Vísir - 26.01.1980, Síða 8

Vísir - 26.01.1980, Síða 8
8 VtSIR Laugardagur 26. janúar 1980 Utgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdast jori: Davið Gufimundsson Ritstjfirar: Olafur Ragnarsson Hörður Einarsson Ritstjornarfulltruar: Bragi Guðmundsson. Elías Snæland Jónsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. ,Blaöamenn: Axel Ammendrup, Halldor Re»ynisson. Jónina Michaelsdottir, Katrin Palsdóttir, Páll Magnússon, Sigurveig Jonsdottir. Sæmundur Guðvinsson Iþrottir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. André'sson, Jens Alexandprsson. Utlit og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnus Olafsson Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Askrift er kr. 4.500 á mánuði Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. 1 innanlands. Verð i lausasölu 230 kr. eintakið. Auglysingar og skrifstofur: Prentun Blaðaprent h/f Siðumúla 8. Simar 86611 og 82260. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4. simi 86611. Ritstjórn: Siðumúla 14, simi 8661 1 7 linur. Naudsynlegur menningarþáttur Kvikmyndin „Land og synir”, sem frumsýnd var i gærkveldi er hin fyrsta þriggja leikinna islenskra kvikmynda, sem geröar voru á siðasta ári. Sá gleðilegi fjörkippur, sem kvikmyndagerðin hefur nú tekiö hér á landi ætti að verða mönnum hvatning til þess að skapa þessari listgrein nauösynleg vaxtarskilyrði i landinu. Kvikmyndagerð hefur fram á síðustu ár verið vanrækt listgrein á íslandi. Afleiðingarnar hafa verið þær, að inniendir kunnáttu- menn á þessu sviði hafa átt örð- ugt með að nýta sér þennan tjáningarmáta nútimans. Brautryjendur islenskrar kvik- myndagerðar unnu þrekvirki á sinum tíma við erfiðar aðstæður, en í þessu sem ýmsu öðru hefur f járskortur verið mönnum fjötur um fót. Styrkir Menningarsjóðs til nokkurra kvikmyndagerðar- manna voru merki þess að tekið væri að rofa til á vettvangi kvik- myndagerðarinnar. Þeir urðu til þess, að hleypt var af stokkunum nokkrum kvikmyndaverkefnum, er annars hefði verla verið ráðist í. Þáttaskil urðu svo varðandi grundvöll íslenskrar kvikmynda- gerðar er Alþingi samþykkti frumvarp um Kvikmyndasjóð og Kvikmyndasafn vorið 1978. Að- dragandi þess máls var orðinn talsvert langur, en er það komst i höfn var ákveðið á Alþingi að verja 30 milljónum króna til Kvikmyndasjóðsins og fimm milljónum króna til Kvikmynda- safnsins. Þótt þessar f járhæðir haf i ekki verið ýkja háar var afgreiðsla þessa máls merki þess, að kvik- myndagerðin væri viðurkennd sem nauðsynlegur þáttur í menningu þjóðarinnar. Styrkir Kvikmyndasjóðs urðu verulega hærri en styrkir Menningarsjóðs. Sá hæsti, níu milljónir króna, var einmitt veittur til framleiðslu á kvik- myndinni „Land og synir", sem frumsýnd var i gærkveldi i Reykjavík og á Dalvík, en hún er gerð eftir samnefndri skáldsögu Indriða G. Þorsteinssonar. Tværaðrar leiknar kvikmyndir fyrir kvikmyndahús hlutu einnig styrki og verða f ullgerðar á fyrri hluta þessa árs. Að þessum verkefnum vinna djarfhuga menn með óbilandi trú á kvikmyndinni og hafa þeir lagt eignir sínar að veði til þess að geta lokið verkefnunum, þvi að styrkirnir hrukku einungis fyrir hluta útgjaldanna þegar til kast- anna kom. Kostnaður við kvikmyndina „Land og synir" er til dæmis á- ætlaður um 60 milljónir króna en framleiðendur þeirrar myndar hafa bent á, að bankakerf ið, sem yfirleitt hefur ekki fengið sér- stakt hrós, hafi fleytt því verk- efni yfir mestu erfiðieikana með lánum. Ef vel tekst til með þær þrjár íslensku kvikmyndir, sem nú eru að koma fyrir almenningssjónir, er ekki að efa, að aðsókn að þeim verður góð, og f járhagslegur grundvöllur þeirra tryggður. En til frekari átaka á sviði kvikmyndlistarinnar er þörf á eflingu Kvikmyndasjóðs, þannig að hann geti staðið undir stærri hluta kostnaðar við gerð þeirra mynda, er styrktar verða, en verið hefur á meðan verið er að koma fótum undir þessa ungu listgrein. Sömuleiðis er þörf á til- hliðrunum varðandi greiðslu söluskatts af kostnaði kvik- myndagerðarinnar á þessum að- lögunartíma, því að öf ugsnúið er að framleiðendur „Lands og sona" þurfi að greiða nærri helmingi hærri upphæð til ríkis- ins í söluskatt af kostnaðarverði myndarinnar en sem nam styrknum frá Kvikmyndasjóði. Sá fjörkippur, sem íslensk kvikmyndagerð tók síðastliðið sumar bendir til þess, að endur- reisn hennar sé hafin. Með góðum vilja, og stuðningi jafnt opinberra aðila sem al- menningser hægt aðskapakvik- myndagerðinni þau vaxtarskil- yrði, er hún þarf til þess að verða snar þáttur í listum og menningarlffi þjóðarinnar. Sýnið miskunn -1 guðanna bænum sýnið miskunn Geysilegur vandi hlýtur fréttamönnum oft aö vera á höndum, er þeim er gert að greina frá þvi sem í kringum okkur skeður, vega og meta, hver ju beri að halda til haga og hverju leyfa að sogast burt í þagnardjúp gleymskunnar. Já, oft hlýtur vandinn að vera mik- ill, en sjaldan meiri en þá, er frá sorgaratburðum skal greint. Nú, er hraði og taugaveiklun þjóöfélagsins eykst, standa fréttamenn oftar og oftar fyrir framan þennan vanda, æ oftar reynir á kunnáttu þeirra og mat, hæfni þeirra t.þ.a. greina hismi frá kjarna. Því minni ég á þetta nú, aðæoftar birtast mér í fjölmiðlum fréttir, sem vekja mér viöbjóð, og ég skil ekki, hverium tilgangi eiga að þjóna. Tökum dæmi: Umferöarslys veröur og ökumaöur og farþeg- ar láta lifið. Hvaða fullvita manni verður þaö til skiln- ingsauka á þessari frétt að birta honum mynd af bílflakinu, og útleggingu á þvf, hvernig likam- ir hinna látnu hafi festst eöa kramizt f hræi bílsins? Ef slikt er ætlað ökumanninum til á- minningar um gætilegri akstur, þáminni ég á, aö hann er látinn. Ef slikt er hugsað sem hvatning til annarra ökumanna um gætni, þá hygg ég, aö ökuföntum verði það til litils skilningsauka þó þeim sé sýnd mynd af Pétri eða Pálu sundur krömdum. Það er of mikil krafa til gáfnafars ökufantsins, að ætlast til þessaf honum, aö hann hafi skilnings getu til að draga lærdóm af þvi sem aðra hefir hent. Hefðu slik- irmeðalvit, þáhefðu þeir þegar bætt keyrslulag sitt. Ef ég ætti mér einhvern kæran, sem yröi fórnarlamb i slysi, þá bæðistég undan bvi' að lýsingar á því, hvernig limlestingin varð yrðu tiundaðar i mineyru eða kæmu fyrir minar sjónir. Annað dæmi: Maður verður sjúkur og ræður öðrum bana. Sjúkum heila hans verður það engin refsing þó fréttamaöur tí- undi i smá atriðum, hvernig voðaverkið var unnið. Harmur- inn ni'stir aðeins brjóst þeirra sem hinum sjúka unna.Hann á kannski maka og börn, saklaus eru þausett i pinubekkinn og lif- andi nöguð þar meö orðum, sem engum tilgangi þjóna öörum en þeim að særa þá sem eftir standa. Þessi dægrin standa yfir rétt- arhöld vegna voðaverka, sem unnin voru fyrir nokkrum árum. Hvaða tilgangi þjónar sú frétta- mennska að lýsa I smá atriðum hvar fórnarlömbin voru barin, hvernig i þau var sparkað, eða hvernig meðþau var farið eftir að þau voru látin? Meira aö segja er gefiö i skyn, aö kannski hafi einn ekki verið barinn til dauðs heldur kviksettur. Hverju þjónar slikur frétta- flutningur? Vantar eitthvað i þennan harmleik, til þess að gera hann æsilegan? Voðaverk- in verða ekki bætt með þvi að kjamsað sé á hugsanlegum að- ferðum, þegar þau voruframin, slikur „kjaftakerlingarháttur” verður aðeins til þess að tæta brjóst þeirra er fórnarlömbun- um unnu, og þeirra, er þeim sem voðann frömdu unna. Ætti ég mér einhvern kæran, öðru- hvoru megin i sli"kum harmleik, þá væribyröi min nógu þung, þó ég hefði ekki viö eyra froöufell- andi slúður-munna mataða af fjölmiðlum dag eftir dag. Minn- ið svikur sjaldan þann er i brjósti á rúst hruninna vona. Vist veit ég, að fréttamönnum er mikill vandi á höndum. Frá- sagnir þeirraeiga aðkoma i veg fyrir að sjúkum slúðursálum takist að gera hryllingssögur úr atburðunum, og jafnvel að tengja þá saklausu fólki. Þetta veit ég, en oft mættu þeir spyrja sig: Geta oröin min orðið fóöur þeirra sem nautn hafa af þvi að heLgarpistill Séra Siguröur Haukur Guöjónsson skrifar kvelja náungann, saklausan náungann sem eför stendur? Ég hygg, aðfréttamönnumyrði það góður skóli, 'ef þeir kynntust skelfingunni sem gripur um sig, i hugum sumra manna og kvenna, eftir lestur eöa sjón á voöaatburðum lifsins, kynnast þessari skelfingu inná skrifstof- um presta og lækna. A veginum með okkur er fjöldi manna og kvenna, sem eru með brjóstin full af ótta,óttavið það,að þeim takistekkiaö lifa sem heilbrigð- ar manneskjur, stjórnlaust æðið gripi þau og leiði þau til voða- verka. Lýsingar á ööru fólki, sem æðið náöi völdum á. verka sem sogandi straumur á þau systkin okkar er með óttann burðast h'fsins stig. Báran er sjaldan stök, oftast ýtir hún öðr- um af stað meðan hún er að lognast útaf sjálf. Sýnið misk- unn — í guðanna bænum sýnið miskunn. Sig. Haukur

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.