Vísir - 26.01.1980, Blaðsíða 12

Vísir - 26.01.1980, Blaðsíða 12
Laugardagur 26. janúar 1980 12 helgarpopp Kristján Róbert Kristjánsson skrifar Ljóðskáldið og söng- konan JANIS IAN Er Flower-Power tímabilið hóf innreið sína, varð bylting i tónlistarlíf i í Bandarik junum. Fram komu hljómsveitir og sóló-listamenn i svo miklum mæli að aðeins lítið brot þeirra náði að vekja verulega at- hygli. Ein þessara fáu var sextán ára stúlka,Janis lan. Fyrstu fimmtán ár ævi sinn- ar var Janis á sifelldu flakki um Bandarikin með foreldrum sinum, og á þeim tima haföi hún búið á þrettán stöðum. Hún kynntist skorti og fátækt hins almenna borgara sem snart hana djúpt. Janis sat i mörgum skólum sem hún var ósátt við og það var ekki fyrr en hún flutti til New York og hóf nám við New York’s High School of Music and Arts aö hlutirnir fóru að ganga. Janis var þá þegar far- in að semja lög og ljóð. Hún kynntist blues-söngvaranum Reverend Gary Davies og stuttu siöar var henni boöinn samningur við hljómplötu- fyrirtækið MGM. Hennar fyrsta lag „Society’s Child” hlaut góðar viötökur og varð mjög vinsælt. Texti lags- ins vakti mikla athygli og fjall- ar hann um vandamál hvitrar stúlku og svertingjapilts sem felldu hugi saman. Lagið kom einnig á LP-plötu „Janis Ian” gefin út 1966 og urðu vinsældir hennar slikar að hún varö að ferðast um öll Bandarikin til að metta hunaraða aðdáendur. A næstu tveimur árum gaf hún út plöturnar „For all the seasons of the mind” og „The Secret Life of J. Eddy Fink” sem hlutu miður góða dóma flestra gagnrýnenda sem höfðu þá meiri áhuga á hinu svo- kallaða sýru-rokki. Janis dró sig i hlé næstu tvö árin og gifti sig, en frægðin hafði stigið henni til höfuðs og hún lenti i ýmsu vafasömu auk eiturlyfja. Hún var nálægt þvi aö fremja sjálfsmorð en hægt var að forða henni frá þvi og flutti hún þá til California. Hún hóf tónsmiðar á ný og gerði samning við Capitol sem gaf út plötu hennar „Present Company”. Nú voru gagnrýn- endur henni hliðhollir nema hvaö varðaði texta sem þeir töldu skorta þýöleika og dýpt. Janis haföi samt annaö að segja: „Þarna fór ég að hugsa meira um eigin tónsmiðar. Ég bjó mér reglur sem ég braut ef mér fannst ég þurfa, mótaði minar eigin kenningar og komst að eigin niðurstöðum. Ég reyndi að segja I einni linu það sem ég hefði þurft heilt vers áður og sagði aldrei neitt nema það væri algjörlega min eigin sannfæring". En Janis dró sig aftur i hlé og það var ekki fyrr en 1974 að hún kom aftur fram á sjónar- sviðið með plötuna „Stars” og nú á samning hjá Columbia Re- cords. Ari siðar kom út plata henn- ar „Between The Lines” sem jafnframt hefur verið talin hennar besta plata. „Between The Lines” inni- heldur hvert gullkornið af öðru og meis taraver kið „At Seventeen” komst i fyrsta sæti bandariska vinsældalis tans. Platan var viðs vegar kosin ein af bestu plötum ársins 1975 og átti hún það fyllilega skilið. Siðan hefur Janis gefið út fjórar plötur sem innihalda efni undir áhrifum folk- og jazztónlistar og þó sérstaklega þrjár fyrri plöturnar. Sú hin siðasta „Night Rains ” er kom út stuttu fyrir siöustu jól er hins vegar nær „Between The Lines” og er sennilega hennar besta siöan þá. Janis Ian er perfectionisti sem veröur aldrei ánægö fyrr en allt er fullkomið og er þá jafnvel ekki ánægð. I viðtali sem hún gaf i tilefni útkomu „Night Rains” sagði hún m.a.: „Mér finnst ég syngja betur en áður en ég vil spila betur á gitarinn og pianó- ið. Ég hef ekki einu sinni komis t nálægt þvi „soundi” sem ég vil ná”. Nú i dag er Janis Ian komin fast að þritugu og nýlega gift i annað sinn og nú rithöfundinum portúgalska Tino Sargo. Hún hefur þroskað tónlist sina i gegnum árin og hlotiö mismun- andi dóma fyrir. Þaö er ekki alltaf tekið út meö sældinni að reyna að vera ferskur og breyta til. Hennar merkilegustu verk eru ljóðin sem hún flytur með lögum sinum. Hún skrifar af skilningi og reynslu um ýmis viðfangsefni mannlegs lifs og oft eru ljóð hennar lostafull eða raunaleg eða jafnvel bæði i senn. Er hún var gagnrýnd fyrir þetta sagði Janis eitt sinn: „Ég held að það sé ekkert raunalegt .við ljóð sem boðar ákveðna von. Biílie Holiday var einnig gagnrýnd fyrir þetta og hún sagði að það væri ekki allt- af góöur endir (á ljóðum sin- um), en það væri samt alltaf von til að halda i. Það sama finnst mér um eigin ljóð. Þau eru rpargbrotin og krefja fram ákveðnar tilfinningar frá hlust- andanum. Gott ljóð lætur mann finna til og ef mér tekst að gera svoleiðis, þá hef ég náð minu takmarki”. Janis er einkar lagin við að segja frá tilfinningum hinnar einmana persónu, kannski vegna þess að hún sjálf hefur þjáðst vegna þess. 1 lagi sinu „Belle of the Blues” af plötunni „Aftertones segir hún: l’m the belle of the blues and it’s easy to see if I win, or I lose it's a 11 one to me I was born on a shelf in the rare books library I reside by myself with my books and my TV. Texti þessi er gott dæmi um ljóðagerð hennar og segir ýmislegt um hennar innri mann. Þaö verður ekki dregiö i efa aðJanis Ian er ein af merkustu söngkonum siðustu fimmtán ára, en þeir eru alltof margir sem farið hafa á mis við hæfi- leika hennar. K.R.K. Róbert Kristjánsson skrifar Nightmoves — Ýmsir f lytjendur K-TEL NE 1065 í A siðustu árum hefur æ meira borið á ýmiss konar safnplötum á markaöinum. K- TEL samsteypan á drýgstan þátt i þessari þróun og plötur þess með vinsælum lögum á hverjum tima hafa flestar hverjar hlotið harla góöar við- tökur, — og. sumar sérdeilis góðar. Megnið af þessum vin- sælu lögum er tekiö af 2ja laga plötum, sem t.d. islenskir poppunnendur hafa trauðla get- að eignast sökum litils in- flutnings á smáskifum. Safn- plötur þessar hafa þvi einatt oröið býsna vinsælar hér og nægir þvi til staöfestu aö nefna Star Party og The Best Disco Album In The World. Night- moves er óvenju áheyrileg safnplata og fjölbreyttari en almenn t tiökast. Eðli málsins samkvæmterulögin misjöfn en grútleiðinlegu lögin eru hér færri en ég þekki dæmi um fyrr, — og það gerir gæfumun- inn. Greatest Hits — Waylon Jennings RCA PL 13378 Ég held að það sé nokkur uppgangur hérlendis i svokall- aðri bandariskri sveitatónlist um þessar mundir. Sérstakir og ágætir útvarpsþættir um þessa merku tónlistargrein hafa stuðlað að þessu ásamt ýmsu öðru. Mest hefur boriö á kántrirokkinu á siðustu árum, en gömlu haröjaxlarnir sem flytja ómengaö kántri hafa i vaxandi mæli látið i sér heyra. Má þar nefna Willie Nelson, Don Williams, — og Waylon Jennings. Allt eru þetta karlar komnir af léttasta skeiði og farnir að gjóa augunum í átt til ellilifeyrisins. AUt um það eru þeir miklir tónlistarmenn og min einkaskoðun er sú að Way- lonséeinhver albesti kántriisti núlifandi. Þessi Greatest plata ætti aö taka af öll tvimæli um þaö.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.