Morgunblaðið - 10.11.2001, Side 63
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001 63
Sölusýning -
sölusýning
á nýjum og gömlum, handhnýttum austurlenskum
gæðateppum á Grand Hóteli við Sigtún
gsm 861 4883
Ný sending af teppum
á mjög góðu verði
10%
staðgreiðsluafsláttur
Í dag, laugardag 10. nóv. kl. 12-19 og
á morgun, sunnudag 11. nóv. kl. 13-19
MÉR er ljúft að fjalla lítillega um
erindi sem Gísli Óskarsson bar upp í
stuttu bréfi til blaðsins á sunnudag-
inn. Helsta umkvörtunarefni hans
var að dýrara væri að fljúga héðan
frá Íslandi til Bangkok en bæði frá
Seattle og Brussel. Um það þarf
ekki að fjölyrða því þó Gísli fari
rangt með flugtíma, verð, breytinga-
gjald og beri saman ólíka hluti þá er
það rétt hjá honum; það er hægt að
finna ódýrari fargjöld frá þessum
borgum.
En er samanburðurinn sann-
gjarn? Þessar milljónaborgir eru
annars vegar ein helsta miðstöð
stjórnmála og viðskipta í Evrópu og
hins vegar ein helsta samgöngumið-
stöðin milli Asíu og Norður Amer-
íku. Þeir sem ekki búa í heimsborg-
unum þurfa allir greiða eitthvað
fyrir að komast þangað. Við Íslend-
ingar hikum sjaldan við að bera
flugsamgöngur hér samann við það
sem best gerist í London, París eða
New York (eða Seattle eða Brussel).
Hollt væri stundum að bera okkur
saman við ámóta fámenna staði og
afskekkta.
Hvernig eru t.d. flugsamgöngur
frá Þrándheimi í Noregi eða St.
Johns á Nýfundnalandi, en þær eru
báðar um 150 þúsund manna borgir
í drjúgri fjarlægð frá stórborg? Það
eru næstu „sambærilegir markaðir“
við Ísland til austurs og vesturs. Frá
þessum stöðum er hreint ekki
þægilegra og ódýrara að komast til
Bangkok en héðan. Frá Reykjavík
er reglulegt áætlunarflug til Óslóar,
Kaupmannahafnar, Stokkhólms,
Amsterdam, Parísar, Frankfurt,
London, Glasgow, New York, Bost-
on, Minneapolis, Baltimore og Or-
lando. Frá Þrándheimi er flogið til
Kaupmannahafnar auk innanlands-
flugs.
Sömu evrópsku samkeppnisregl-
ur gilda hér á Íslandi og í nágranna-
löndunum, en þær þýða að öllum
flugfélögum er frjálst að fljúga milli
Íslands og annarra landa en engu
ber skylda til þess. Valið er frjálst
líkt og hjá farþegunum. Flugleiðir
nýta þetta frelsi til að bjóða Íslend-
ingum hagkvæmar flugsamgöngur
allt árið. Aðrir gera það ekki.
Í fluginu gilda lögmál framboðs
og eftirspurnar og Flugleiðir reyna
eins og önnur fyrirtæki stöðugt að
finna rétta meðalveginn í verð-
lagningu – að hafa verðið nægilega
lágt til að laða fólk að þeirri þjón-
ustu sem fyrirtækið býður, en nægi-
lega hátt til að greiða útlagðan
kostnað. Verðið tekur því breyting-
um frá einum tíma til annars en
meðalverð fargjalda hjá Flugleiðum
hefur lækkað mjög á undanförnum
árum á meðan kostnaður hefur
hækkað. Sjálft flugið verður stöðugt
lægra hlutfall af ferðakostnaði fólks,
eins og allir þekkja.
Ísland er mikilvægasti markaður
Flugleiða, en samt eru Íslendingar
minnihluti þeirra 1,5 milljóna far-
þega sem Flugleiðir flytja árlega.
Starf félagsins á alþjóðavettvangi
skapar meirihluta tekna þess og er
sá grunnur sem stendur undir mik-
illi tíðni ferða til og frá Íslandi. Til
að sýna hversu ótrúlega vel við Ís-
lendingar stöndum þegar kemur að
flugsamgöngum vil ég biðja Morg-
unblaðið að birta mynd þar sem bor-
ið er saman umfang flugrekstrar í
Evrópulöndum. Hún segir allt sem
segja þarf um það afrek sem starfs-
fólk Flugleiða hefur unnið á und-
anförnum árum og áratugum við að
byggja upp þessa atvinnugrein – og
um leið ánægjulega sögu um að
landsmenn kjósa að skipta við okk-
ur. En því miður segir hún einnig
hvers vegna samdráttur í flugi og
ferðaþjónustu í kjölfar hryðjuverk-
anna getur haft miklu alvarlegri af-
leiðingar fyrir Ísland en önnur lönd
Evrópu. Við höfum svo langtum
meiru að tapa en aðrir.
GUÐJÓN ARNGRÍMSSON,
upplýsingafulltrúi Flugleiða.
Um Flug-
leiðir
Frá Guðjóni Arngrímssyni:
C1/'&6>)1 !0!) ##!0 ,!BBB
9 *//
7-66 #$
9 6 #$
" 16 #$
"6%&
''6 #$
' #$# *&
./1. &'
+0##
4L/' 6 #$
91 6&
*+! !$ *-
*./0,
*1 / ,
*# ) 12) 3 #04,
*-
$
,
*1 +
5$,
*-1-,
*1
1! $,
*-6
*/
,
*1!
!
,
FIHGB!')!0!) ##
AIAD!')!0!) ##
HIEDE!')
DIBE3!')
I33E!')
IEG3!')
IA3E!')
IAG!')
IF!')
IG3!')
IG!')
AE3!')
9
*+! 7!
, 6-%# !/C1/'&6>)1 !0!* #!&8? ! &'/
Á ALÞINGI okkar eru nú of fáir
menn sem vilja breyta þjóðfélaginu,
og of margir sem vilja breyta sínum
eigin aðstæðum. Þú hefur sýnt það á
þínum þingmannsferli að þú vilt
breyta þjóðfélaginu, og það í átt til
frelsis.
Þín kynslóð er alin upp í landi þar
sem beinasta leiðin að auði hefur
verið í gegnum einhverskonar for-
réttindi, svo sem innflutningsleyfi,
hermang, apótekaraleyfi og gjafa-
kvóta. Fáir hafa þó saknað þeirra
forréttinda sem afnumin hafa verið.
Núna, undir lok þíns þingmanns-
ferils, hefur þú loks tækifæri til að
gera tilraun til að afnema seinustu
foréttindin, gjafakvótann.
Þú ert frumkvöðull, stofnandi
Kaupþings, og veist að í frjálsum
löndum eins og Bandaríkjunum eru
það slíkir menn sem keyra áfram
hagvöxt. Engir frumkvöðlar komast
inn í útgerð á Íslandi nú. Það er mikil
fórn því Ísland er þó eitt af fáum
löndum í heiminum þar sem útgerð
er eitthvað annað og meira en tóm-
stundagaman. Nýliðar væru líkleg-
astir til að gera þá miklu þekkingu
sem hér er til staðar að útflutnings-
vöru.
Að óbreyttri stjórnarskrá mun
ekki vera hægt að færa eignarhald
gjafakvótans varanlega til handhafa
hans, það hefur Hæstiréttur stað-
fest. Í kerfi gjafakvótans mun út-
gerðin því sífellt búa við þá óvissu að
næsta ríkisstjórn taki af þeim gjafa-
kvótann. Það gerir alla útgerð mun
óhagkvæmari.
Það er til lausn á þessum vanda.
Með fyrningarleið opnast útgerð fyr-
ir nýliðum og óvissa minnkar stór-
lega, því næsta ríkisstjórn mun ekki
geta tekið kvóta sem leigður hefur
verið á markaði. Þetta mun stórlega
auka hagkvæmni í rekstri.
Samkvæmt stjórnarskrá ert þú
sem þingmaður aðeins bundinn af
þinni sannfæringu. Við sem kusum
þig, og það sem þú stendur fyrir, vit-
um hver hún er.
Því spyr ég. Hvort verður að víkja,
stjórnarskráin eða samþykkt lands-
fundar Sjálfstæðisflokksins? Og,
hvernig mun sagan dæma gjafakvót-
ann? Hvernig mun sagan dæma þig?
GUÐMUNDUR ÖRN
JÓNSSON,
Laugalind 1, Kópavogi.
Opið bréf til Péturs Blöndal
Frá Guðmundi Erni Jónssyni: