Vísir - 16.01.1980, Blaðsíða 16
Myrkir músikdagar:
Söngvar
um ástlna
ogdauDam
- í flutningi Rut L. Magnússon
og Sinfóníuhljómsveilarinnar
,,Mér finnst söngvarnir um ástina og dauðann
eftir Jón Þórarinsson með fallegustu lögum eftir
islensk tónskáld sem ég þekki”, sagði Rut L.
Magnússon i spjalli við Visi um fyrstu tónleikana
á Myrkum músikdögum sem eru i Menntaskólan-
um við Hamrahlið á fimmtudaginn klukkan 20.30.
Paul Zukofsky bandariski fiðlu-
snillingurinn stjórnar þá
Sinfóniuhljómsveit Islands og á
efnisskránni er m.a. verk Jóns,
sem Rut syngur. Verkið er
skrifað fyrir fremur stóra hljóm-
sveitog var gefið út 1950 af Menn-
ingarsjóði.
„Upphaflega var þetta verk
skrifað fyrir baritonrödd, og var
frumflutt á sinum tima af Kristni
Hallssyni. Þetta er mjög fallegt
og rómantiskt ljóð, en höfundur-
inn er Christina Rossetti”. sagði
Rut
Stjórnandinn, Zukofsky, hefur
leikið hér á landi og stjórnað. Þá
hefur hann einnig unnið mikið og
gott starf hér sem leiðbeinandi á
námskeiðum, sem erlendir tón-
Rut L. Magnússon syngur einsöng með Sinfónfuhljómsveit tslands á fyrstu tónieikum Myrkra músik-
daga á fimmtudaginn.
Visismynd BG.
listarmenn hafa einnig sótt.
,,Það er stórkostlegt að vinna
með Zukofsky. Hann er þolin-
móður og getur dregið það fram
sem hann vill fá frá þvi fólki sem
hann starfar með”, sagði Rut.
Á tónleikunum i Menntaskólan-
um við Hamrahlið verða ein-
göngu flutt islensk verk. Eftir Jón
Leifs verður flutt verkið Þrjár
myndir op. 44. Þá verður frum-
flutt hér á landi verk Snorra
Sigfús Birgissopar sem hann
nefnir Þáttur. Verkið hefur verið
flutt i Osló og Stokkhólmi við
góöar undirtektir.
Hreinn: Súm: 74, nefnist verk
Atla Heimis Sveinssonar sem
verður einnig frumflutt á þessum
tónleikum.
Hið klassiska verk Jóns As-
geirssonar Lilja verður einnig
flutt á þessum fyrstu tónleikum
Myrkra músikdaga.
Rut L. MagnUssoTi syngur
einnigeinsöng á öðrum tönleikun-
um sem haldnir verða i BUstaða-
kirkju á sunnudaginn 20. janúar.
„Hér er um að ræða verk eftir
danskan höfund Vagn Holmboe,
sem hann nefnir Timinn. Þetta er
frumflutningur á verkinu hér á
landi, en ég er búinn að hafa það
nokkuð lengi hjá mér i þeirri von
að það yrði flutt”, sagði Rut.
Holmboe varð sjötugur á sið-
asta ári. Hann er mikill Islands-
vinur og hefur samið verk við ljóð
Halldórs Laxness.
Rutkennirvið Tónlistarskólann
i Reykjavik, en einnig hefur hún
stjórnað Háskólakórnum s.l. sjö
ár.
— KP.
Þursarnir koma fram á hljómleikunum, en þeir vöktu mikla athygli á hljómleikaferðalagi um
Norðurlönd I sumar.
PÖNKARAR OG ÞURSARAR
- á hijómleikum tll styrktar hjálparstarli í Kambútseu
,,Nú hafa safnast um 130
milljónir króna I Kambútseu-
söfnunina. Henni fer nú að ljúka,
en lokaátakið verða hljómleik-
arnir, sem viö vonumst til aö fái
góðar undirtektir”, sagði Guð-
mundur Einarsson framkvæmda-
stjóri Hjálparstofnunnar kirkj-
unnar I spjalli viö Vísi.
Hljómleikar þeir sem Guð-
mundur nefnir veröa haldnir i
Austurbæjarbiói laugardaginn 9.
febrúar og hefjast þeir klukkan
14.
Fjórar kunnar hljómsveitir
hafa boöið fram krafta sina,
ásamt félögum i Al-
þýðuleikhúsinu. Þær eru
Pönkrokkhljómsveitin Fræbbbl-
arnir, Snillingar, Kjarabót og
þursarnir Tómas Tómasson,
Egill Ólafsson, Karl Sighvatsson,
Björgvin Gislason, og Asgeir
Óskarsson munu leika af fingrum
fram. Þá munu þeir einnig vera
með skemmtilegt leyninúmer.
Allir þeir sem vinna aö þessum
hljómleikum gefa vinnu sina,
jafnt tónlistarmenn, leikarar og
starfsfólk Austurbæjarbió. Þá
hafa eigendur biósins gefið eftir
leigu á húsinu.
Miðar á tónleikana verða seldir
viku fyrir fram hjá Fálkanum og i
Austurbæjarbiói.
Mjólkurduft sent út.
Guðmundur sagöi að sennilega
yrði keypt mjólkurduft fyrir þá
peninga sem söfnuðust. Það yrði
liklega skipt við innlenda aðila, ef
duftið fæst á samkeppnishæfu
verið við það sem geríst i löndum
Efnahagsbandalagsins. Til þess
þurfa niðurgreiðslur úr rikissjóöi
að koma til.
Hjálparstarfið er skipulagt þrjá
mánuði fram i tfmann, þannig að
nú liggur fyrir að skipuleggja
timabilið fram mars og fram i
mai. Sendingin frá Islandi kemur
þvi til þurfandi fólks á þessu
timabili.
Hjálparstarfið gengur
mjög vel.
„Samkvæmt fréttum sem ég
hef fengið frá yfirmanni hjálpar-
starfsins i Kambútseu, Niels
Olsen, gengur það betur en hann
hefði þorað að vona. Þeir aðilar
sem standa að þessu eru ekki tor-
tryggðir af stjórnvöldum, og því
geta þeir unnið óhindraðir. Við
störfum i samvinnu við bresku
hjálparstofnunina Oxfam,
hjálparstofnun lúterska heims-
sambandsins og og hjálpar-
stofnun kaþóisku kirkjunnar i
Þýskalandi. Þetta eru allt virtar
og þekktar stofnanir”, sagði Guð-
mundur Einarsson.
— KP.
Pönkrokkhljómsveitin Fræbbblarnir taka létta rispu á hljómleikunum.
Grænlandsvaka í
Norræna húsinu
Græniandsvinafélagiö Inuit og
Norrænafélagið efna til Græn-
landsvöku á fimmtudagskvöldið
kiukkan 20.30 i Norrænahúsinu.
A dagskrá vökunnar verður
m.a. ávarp Hjálmars Ólafssonar
formanns Norræna félagsins.
Benedikta Þorsteinsson, græn-
lensk kona sem stundar nám við
Háskóla tslands, talar um tungu
Grænlendinga. Kynnt verður
grænlensk tónlist. Asi i Bæ flytur
stemningar frá Grænlandi. Þá
kynnir Arni Johnsen söngva og
Páll Steingrimsson sýnir lit-
skyggnur.
I Norræna húsinu standa nú yfir
tvær sýningar frá Grænlandi, list-
sýningin Land mannanna og
grænlensk bókasýning i bókasafni
hússins. Þessar sýningar verða
opnar á fimmtudagskvöidið.
Atriði úr Hvaö sögðu englarnir?
Tvöfalt siögæöi
Tvö leikrit eru nú sýnd ú litla
sviði Þjóðleikhúsins, Kirsiblóm á
Noröurfjalli, og Hvað sögðu engl-
arnir. Það fyrrnefnda eru tveir
japanskir einþáttungar, en það
siðarar er eftir Ninu Björk Arna-
dóttur.
Bæöi þessi leikrit hafa vakið
verðskuldaða athygli leikhús-
gesta.
Leikrit Ninu Bjarkar er á litla
sviðinu i kvöld klukkan 20.30.
Það er nýstárleg athugun á tvö-
földu siðgæði okkar þjóðfélags. I
leiknum segir frá Steini og
Brynju,- ungum elskendum sem
fortiðin og kringumstæðurnar i
samfélaginu meina að eigast.
Við sjáum atvik úr fortið Steins
i draumkenndum myndum og
fáum hugboð um hrikalegt og
ómenneskjulegt misrétti.
Leikstjóri er Stefán Baldurs-
son, en leikmyndina gerir Þórunn
Sigriður Þorgrimsdóttir. Með
hlutverkin fara Sigurður Sigur-
jónsson, Tinna Gunnlaugsdóttir,
Briet Héðinsdóttir, Helga Back-
mann, Bessi Bjarnason, Helgi
Skúlason, Sigriður Þorvalds-
dóttir, Helga Jónsdóttir, Þór-
hallur Sigurðsson og Arnar Jóns-
son.