Morgunblaðið - 10.11.2001, Blaðsíða 15
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001 15
Mexíkósk
ilmkerti
sími 462 2900
Þeir aðilar
sem vilja
panta
bása og
sölusvæði
hafið
samband.
Jólamarkaður í gler-
húsinu á Akureyri
Allar upplýsingar: Guðmundur, símar 461 3000 og 860 1300
Pálmi, símar 461 3000 og 869 5415
FJÖLGAÐ hefur á atvinnuleysis-
skrá Svæðisvinnumiðlunar Norð-
urlands eystra síðustu vikur, en nú
um nýliðin mánaðamót voru alls
411 manns á atvinnuleysisskrá.
Þar af voru 178 karlar og 233 kon-
ur.
Um mánaðamótin september/
október voru 371 á skrá, 152 karl-
ar og 219 konur, þannig að alls
hefur fjölgað um 40 manns á at-
vinnuleysisskrá milli mánaðamóta.
Ef miðað er við sama tíma á síð-
asta ári má sjá að umtalsverð
aukning hefur orðið á atvinnuleys-
isskránni, en um mánaðamótin
október/nóvember árið 200 voru
227 manns á atvinnuvinnuleysis-
skrá, 157 konur og 70 karlar.
Þannig eru núna nær 200 fleiri at-
vinnulausir á Norðurlandi eystra
en var fyrir einu ári.
Vonum að úr rætist
„Það hefur orðið nokkur fjölgun
á skránni síðustu vikur, það er
ekki hægt að horfa framhjá því,“
sagði Sigrún Finnsdóttir hjá
Svæðisvinnumiðlun Norðurlands
eystra. Hún sagði að m.a. hefði
komið upp sú staða að allt starfs-
fólk Skinnaiðnaðar hefði komið inn
á skrána í október eftir að rekstur
félagsins fór í þrot, en sumir hefðu
farið fljótt af skránni aftur. „Við
vonum að þetta sé tímabundið og
brátt rætist úr að nýju, ég held að
ekkert vonleysi sé ríkjandi þrátt
fyrir að óneitanlega hafi fjölgað
nokkuð á atvinnuleysisskránni.“
Svæðisvinnumiðlun Norðurlands eystra
Atvinnuleysi
hefur aukist
KARALAKÓRINN Heimir í
Skagafirði og Álftagerðisbræð-
ur munu halda sameiginlega út-
gáfutónleika í Glerárkirkju í
dag, laugardaginn 10. nóvember
kl. 16 í tilefni af nýjum geisla-
plötum sem þeir eru að gefa út.
Sönghóparnir skagfirsku héldu
samskonar tónleika í Háskóla-
bíói um síðustu helgi fyrir troð-
fullu húsi. Þetta er sjötta plötu-
útgáfa Heimis og fjórða
geislaplatan í sögu kórsins en
bræðurnir frá Álftagerði eru að
koma út með sína þriðju plötu.
Glerárkirkja
Heimir og
Álftagerð-
isbræður
Morgunblaðið/Kristján
Bergsveinn Þórsson, starfsmaður Skógræktarfélagsins, við rauðgrenið
sem líklega verður sett upp við Akureyrarkirkju fyrir jólin.
Skógræktarfélag Eyfirðinga
Komnir í jólaskap
STARFSMENN Skógræktarfélags
Eyfirðinga eru komnir í jólaskap
enda hátíð ljóss og friðar handan við
hornið. Starfsmennirnir eru farnir
að höggva jólatré í gríð og erg og í
gær sóttu þeir rúmlega 8 metra
rauðgreni úr einum af fyrstu gróð-
ursetningunum í Kjarnaskógi 1948.
Að sögn Hallgríms Indriðasonar,
framkvæmdastjóra Skógrækt-
arfélagsins, eru allar líkur á að
trénu verði valinn staður við Ak-
ureyrarkirkju en Kaupfélag Eyfirð-
inga hefur til fjölda ára sett upp tré
við báðar kirkjur bæjarins og víðar.
Hallgrímur sagði að Skógrækt-
arfélagið seldi á þriðja þúsund tré
fyrir hver jól og að þar væru einnig
talin innflutt tré og tré frá öðrum
landsvæðum. Sala á jólatrjám er haf-
in en hún fer þó ekki í fullan gang
fyrr en eftir næstu mánaðamót.
Auk formanns Búmanna og íbúa á myndinni eru fulltrúi Hyrnu ehf. og Hagþjónustunnar ehf. á Akureyri.
NÝLEGA afhenti Guðrún Jóns-
dóttir, arkitekt og formaður Bú-
manna, síðustu þrjár íbúðirnar í
fyrsta byggingaráfanga Búmanna
á Akureyri. Í þessum fyrsta áfanga
Búmanna voru byggðar samtals 16
íbúðir, þar af 12 í raðhúsum og 4 í
fjórbýlishúsi. Íbúðirnar á Akureyri
eru við Melateig og Holtateig. Bú-
menn stefna að byggingu 8 íbúða á
Akureyri á ári hverju næstu árin.
Byggingafélagið Hyrna ehf. hefur
byggt fyrir Búmenn og liggur fyr-
ir viljayfirlýsing um áframhald-
andi samstarf þar sem einkum er
horft til svæðis við Lindarsíðu.
Með afhendingu þessara íbúða hef-
ur félagið samtals afhent 72 íbúðir
í 5 bæjarfélögum. Þessa dagana er
verið að afhenda 18 íbúðir til við-
bótar á Álftanesi.
Búmenn afhenda íbúðir á Akureyri
ákærði stúlkurnar fyrir líkamsárás
en þeim var gefið að sök að hafa á
dansleik í mars síðastliðnum í sam-
einingu veist að og slegið konu þann-
ig að hún hlaut af talsverða áverka.
Viðurkenndu ákærðu sakargiftir.
Atlaga þeirra var tilefnislaus en
ákærðu voru undir áhrifum áfengis
er hún var gerð. Önnur konan hefur
ekki áður sætt refsingum og hlaut
hún 30 daga fangelsisdóm skilorðs-
bundinn, en með umræddu broti rauf
hin þeirra skilorðsbundinn dóm er
hún ásamt öðrum hlaut fyrir líkams-
árás á liðnu ári.
TVÆR konur hafa í Héraðsdómi
Norðurlands eystra verið dæmdar
vegna líkamsárásar. Önnur var
dæmd í fjögurra mánaða fangelsi,
sem skilorðsbundið var til þriggja
ára, en frestun á fullnustu refsingar
var bundin því skilyrði að hún sætti
umsjón Fangelsismálastofnunar á
skilorðstímanum. Hin var dæmd í 30
daga fangelsi, skilorðsbundið til
tveggja ára. Þá var þeim gert að
greiða skaðabætur að upphæð 85
þúsund krónur auk vaxta sem og að
greiða sakarkostnað.
Lögreglustjórinn á Húsavík
Tvær konur dæmdar
vegna líkamsárásar
AKUREYRARKIRKJA: Sunnudagaskóli kl.
11 á morgun í Safnaðarheimili. Kynning á
kristniboðsstarfi. Fundur í Æskulýðs-
félagi Akureyrarkirkju kl. 17 í kapellu.
Messa með léttri tónlist kl. 20.30. Sr.
Svavar A. Jónsson. Benedikt
Arnkelsson, guðfræðingur, kynnir kristni-
boðsstarf. Unglingakór Akureyrarkirkju
syngur undir stjórn Sveins Arnars Sæ-
mundssonar. Fermingarbörn sérstaklega
boðuð til kirkju. Morgunsöngur kl. 9. á
þriðjudag. Mömmumorgun á miðvikudag
kl. 10 til 12. TTT-starf kl. 17 á miðviku-
dag fyrir 10 til 12 ára krakka. Biblíulestur
kl. 20.30 um kvöldið. Kyrrðar- og fyrir-
bænastund kl. 12 á fimmtudag. Bæna-
efnum má koma til prestanna.
GLERÁRKIRKJA: Barnasamvera og guðs-
þjónusta kl. 11 á morgun, sunnudag.
Sameiginlegt upphaf. Foreldrar hvattir til
að mæta með börnunum. Kyrrðar- og til-
beiðslustund kl. 18.10 á þriðjudag, fyr-
irbænir. Hádegissamvera kl. 12 til 13 á
mivðikudag, orgelleikur, helgistund, fyr-
irbænir og sakramenti. Opið hús fyrir for-
eldra og börn kl. 10 til 12 á fimmtudag.
Æfing barnakórsins kl. 17.30. sama dag.
GRUNDARSÓKN: Sr.Pétur Þórarinsson
prófastur í Þingeyjarprófastsdæmi mun
vísitera Grundarsókn fimmtudaginn
15.nóvember og hefst heimsóknin með
helgistund í Grundarkirkju
kl.20:30.Á eftir mun prófastur funda með
sóknarnefnd.Kirkjukórinn undir stjórn
Dórótheu Tómasdóttur mun syngja nokk-
ur lög.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagaskóli
kl. 11 á morgun, sunnudag. Bæn kl.
19.30. Almenn samkoma kl. 20. Ræðu-
maður Níels Erling Jakobsson. Heimila-
samband kl. 15 á mánudag. Biblíu-
fræðsla kl. 19 á þriðjudag, súpa og
brauð.
HRÍSEYJARPRESTAKALL: Fjölskylduguðs-
þjónusta verður í Stærra-Árskógskirkju kl.
11 á morgun, sunnudag. Foreldrar, ömm-
ur og afar eru hvött til að koma með börn-
unum til kirkju. Sunnudagaskóli í Hríseyj-
arkirkju kl. 11 á sunnudag.
Guðsþjónusta verður í kirkjunni kl.14:00.
Kórar Hríseyjarkirkju og Stærra-Árskógs-
kirkju munu syngja negrasálma. Ein-
söngvarar Þorgerður Lilja Björnsdóttir og
Elísabet Björnsdóttir. Organisti og kóra-
stjórnandi Arnór Brynjar Vilbergsson.
Fermingarbörn munu lesa upp ritningar-
lestra. Kirkjukaffi verður að lokinni at-
höfn.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Bænastund kl. 20
Kirkjustarf
í kvöld, laugardagskvöld. Sunnudaga-
skóli fjölskyldunnar kl. 11.30 á morgun,
sunnudag. Kennsla fyrir alla aldurshópa.
Vakningasamkoma kl. 16.30, Pétur
Reynisson predikar. Fjölbreytt lofgjörðar-
tónlist, fyrirbænaþjónusta og barnapöss-
un.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa kl. 18 í dag,
laugardag og kl. 11 á morgun, sunnudag
í Péturskirkju, Hrafnagilsstræti 2 á Ak-
ureyri.
KFUM og K: Kristniboðssamkoma í kvöld
kl. 20.30, Benedikt Aarnkelsson guð-
fræðingur talar og sýnir myndir frá Eþíóp-
íu. Kaffisala á morgun, sunnudag kl. 15.
Fundur í yngri deild fyrir drengi og stúlkur
kl. 17 á mánudag.
MÖÐRUVALLAKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta verður fyrir allt prestakallið í
Möðruvallakirkju á morgun, sunnudaginn
11. nóvember kl. 11. Léttir söngvar fyrir
alla fjölskylduna. Krakkar úr TTT- starfinu
taka þátt í guðsþjónustunni.
Messa í Bakkakirkju, Öxnadal sama dag
kl. 14:00.
SJÓNARHÆÐ: Fótsporið kl. 13.30 á
morgun, sunnudag í Lundarskóla fyrir 6-
12 ára börn. Almenn samkoma á Sjón-
arhæð kl. 17 sama dag. Fótsporið kl. 17
á mánudag, Ástirningar sérstaklega vel-
komnir.
ORÐ og tónar úr norðri er yf-
irskrift Norrænu bókasafnsvik-
unnar en að venju tekur Amts-
bókasafnið á Akureyri þátt í
henni og býður upp á dagskrá
af því tilefni í næstu viku, dag-
ana 12. til 16. nóvember.
Sýnd verður mynd um Múm-
ínálfana á mánudag kl. 15.30 og
Skúli Gautason syngur norræn
lög ásamt börnum á safninu kl.
18 þann dag. Sögustund verður
kl. 14.30 á þriðjudag og fimmtu-
dag. Norrænar barnamyndir,
norsk, dönsk og sænsk, verða
svo sýndar á safninu kl. 15.30 í
vikunni og kl. 15 á föstudag
gefst gestum kostur á að sjá
myndina um Jón Odd og Jón
Bjarna. Verðlaun verða afhent í
smásagnasamkeppni Amts-
bókasafnsins næsta föstudag.
Dagskrá norrænna útvarps-
stöðva verður send út á safninu
alla næstu viku.
Norræn
bókasafnsvika
Orð og tón-
ar úr norðri
HAFDÍS Finnbogadóttir frá
Námsgagnastofnun kynnir
námsvefinn Lífsferlar í nátt-
úrunni og notkun hans í
kennslu á mánudag, 12. nóvem-
ber, kl. 16. Kynningin fer fram í
Háskólanum á Akureyri, Sól-
borg, stofu L-203.
Einnig mun hún kynna nýjan
vef sem heitir „Komdu og skoð-
aðu“.
Lífsferlar í náttúrunni er
gagnvirkt námsefni í náttúru-
fræðum sem einkum er ætlað
1.–4. bekk grunnskóla. Í náms-
efninu læra nemendur að
þekkja nokkrar tegundir líf-
vera og kynnast ólíkum lífsferl-
um þeirra á gagnvirkan og
skemmtilegan hátt.
Lífsferlar í
náttúrunni