Morgunblaðið - 10.11.2001, Qupperneq 67

Morgunblaðið - 10.11.2001, Qupperneq 67
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001 67 Hunang Vesturgötu 2, sími 551 8900 Vegna fjölda áskorana Smaladrengirnir Tónleikar í kvöld Ath. síðast var húsfyllir frá miðnætti sími 562 6470 Sveitarfélög - verktakar - fyrirtæki Ýmsir möguleikar við rýmis- og lagerlausnir. Kynntu þér möguleikana. Getum með stuttum fyrirvara afgreitt gámahús frá eftir þínum óskum. FLESTAR rokksveitir leitast við að spegla þá strauma sem viðgang- ast hverju sinni í dægurtónlistinni. En svo eru til hljómsveitir sem láta það vera að stressa sig yfir þess háttar hlutum. Sitja sælar og glað- ar í neti gamalla tíma og una sér þar vel, skeyta engu um vindana nýju sem blása um tónlistarlands- lagið og yrkja sín tímans föstu kvæði í friði og spekt (ef þetta er pínku upphafið þá er það með vilja gert). Pär Lindh Project er sannarlega ein af slíkum sveitum. Hljómsveitin spilar einungis tónlist í líkingu við þá sem King Crimson, Yes, Genes- is, Van Der Graaf Generator og Emerson, Lake og Palmer voru að fremja upp úr 1970, hið svokallaða framsækna rokk (e. progressive rock eða eða einfaldlega prog rock). Einkanlega eru áhrifin frá E.L.P greinileg, gnægð af tíu mín- útna orgelsólóum að hætti meist- ara Emerson og plöturnar, sem nú eru orðnar sex talsins, bera heiti eins og Mundus Incompertus, Rondo og Bilbo (sem er að sjálf- sögðu samin undir áhrifum frá sögu J.R.R. Tolkien, The Hobbit). Lagatitlar eins og „Mirkwood – Suite“ (sem innheldur kafla eins og „In the palace of the Elven King“ og „Laketown Fuge“), „Allegro Percussivo Flumeriso“ og „Baroq- ue Impression No. 1“ ættu að gefa einhverja hugmynd um hvað er í gangi hér. En ef þið haldið að þetta sé eitthvað grín þá er það fjarri sanni. Tilraun til að toppa Pepper Það er full ástæða til að grafast fyrir um rætur þeirrar stefnu sem Pär Lindh og kappar hans leggja svo listilega fyrir sig. Flestir rekja upphaf framsækna rokksins til meistarverks Bítlanna frá 1967, Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band, sem var byltingarkennd plata á ýmsan hátt. Bítlarnir voru brautryðjendur í því að toga og teygja rokkformið og kom því inn á nýjar brautir og er Pepper mjög skýr birtingarmynd þess. Þar er rokkið orðið eitthvað meira en dægurfóður, það er orðið „list- rænt“. Í kjölfarið fóru lögin að lengjast, textar urðu djúphugsaðir og öll umgjörð stærri og meiri. Fyrsta plata King Crimson, In the Court of the Crimson King (1969) var með fyrstu „alvöru“ progplötunum og næstu fimm ár einkenndust af tuttugu mínútna trommusólóum, klassískum minnum og þegar verst lét sneru nef upp í loft og allt- umlykjandi alvarlegheitin urðu nær óþolandi. En vissulega voru kostirnir líka til staðar; menn voru leitandi og uppáfinningasemin hjálpaði til við almenna framþróun rokksins. Er áttundi áratugurinn var tæp- lega hálfnaður var formið þó orðið afar uppskrúfað og upphafið. Jethro Tull gáfu út plötu árið 1972 sem innihélt eitt LANGT lag í tveimur hlutum (’72 var ár „progs- ins“) og árið 1974 gáfu Yes út Tal- es from Topographic Oceans (nafn- ið segir í raun allt sem segja þarf), plata sem bjó yfir öllu því besta/ versta í framsækinni rokktónlist þessa tíma. Platan var um leið eins konar jarðarfararsálmur stefnunn- ar, menn voru orðnir þreyttir á öll- um heilagleikanum í kringum þetta og tveimur árum síðar kom pönkið og gekk endanlega frá forminu. Allt í einu hafði það hundrað sinn- um meira vægi að heyra Ramones öskra „Hey, Ho; Lets Go!“ í stað þess að leggja sig eftir línum eins og „Plato’s spawn cold ivyed eyes/ Snare truth in bone and globe/ Harlequins coin pointless games/ Sneer jokes in parrot’s robe“? (á In the Wake of Poseidon með King Crimson ’70.) Saga Pär Lindh Pär Lindh Project var stofnuð árið 1995 eftir að þau Jocke Rams- ell, Nisse Bielfeld, Magdalena Hagberg og Pär Lindh höfðu unnið saman að plötunni Gothic Impress- ions. Fyrstu tónleikarnir voru svo haldnir árið eftir á Gothenburg Art-Rock Festival (hvar annars staðar?). Pär Lindh stofnaði samfélag framsækinna rokktónlistarmanna í Svíþjóð árið 1991 (The Swedish Art Rock Society). Í kjölfarið varð ein- hvers konar „prog“-rokk vakning þar í landi og nýjar sveitir spruttu upp. Áhugi fólks á „proggi“ hefur reyndar alltaf verið allnokkur, þó flestir læðist meðfram veggjum vegna þessa, svo hallærisleg hefur stefnan þótt. Hagur þessa hóps hefur þó vænkast nokkuð hin síðari ár. Lindh hóf feril sinn um 1977 og leiddi tríó á tíma sem lagði fyrir sig sinfónískt rokk, ekki ólíkt því sem sveit hans í dag gerir. Á þess- um árum var jarðvegurinn fyrir þess háttar þó fremur slæmur og Lindh sneri sér að öðru; starfaði sem kirkjuorganisti, píanóleikari, trommari, „harpsichord“-leikari og djassisti m.a. Um 1988 fór Lindh þó aftur að pæla í rokkinu. Hann hlustaði á gamlar E.L.P. plötur og fékk inn- blásturinn aftur, dröslaði gamla hammondinum út úr geymslunni og kom P.L.P. á laggirnar, Í dag hefur sveitin nóg á sinni könnu og ferðast um allan heim til að spila á hinum ýmsu hátíðum og tónleikum. „Proggið“ lifir því góðu lífi í dag, svei mér þá. Hljómleikar (með skrautflúruðu H-i) Pär Lindh Project verða tvennir og fara fram í dag, í hátíð- arsal MH. Fyrri tónleikarnir hefj- ast kl. 16 en þeir síðari kl. 20 og er miðaverð 2.200 kr. Dúndurfréttir hita upp og því ekki seinna vænna að fara að dusta rykið af King Crimson-plötunum sem liggja lík- ast til niðri í kjallara. Glæst, stórt og mikið Keith Emerson úr Emerson, Lake & Palmer. Pär Lindh úr Pär Lindh Project. arnart@mbl.is Hljómsveitin Pär Lindh Project frá Svíþjóð einbeitir sér að framsæknu rokki því sem tíðkaðist í byrjun áttunda áratugarins. Arnar Eggert Thoroddsen kynnir hér sveitina, auk þess sem hann skoðar sögu „proggsins“. Framsækna rokksveitin Pär Lindh Project á Íslandi Framsæknar rokkplötur sem allir verða að eiga: King Crimson – In the Court of the Crimson King (1969) Genesis – Foxtrot (1972) ELP – Trilogy (1972) Yes – Tales from Topographic Oceans (1974) Pär Lindh Project – Mundus Incompertus (1997)
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.