Vísir - 26.01.1980, Síða 11
Laugardagur 26. janúar 1980
n
fréttagetraun krossgótan
1. Hvaða veilingahús átti
nú fyrir stuttu 50 ára af-
mæli?
2. ,,Erfiðast að þurfa að
kyssa ókunnan mann"
segir íslensk stúlka sem
leikur í myndinni ,,0t í
óvissuna". Hvað heitir
hún?
3. Og enn önnur kossa-
spurning. Að mati sér-
fræðinga vestan hafs er
ein Hollywood- stjarnan
kyssilegust í hópi kvenna.
Hver er hún?
4. S.l. mánudag fóru póst-
bílstjórar sér hægt og
töfðu umferðina i Hafn-
arstræti til að mótmæla...
Hverju vildu þeir mót-
mæla?
5. Verið er að stofna
fyrirtæki sem á að leysa
af hólmi sem mest af
peningasneplum og ávís-
anaheftum. Hvað heitir
fyrirtækið?
6. Hvaða skákmaður var
stigahæsturá síðasta ári?
7. Um þessar mundir er
verið að sýna leikrit í
Menntaskólanum við
Hamrahlið. Hvað heitir
það?
8. Fyrir hvaða bók sína
hlaut sænska skáldkonan
Sara Lidman bókmennta-
verðlaun Norðurlanda-
ráðs?
9. Svo virðist sem menn
reyni af kappi að menga
loftið fyrir hver öðrum
Hvar á landsbyggðinni.
kvörtuðu íbúar fyriri
skemmstu undan slikum
mengunar-aðgerðum?
10. Hvenær' verður jarð-
stöðin við Olfarsfell tekin
i notkun?
&
11. Hversu margar holur
er áætlað að bora við
Kröflu i sumar?
12. Hvenær lauk mál-
flutningi í Guðmundar-
og Geirfinnsmálinu?
13. Herra Kristján Eld-
járn, forseti íslands hef-
ur ekki enn við að af-
henda mönnum umboðtil
stjórnarmyndunar. Hver
tók við þvi seinast?
14. Hvaða lið hirti þriðja
sætið af KR-ingum í
handknattleik?
15. Fræg fimleikastúlka
reyndi fyrir skemmstu að
fremja sjálfsmorð. Hvað
heitir hún?
Spurningarnar hér að ofan eru allar byggðar á
f réttum í Visi síðustu daga. Svör eru á bls. 22.
spurnlngalelkui
Spurningar:
1. Til hvaða manns í
Grikklandi hinu forna
mætti rekja upphaf vel-
flestra visindagreina nú-
tímans?
2. Hverjir eru um-
dæmisstafir bifreiða:
a. i Strandasýslu b. á
Siglufirði c. Starfsmanna
Kef lavíkurf lugvallar d.
Ameriska hersins og e. í
Arnessýslu?
3. Úr hvaða náttúruleg-
um litum er grænn litur
búinn til?
4. Hvað heita myntir
þessara landa: a. Albaniu
b. Ástraliu c. Tékkóslóva-
kíu d. Kongó e. Kína?
5. Hver eru þrjú stærstu
höfin í heimi?
6. Hvert er flatarmál,
ummál (um miðbaug) og
aldur jarðarinnar?
7. Hvaða maður er talinn
síðastur hafa kunnað skil
á öllum greinum vísinda
og það til hlítar? Um
hvaða leyti var hann
uppi?
8. Þetta fyrirbæri eyðir
öllum hlutum, skepnum
og gróðri. Það nagar
járn, bitur stál, mylur
harðar klappir, brýtur
niður bæi og jafnar há
fjöll við jörðu. Hvað er
þetta?
9. Hvað heita höfuðborg
ir þessara landa: a.
Argentinu b. Ástralíu c.
Bangladesh d. Burma e.
Nýja-Sjálands og Afgan-
istans?
10. Hvað er það sem hef ur
rætur sem enginn sér, það
leitar upp, upp, en vex þó
ekki?