni af 40 ára
afmæli Blindrafélagsins.
Dagskráin hefst með þvl að
lúðrasveit leikur kl. 13.30, en kl.
14 flytur Halldór Rafnar, for-
maður félagsins, ávarp. Þá flytur
Egill Skúli Ingibergsson, borgar-
stjóri, afmæliskveðju, og Karla-
kór Reykjavikur syngur. Arnþór
Helgason er kynnir.
Húsið að Hamrahllð 17 verður
opið almenningi, og eru allir vel-
komnir. Þar verður m.a. sýning á
hjálpartækjum, framleiðsluvör-
um og handlðum.
30
rSvélnnsæmúiídssöií EÍaÓafuÍÍtrúT FÍugléíða:!
.Mlslúlkun f fyrlrsðgn Vfsls
1 forslðufrétt i Visi fimmtu-
daginn 16. ágúst segir i fyrir-
sögn: „Flugleiðir afturkalla I
reynd uppsagnirnar”. Hér er al-
gjörlega um eigin túlkun blaðs-
ins að ræða og er út I hött.
Er Páll Magnússon blaða-
maður ræddi við undirritaðan á
niunda timanum fimmtudags-
morguninn 16. ágúst spurði
hann einmitt um þetta atriði.
Hann fékk eftirfarandi upplýs-
ingar, sem undirritaður skrifaði
einnig niður:
„Fridagaúttekt er lokið i bili.
Væntum þess að flug verði með
eðlilegum hætti næstu helgar.
Því hefir verið yfir
lýst af hálfu Flugleiða að berist
viðbótarverkefni sem nú er
leitað eftir, þá framlengist
starfið”.
I Visi segir hins vegar og er
haft eftir undirrituðum: „Gegn
þvi að flugmennirnir hættu
þessari fridagaúttekt hafa
Flugleiðir ákveðið að starf
þeirra, sem sagt var upp, fram-
lengist, svo fremi að þau við-
bótarverkefni berist sem leitað
er eftir”.
Þarna er um ónákvæmni I
frásögn að ræða, sem getur og
hefir þegar valdið misskilningi.
1 frásögn blaðsins er gefið I skyn
að um samninga vegna þessa
máls hafi verið að ræða. Svo var
ekki. Þessa ónákvæmni ber að
V harma, svo og villandi fyrir-
sögn.
1 viðtali við blaðamann tók
undirritaður fram að uppsöfnun
fridaga hefði komið til vegna
stöðvunar DC-10 þotunnar og að
flugmenn á DC-8 flugvélum
hefðu þá lagt hart að sér við að
halda uppi flugi til New York.
Þessu var sleppt, en hins vegar
rifjað upp hvenær fridagaúttekt
hefði hafist.
Undirritaður bað blaðamann
að lesa fréttina upp I sima þegar
hún væri tilbúin. Við þeirri
beiðni var orðið. Hins vegar
neitaði blaðamaðurinn að gera
þær breytingar á fréttinni, sem
undirritaður t'aldi nauðsyn-
legar. Með þökk fyrir birtinguna,
Sveinn Sæmundsson, blaða-
fulltrúi
ttnuiasemd blaöamanns:
Svelnn slaöfestl allt, sem
elllr honum var haft
Vegna yfirlýsingar Sveins Sæ-
mundssonar sem birt er hér á
síðunni vill undirritaður blaða-
maður taka eftirfarandi fram:
Blaðamaður Visis fékk á rit-
stjórnarfundi að morgni 16.
ágúst það verkefni, að grafast
fyrir um sannleiksgildi þeirra
upplýsinga, sem hér um ræðir
og ritstjórninni hefðu borist.
Þegar blaðamaður hafði sam-
band við Svein Sæmundsson
staðfesti hann upplýsingarnar
efnislega, en vildi breyta orða-
laginu „að draga uppsagnir til
baka” i „aðframlengja störf”. 1
viðtalinu eru ummæli Sveins að
sjálfsögðu höfð orðrétt eftir.
Samkvæmt beiðni Sveins var
fréttin lesin fyrir hann I sima
þegar hún var tilbúin til prent-
unar og gerði Sveinn engar
athugasemdir við það sem eftir
honum var haft. Hins vegar fór
Sveinn fram á breytingar á
þeim hluta fréttarinnar, sem
kominn var frá blaðamanni
sjálfum og var þeirri beiðni
hafnað af eðlilegum ástæðum.
Að öðru leyti vlsast til athuga-
semda ritstjóra Visis.
Páll Magnússon, blaðamaður.
Rltstjðrar Vfsls
um fyrlrsögnlna:
„VISSIR
TÚLKUNIN
UM, AÐ
ER RÉTT”
L
Vegna athugasemdar Sveins
Sæmundssonar blaðafulltrúa
Flugleiða hf. um fyrirsögnina
„Flugleiðir afturkalla I reynd
uppsagnirnar”, skal eftirfar-
andi tekið fram:
Ljóst er af sjálfri fréttinni, að
fyrirsögnin er ekki höfð eftir
Sveini, og er það á engan hátt
gefið I skyn. Fyrirsögnin byggð-
ist bæði á þvi, sem eftir Sveini
var haft I viðtalinu, að Flugleið-
ir hf. hafi „ákveðið, að starf
þeirra, sem sagt var upp, fram-
lengist, svo fremi að þau við-
bótarverkefni berist, sem leitað
er eftir”, og einnig þvi, sem
blaðinu var kunnugt um umræð-
ur um hugsanlega framkvæmd
á ráðningum Loftleiðaflug-
manna til Air Bahama. Þvl er
það rétt, sem segir I yfirlýsingu
Sveins, að I fyrirsögninni felist
túlkun VIsis á niðurstöðu máls-
ins. Samkvæmt þeim upplýsing-
um, sem blaðið hefur, erum við
þess fullvissir, að þessi túlkun
sé rétt, en ekki „út I hött”, eins
og Sveinn Sæmundsson heldur
fram. Mun timinn leiða þetta I
ljós.
Ritstjórar VIsis.
J
LOFTLEIÐAFLUGMENN
ÓSKUÐU EFTIR MILLI-
GÖNGU RÁDUNEYTISINS
Vegna frétta I Visi undan-
farið, þess efnis að Loftleiða-
flugmenn hafi hætt úttekt frl-
daga og Flugleiðir hafi I hyggju
að afturkalla þær uppsagnir
sem tilkynntar hafa veriö, er
rétt að greina litillega frá for-
sögu þessa máls.
Að sögn Baldurs Oddssonar
buðu Loftleiðaflugmenn Flug-
leiðum h.f. að annast allt það
flug sem félagið óskaði eftir og
fresta töku fridaga, gegn þvl að
uppsagnir þeirra nlu flugmanna
sem sagt var upp störfum frá og
með 1. október, yrðu dregnar til
baka, þegar ljóst væri að verk-
efni yrðu fyrir hendi eftir 1.
október 1979.
Þessu boði Loftleiðaflug-
manna var aldrei svarað af
hálfu Flugleiða.
I byrjun ágúst fóru Loftleiða-
flugmenn þess á leit við félags-
málaráðuneytið, að það annað-
ist milligöngu i málinu og vis-
uðu i þvi sambandi til þess, að
erlendir flugmenn störfuðu á
flugvél sem er skráð hér á landi
og væri á flugleiðum til og frá
Islandi.
Ráðuneytið tók nú upp við-
ræður við fulltrúa F.L.F. og
Flugleiða um málið og 10. ágúst
bárust stjórn F.L.F. niðurstöður
ráðuneytisins. Þar kemur m.a.
fram að ráðuneytið telur að
samkomulag geti náðst „á þeim
grundvelli að flugmenn Flug-
leiða stöðvi fyrst um sinn úttekt
ótekinna fridaga og að þeir yfir-
taki jafnframt tafarlaust það
flug, sem erlendir flugmenn
annast nú á áðurgreindum flug-
leiðum, enda telur ráðuneytið
að glöggt hafi komið fram hjá
þeim fulltrúum Flugleiða h.f„
sem það ræddi málið við, að
uppsagnir flugmanna, sem fé-
lagið hefur þegar tilkynnt, verði
dregnar til baka, strax og ljóst
er, að verkefni verða fyrir
hendi”.
Afrit af þessu bréfi var sent
Flugleiðum h.f.
1 framhaldi af þessum niður-
stöðum ráðuneytisins, sendi svo
stjórn F.L.F. bréf til forstöðu-
manns flugdeildar Flugleiða
dagsett 13. ágúst þess efnis að
hún hefði fallist á að fresta töku
frldaga um sinn að uppfylltum
ofangreindum skilyröum. Efni
þessa bréfs kemur fram I upp-
hafi viðtalsins við Baldur Odds-
son, sem birt er.á baksíöu.