Vísir - 16.01.1980, Qupperneq 7
VtSIR
Miðvikudagur 16. janúar 1980.
„Held áfram
að leika
með ðster
- seglr Teltur Þórðarson, sem hefur
ekkl um annað að velja vegna hve
hátl verð Osier vildl fá fyrlr hann
„Þaðer ekki um neitt annað að
ræða en að halda áfram að leika
með öster hérna i Svlþjóð.
Markaðnum I Belgiu var lokað
um áramótin og þar sem samn-
ingar tókust ekki hjá Antwerpen
eða Beershot við öster, þá verð
ég að sætta mig við það að geta
ekki breytt til eins og ég haföi þó
mikinn áhuga á”, sagði Teitur
Þórðarson knattspyrnukappi er
Vi'sir ræddi við hann I gærkvöldi.
Eins og við höfum sagt frá,
sjfndu Antwerpen og Beershot
mikinn áhuga á þvl aö fá Teit til
Belglu, en þaö er nú fyrirsjáan-
legt aö ekkert verður úr þvl.
„Það var búið að ganga að öll-
um minum kröfum og þvl ekkert
til fyrirstöðu af minni hálfu aö
fara til Belglu”, sagöi Teitur.
„En öster vildi fá svo hátt verö
fyrir mig aö belglsku félögin gátu
ekki gengiö að þvl. Það má segja
að ég sitji I sömu súpunni og
Jdhannes Eðvaldsson hjá Celtic i
Skotlandi og er ég allt annaö en
ánægður með hvernig málin hafa
þróast.
Markaðurinn i Belgiu opnast
aftur I júni, en ég veit ekki hvort
máliö nær eitthvaö frekar fram
að ganga þá. Þótt samningurinn
minn viö öster sé runninn út, gat
ég ekki ráðiö neinu.
Það yar ekki nóg meö að öster
heimtaöi meira verð fyrir mig en
belglsku félögin sáu sér fært að
borga, heldur kom svo Jönköping
— þar sem ég lék áöur — og
heimtaöi 25% og það varð að
sjálfsögðu að bætast við veröið,
sem var þó nóg fyrir.
Ég verð þvi' aö skrifa undir nýj-
an samning viö öster um annaö
er ekki að ræða I bili. Eina landiö
sem ég hefði getaö farið til án
þess að öster gæti gert kröfur,
var ísland, en ef ég ætlaöi síöan
að fara þaðan, hefði öster sam-
stundis verið komið I spilið með
kröfur sinar”.
— Eru þvi einhver mistök I
samningi þinum?
,,Nei ,þettaerubara sænsklög
I framkvæmdog ég verö aö hlíta
þeim”.
gk-.
„Allt Dúnlng-
unum að kenna”
- sagðl Anne-Marie Moser enir að
hafa nðð aðelns 2. sæfl f brunmótl
World Cup I gær
Hanni Wenzel frá Liechten-
stein heldur enn forustunni i
heimsbikarkeppninni ialpagrein-
um á skiðum. Varð hún i þriðja
sæti i brunkeppninni i Arosa i
Sviss i gær, og nægði það henni.
Helstu keppinautar hennar,
þær Marie-Therese Nadig frá
Sviss og Anne-Marie Moser frá
Austurriki, urðu I 1. og 2. sæti I
keppninni I gær. Marie-Theres
þó i fyrsta sæti með ellefu
hundruðustu úr sekúndu betri
tima en Anne-Marie.
Þessar þrjár berjast um efstu
sætin i stigakeppninni þessa
stundina, og er ekki reiknað meö
aðþeim verðitígnað af öðrum það
Anne Marie Moser viU fá annan
skíðafatnaö fyrir ólympiuleikana
I Lake Placid I næsta mánuði.
sem eftir er af keppninni.
Anne-Marie kenndi þvl um i
gær, að hún hefði ekki náð betri
tlma vegna þess, að keppnisbún-
ingurinn sem austurríska
kvennaliðið væri skyldugt að
nota, væri ekki nógu góður. „Þaö
er sálrænt ogslæmt aö vita, aö þú
sértekkii þvlbesta,sem völ erá I
keppni sem þessari” sagði hún.
„Ég vona bara að þetta vanda-
mál með keppnisbúninginn
verði búiö að leysa fyrir ólympiu-
leikana”, bætti frúin við og var
heyranlega I allt annaö en góðu
skapi... —klp—
FRÁBÆRT
HJÁ
FRIÐÞJOFI
Friðþjófur Helgason, ljós-
myndari Helgarpóstsins og
Iþróttaljósmyndari VIsis, var á
sunnudaginn útnefndur „Rocky
of the year” hjá Golfklúbbi Ness.
Fékk hann þá framfarabikar
golfklúbbsins, sem veittur er
þeim manni, sem mestar
framfarir hefur sýnt I Iþróttinni á
árinu.
Framfarirnar voru svo
sannarlega fyrir hendi hjá
Friðþjófi, þvl að hann lækkaði i
forgjöf úr 21 höggi I 9 á keppnis-
timabilinu, og varð auk þess
Islandsmeistari I 2. flokki á
tslandsmótinu, sem háð var á
ölafsfirði i sumar...
■
Leikur Vals og UMFN aö hefjast í gærkvöldi. Jón Otti ólafsson dómari hefur kastað boltanum upp, og
það fer ekki á milli mála að leikmenn liðanna einbeita sér að þvl að ná til hans. Vfsismynd Friöþjófur.
Sigur Vais ydr umfn f úrvaisdelldinni:
ÞRJU UB NU
EFST OG JflFN
„Valsmenn voru einfaldlega
betri aðilinn i þessari viöureign
og unnu sanngjarnan sigur”,
sagöi Gunnar Þorvarðarson
fyrirliði UMFN i körfuknattleik,
eftir aö liö hans haföi tapaö fyrir
Val 74:85 I Laugardalshöll I gær-
kvöldi. „Þeir hittu betur og voru
mun ákveönari enda lékum við
afar slaklega”, bætti Gunnar við.
— Nú eruð þið búnir að tapa
niður hinu góöa forskoti, sem þið
höföuö náö I úrvalsdeildinni, hvað
veldur þvi?
„Liöin eru svo jöfn að þótt við
nasðum forskoti I upphafi mótsins
var litið á þvi að byggja. Ég tel að
þrátt fyrir forskotið höfum viö
ekki verið meö betri lið en önnur,
liöin eru að reyta stig hvert af
öðru og svo verður eflaust
áfram”.
Við sigurinn i gær náðu Vals-
menn KR og UMFN aö stigum og
er fyrirsjáanleg grimmdarbar-
átta þessara liða I úrvalsdeildinni
i vetur, og hugsanlega gætu
IR-ingar blandað sér I hana. En
það er löng leiö framundan — 10
umferðir — og ómögulegt aö
segja fyrir um framvindu mála.
Ef við snúum okkur að leiknum
I gærkvöldi, þá er skemmst frá
þvi að segja aö Valsmenn höfðu
meiri yfirburöi heldur en úrslita-
tölurnar gefa til kynna. Þeir tóku
forustuna strax I slnar hendur,
komust I 14:7 og mest varö for-
skot þeirra I fyrri hálfleiknum 14
stig. Staðan i leikhlé 43:31.
Njarövfkingarnir skoruðu
fyrstu fjögur stigin I siðari hálf-
leik, en þá tóku Valsmenn aftur
við, komust mest 21 stig yfir og
sigur þeirra varö minni en út leit
fyrir um tima.
Valsmenn léku þennan leik
mjög yfirvegaö, svæöisvörn
þeirra sterk og liðið beitti mikiö
hraðaupphlaupum með góðum
árangri. Liöið var mjög jafnt, en
mesta athygli vakti stórleikur
Jóns Steingrímssonar, sem lék
sinn besta leik fyrir Val. Þá var
Tim Dwyer góður svo og þeir
Torfi Magnússon og Kristján
Agústsson.
Um liö Njarðvikur er þaö aö
segja að þaö var ólikt þvl sem er,
þegar þvi' tekst sem best upp.
Hittnin var nánast engin hjá lið-
inu, vörninopnaðist oft illa og yfir
liöinu nær öllu var eitthvert slen.
Þeir einu, sem voru virkilega
eitthvað likir sjálfum sér voru
Gunnar Þorvarðarson og Guð-
steinn Ingimarsson, en það dugði
skammt.
Stigahæstir Valsmanna voru
Tim Dwyer 36, Torfi 13, Kristján
og Þórir 10, en hjá Njarövik
Gunnar með 23, Guðsteinn og Ted
Bee 17 hvor. gk-.
STABAN
Staöan i úrvalsdeildinni I körfu-
knattleik er nú þessi:
Valur — UMFN ................85:74
KR ..............10 7 3 828:758 14
Valur............10 7 3 865:825 1 4
UMFN............ 10 7 3 839:815 14
1R.............. 10 5 5 965:896 10
Fram............. 9 2 7 797:750 4
1S............... 9 1 8 751:820 2
Næsti leikur er á milli IS og
Fram og fer hann fram annaö
kvöld f iþróttahúsi Kennarahá-
skólans kl. 20 og eftir þann leik er
keppnin I úrvalsdeildinni hálfnuö.