Morgunblaðið - 10.11.2001, Blaðsíða 29
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001 29
Gæðavítamínin
FRÁ
Kynningar
á vítamínum með
nnnnngæðaöryggi
Í öllum verslunum Lyfju
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti fullvissaði kvíðna landsmenn
sína um að Bandaríkin myndu hafa
betur í baráttunni gegn hryðjuverka-
mönnum, og sagði að Bandaríkja-
menn mættu ekki „láta bugast undan
óraunhæfum ótta eða sögusögnum“
um frekari hermdarverk.
Í sjónvarpsávarpi sl. fimmtudags-
kvöld ræddi Bush um „hina miklu
áskorun“ sem þjóðin stæði frammi
fyrir, og hvatti Bandaríkjamenn til
að virkja óttann til verka. Gerast
sjálfboðaliðar á sjúkrahúsum, í skól-
um, skjólshúsum fyrir heimilislausa
eða á herstöðvum, eða læra neyðar-
hjálp og ganga í nýstofnað þjóðvarð-
lið.
„Við höfum gengið inn í nýja tíma.
Þessir nýju tímar krefjast nýrra
verka – bæði af ríkisstjórninni og al-
menningi,“ sagði forsetinn í ávarp-
inu. Viðstaddir voru um fimm þúsund
áheyrendur, flestir starfsmenn lög-
reglu, póstþjónustunnar og slökkvi-
liðs. „Gerist sjálfboðaliðar vegna 11.
september,“ sagði forsetinn.
Ræða hans stóð í rétt rúma hálfa
klukkustund, og 25 sinnum varð
hann að gera hlé á máli sínu vegna
lófataks. Tveir mánuðir eru liðnir síð-
an hryðjuverkin í New York og
Washington voru framin.
„Ekki sama ríkið“
Bush viðurkenndi að stjórnvöldum
hefði ekki tekist að komast að því
hverjir hefðu staðið fyrir miltis-
brandsógninni sem dreift var með
pósti. Hann gaf heldur engan ádrátt
um að bandaríski herinn myndi fljót-
lega hafa uppi á Osama bin Laden,
sem talinn er hafa staðið að baki
hryðjuverkunum. „Við erum ekki
sama ríkið og við vorum 10. septem-
ber; daprari og ekki eins saklaus;
sterkari og sameinaðri; og frammi
fyrir meiri hótunum, staðráðin og
hugrökk,“ sagði forsetinn.
Lófatak áheyrenda varð mest und-
ir lok ávarpsins, þegar forsetinn
hrósaði farþegunum um borð í flugi
93 frá United Airlines, sem létu til
skarar skríða gegn flugræningjun-
um, áður en vélin hrapaði á akri í
Pennsylvaníu. Bush rifjaði upp orð
eins farþegans, Todd Beamer, 32 ára
kaupsýslumanns, en í gegnum far-
síma mátti heyra hann segja: „Af
stað,“ þegar farþegarnir réðust gegn
ræningjunum.
„Við getum ekki séð nákvæmlega
fyrir hvernig þessi barátta verður.
En við vitum að málstaður okkar er
réttlátur og að fullvíst er að við mun-
um að lokum hafa betur,“ sagði Bush.
„Við munum án efa mæta nýjum
áskorunum. En við höfum fengið
dagskipunina: Kæru Bandaríkja-
menn, af stað.“
Bush Bandaríkjaforseti hvetur landsmenn sína til að virkja óttann til verka
„Höfum fengið dagskipunina“
AP
Bush flytur ávarp sitt í Georgia
World Congress-miðstöðinni í
Atlanta á fimmtudagskvöldið.
Atlanta. AP.
Hótun um
flugrán
Kathmandu. AFP.
YFIRVÖLD í Nepal hertu í gær ör-
yggisgæslu við alþjóðaflugvöllinn í
höfuðborginni Kathmandu, eftir að
borist höfðu upplýsingar um að hóp-
ur manna, er tengist Osama bin Lad-
en, hefði í hyggju að ræna farþega-
flugvél flugfélagsins Singapore
Airlines og fljúga henni á byggingar
í Nýju Delhí, að því er embættis-
menn greindu frá.
Lögregla í borginni Madras á Suð-
ur-Indlandi sendi nepölskum yfir-
völdum bréf um að lögreglunni hefði
borist hótunin um yfirvofandi flug-
rán. Líklegt skotmark í Nýju Delhí
var talið vera bústaður indverska
forsætisráðherrans eða bústaður
bandaríska sendiherrans eða banda-
ríska sendiráðið.
Samkvæmt upplýsingnum sem
fengust frá lögreglunni í Madras
voru menn bin Ladens þegar komnir
til Kathmandu og farnir að skipu-
leggja sjálfsmorðstilræðið, að sögn
Bishnu Subedi, framkvæmdastjóra
samtaka erlendra flugfélaga í Nepal.
„Þetta gæti verið gabb, en það er
ráðlegra að vera á verði.“
Stjórn Nepals leysti í gær úr haldi
68 liðsmenn skæruliðasamtaka maó-
ista sem barist hafa gegn henni í
fimm ár. Tekið var fram að ekki yrðu
hafnar viðræður við fulltrúa skæru-
liða fyrr en samtök þeirra lýstu því
yfir að þau höfnuðu beitingu ofbeldis
í baráttunni.