Morgunblaðið - 10.11.2001, Blaðsíða 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001 13
Lagersalan á Laugavegi 67
AÐEINS 1 VIKA EFTIR - MIKILL AFSLÁTTUR
Kápur
Úlpur
Dragtir
Kjólar
Buxur
Blússur
Toppar
Stærðir
36-52
FÉLAG íslenskra bifreiðaeigenda,
FÍB, hefur sent Samkeppnisstofnun
útreikninga þar sem því er haldið
fram að olíufélögin hafi að undan-
förnu verið að auka álagningu sína
umfram það sem eðlilegt geti talist,
sér í lagi frá júnímánuði sl.
Um síðustu mánaðamót taldi FÍB
forsendur fyrir 5 króna lækkun á
bensínlítrann. FÍB telur að frá júní
2001 hafi meðaltalshlutur olíufélag-
anna í seldum lítra af 95 oktana
bensíni verið rúmar 27 krónur, sam-
anborið við 25 krónur allt þetta ár og
24 krónur að meðaltali á árunum
1998–2001. Lítrinn af 95 oktana
bensíni kostar nú 95,70 krónur þann-
ig að hlutfallslega er hlutur olíufé-
laganna um 29%.
FÍB byggir útreikninga sína á
meðalheimsmarkaðsverði á bensíni í
Evrópu í hverjum mánuði fyrir sig,
miðað við gengi íslensku krónunnar
gagnvart dollara í lok mánaðar.
Einnig er tekið tillit til breytinga á
vísitölu neysluverðs hverju sinni.
Samkvæmt upplýsingum frá Sam-
keppnisstofnun verður formleg af-
staða ekki tekin til útreikninga FÍB
heldur litið á þá sem hluta af gögnum
sem gætu komið að gagni í skoðun
stofnunarinnar á olíufélögunum sem
viðskiptaráðherra óskaði eftir fyrir
um ári.
Samtök iðnaðarins hafa í bréfi til
iðnaðarráðherra óskað eftir að ráð-
herra beiti sér fyrir því að athugun
Samkeppnistofnunar verði hraðað
eins og kostur er.
Benda samtökin m.a. á að verð á
gasolíu á heimsmarkaði hafi lækkað
mjög mikið undanfarna mánuði. Á
sama tíma hafi verð á gasolíu hér á
landi lækkað óverulega. Verð á bens-
íni og skipaolíu hafi lækkað nokkuð í
kjölfar háværra mótmæla samtaka
bifreiðaeigenda og útgerðarmanna
um síðustu mánaðamót en þá lækk-
aði gasolía til almennra nota ekkert.
Verðþróun á þessum eldsneytisteg-
undum erlendis skýri ekki þennan
mun.
Að sögn Guðmundar Sigurðsson-
ar, forstöðumanns samkeppnissviðs
Samkeppnisstofnunar, hefur um-
rædd athugun tafist af ýmsum
ástæðum en vonast er til að henni
ljúki innan tíðar.
FÍB telur olíufélögin hafa aukið álagningu
Samkeppnisstofn-
un fær útreikn-
inga til skoðunar
KIWANISHREYFINGIN á Íslandi
afhenti Hringsjá, starfsþjálfun
fatlaðra í Hátúni, styrk upp á 1,2
milljónir króna í vikunni til
tækjakaupa. Um er að ræða hluta
söfnunarfjár eftir sölu K-lykilsins
sem Kiwanismenn stóðu fyrir í
byrjun október sl.
Guðrún Hannesdóttir, for-
stöðumaður Hringsjár, sagði við
Morgunblaðið að styrkurinn hefði
mikla þýðingu fyrir starfsemina
og kæmi sér afar vel. Ákveðið
hefur verið að nota fjármunina til
kaupa á fartölvum til að bæta að-
stöðu í starfsþjálfuninni og koma
upp færanlegu tölvuveri. Um
fjörutíu manns, sem hafa orðið
fyrir slysum eða fengið sjúkdóma,
eru í endurhæfingu til starfa og
frekara náms en kennt er í
Hringsjá alla virka daga milli kl.
níu og hálffjögur. Að auki er
staðið fyrir tölvunámskeiðum
fram á kvöld og koma fartölv-
urnar einnig að góðum notum í
þeim tilgangi, að sögn Guðrúnar.
Morgunblaðið/Kristinn
Frá afhendingu styrks Kiwanismanna. Guðrún Hannesdóttir, forstöðu-
maður Hringsjár, kynnir starfsemina fyrir Sigurði Pálssyni, formanni
K-dagsnefndar Kiwanishreyfingarinnar, lengst til vinstri, og á milli
þeirra er Ólafur Sigurjónsson, stjórnarformaður Hringsjár.
Kiwanis-
menn
styrkja
Hringsjá
LANDSÞING Ungra jafnaðar-
manna, sem haldið var í lok októ-
ber, samþykkti ályktun þar sem
segir að Ísland eigi að sækja um
inngöngu í Evrópusambandið,
þar sem íslenskir langtímahags-
munir verði tryggðir sem best í
aðildarviðræðum sem fylgi í kjöl-
farið. Þá segir í ályktuninni að
bera eigi aðildarsamninginn und-
ir þjóðaratkvæði og er skorað á
Samfylkinguna að setja aðildar-
umsókn að Evrópusambandinu á
oddinn. Þar segir einnig að Evr-
ópuúttekt Samfylkingarinnar hafi
sýnt fram á að Íslendingar muni
ekki missa forræði sitt yfir fiski-
miðunum í kringum landið, held-
ur yrðu yfirráðin tryggð vegna
veiðireynslu Íslendinga.
„Í dag verða Íslendingar að
lögleiða allt að 90% af löggjöf
ESB án þess að hafa áhrif á
ákvarðanaferli ESB-löggjafarinn-
ar. Innganga Íslands í ESB er því
hluti af sjálfstæðisbaráttu en er
ekki fullveldisafsal. Með upptöku
á sameiginlegri mynt ESB
minnkar viðskiptakostnaður og
sá kostnaður sem hlýst af því að
hafa íslenska krónu. Upptaka
evrunnar lækkar vexti og geng-
iskostnað,“ segir á ályktun lands-
þings Ungra jafnarðarmanna.
Landið allt verði
eitt kjördæmi
Í ályktuninni segir jafnframt
að uppgangur í íslensku efna-
hagslífi undanfarin fimm ár sé
fyrst og fremst að þakka við-
skiptalöggjöf ESB sem hafi opn-
að og gjörbreytt íslensku hag-
kerfi. „Undir efnahagsstjórn
núverandi ríkisstjórnar hefur
hins vegar gengi krónunnar
hrunið, verðbólga orðin sú hæsta
á öllu evrópska efnahagssvæðinu,
skuldir þjóðarbúsins rokið upp úr
öllu valdi, skattbyrði á almenning
komist í sögulegt hámark og hlut-
ur hins opinbera af landsfram-
leiðslu aldrei verið meiri.“
Þá vilja Ungir jafnaðarmenn að
landið verði allt gert að einu kjör-
dæmi og allir landsmenn hafi
sama vægi í kosningum til Al-
þingis. Í ályktun landsþingsins
kemur fram að Ungir jafnaðar-
menn telja að uppboðsleiðin, eða
fyrningaleiðin, sé farsælust innan
sjávarútvegsins. Sú leið sé mark-
aðslausn sem leiði til þess að út-
gerðin greiði sitt eigið mat á
verðmæti aflaheimildanna og
opni sömuleiðis fyrir nýliðun í
greininni, en það geri fast veiði-
leyfagjald ekki.
Á landsþinginu var kosin ný
framkvæmdastjórn en hana skipa
Ágúst Ólafur Ágústsson, formað-
ur, Bryndís Nielsen, varaformað-
ur, Hinrik Már Ásgeirsson, gjald-
keri, Guðjón M. Ólafsson, ritari,
Kolbeinn Stefánsson, alþjóða-
fulltrúi, Melkorka Óskarsdóttir,
meðstjórnandi, og Símon Birgis-
son, meðstjórnandi.
Landsþing Ungra jafnaðarmanna
Ísland sæki um
inngöngu í ESB
ÁHUGI erlendra félaga á að stofna
eignarhaldsfélög hér á landi vegna
skattalegs hagræðis sem því getur
verið samfara var meðal þess sem
rætt var á aðalfundi Íslensk-amer-
íska verslunaráðsins í New York á
dögunum.
Ólafur Jóhann Ólafsson, formað-
ur Íslensk-ameríska verslunaráðs-
ins, sagði í samtali við Morgunblað-
ið að þeir hefðu verið að reyna að
setja sig inn í þessi mál eftir megni
og á fundinum hefði verið maður
frá endurskoðunarskrifstofunni
Ernst & Young sem hefði verið að
vinna með mörgum fyrirtækjum
vestra sem hefðu hug á því að not-
færa sér þetta umhverfi á Íslandi.
Ef þessi möguleiki væri fyrir
hendi innan íslenskrar skattalög-
gjafar þá telji þeir að það kunni að
vera margvísleg tækifæri samfara
því að fyrirtæki af þessum toga fari
að stunda viðskipti á Íslandi, þótt
það kunni í fyrstu að vera einkum í
kringum eignarhaldsfélög. Þeir
hefðu því rætt þetta nokkuð ítar-
lega á fundinum og ætluðu að halda
áfram að fylgjast með þróuninni í
þessum efnum.
Ólafur sagði aðspurður hvort
þeir teldu að þessi starfsemi gæti
hlaðið utan á sig hér á landi, að þeir
vonuðust til að þetta skapaði störf á
Íslandi í þjónustugeiranum. Í ann-
an stað væri þeim sagt að þeir sem
sætu í stjórnum þessara fyrirtækja
þyrftu að koma reglulega til Ís-
lands, þótt þetta væru einkum eign-
arhaldsfélög.
Um væri að ræða stórfyrirtæki á
sínu sviði og þeirra trú væri að þeg-
ar þau kynntust landi og þjóð sæju
þau kostina sem væru samfara
starfsemi á Íslandi. Þá sýndist
þeim að það yrðu alla vega ein-
hverjir skattar eftir á Íslandi, auk
þess sem fjármagn myndi flæða í
gegnum íslenskt bankakerfi. Það
sem þeir vonuðust síðan eftir að
gerðist væri að fyrirtækin sæju sér
hag í því að stunda enn frekari við-
skipti frá Íslandi vegna þess að um-
hverfið sé hagstætt ekki bara frá
skattalegu sjónarmiði heldur einn-
ig vegna mannauðs og ýmislegs
annars.
Ráðstefna um möguleika
í orkumálum
Íslensk-ameríska verslunarráðið
hefur ýmislegt á prjónunum á
næsta ári, sem miðar að því að auka
samskipti og viðskipti milli þjóð-
anna, að sögn Magnúsar Bjarna-
sonar, framkvæmdastjóra Íslensk-
ameríska verslunarráðsins. Meðal
annars er gert ráð fyrir umræðu
um skattakerfið á Íslandi og þróun
í tengslum við það. Þá er verið að
athuga möguleika á ráðstefnu um
möguleika í orkumálum í tengslum
við nýja tækni í samvinnu við ís-
lensku orkufyrirtækin og iðnaðar-
og viðskiptaráðuneytið.
Í þriðja lagi er einnig í farvatninu
að halda ráðstefnu á Íslandi um Ís-
land sem mögulegan tökustað fyrir
kvikmyndir af ýmsu tagi, svo sem
auglýsingamyndir, tónlistarmynd-
bönd, sjónvarpsefni og fleira.
Aðalfundur Íslensk-ameríska verslunarráðsins var haldinn í New York á dögunum. Taldir frá vinstri: Steinn
Logi Björnsson, framkvæmdastjóri hjá Flugleiðum, Thor Thors, varaformaður Íslensk-ameríska verslunar-
ráðsins, Magnús Bjarnason, aðalræðismaður í New York og framkvæmdastjóri Íslensk-ameríska verslunar-
ráðsins, Einar Gústavsson, framkvæmdastjóri ferðamálaráðs í Bandaríkjunum, Ólafur Jóhann Ólafsson, for-
maður Íslensk-ameríska verslunarráðsins og varaformaður AOL Time Warner Digital Media, Pétur Óskarsson,
vararæðismaður í New York, og Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra í Bandaríkjunum.
Aðalfundur Íslensk-ameríska verslunarráðsins
Eignarhaldsfélög og skatt-
ar meðal umræðuefna