Morgunblaðið - 10.11.2001, Blaðsíða 35
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001 35
EVA Dögg Þorsteinsdóttir opnar
málverkasýningu í Hár- og sýning-
arhúsinu „Unique“, Laugavegi 168,
(Brautarholtsmegin) í kvöld kl. 20.
Þetta er önnur málverkasýning
Evu en fyrsta sýning hennar var í
Halldórskaffi í Vík í Mýrdal sum-
arið 2000. Eva Dögg er fædd og
uppalin á Vatnskarðshólum í Mýr-
dal en býr nú í Vík. Eftir að Eva
lauk barnaskólanámi frá Ketils-
staðaskóla og síðar Vík fór hún í
Menntaskólann á Laugarvatni. Fór
þar á námskeið hjá Helgu Árnadótt-
ur myndmenntakennara. Eftir að
hafa lokið stúdentsprófi þaðan hóf
hún nám í fornámsdeild Myndlista-
og handíðaskólans og var þar einn
vetur. Þá lá leið hennar í Þroska-
þjálfaskólann en þaðan útskrifaðist
hún 2001. Jafnframt námi þar hefur
hún verið í myndlistarnámi hjá
Bjarna Jónssyni listmálara.
Myndirnar sem Eva sýnir núna
eru unnar á síðastliðnum tveimur
árum. Sýningin er sölusýning og
mun standa fram í desember.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Eva Dögg Þorsteinsdóttir með
eina af myndum sínum.
Eva Dögg
sýnir í „Unique“
Fagradal. Morgunblaðið.
MAGNÚS Diðrik Baldursson heim-
spekingur flytur fyrirlestur í Listahá-
skóla Íslands, Laugarnesvegi 91, kl.
12.30 á mánudag. Fyrirlesturinn ber
heitið „Dvöl. Hugleiðingar um fagur-
fræðilega reynslu, tíma og hamingju“.
Jóhannes Þórðarson arkitekt flytur
fyrirlestur á miðvikudag kl. 12.30 sem
hann nefnir „Svona gerum við“.
Námskeið í vefsíðugerð hefst í
Skipholti 1 á mánudag. Kennari er
Katrín Sigurðardóttir myndlistar-
maður. Þá verður námskeið ætlað
byrjendum sem vilja kynna sér eig-
inleika efnis, lita og pappírs og hefst
það 27. nóvember. Kennari er Hrafn-
hildur Sigurðardóttir myndlistarmað-
ur. Þá hefst námskeið í búningahönn-
un 27. nóvember. Námskeið er
samvinnuverkefni Þjóðleikhússins og
Listaháskólans. Kennari er Þórunn
María Jónsdóttir búningahönnuður.
Fyrirlestur og
námskeið í LHÍ
HÁTÍÐARSÝNING á kvikmynd
Ágústs Guðmundssonar Mávahlátri
verður í Bæjarbíói í Hafnarfirði í dag
kl. 15, en kvikmyndin var öll tekin
upp í Hafnarfirði.
Hátíðarbíó
LEIKNAR, íslenskar þáttaraðir í
sjónvarpi, hafa oft valdið vonbrigðum,
þó ljós sé að finna í myrkrinu, sbr.
Heilsubælið á sínum tíma. Af og til
dregur ský frá sólu og þremenning-
unum, leikstjóranum Óskari Jónas-
syni og handritshöfundunum Árna
Þórarinssyni og Páli Kristni Pálssyni,
tekst laglega upp í sakamálamynda-
röðinni 20/20, sem flutt var sunnu-
dagskvöldin 14., 21., 28., okt., og lau.
4. nóv. U.þ.b. 4 x 20 mín., og slagaði
því hátt upp í styttri kvikmyndasýn-
ingartíma.
Árni og Páll sviðsetja morð í tæt-
ingslegri mannlífsflóru Kolaportsins
þar sem ekki síst ægir saman fólki
sem búið er að missa af farseðlinum á
fyrsta farrými lífsins, tekið að snjást
og lýjast líkt og varningurinn sem þar
er á boðstólum. Persónurnar tengjast
flestar mannhrakinu sem endar auma
ævi sína með rýting í hjartastað. Þó
svo þær þekkist, og sumar vel, sjá
flestar persónurnar hver aðra í nýju
ljósi undir framvindunni; lengi má
manninn reyna.
Í fyrstu þremur þáttunum sáum við
atburðarásina frá jafnmörgum sjón-
arhornum, persónurnar rokka úr að-
al- í aukahlutverk, og öfugt. Þetta er
sundurleitur hópur úr hversdagsleik-
anum; hafa misstigið sig margir
hverjir, horfið á náðir skransölu og
flóamarkaðshyggju, ekki allir með
hreint mjöl í pokahorninu. Þarna er
lögreglumaður (Sigurður Skúlason)
og vafasamur kaupsýslumaður, bróð-
ir hans (Júlíus Brjánsson), ásamt
móður þeirra (Margrét Ólafsdóttir).
Þeir eru að leita að sjónvarpi handa
gömlu konunni. Auk þess þarf hún á
nýjum gleraugum að halda, þaðan fá
þættirnir nafn sitt (20/20 = fullkomin
sjón), sem höfðar einnig til þess að
ekki er allt sem sýnist í þessum heimi.
Dóttir nýbúa, (Lára Thuan Hansdótt-
ir), er að undirbúa giftingu sína og
ungs manns (Halldór Gylfason), móð-
ir hennar átelur stúlkuna fyrir að
þekkja ekki manninn nógu vel til að
bindast honum, sem kemur á daginn.
Þarna eru nýuppþurrkaðir dópistar
og brennivínsfólk í baráttu við fíkn-
ina, kvensemina, afbrýði og öfund.
Dópsalinn X (Jóhann Hauksson),
birtist á svæðinu og kemur róti á
mannskapinn, hann er hættulegri lífs
en liðinn; því fer sem fer.
Óskar heldur vel utanum morðgát-
una, mannræfillinn er myrtur í fyrsta
þætti og grunurinn beinist að velflest-
um aðalpersónunum. Höfundunum
tekst mæta vel að leyna þvíhver er
morðinginn uns málið skýrist á loka-
mínútunum. Sá sem einn veit lausnina
er Lilli (Hjalti Rúnar Jónsson), ungur
strákur sem hefur verið að væflast
með fimmþúsundkall á milli hand-
anna út alla þættina; skýring fæst
einnig á því í lokin. Gátan leysist um
leið og þetta lokaða rými, sjúskað og
marsipan-, hákarls-, kleinuhringja-,
rikklingsþefjandi Kolaportið, opnast
út í sólskinið.
Gátan er í sjálfu sér ekkert yfir-
máta flókin en dugar vel til síns
brúks; heldur áhuga áhorfandans
vakandi, auk þess sem hún minnir á
að ekki er allt sem sýnist í grámósku
hversdagsins. Sú tilraun Árna og Páls
að fjölga sjónarhornum, víkka sjón-
arsviðið á breiddina frekar en lengd-
ina, er nýstárleg, kröfuhörð og geng-
ur í alla staði vel upp. Persónurnar
vakna til lífsins í óaðfinnanlegum leik-
hóp, sá sem stjórnaði honum og valdi
saman á sannkallaðan heiður skilinn.
Haddi G. og Jón Sigurbjörnsson eru
kannski fremstir meðal jafningja, en í
rauninni er ekki veikan punkt að finna
í leiknum. Á sama máta er umhverfið,
Kolaportið, skemmtilega nýtt sem
rammi utan um válega atburðarásina.
Kolaportið er hálfgert einskismanns-
land, að vissu leyti utan laga og réttar
viðskiptalífsins og normsins í mannlíf-
inu. Óskar samhæfir kjaftinn skelinni.
Myndavélin dregur upp vel við eig-
andi hliðar og portrett úr þessu gall-
eríi almúgans og KK slær undir hár-
réttu tónana. Farið er með okkur í
skoðunarferð inní áreitna, framandi
veröld, sem þó er í hjarta borgarinn-
ar.
Morð á
markaðnum
SJÓNVARP
S a k a m á l a m y n d
Leikstjóri: Óskar Jónasson. Hand-
rit: Árni Þórarinsson og Páll Krist-
inn Pálsson. Kvikmyndataka: Karl
R. Lilliendahl. Hljóðupptaka: Einar
Sigurðsson. Leikmynd og munir:
Gunnar Baldursson, Atli Geir Grét-
arsson. Tónlist: Barði Jóhannsson
og KK. Aðalleikendur: Sigurður
Skúlason, Júlíus Brjánsson, Mar-
grét Ólafsdóttir, Hjalti Rúnar Jóns-
son, Védís Hervör Árnadóttir, Har-
ald G. Haralds, Ragnheiður
Steindórsdóttir, Hafdís Huld
Þrastardóttir, Ingvi Mng Van Le,
Lára Thuan Hansdóttir, Edda Thu
Thi Nguyen, Jóhann Hauksson,
Halldór Gylfason, Linda Sif Þor-
láksdóttir, Rúnar Freyr Gíslason,
Sigurveig Jónsdóttir, Guðrún
Stephensen, Jón Sigurbjörnsson,
Ólafía Hrönn Jónsdóttir.
Sjónvarpið, okt.– nóv. 2001
20/20
Sæbjörn Valdimarsson
MARGRÉT Jónsdóttir listmálari
opnar einkasýningu í Listasafni
ASÍ í dag kl. 16. Hún sýnir í báðum
sölum safnsins, Ámundarsal og
Gryfjunni. Sýningin nefnist In
memoriam og er tileinkuð nýlátn-
um ættingjum Margrétar sem
höfðu áhrif á hana sem listamann,
þeim Jóhönnu Hannesdóttur móður
hennar og Guðmundi Benedikts-
syni myndhöggvara, föðurbróður
hennar.
Margrét hefur verið afkastamikil
á sýningarvettvangi og haldið
margar einkasýningar og fjölda
samsýninga bæði hér og erlendis í
þau 27 ár sem hún hefur starfað
sem listamaður. Margrét sýndi síð-
ast árið 1999 og var þá með tvær
stórar einkasýningar í Gerðarsafni
og Hafnarborg á sama árinu. Sagt
er að verk hennar séu mikil um-
fangs, víðfeðmir flekar sem jaðri
við yfirstærðir og að hún fari ekki
troðnar slóðir í listsköpun sinni né
hlaupi á eftir tískustraumum, held-
ur þrói persónulega tjáningu og
glími við einfaldleikann.
Undanfarin fjögur sumur hefur
hún dvalist í París við listsköpun.
Verkin sem hún sýnir að þessu sinni
eru afrakstur Parísardvalar henn-
ar. Verkin eru unnin út frá hugleið-
ingu um lífið og verðmætamat okk-
ar og eru unnin með eggtemperu
og olíulit á pappír.
Sýningin stendur til 25. nóv. frá
kl. 14–20. Lokað mánudaga.
Margrét Jónsdóttir í Listasafni ASÍ.
Hugleiðingar
um lífið
ORÐ handa Megasi í Nýló er yfir-
skrift málþings í Nýlistasafninu í
dag kl. 14. Viðburðurinn er liður í
listþinginu Omdúrman: Margmiðl-
aður Megas í Nýló, samstarfsverk-
efni Kistunnar (kistan.is) og Nýlista-
safnsins. Þeir sem leggja til orð eru:
Birna Þórðardóttir, Gunnar Her-
sveinn, Jón Proppé, Óttar Guð-
mundsson, Kristín Ómarsdóttir,
Þórunn Valdimarsdóttir, Skafti Þ.
Halldórsson, Vigdís Grímsdóttir og
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir. Í
fyrirlestrum verður m.a. fjallað um
tengsl Megasar við aðra höfunda, ís-
lenskar viðtökur á verki Megasar,
ljóðagerð Megasar og ýmislegt
fleira.
Leiðsögn um sýninguna
Geir Svansson, annar tveggja sýn-
ingastjóra sýningarinnar, verður
með leiðsögn um sýninguna á morg-
un, sunnudag, kl. 15.
Safnið er opið frá 12-17 og er að-
gangur ókeypis.
Orð handa
Megasi í Nýló
SIGRÚN Ögmundsdóttir opnar sýn-
ingu í sal félagsins Íslenskrar graf-
íkur, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu
17, í dag kl. 16. Sýningu sína nefnir
hún Verndarenglar 20x20.
Þetta er önnur einkasýning Sig-
rúnar en á henni eru 50 smámyndir,
unnar með blandaðri tækni.
Sýningin er opin fimmtudaga til
sunnudaga kl. 14–18 og stendur til 3.
desember.
Smámyndir hjá
Íslenskri grafík
ALÞÝÐUSPILARARNIR Menn
frá Kleifum halda söngkvöld í Vest-
urporti v/Vesturgötu í kvöld kl. 23.
Menn frá Kleifum eru sjö frændur
ættaðir frá Kleifum í Ólafsfirði. Þeir
halda uppi áralangri söng- og tónlist-
arhefð, sem þaðan er runnin. Flutt
verða íslensk alþýðulög og nokkur
eftir þá félaga.
Söngkvöld
í Vesturporti
Listasafn Reykjavíkur –
Kjarvalsstaðir
Leiðsögn verður um sýningu
Kristjáns Guðmundssonar í Lista-
safni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum
á morgun, sunnudag, kl. 15., en það
er jafnframt lokadagur sýningarinn-
ar. Á sýningunni eru verk eftir
Kristján sem spanna allan feril hans,
allt frá upphafi Súm-tímabilsins til
dagsins í dag.
Listasalurinn Man,
Skólavörðustíg
Málverkasýningu Guggu, Guð-
bjargar Hákonardóttur, í Listasal
Man, Skólavörðustíg 14, lýkur á
morgun. Sýningin er opin á opnunar-
tíma verslunarinnar Man, og laug-
ardaga og sunnudaga frá 14-18.
Sýningarlok
og leiðsögn
BIRGIR Sigurðsson myndlistar-
maður opnar sýningu í Listamið-
stöðinni Straumi, sunnan Álversins, í
dag kl. 16. Sýningin ber yfirskriftina
Ástin og lífið og samanstendur af
þremur þáttum: Ljósmyndum, ljós-
verki og póstkortum. Verkið er til-
raun höfundar til að dýpka skilning
sinn og annarra á ástinni og lífinu.
„Verkið byrjaði sem lítil hugmynd
fyrir fjórum árum. Það hefur verið
að vaxa og þróast síðan og mun end-
anlega öðlast sjálfstætt líf þegar
sýning mín verður opnuð,“ segir
Birgir.
Sýningin stendur til 25. nóvember.
Við opnuna mun Skrokkabandið
leika lög af óútgefnum geisladiski.
Bandið skipa þeir Kristján Pétur
Sigurðsson og Haraldur Davíðsson.
Listsýning
í þremur þáttum
Í PAKKHÚSINU á Höfn stendur
nú yfir ljósmyndasýning. Sýningin
nefnist Kaldal – aldarminning en þar
eru um 60 ljósmyndir eftir Jón Kal-
dal. Sýningin kemur frá Þjóðminja-
safni Íslands. Hún er opin laugardag
og sunnudag kl. 14–18.
Kaldal á Höfn
VETRARSÝNING Listasafns Sig-
urjóns Ólafssonar, sem opnuð er í
dag er tvískipt. Annars vegar eru
tímamótaverk Sigurjóns Ólafssonar
frá ýmsum skeiðum á listferli hans
og hins vegar frjáls verk þar sem
listamaðurinn gaf ímyndunaraflinu
lausan tauminn.
„Í neðri sal safnsins eru sýnd
þekkt öndvegisverk sem veita sýn-
ingargestunum góða innsýn í hin
fjölbreyttu viðfangsefni listamanns-
ins, svo og ólík vinnubrögð, sem réð-
ust af þeim efniviði sem notaður var
í hvert skipti. Þannig vann Sigurjón
af sömu snilld hvort sem hann mót-
aði andlitsmynd í leir, hjó í stein eða
tálgaði í tré,“ segir Birgitta Spur,
forstöðumaður listasafnsins.
„Síðustu tíu ár ævinnar vann Sig-
urjón fjölda verka í tré, bæði í reka-
við, límtré og harðvið. Mörg þessara
verka eru talin meðal lykilverka
hans, og hafa oft verið á sýningum,
bæði hér á landi og erlendis. Aðrar
trémyndir mætti flokka sem
skemmtilegar hugmyndir og hug-
dettur, sem listamaðurinn útfærði í
efni sem hendi var næst: trjáboli,
greinar, rekavið. Það eru slíkar
myndir sem nú má sjá á efri hæð
safnsins undir heitinu Kynlegir
kvistir. Hið prímitíviska myndmál
er áberandi og má rekja það til
fyrstu formtilrauna Sigurjóns á
fjórða áratugnum sem var liður í leit
framúrstefnulistamanna að nýju
myndmáli. Það má eflaust flokka
efniviðinn í mörgum myndanna und-
ir heitinu objet trouvé eða fundinn
hlutur, en þó bera þessi verk sterk
höfundareinkenni listamannsins.“
Fram til 25. nóvember er safnið
opið um helgar milli kl. 14 og 17.
Safnið er lokað í desember og jan-
úar. Tekið er á móti hópum utan
þess tíma sem opið er samkvæmt
beiðni.
Vetrarsýning í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar
Sigurjón Ólafsson: Ellin, tré,
139 x 60 x 58.