Vísir - 16.02.1980, Síða 22
22
vism
Laugardagur 16. febrúar 1980.
íeldlínunni
Bjarni Gunnar Sveinsson. Þessi
„nestor” isienskra körfuknatt-
ieiksmanna verður i sviðsljós-
inu ú morgun þegar Fram og ÍS
mætast f íþróttahúsi Hagaskól-
ans.
„Búið
að
ákveða
þetta”
— Segir Bjarni
Gunnar
Sveinsson sem
leikur með IS
gegn Fram i
(Jrvalsdeildinni
i körfuknattleik
um helgina
„Leikurinn við Fram leggst
vel I mig og ég hef þá trú að við
munum bera sigur úr býtum”
sagði Bjarni Gunnar Sveinsson
leikmaður hjá úrvalsdeildarliði
ÍS i körfuknattleik er Visir
ræddi við hann um leik IS og
Fram sem fram fer á morgun,
en þar eigast við þau tvö lið sem
berjast um að halda sæti sinu i
deildinni.
Þetta er þriöji leikur liðanna i
vetur og hefur 1S sigrað i tveim-
ur þeirra, Fram i einum. A
ýmsu hefur gengið i þessum
leikjum og við spurðum Bjarna
að þvi á hverju hann byggði þá
vissu sina aö tS myndi sigra að
þessu sinni.
„Nu, við höfum æft mjög vel
að undanförnu og menn eru að
koma til aftur eftir nokkra lægð
sem liöið var óneitanlega komið
i. Þá eru allir leikmenn liðsins
heilir heilsu til tilbreytingar og
ég er þvi viss um að við munum
sigra. Ætli ég spái ekki sigri
okkar 90:80”.
— Þú ert þá væntanlega á
þeirri skoðun að þið haldiö sæti
ykkar i deildinni á kostnað
Fram?
„Já, viö erum alveg ákveönir
i þvi, það má segja að það sé
þegar búið að ákveða þaö”.
Bjarni Gunnar er enginn ný-
græðingur á körfuknattleiks-
vellinum. Hann hóf aö leika i
meistaraflokki áriö 1967 og leik-
ir hans eru orðnir eitthvað á
fjóröa hundraðið. Við spurðum
hann hvort hann væri nokkuð að
hugsa um aö hætta, 34 ára gam-
all.
„Ég gef engar yfirlýsingar
um þaö, ég hætti bara þegjandi
og hljóöalaust þegar þar að
kemur”.
gk-.
UM HELGINA UM HELGINA
i dag er laugardagurinn 16. febrúar 1980
apótek
Kvöld-, nætur- og helgidaga
varsla apóteka i Reykjavik vik-
una 15. til 21. febrúar er i
Reykjavikur Apóteki. Einnig er
Borgar Apótek opið til kl. 22 öll
kvöld vikunnar nema sunnu-
dagskvöld.
Kópavogur: Kópavogsapótek er bp’ið ÖVÍ kvöfo
til kl. 7 nema laugardaga kl. 9-12 og sunnudaga
lokaö.
Hafnarf jöröur: Haf narf jaröar apótek og
Norðurbæjarapótek eru opin á virkum dögum
frá kl. 9-18.30 og til skiptis annan hvern laug
ardag kl. 10-13 og sunnudag kl. 10 12. Upplýs
ingar I slmsvara nr. 51600.
Akureyri: Akureyrarapótek og Stjörnuapótek
opin virka daga á opnunartlma búða. Apótekin
skiptast á sina vikuna hvort að sinna kvöld .
nætur- og helgidagavörslu. A kvöldin er opið i
þvl apóteki sem sér um þessa vörslu, til kl. 19
og frá 21-22. A helgidögum er opið f rá kl. 11-12,
15-16 og 20-21. A öðrum tímum er lyf jafræð
ingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar l
sima 22445.
Apótek Keflavikur: Opið virka daga kl. 9-i9, T
almenna fridaga kl. 13-15, laugardaga frá kl.
10-12.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá
vkl. 9 18. Lokaö i hádeginu milli kl. 12.30 og 14. ;
íeiöalög
Sunnudagur 17. febrúar. kl. 10.00
Hrómundartindur. Nokkuð löng
og erfið gönguferð. Fararstjóri:
Sturla Jónsson.
Skiðaganga á Hellisheiði. Farar-
stjóri: Hjálmar Guðmundsson.
Athugandi er að hafa með sér
gönguskó ef göngufæri fyrir skfði
er slæmt. Verð kr. 3000. gr/bilinn.
Kl. 13.00 Hólmarnir — örfirisey —
Grótta.Léttog róleg fjöruganga á
stórstraumsfjöru. Fararstjóri:
Þorleifur Guömundsson. Verð kr.
1500 gr.v/bilinn. Farið verður frá
Umferðarmiðstöðinni, austan
verðu.
Þórsmerkurferð 29. febrúar.
Ferðafélag tslands.
tilkynnlngar
Fjölskyldubingó Fóstruskólans i
Laugalækjarskóla v/Sundlauga-
veg veröur sunnudag 17. febrúar
og hefst kl. 2 en húsið opnast
klukkan hálf tvö. Meðal vinninga:
Þrihjól, gullhringur, rúmteppi,
matarvinningar, plötur og fleira
og fleira.
Þriöjibekkur undir.
minningarspjöld
Minningarkort Breiöholts-
kirkju fást á eftirtöldum stöðum:
Leikfangabúðinni, Laugavegi 18
а, Versl. Jónu Siggu, Arnarbakka
2, Fatahreinsuninni Hreinn, Lóu-
hólum 2-6 Alaska Breiðholti,
Versl. Straumnes, Vesturbergi
76, hjá séra Lárusi Halldórssyni,
Brúnastekk 9, og Sveinbirni
Bjarnasyni, Dvergabakka 28.
Samúðarkort Styrktarfélags
Lamaðra og fatlaðra eru til á
eftirtöldum stöðum: t skrif-
stofunni Háaleitisbraut 13,
Bókabúö Braga Brynjólfsson-
ar Laugavegi 26, skóbúð
Steinars Waage, Domus
Medica og i Hafnarfirði,
Bókabúð Olivers Steins.
Minningarkort Menningar- og
minningarsjóðs kvennaeru seld i
Bókabúö Braga, Lækjargötu 2,
Lyfjabúð Breiðholts, Arnarbakka
og á Hallveigarstööum á mánu-
dögum milli 3—5.
Minningarkort Hvitabandsins
fást á eftirtöldum stöðum.
Umboði Happdrætti Háskól-
ans Vesturgötu 10, Jóni Sig-
mundssyni skartgripaversl.
Hallveigarstig 1. Bókabúð
Braga Laugavegi 26 og hjá
stjórnarkonum.
Minningarkort Fríkirkj unn'ar i
Reykjavik fást á eftirtöldum stöðum:
I Frikirkjunni, simi 14579, hjá Mar-
gréti Þorsteins, Laugavegi 52, simi
19373, Magneu Magnúsdóttur, Lang-
holtsvegi 75, sími 34692.
,V\inningarkort Sjálfsbjargar,félags fatlaöra i
Reykjavík , fást hjá: Reykjavikurapóteki.
Garðsapóteki. Vesturbæjarapóteki. Kictborg
h.f . Súðargerði 10, Bókabúðinni Alfheimum
б, Bókabuð Fossvogs, Grímsbæ við Bústaða
vt-g, Bókabúðinni Embla Drafnarfelli 10.
Skrifstotu Sjálfsbjargar Hátúni 12. Bókabúð
O.ivers Steins, Strandg. 31, Hafnarfirði. hja
Valtý Guðmundssyni, Oldug. 9. Hafnarf..
Pósthusi Kdpavogs. Bókabúðinni Snerra,
f>verholti, Mosfelissveit.
Samúðarkort Styrktar- og
minningasjóðs Samtaka gegn
astma og ofnæmi fást hjá
eftirtöldum aöilum: Skrifstofu
samtakanna Suðurgötu 1.
Sima 22153, skrifstofu StBS s.
22150, hjá Ingjaldi s. 40633, hjá
Magnúsi s. 75606, hjá Maris I s.
32345 hjá Páli s. 18537 og I sölu-
búðinni á Vifilsstööum s.
42800.
Minningarkort Hallgrims-
kirkju I Reykjavik fást i
Blómaversluninni Domus
Medica, Egilsgötu 3, Kirkju-
felli, versl. Ingólfsstræti 6,
verslun Halldóru Ölafsdóttur,
Grettisgötu 26, Erni & örlygi
hf. Vesturgötu 42, Biskups-
stofu, Klapparstig 27 og i Hall-
grimskirkju hjá Bibliufélag-
inu og hjá kirkjuveröinum.
Minningarkort Sambands
dýraverndunarféiaga tslands
fást á eftirtöldum stöðum: 1
Reykjavik: Versl. Helga
Einarssonar, Skólavörðustig
4, Versl. Bella, Laugavegi 99,
Bókaversl. Ingibjargar Ein-
arsdóttur, Kleppsvegi 150. í
Kópavogi: Bókabúðin Veda,
Hamraborg 5. I Hafnarfirði:
Bókabúð Olivers Steins,
Strandgötu 31. A Akureyri:
Bókabúð Jónasar Jóhannsson-
ar, Hafnarstræti 107.
messui
Hafnarf jarðarkirkja. Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Messa kl. 14. 1
lok Kristniboðsviku : Astráöur
Sigursteindórsson skólastjóri
predikar. Sóknarprestur.
Hallgrimskirkja. Messa kl. 11.
Séra Karl Sigurbjörnsson. Messa
kl. 2. Séra Ragnar Fjalar Lárus-
son., Fyrirbænamessa, þriðju-
daga kl. 10.30. Munið Kirkjuskóla
barnanna kl. 1 á laugardögum.
Landspitalinn. Messa kl. 10. Séra
Ragnar F. Lárusson.
Filadelfíukirkja. Safnaöarguðs-
þjónusta kl. 14. Almenn guðsþjón-
usta kl. 20. Fjölbreyttur söngur og
1 íþróttir um helglna
LAUGARDAGUR
HANDKNATTLEIKUR:
Laugardalshöll kl. 14, 1. deild
karla Fram-Vikingur, kl. 15,15,
Fram-UMFG i 1. deild kvenna
kl. 16,15, Valur-Vikingur i 1.
deild kvenna. tþróttahúsið i
Hafnarfirði kl. 14, 1. deild karla
FH-KR, kl. 15,15, 1. deild
kvenna Haukar-Þór. tþrótta-
húsið að Varmá kl. 15, 2. deild
karla UMFA-Týr.
KÖRFUKNATTLEIKUR:
Iþróttaskemman á Akureyri kl.
16, 1. deild karla Tindastóll-Ár-
mann.
SKÍÐI: Afmælismót Vikings
fyrir börn og unglinga i Sleggju-
beinsskarði, Febrúarmót 7-9
ára barna ki. 13 i Hliöarfjalli og
á tsafirði fer fram punktamót i
alpagreinum og norrænum
greinum.
LYFTINGAR: Jakaból i
Laugardal kl. 14, Jakabólsmót i
kraftlyftingum.
SUNNUDAGUR
KÖRFUKNATTLEIKUR:
tþróttahús Hagaskóla kl. 19,
Fram og 1S leika i úrvalsdeild
karla. Iþróttaskemman á Akur-
eyri kl. 14, 1. deild karla Þór-Ár-
mann. lþróttahús Borgarness
kl. 13. 1. deild karla UMFS-IBK.
HANDKNATTLEIKUR:
Laugardalshöll kl. 19, 1. deiid
karla tR-Haukar, kl. 20,15, 1.
deild kvenna KR-FH. Laugar-
dalshöll kl. 14, 2. deild karla
Þróttur-Týr.
SKIÐI: A tsafirði fer fram
punktamót i alpagreinum og
norrænum greinum, Vikingar
halda afmælismót fyrir börn og
unglinga i Sleggjubeinsskarði
og i Hliðarfjalii hefst kl. 13 svig-
mót unglinga 10-12 ára,
Febrúarmótið.
tónlist. Ræðumaður er Samúel
Ingimarsson.
Oháðisöfnuðurinn.Félagsvist n.k.
þriöjudagskvöld kl. 8.30 i Kirkju-
bæ. Gób verðiaun. Kaffiveitingar.
Kvenfélag óháða safnaöarins...
Guðsþjónustur i Reykjavikur-
prófastsdæmi sunnudaginn 17.
febrúar 1980.
Árbæjarprestakall: Barnasam-
koma i safnaðarheimili Arbæjar-
sóknar ki. 10:30 árd. Guösþjón-
usta i safnaðarheimilinu kl. 2
Kirkjukaffi Kvenfélags Arbæjar-
sóknar eftir messu. Sr. Guð-
mundur Þorsteinsson.
Ásprestakall: Messa kl. 2 að
Noröurbrún 1. Sr. Grimur Grims-
son.
Breiðholtsprestakall: Barnastarf
i öiduselsskóia og Breiöholts-
skóla kl. 10:30 árd. Guðsþjónusta
i Breiðholtsskóla kl. 14. Sr. Jón
Bjarman.
Bústaðakirkja: Barnasamkoma
kl. 11. Guðjón St. Garöarsson.
Guðsþjónusta kl. 2. Miðviku-
dagur: Félagsstarf aldraðra milli
kl. 2og 5. Kl. 20:30. „Kirkjukvöld
á föstu”. Dr. Gunnar Kristjáns-
son, Reynivöllum fjallar um föst-
una i listum og siðum kirkjunnar.
Organleikari Guðni Þ. Guð-
mundsson Sr. Ólafur Skúlason.
Digranesprestakaii: Barnasam-
koma i safnaðarheimilinu við
Bjarnhólastig kl. 11. Guösþjón-
usta i Kópavogskirkju kl. 11. Sr.
Þorbergur Kristjánsson.
Dómkirkjan: Kl. 11 messa,
altarisganga, sr. Hjalti Guð-
mundsson. Kl. 2 messa. Magnús
Jónsson óperusöngvari syngur
einsöng og einnig með Dóm-
kórnum. Organleikari Marteinn
H. Friöriksson. Sr. Þórir
Stephensen.
Landakotsspitali: Kl. 10 messa.
Organleikari Birgir As Guð-
mundsson. Sr. Þórir Stephensen.
Fella- og Hólaprestakali:
Laugard: Barnasamkoma I Hóla-
brekkuskóla kl. 2. Sunnudagur:
Barnasamkoma i Fellaskóla kl.
11. Guðsþjónusta I safnaðar-
heimilinu að Keilufelli 1 kl. 2 e.h.
Sr. Hreinn Hjartarson.
Grensáskirkja: Barnasamkoma
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 2. Organ-
leikari Jón G. Þórarinsson. Al-
menn samkoma n.k. fimmtudag
kl. 20:30. Sr. Halldór S. Gröndal.
Háteigskirkja: Barnaguösþjón-
usta kl. 11. Sr. Tómas Sveinsson.
Messa kl. 2. Sr. Guðmundur
Óskar Ólafsson messar. Kirkju-
kór Neskirkju syngur, organleik-
ari Reynir Jónasson. Sr. Arn-
grimur Jónsson.
Kársnesprestakali: Barnasam-
koma I Kársnesskóla kl. 11 árd.
Guðsþjónusta I Kópavogskirkju
kl. 2 (altarisganga). Sr. Árni
Pálsson.
Langholtsprestakall: Barnasam-
koma kl. 11. Um þessa stund sjá
Jón Stefánsson, Kristján og Sig-
urður Sigurgeirsson og sóknar-
presturinn. Guðsþjónusta kl. 2
flutt eftir tillögum helgisiða-
nefndar þjóðkirkjunnar. Prestur
sr. Sig. Haukur Guöjónsson,
organleikari Jón Stefánsson.
Sóknarnefndin.
Laugarneskirkja: Barnaguðs-
þjonusta kl. 11. Messa kl. 14.
Þriðjudagur 19. febr.: Bænaguðs-
þjónusta kl. 18 og kl. 20 fer Æsku-
lýðsfélagiö I heimsókn til Æsku-
lýðsfélagsins i Neskirkju. Föstud.
22. febr.: Húsmæðrakaffi I
kjallarasal kl. 14:30. Sóknar-
prestur.
Neskirkja: Barnasamkoma kl.
10:30. Messa kl. 2. Prestur sr.
Arngrimur Jónsson. Kirkjukór
Háteigskirkju syngur, orgel og
kórstjórn dr. Orthulf Prunner.
Kirkjukaffi. Séra Guðmundur
Óskar Ólafsson.
Selt jarnarnessókn:
Barnasamkoma kl. 11 árd. i
Félagsheimilinu. Sr. Frank M.
Halldórsson.
Frfkirkjan i Reykjavik: Messa kl.
2, altarisganga. Organleikari Sig-
uröur Isólfsson, prestur sr.
Kristján Róbertsson. Miövikud.
20. febr.: Föstumessa kl. 20:30.
Litania sungin. Safnaöarprestur.
Fríkirkjan I Hafnarfiröi: Barna-
starfiðhefst kl. 10:30. 011 börn og
aðstandendur þeirra eru vel-
komnir. Guösþjónusta kl. 14,
ræðumaður Helga Steinunn Hró-
bjartsdóttir, kennari. Jón Mýrdal
við orgeliö. Kirkjukaffi.
Safnaðarstjórn.
í sviðsljósinu
Jón Óttar Ragnarsson, for
maður samtakanna Lff og land
„Skíl-
greinum
hugtakid
umhverfi
mjög
vídtækt”
— segir Jón
Óttar
Ragnarsson
formaður
samtakanna
Lif og land
sem gangast
fyrir Listaþingi
„Ávinningurinn er
fyrst og fremst að fá
saman listamenn úr öll-
um listgreinum og
blanda síðan inn í hóp-
inn hagf ræðingum,
stjórnmálamönnum og
kennurum og svo auð-
vitað öllum almenningi"
sagði Jón Óttar
Ragnarsson formaður
samtakanna Líf og land,
sem halda Listaþing á
Kjarvalsstöðum um
helgina, þegar Vísir
spurði hann , hann teldi
helsta ávinning af lista-
þingi af þessu tagi.
Jón Óttar sagði ennfremur
að þaö væri mikilsvert að
ræða stöðu listar án þess að
tengja hana beinlinis kjara-
baráttu, heldur ræða hana út
þvi þjóðhagslega gildi sem
flestir sannsýnir menn teldu
hana eiga skilið.
„Þarna verður mikið af
skemmtilegum erindum og
ýmislegt athyglisvert kemur
fram. Til dæmis hjá Herði
Agústssyni sem reynir aö
fletta ofan af þeirri bábilju að
Islendingar séu bara bók-
menntaþjóð. Hann sýnir fram
á hvað myndlist hefur verið
stór liður i þjóðlifinu.i sumum
tilvikum á háu stigi. Má þar
nefna allskonar útskurð,
sauma, styttur og fleira”
sagði Jón Óttar.
Hann var spurður hvað Lif
og land væru fjölmenn samtök
og sagði að yfir stæði félaga-
söfnun en gat sér til um að
fimm til sex hundruð manns
væru i þeim i dag.
Samtökin eru umhverfis-
verndarsamtök en að sögn
Jóns Óttars skilgreina þau
hugtakið umhverfi mjög viö-
tækt. Ekki bara sem þá hluti
sem væru i kringum okkur
heldur að verulegu leyti ,sam-
félagið sjálft, trúna, siðvenj-
urnar og menninguna.
„Þetta er allt hluti af okkar
umhverfi. A mörgum sviðum
eru það listamenn sem gefa
stefnuna og ég held að það
væri æskilegt að það væri á
sem flestum sviðum” sagöi
Jón óttar Ragnarsson.
— JM